Morgunblaðið - 26.04.2011, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 2011
Nissan Navara
Árgerð 2008, ekinn 54.000 km
sjálfskiptur, 2.5 dísel, 4x4, ásett verð 3.990.00,-
Tilboð 3.590.000,-
HEKLA
NOTAÐIR
BÍLAR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Ég er að vonast til þess að eftir viku
til tíu daga fái ég fyrstu tillögur frá
starfshópnum sem við settum í gang
í lok mars. Þá mun ég skoða þær og
fer eftir atvikum með þær inn í ríkis-
stjórn en ég hef ekki viljað gefa nein-
ar væntingar um eitt né annað. Þetta
er vandi sem menn eru að glíma við
um allan heim,“ segir Steingrímur J.
Sigfússon fjármálaráðherra, að-
spurður hvenær niðurstaðna nýskip-
aðrar olíunefndar sé að vænta.
Krefjast lægri skatta
Sögulegt eldsneytisverð hefur
verið mikið til umræðu og um
helgina dró til frekari tíðinda er Vil-
hjálmur Egilsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulífsins, lýsti
yfir þeirri skoðun sinni að ríkið ætti
að lækka álögur á eldsneyti. Tók
hann þar með undir sömu kröfu Fé-
lags íslenskra bifreiðaeigenda frá því
nokkrum dögum áður. Þá hefur Gylfi
Arnbjörnsson, forseti ASÍ, viðrað
sambærileg sjónarmið nú nýverið.
Spurður um þessar kröfur bendir
Steingrímur á að „með örlitlum und-
antekningum virðast stjórnvöld víða
um heim ekki hafa treyst sér út í
beinar aðgerðir til þess að mæta
þessum verðhækkunum. Það er enda
óvíst að um tímabundið ástand sé að
ræða heldur hitt að menn þurfi að
búa sig undir að jarðefnaeldsneyt-
isverð verði hátt.“
– Í þínu kjördæmi, Norðaustur-
kjördæmi, hafa heimamenn bent á
að eldsneytisverðið sé farið að valda
óheyrilegum flutningskostnaði. Hef-
ur þú sem landsbyggðarmaður ekki
samúð með því sjónarmiði, að elds-
neytisverðið sé orðið of hátt?
Hefur vissulega áhyggjur
„Ég hef sérstakar áhyggjur af
þessu. Hátt olíuverð spilar inn í háan
flutningskostnað og var hann þó
nógu mikill fyrir. Ég nefni þá sér-
staklega framleiðslustarfsemi á
landsbyggðinni. Hún býr við stór-
skerta samkeppnisaðstöðu út af
háum flutningskostnaði.“
– Hvað með það sjónarmið að
tekjur ríkisins myndu aukast við það
að draga úr álögum vegna aukinnar
veltu á öðrum sviðum?
„Vandinn er nú sá að þó að ríkið
lækkaði sínar álögur um einhverjar
krónur á lítrann þá vegur það svo lít-
ið á móti þessum gríðarlegu hækk-
unum á innkaupsverði. Svigrúm rík-
isins til þess að mæta einhliða
þessari verðhækkun er afar tak-
markað öðruvísi en að það fari að
koma beint niður á tekjustofnum til
samgöngumála.
Veruleikinn er sá að skatthlutfall-
ið er komið talsvert niður fyrir 50%
og er langt frá því að vera það hæsta
í samanburðarlöndum. Það er fyrst
og fremst gríðarleg hækkun á inn-
kaupsverði sem hefur hleypt upp
verðinu núna,“ segir Steingrímur.
Bensínlækkun breytti litlu
Fjármálaráðherra telur að nokkurra króna lækkun á álögum á eldsneyti myndi
hafa lítil áhrif Búast megi við háu olíuverði Boðar skýrslu olíunefndar í maí
„Vandinn er nú sá að þó
að ríkið lækkaði sínar
álögur … þá vegur það
svo lítið.“
Steingrímur J. Sigfússon
„Nú ætti mesti hrollurinn að vera að baki því
spáin næstu daga gerir ráð fyrir suðlægum átt-
um, rigningu og hlýindum,“ segir Einar Svein-
björnsson veðurfræðingur. Snjór var yfir öllu í
höfuðborginni í gærmorgun enda þótt fólk sem
tók sitt venjubundna skemmtiskokk léti það ekki
slá sig út af laginu. Nokkrar sveiflur hafa verið í
veðráttunni síðustu daga, kaldir vindar frá
Grænlandsströndum hafa blásið að landinu þótt
aprílmánuðir hafi verið fremur hlýir, enda suð-
lægar áttir ríkjandi. Næstu daga má, að sögn
Einars, gera ráð fyrir fimm til tíu stiga hita með
rigningu um landið sunnanvert. Enn hlýrra
verður nyrðra þar sem vænta má góðrar tíðar og
grasa í túni jafnt sem úthaga.
