Morgunblaðið - 19.04.2011, Síða 32

Morgunblaðið - 19.04.2011, Síða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 2011 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Einar Snorri hóf hinn 16. apríl sl. að taka portrettmyndir af fólki gegn vægu gjaldi fyrir fyrirhugaða ljós- myndabók og mun halda portrett- myndatökunum áfram til og með 21. apríl. Þegar blaðamaður ræddi við hann í liðinni viku lá ekki fyrir hversu margar fyrirsæturnar yrðu, enda var Einar þá um það bil að hefjast handa við verkefnið. Þátt- takendur munu fá stórt eintak af portrettmyndinni auk geisladisks með völdum römmum úr myndatök- unni. En hvers vegna fer Einar þessa óvenjulegu leið, að lýsa eftir þátttakendum frekar en að velja þá sjálfur? „Í rauninni eru þetta bara þeir sem hafa áhuga. Fólk sem hefur áhuga á því að fá svona mynd af sér og eiga. Þetta er náttúrlega mynd sem fólk fær í stóru eintaki og get- ur rammað inn og átt,“ segir Einar. „Það eru allir teknir fyrir á sama hátt og ég er með smápælingu í sambandi við það. Þá felst styrkur í fjöldanum, það væri ágætt að ná 100-200 manns, þá kemur þessi heild sem hefur þessi áhrif sem ég er að leitast eftir.“ Burt með egóið Einar segir myndatökuna ekki hefðbundna, ekki myndatöku þar sem fólk komi og sitji fyrir með þeim hætti sem það sé vant í por- trettmyndatökum. Fyrirsæturnar verði berar að ofan og myndin tekin frá öxlum og upp úr. Myndirnar verði svarthvítar með gráum bak- grunni. „Fókusinn er á augunum, lítil fókusdýpt þannig að þegar þú horfir á myndina finnurðu votta fyr- ir uppsprettu þeirrar veru sem manneskjan er. Ég er að reyna að ná eins miklu hlutleysi og hægt er. Venjuleg manneskja er kannski full af egói eða hugmyndum um sjálfa sig eða hugmyndum sem aðrir hafa um hana,“ útskýrir Einar. Hann vilji komast í gegnum þau mörgu lög sem búi í hverri manneskju. „Ég er að reyna að ná þessari kyrrð sem er þarna á bak við. Þetta hljómar voða einfalt og er það nátt- úrlega,“ segir Einar. Ef myndatak- an væri ókeypis myndi hann líklega ekki ná til þeirra sem virkilega vildu taka þátt í svona verkefni. Það gæti farið úr böndunum. Einar seg- ist vonast til þess að sem flestir verði með, þeir sem virkilega vilji eiga svona mynd af sér og þekki til hans verka. Með því sé grundvöll- urinn réttur. „Þetta er tilraun. Kannski á hún eftir að virka voða vel eða kannski verður útkom- an óvænt.“ Þeir sem hafa áhuga á að nýta sér þetta tækifæri og láta mynda sig eru hvattir til að senda tölvupóst á krunkproduc- tions@gmail- .com. Einnig má kynna sér verkefnið á Facebook með því að slá inn í leit- arglugga „Portrait vika – Einars Snorra“. Tvær konur Björk og Sigga, myndir sem Einar Snorri tók um miðjan tíunda áratuginn og eru í svipuðum stíl og myndirnar sem hann mun taka næstu daga. Kyrrðin bak við augun  Ljósmyndarinn Einar Snorri lýsir eftir fólki í portrettmyndatöku  Í leit að einfaldleika og hlutleysi  Úrval ljósmyndanna mun enda í ljósmyndabók Ljósmynd/Einar Snorri Ljósmynd/Brynjar Snær Hlutleysi „Ég er að reyna að ná eins miklu hlutleysi og hægt er,“ segir Einar Snorri um portrettmyndir sínar.  