Morgunblaðið - 26.04.2011, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 6. A P R Í L 2 0 1 1
Stofnað 1913 96. tölublað 99. árgangur
BJARTSÝNI OG
ÆVINTÝRALEGT
DRAUMALÍF
UMDEILD 15
METRA REGLA
VIÐ SORPLOSUN
ARNAR DAVÍÐ
EVRÓPUMEIST-
ARI Í KEILU
TEKUR SENN GILDI 12 STEFNIR HÆRRA ÍÞRÓTTIRHAMINGJA 10
Kvörtun vegna aðgerða stjórnvalda
í kjölfar gengislánadómanna svo-
kölluðu hefur verið send til Eftirlits-
stofnunar EFTA (ESA). Telja þeir
sem að kvörtuninni standa að að-
gerðirnar brjóti í bága við grund-
vallaratriði evrópsks neytendarétt-
ar.
Það eru Hagsmunasamtök heim-
ilanna, Samtök lánþega og um þús-
und einstaklingar sem rita undir
kvörtunina, en talsmaður hópsins er
hæstaréttarlögmaðurinn Björn
Þorri Viktorsson. „Fólki er ætlað að
taka á sig afturvirka vexti, allt upp í
21% á ársgrundvelli vegna tímabila
sem löngu er búið að greiða fyrir og
gera upp. Þetta gengur algerlega
gegn þeirri grundvallarhugsun að
neytendur eigi að vita í upphafi þeg-
ar þeir gangast undir samninga,
hver samningskjörin eru.“
Hann segir málið einnig varða
Evrópusambandið þar sem tveir að-
standenda kvörtunarinnar séu frá
ríkjum innan ESB. »4
Gengislánin til ESA
Aðgerðir stjórnvalda þungamiðja kvörtunar sem send hef-
ur verið til ESA Um þúsund manns rita undir kvörtunina
Íþyngjandi lagasetning
» Hópurinn telur málið varða
Evróputilskipun 93/13/EC þar
sem brotið sé á neytenda-
rétti.
» Hann segir vernd eignar-
réttar sniðgengna með lögum
í kjölfar gengislánadóma hér
á landi að undanförnu.
Framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags Íslands segir svo þröngt í búi hjá
hluta íbúa í öryrkjablokkunum í Hátúni í Reykjavík að þeir hafi ekki leng-
ur efni á að hreyfa bílinn. Einn íbúanna, sem vildi ekki láta nafns síns getið,
sagði suma bílana aðeins hreyfast úr stæðinu um mánaðamótin. »2
Akstur orðinn að lúxus
Morgunblaðið/Ómar
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Þeir sem virkilega þurfa á bílum að
halda eru í verulegum vandræðum.
Sumir hafa ekki lengur efni á að aka
bílnum. Það er alveg sama hvernig
neysluviðmið ríkisstjórnarinnar eru
skoðuð. Öryrkjar eru þar langt fyrir
neðan,“ segir Guðmundur Magnús-
son, framkvæmdastjóri Öryrkja-
bandalags Íslands, um þá staðreynd
að eldsneytiskaup eru orðin tekju-
lægstu öryrkjunum ofviða.
Margir eiga heldur ekki fyrir mat.
„Fólk leitar eftir ókeypis mat hjá
vinum og kunningjum til að draga
fram lífið. Sumir eiga þess ekki kost.
Það eru heldur ekki allir sem treysta
sér í matarraðir. Ég myndi því ætla
að hundruð Íslendinga svelti á árinu
2011,“ segir Guðmundur.
Björn Arnar Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Brynju, hússjóðs Ör-
yrkjabandalagsins, skýrir nýlega
hækkun á húsaleigu svo: „Allir leigu-
samningar eru tengdir vísitölunni.
Þetta þarf að haldast í hendur við
skuldir sjóðsins hjá Íbúðalánasjóði,“
segir Björn Arnar.
Helmingur tekna í húsaleigu
Spurður um leigukostnað í Hátúni
svarar Björn Arnar því til að leigan
fari hæst upp í ríflega 60.000 krónur
á mánuði fyrir tveggja herbergja
íbúð, að teknu tilliti til hússjóðs og
húsaleigubóta. Ekki sé óraunhæft að
ætla að lægstu tekjur séu 120.000 kr.
á mánuði eftir skatta.