Hrollurinn að baki og hlýindi eru í kortunum
Morgunblaðið/Ómar
Vélsleðamaðurinn sem lenti í byltu á Tröllafjalli í Áreyj-
ardal inn af Reyðarfirði á laugardag liggur slasaður á gjör-
gæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Er hann töluvert
brotinn en þó á batavegi, að sögn læknis.
Björgunarsveitir á Austurlandi sóttu manninn og var
hann fluttur til Reyðarfjarðar og á Egilsstaði og með
sjúkraflugi til Reykjavíkur.
Páskahelgin var nokkuð annasöm hjá björgunarsveit-
um. Nokkuð var um minni útköll, t.d. við að losa fasta bíla
úr sköflum og forarpyttum sem eru víða nú þegar frost fer
úr jörðu. Þannig fóru björgunarmenn úr uppsveitum Ár-
nessýslu á föstudaginn langa inn á Bláfellsháls á Kjalvegi
þar sem jeppamenn höfðu fest sig í slæmu færi.
„Þó allt sé hvítt yfir að líta er bloti í snjónum og það get-
ur villt um fyrir ferðamönnum. Bílar frá okkur sem voru
inni í Landmannalaugum komust hvorki lönd né strönd og
sömuleiðis gátum við ekkert hreyft snjóbíl. Það er margt
að varast,“ sagði Jónas Guðmundsson hjá Slysavarna-
félaginu Landsbjörg í samtali við Morgunblaðið í gær.
sbs@mbl.is
Vélsleðamaðurinn brotinn
en á batavegi á sjúkrahúsi
Morgunblaðið/Ómar
Sleðaferð Vélsleðafólk var víða um páska. Margt ber
að varast á útmánuðum, þegar bloti er kominn í snjó.
Páskaannir hjá björg-
unarsveitum víða um landið
„Atvinnurek-
endur hafa aldrei
gert athuga-
semdir við hverj-
ir skipi samn-
inganefndir
stéttarfélaga. Ég
vænti því að
fulltrúar launa-
manna séu ekki
með slíka íhlutun
í okkar mál,“ seg-
ir Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins. Formaður Rafiðnaðarsambands
Íslands krafðist þess í fréttum RÚV
í gærkvöldi að fulltrúar LÍÚ vikju
frá samningaborði aðila vinnumark-
aðarins. Útvegsmenn misnotuðu að-
stöðu sína og hefðu iðnaðarmenn að
fíflum í yfirstandandi kjara-
viðræðum.
Viðræður SA og ASÍ um nýjan
kjarasamning fóru út um þúfur fyrir
páska. Þreifingar hafa þó verið í
gangi og sérmál í viðræðum við
landssambönd hafa verið til lykta
leidd. Í dag munu atvinnurekendur
funda hjá ríkissáttasemjara með
Starfsgreinasambandinu.
Nokkru fyrir páska kynnti Starfs-
greinasambandið kröfugerð sína og
vill 15 þús. kr. launahækkun á mán-
uði og 4,5% hækkun hjá þeim sem
hafa yfirborganir. „Viðsemjendur
okkar hljóta núna að koma með
gagntilboð,“ segir Björn Snæbjörns-
son, formaður Starfsgreina-
sambandsins. sbs@mbl.is
Viðræð-
urnar af
stað á ný
Björn
Snæbjörnsson
SA skipa ekki í nefnd-
ir stéttarfélaga
„Það má segja
það, að hugs-
anlega sé að
vænta tíðinda.
En ég lofa engu,“
segir Atli Gísla-
son þingmaður,
aðspurður hvort
vænta megi
fregna af hugs-
anlegri fæðingu
nýs stjórnmála-
afls á vinstri vængnum í dag.
„Við erum að ræða pólitísk og
praktísk atriði. Það hafa margir ver-
ið í sambandi. Þetta er fólk úr öllum
flokkum, alveg ótrúlega margir.“
Tíðinda að
vænta í dag?
Atli
Gíslason