Í kvöld kl. 20 verða haldnir tónleikar á Blúshátíð í Reykjavík á hótelinu Reykjavík Hilton Nor- dica. Hinn nýsextugi söngvari Björgvin Halldórsson mun spreyta sig á blúsnum auk Páls Rósinkranz og Blúsmafíunnar. Blúsmafíuna skipa Þórir Bald- ursson, Guðmundur Pétursson, Róbert Þórhallsson, Pálmi Sig- urhjartarson, Jóhann Hjörleifsson ásamt blásurum og bakröddum. Þá mun söngkonan Jóhanna Guð- rún blúsa með Elvari Erni Frið- rikssyni og hljómsveit sem sér- legir ungliðar hátíðarinnar. Hljómsveitin Ferlegheit kemur einnig fram og spilar blús. Morgunblaðið/Eggert Bo, Páll, Jóhanna og Elvar Örn blúsa  Nemendur á lokaári í mynd- listar-, hönnunar- og arkitekt- úrdeildum Listaháskóla Íslands afhjúpa útskriftarverk sín undir lok vikunnar á sýningu í Lista- safni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Veislan hefst með tískusýn- ingu útskriftarnema í fatahönn- un, fimmtudaginn 21. apríl kl. 20. Tveimur dögum síðar, 23. apríl, verður opnuð útskriftarsýning nemenda í myndlist, hönnun og arkitektúr, kl. 14. Sýningunni lýkur 8. maí og verður hún opin daglega frá kl. 10-17 en á fimmtudögum til kl. 20. Morgunblaðið/Ómar Útskriftarsýning LHÍ opnuð í Hafnarhúsinu  Evróvisjón-spekingurinn Páll Óskar Hjálmtýsson, mun halda sitt árlega og gríðarvinsæla Evr- óvisjón-partí á skemmtistaðnum Nasa 14. maí, sama kvöld og úr- slitkeppni Evróvisjón fer fram í Düsseldorf í Þýskalandi. Auk Páls munu stíga á svið íslenskar Evr- óvisjón-stjörnur, þau Stefán Hilm- arsson, Eyjólfur Kristjánsson, Selma Björns, Sigga Beinteins, Jó- hanna Guðrún, Helga Möller, Hera Björk og Sigrún Eva Ármans- dóttir. Morgunblaðið/Kristinn Stebbi, Eyfi, Sigga, o.fl. í teiti Palla Einar Snorri er margreyndur ljós- myndari og hefur komið að gerð fjölda tónlistarmyndbanda, aug- lýsinga og stuttmynda. Hann leik- stýrði m.a. stuttmynd fyrir Live Earth-tónleikana sem voru haldnir víða um heim í júlí árið 2007 og tónlistarmyndbandi við lagið „Day Sleeper“ með hljómsveitinni R.E.M. sem hann gerði með fé- laga sínum í fyrirtækinu Snorri Bros., Eiði Snorra. „Ég hef alltaf verið að taka myndir en ekki beint eins og fyrstu árin, frá 1991- 2000, eða þar um bil. Þá var ég meira að taka myndir af alls konar hljómsveitum og listafólki fyrir tímarit,“ segir Einar. Einar átti lengi samstarf við Eið Snorra og vakti dúóið Eiður og Einar Snorri býsna mikla athygli á sín- um tíma, á árunum 1991-1995, fyrir ljósmyndir sínar og blaða- útgáfu. Félagarnir gáfu út Extra- blaðið og tímaritið Hamingju en þau fjölluðu um listir og menn- ingu og var ætlað að höfða til ungs fólks. Einar hefur starfað bæði í New York og Berlín til fjölda ára og í Berlín vann hann m.a. að stutt- mynd fyrir myndlistarmanninn Ólaf Elíasson, tók hana og klippti, á síðasta ári. „Maður er opinn í allar áttir,“ segir Einar kíminn. R.E.M., Live Earth og Ólafur FJÖLBREYTTUR FERILL Ólafur Elíasson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.