Morgunblaðið - 26.04.2011, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 2011
Heimsferðir bjóða frábæra 9 nátta ferð til Costa del Sol í vor. Í boði
er frábært sértilboð á Aguamarina íbúðarhótelinu með hálfu fæði,
sem var mjög vinsælt meðal farþega Heimsferða í fyrra. Ath. mjög
takmarkaður fjöldi íbúða í boði á
þessum kjörum.
Gríptu þetta frábæra tækifæri og
njóttu lífsins í vor á Costa del Sol á
ótrúlegum kjörum.
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til
leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Costa del Sol
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
- með hálfu fæði -
6. maí í 9 nætur
frá kr. 99.900
Verð kr. 99.900
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli
í 9 nætur í studio íbúð með hálfu
fæði á Aguamarina ***.
VIÐTAL
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Ástandið er skelfilegt. Það er
hneyksli að þessi ríkisstjórn skuli
kenna sig við velferð. Það er mjög
algengt að hingað komi fólk sem sér
ekki fram á að peningarnir endist út
mánuðinn. Ástandið hefur farið
hraðversnandi síðan hrunið varð.
Þetta er langsamlega alvarlegasta
staða sem ég hef séð síðan ég fór að
láta mig þessi mál varða á miðjum
áttunda áratugnum,“ segir Guð-
mundur Magnússon, framkvæmda-
stjóri Öryrkjabandalags Íslands,
um miklar þrengingar hjá þeim ör-
yrkjum sem minnstu tekjurnar
hafa.
Morgunblaðið sagði frá því í
marsbyrjun að dæmi væru um að
mæður úr hópi öryrkja ættu ekki
fyrir mat. Varð sú umfjöllun til þess
að nokkrir lesendur blaðsins buðust
til að gefa einstæðri móður á Ak-
ureyri mat.
Ráðherrar hafa daufheyrst
Aðspurður hvort þessi umfjöllun
hafi hreyft við stjórnvöldum segir
Guðmundur engin merki um það.
Ítrekað hafi verið gerð grein fyrir
alvarleika málsins á fundi með ráð-
herrum en ekkert gerst í kjölfarið.
„Mér finnst viðbrögðin mjög lé-
leg. Það er þöggun frekar en hitt.
Stjórnvöld byrjuðu á vitlausum
enda í niðurskurðinum. Þau byrjuðu
á því að skera niður hjá lífeyrisþeg-
um. Það var ekki byrjað á því að
fara í hátekjuskattinn. Það kom
seinna. Það hefur ekki verið gengið
jafn hart gegn þeim tekjuhæstu og
þeim sem minnst hafa. Það er held-
ur ekki hægt að tala um að stjórn-
völd hafi hlíft þeim allra tekju-
lægstu.“
Hafa 2.000 krónur á dag
– Hvernig er kaupmátturinn?
„Hann er langt fyrir neðan það
sem almennt gerist.“
– Ég fékk þær upplýsingar frá ör-
yrkja sem vildi ekki láta nafns síns
getið að dæmi væru um að öryrkjar
í blokkunum í Hátúni í Reykjavík
hefðu 60.000 kr. til að lifa út mán-
uðinn eftir að leigan er greidd, eða
2.000 kr. á dag. Getur þetta staðist?
„Já. Ég myndi ætla að það væru
mörg dæmi um það. Það er ekki
raunhæft að lifa af þessu. Fólk
leitar eftir ókeypis mat hjá vin-
um og kunningjum til að draga
fram lífið. Sumir eiga þess ekki
kost. Það eru heldur ekki allir
sem treysta sér í matarraðir.
Ég myndi því ætla að hundruð
Íslendinga svelti á árinu
2011.“
Segir stóran hóp
öryrkja svelta
Framkvæmdastjóri ÖBÍ er harðorður í garð stjórnvalda
Morgunblaðið/Ómar
Hátún Öryrkjabandalagið er með íbúðir í Hátúni en þar búa margir við mjög kröpp kjör. Bílar eru lítið hreyfðir.
Eftirmál gengislánadómanna svo-
kölluðu eru þungamiðja kvörtunar,
sem Hagsmunasamtök heimilanna
og Samtök lánþega hafa sent til Eft-
irlitsstofnunar EFTA (ESA), en
samtökin telja íslensk stjórnvöld
hafa brotið á Evrópurétti með fram-
kvæmd sinni. Auk ofangreindra
samtaka skrifa um þúsund einstak-
lingar undir kvörtunina.
„Við erum knúin til að fara þessa
leið þar sem íslensk stjórnvöld eru
að brjóta þá samninga sem íslenska
ríkið er skuldbundið til að efna skv.
EES-rétti, sér í lagi tilskipun 93/13/
EC um neytendavernd,“ segir Björn
Þorri Viktorsson hæstaréttarlög-
maður og talsmaður hópsins sem
stendur að kvörtuninni.
