Morgunblaðið - 26.04.2011, Blaðsíða 18
18 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 2011
–– Meira fyrir lesendur
PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS
:
Þann 13. maí gefur Morgunblaðið út
sérblað Ferðasumar 2011
ferðablað innanlands.
Ferðablaðið mun veita upplýsingar um
hvern landshluta fyrir sig.
Ferðablaðið verður aðgengilegt á mbl.is.
Ferðablaðinu verður einnig dreift á
helstu Upplýsingamiðstöðvar
og bensínstöðvar um land allt.
MEÐAL EFNIS:
Fjölskylduvænar uppákomur um land allt.
Hátíðir í öllum landshlutum
Gistimöguleikar.
Ferðaþjónusta.
Útivist og náttúra.
Uppákomur.
Skemmtun fyrir börnin.
Sýningar.
Gönguleiðir.
Tjaldsvæði.
Skemmtilegir atburðir.
Ásamt fullt af öðru
spennandi efni.
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 9. maí.
Ferðasumar 2011
ferðablað innanlands SÉ
R
B
LA
Ð
„Lífið getur verið
erfitt og flókið. Maður
veit aldrei í hvorn fót-
inn maður á að stíga.
Við getum farið í ólík-
ar áttir en ég vona að
ég hafi valið rétta
leið.“
Lokaorð aðal-
persónunnar í söng-
leiknum „Ólíkum átt-
um“, í uppsetningu
leiklistarhóps Öldu-
selsskóla.
Á liðnu hausti kom í ljós að nokkr-
ir unglingar í Seljahverfi fiktuðu
með fíkniefni (gras). Hratt var
brugðist við og tekið á málum með
uppbyggilegum hætti af skólastjórn-
endum, kennurum, foreldrum og
nemendum. M.a. var félagsstarf
skólans eflt og sjö nýir klúbbar
stofnaðir. Leiklistarhópur skólans
var stórefldur og í kjölfarið samdi
hann og setti upp söngleik um líf nú-
tímaunglinga. Rúmlega áttatíu ung-
lingar tóku þátt í uppfærslunni eða
um helmingur af unglingadeild skól-
ans. Áhersla hefur þannig verið lögð
á að nemendur hafi nóg uppbyggi-
legt fyrir stafni utan hefðbundins
skólatíma. Afrakstur hins öfluga
leiklistarhóps kom í ljós fyrir nokkr-
um vikum með leikritinu Ólíkum átt-
um, sem sýnt var við góðar undir-
tektir.
Frábær söngleikur
Í söngleiknum var fjallað á hisp-
urslausan hátt um þær áskoranir og
lífsþorsta, sem fylgja unglingsárun-
um. Skólinn, samskipti kynjanna,
foreldravandamál og vímuefnavand-
inn fá veglegan sess. Allir, sem
muna unglingsárin, þekkja hugs-
anirnar og samtölin. Börnin halda út
á fullorðinsbrautina, sum varfærn-
islega, öðrum liggur lífið á. Eins og í
heimi hinna fullorðnu ná ekki allir að
greina á milli raunverulegra gilda og
gervigilda. Útlitsdýrkun, kraftadella
og tíska fá sinn skammt.
Leikritið er innihaldsríkt, bráð-
skemmtilegt og oft veltust áhorf-
endur um af hlátri. Ég velti því fyrir
mér á sýningunni hvaða leikrita-
skáld næði að túlka svo vel gleði,
sorgir og viðfangsefni unglinga með
eigin orðfæri þeirra og um leið að
tvinna marga ólíka þætti saman svo
úr yrði heilsteypt og vel heppnað
leikrit. Ólöf Halla Bjarnadóttir leik-
listarkennari lagði til söguþráðinn
en unglingarnir skrifuðu þættina og
mótuðu framvinduna eftir sínu höfði.
Nemendunum er óskað til hamingju
með frábært leikrit. Ólöf Halla,
Daníel Gunnarsson skólastjóri og
Haraldur Reynisson tónmennta-
kennari, sem stýrði metnaðarfullum
tónlistarflutningi, fá einnig ham-
ingjuóskir ásamt kennurum og öðr-
um starfsmönnum skólans.
Stutt á milli gleði og harms
Þessi bráðskemmtilegi söngleikur
hafði þó alvarlegan undirtón í líki vá-
gests, sem leggur snörur sínar fyrir
unga fólkið okkar á viðkvæmasta og
áhrifagjarnasta skeiði lífsins. Þetta
er vímuefnavandamálið, sennilega
stærsta ógnin sem steðjar nú að
vestrænum þjóð-
félögum. Einhverjir
falla í freistni, misstíga
sig og kjósa að flýja
veruleikann um stund,
sækja í hluti sem síðan
reynast ekki eftirsókn-
arverðir. Fjallað er á
hispurslausan hátt um
þann hlut sem gerir alla
baráttu stjórnvalda
gegn eiturlyfjum erfiða,
þ.e. þann skelfilega
hvata fíkniefnaneytand-
ans að leita uppi þá sem
minnst mótstöðuafl
hafa gegn efnunum, búa til nýja
neytendur og selja þeim dóp svo
hann sjálfur geti dópað frítt: „Hvað
er í gangi, er ég nú orðin einhver dí-
ler? Eins og ég sé ekki í nægum
vandræðum fyrir? En er þetta ekki í
lagi; það er ekki eins og ég sé ein-
hver sjúskaður sprautufíkill,“ segir
ein persónan í áhrifamiklu atriði.