„Við höfum reynt að halda leig-
unni niðri en eigum enga sjóði til að
niðurgreiða hana. Félagið er rekið
án hagnaðar og hefur verið rekið
með tapi síðustu þrjú ár vegna verð-
bólgunnar. Kjör öryrkja hafa versn-
að töluvert á síðustu þremur árum,
fyrst og fremst vegna þess að bæt-
urnar hafa ekki fylgt verðlagi. Síðan
hafa húsaleigubæturnar ekki hækk-
að síðan 1. janúar 2008 þótt mikið
verðbólguskeið hafi tekið við.“
MSegir stóran hóp »4
Hafa hvorki
efni á mat
né bensíni
Neyðarástand ríkir hjá hluta öryrkja
Forysta ÖBÍ áætlar að hundruð svelti
„Mér finnst
umræðan dálítið
merkileg ef það
er andinn á árinu
2011 að það séu
stjórnvöld sjálf
sem eigi að
skapa störfin. Er
það umræðan en
ekki hitt að við
séum að hamast
við að skapa skil-
yrði sem geta síðan orðið til þess að
störf skapist vítt og breitt með fjöl-
breyttum hætti um allt hagkerfið?“
segir Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra, aðspurður um gagn-
rýni á meint aðgerðaleysi stjórn-
valda í atvinnumálum.
„Þar höfum við óumdeilanlega
náð miklum árangri,“ segir Stein-
grímur sem bendir á ýmis átaks-
verkefni þegar atvinnuleysi á
Suðurnesjum ber á góma. »6
Tímaskekkja að
ríkið skapi störfin
Steingrímur
J. Sigfússon
Þétt og óhappalaus umferð var til
borgarinnar utan af landi allan
daginn í gær, þar sem fólk var á
leið til síns heima eftir páskana.
Talning Vegagerðar gefur vísbend-
ingu um umferð. Kl. 20:30 í gær-
kvöldi höfðu um 7.600 bílar ekið
Kjalarnes á sólarhringnum og
5.300 Hellisheiði. Það er mikið en
þó fjarri öllum metum.
„Það hefur verið mikil umferð
hér í gegnum bæinn í dag. Færið er
gott og á Holtavörðuheiði rignir.
Þetta hefur verið virkilega góð
ferðahelgi,“ sagði Símon Aðal-
steinsson á bensínstöð N1 í Borg-
arnesi við Morgunblaðið í gær-
kvöldi. sbs@mbl.is
Þétt umferð í bæinn
eftir páskahelgina
Bílar Umferð á Suðurlandsvegi í gærdag.
Morgunblaðið/Ómar
Björn Arnar Magnússon hjá Brynju, hússjóði Öryrkjabandalagsins, gagn-
rýnir Reykjavíkurborg harðlega og segir aðgerðaleysi hennar hafa bæst
við neikvæð áhrif af frystingu húsaleigubóta.
„Reykjavíkurborg hefur neitað að greiða sérstakar húsaleigubætur til
einstaklinga sem leigja hjá okkur. Borgin heldur því fram að við niður-
greiðum leiguna. Ég kannast ekki við það. Það eru aðeins einstaklingar á
almennum markaði og hjá Félagsbústöðum sem fá sérstakar húsaleigu-
bætur. Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) kærði þetta til innanríkisráðuneyt-
isins sem gaf út álit þar sem sagði að þetta stæðist ekki lög, að mismuna
fólki. Síðan hefur ÖBÍ sent bréf til borgarinnar en ekki fengið svör.“
Fá ekki svör frá borginni
ÞEIR EFNAMINNSTU ÞURFA MEIRI STUÐNING
Ótti breskra stjórnvalda við að dómur
gegn Íslandi í Icesave-deilunni geti
skapað bótakröfu á hendur þeim síðar
vegna falls breskra banka skýrir
hvers vegna þau hafa ekki beitt sér af
hörku fyrir því að deilan komi til
kasta dómara.
Þetta er mat Johns Dizard, dálka-
höfundar hjá Financial Times um ára-
tuga skeið, en hann fjallar þar um
lagarökin gegn því að íslenskum
skattgreiðendum verði sendur reikn-
ingurinn vegna tapaðra innistæðna á
Icesave-reikningum.
Dizard vitnar í
grein sinni í það
álit Tobiasar
Fuchs, sérfræð-
ings í lögum hjá
Evrópuháskól-
anum í Frankfurt,
að Ísland hafi ekki
brotið gegn
ákvæðum tilskip-
unar Evrópuþingsins og ráðsins um
innlánatryggingarkerfi. Þá bendir
Dizard á að Evrópudómstóllinn hafi
úrskurðað gegn ríkisábyrgð. »6
Bretar forðast
dómsmál í Icesave