Hann segir þungamiðju kvörtun-
arinnar vera lagasetninguna í kjöl-
far svokallaðra gengislánadóma sem
féllu á síðasta ári. „Fólki er ætlað að
taka á sig afturvirka vexti sem eru
miklu hærri en það hefði nokkru
sinni skrifað undir vísvitandi, allt
upp í 21% á ársgrundvelli. Þetta er
vegna tímabila sem löngu er búið að
greiða fyrir og gera upp. Þetta
gengur algerlega gegn þeirri grund-
vallarhugsun að neytendur eigi að
vita í upphafi þegar þeir gangast
undir samninga, hver samningskjör-
in eru.“
Einnig beint til ESB
Björn Þorri segir að ekki aðeins
brjóti þetta í bága við umrædda
Evróputilskipun, heldur fari einnig
gegn íslensku stjórnarskránni, þótt
vissulega muni ESA ekki fjalla um
það atriði. „Í stjórnarskránni eru
ákvæði sem banna afturvirka laga-
setningu, sérstaklega þegar hún er
íþyngjandi. Ríkið má t.a.m. ekki
setja afturvirk skattalög og þess
vegna finnst okkur með ólíkindum
að fjármálafyrirtækjum sé heimilt
að reikna afturvirka vexti með slík-
um íþyngjandi hætti.“
Hann bætir því við að kvörtunin
hafi einnig verið send til fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins og forseta Evrópuþingsins. „Það
eru tveir evrópskir ríkisborgarar,
frá Spáni og Þýskalandi, aðilar að
þessari kvörtun og því má gera ráð
fyrir að Evrópusambandið sjálft taki
málið upp þar sem verið er að brjóta
gegn þeirra ríkisborgurum.“ Hann
segir að samkvæmt Kaupmanna-
hafnarsamkomulaginu frá 1993 sé
ein af grundvallarforsendum aðildar
að ESB, að umsóknarríki virði
grundvallarréttindi þegnanna. „Mál-
ið er því risastórt, ef tekið verður
tekið jákvætt á þessu erindi okkar.“
Björn Þorri segir málið snerta
alla gengislánaþega í landinu, alla
vega alla neytendur. Hann á von á
því að það taki ESA nokkra mánuði
að úrskurða í málinu. „Vonandi þó
ekki allt of marga.“ ben@mbl.is
Kvörtun vegna
gengislána
send til ESA
Vísa í tilskipun um neytendavernd
Morgunblaðið/Ómar
Neytendur Björn Þorri segir málið
varða alla gengislánaþega landsins.
Gott veður var síðdegis á Akureyri í gær, eftir heldur rysjótta tíð yfir
páskana. Opið var í Hlíðarfjalli flesta dagana og fjöldi gesta staddur í bæn-
um. Á „Dallavellinum“ svonefnda við Stóragerði og Dalsgerði voru nokkrir
piltar í fótbolta og ofan á markinu lágu þeir Úlfar Logi og Atli Björn.
Gott veður á Akureyri
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
„Allir leigusamningar eru tengd-
ir vísitölunni. Þetta þarf að hald-
ast í hendur við skuldir sjóðsins
hjá Íbúðalánasjóði,“ segir Björn
Arnar Magnússon, framkvæmda-
stjóri Brynju, hússjóðs Öryrkja-
bandalagsins, um nýlega hækk-
un á húsaleigunni.
Spurður um leigukostnað í Há-
túni svarar Björn Arnar því til að
leigan fari hæst upp í ríflega
60.000 krónur á mánuði fyrir
tveggja herbergja íbúð, að teknu
tilliti til hússjóðs og húsaleigu-
bóta. Ekki sé óraunhæft að ætla
að lægstu tekjur séu 120.000 kr.
á mánuði eftir skatta. „Við
höfum reynt að halda
leigunni niðri en eigum
enga sjóði til að niður-
greiða hana. Félagið
er rekið án hagnaðar
og hefur verið rekið
með tapi síðustu þrjú
ár vegna verðbólg-
unnar.“
Húsaleigan
hækkar
BÆTUR STANDA Í STAÐ
Guðmundur Magnússon
Hópurinn telur lagaramma ís-
lenskrar verðtryggingar einnig
brjóta gegn evrópskum neyt-
endarétti þar sem hún aftrar
neytendum að meta skuldbind-
ingar sínar við undirritun samn-
ings. Er því í kvörtuninni einnig
óskað eftir yfirlýsingu frá ESA
um að hún brjóti gegn grund-
velli Evrópuréttar.
Verðtrygging
ólögleg?
YFIRLÝSINGAR ÓSKAÐ
Össur Skarphéð-
insson utanríkis-
ráðherra kom til
Indlands í gær
þar sem hann
mun dvelja í 9
daga í opinberri
heimsókn í boði
utanríkis-
ráðherra Ind-
lands.
Að sögn Urðar
Gunnarsdóttur, upplýsingafulltrúa
utanríkisráðuneytisins, mun Össur
meðal annars hitta indverska utan-
ríkisráðherrann að máli, sem og
umhverfisráðherra indversku
stjórnarinnar.
Fjallað var um ferðina á vefnum
dailyindia.com en þar sagði að Öss-
ur væri væntanlegur til Nýju-Delhí
í gær og að framundan væru fundir
með ráðherrum og embættis-
mönnum. Á morgun muni Össur
funda með stjórn indversk-íslenska
verslunarráðsins og vitja grafar
Mahatma Gandhi, frelsishetju Ind-
lands. Össur kemur heim eftir átta
daga. Ekki náðist í Össur í gær.
Össur sækir
Indland heim
Össur
Skarphéðinsson