Vel kom fram í leikritinu hversu
örstutt er á milli fölskvalausrar lífs-
gleði æskunnar og hins harða heims
eiturlyfjanna. Fjörugur söngleikur
fær sorglegan endi með dauða einn-
ar aðalpersónunnar. Með því sýna
leikritahöfundarnir 82 að þeir átta
sig á miskunnarleysi eiturlyfja-
heimsins og miðla þeim veruleika til
skólafélaga sinna. Nemendur, kenn-
arar og skólastjórnendur við Öldu-
selsskóla fá bestu þakkir fyrir gott
framtak.
Eflum jákvæðar forvarnir
Ekkert hverfi er stikkfrí þegar
kemur að vímuefnavanda ung-
menna. Fyrir nokkrum vikum heim-
sótti ég t.d. skóla í Vesturbænum
þar sem fjórtán ára nemendur sögðu
frá því að piltur hefði komið á skóla-
lóðina og boðið þeim fíkniefni til
kaups. Gagnvart slíkum vágestum
þarf ætíð að vera á verði og verði
þeim ágengt, þarf að grípa í taum-
ana með uppbyggilegum hætti eins
og gert var í Ölduselsskóla.
Reynslan sýnir að fíkniefnavand-
inn verður aldrei leystur með lög-
gæslu og tolleftirliti. Jákvæðar for-
varnir á einstaklingsbundnum
grunni, í skólum og félagsstarfi,
virðast skila mestum árangri. Nefna
má aukna samveru foreldra og
barna og umræður um málið á heim-
ilum sem og þátttöku í starfi íþrótta-
félaga, skáta, félagsmiðstöðva
o.s.frv. Síðast en ekki síst felast já-
kvæðar forvarnir í miðlun upplýs-
inga milli unglinganna sjálfra á jafn-
réttisgrundvelli, eins og í þessu góða
leikriti. Slíkar forvarnir þarf að efla
og þar geta allir lagt eitthvað af
mörkum.
Ólíkar áttir
Eftir Kjartan
Magnússon
Kjartan
Magnússon
» Jákvæðar forvarnir
á einstaklings-
bundnum grunni,
í skólum og félagsstarfi,
virðast skila mestum
árangri í baráttunni
við fíkniefnin.
Höfundur er borgarfulltrúi og
situr í menntaráði og íþrótta- og
tómstundaráði.
Forvarnir Úr uppfærslu nema Ölduselsskóla á söngleiknum Ólíkar áttir.
Nú reynir á rögg-
semi löggjafans. Það
er skylda okkar bind-
indismanna að draga í
dagsljós fram tiltækar
staðreyndir um váleg-
ar afleiðingar áfeng-
isneyzlu og samofnar
þeim afleiðingar ann-
arra vímuefna. Þar
leitum við yfirleitt til
virtra rannsóknaraðila
og helzta leiðarljós
okkar er svo stefnumörkun Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar
– WHO sem ætti í raun að vera
leiðarljós stjórnvalda og löggjafans
um leið. Skylda okkar er líka sú að
vekja athygli á því sem er að gerast
á innlendum vettvangi, þau vanda-
mál er næst okkur standa. Þar er
því miður af nægu að taka, þótt
gleðilegt sé það vissulega að áfeng-
isneyzla unglinga skuli vera snöggt-
um minni, sem gefur manni von um
betri tíð og máske þá blóm bind-
indis í þjóðlífshaganum.
Sláandi hörmulegar fregnir um
dauða svokallaðra útigangsmanna
sem hreinlega hafa orðið úti í okkar
velferðarsamfélagi eru virkilega
sem aðvörun til allra sem um heil-
brigðismál véla á einhvern máta, til
okkar allra sem hugsa um þessi
mál yfirleitt. Alltof sjaldan les mað-
ur eða heyrir frá þessu fólki sem á
þó að vera vakandi með voðann hið
næsta sér oft á tíðum, alltof oft í
raun. Þessa sakna ég og raunar
umfjöllunar almennt um þessi mál,
svo oft er líkast því að áfengisvand-
inn út af fyrir sig sé eitthvert
feimnismál og vonandi að það stafi
ekki einfaldlega af því
að þar eru alltof marg-
ir neytendur er ekki
vilja skyggja á „gleði-
gjafann“ sinn, eins og
maður heyrir þó alltof
oft í máli ótrúlegasta
fólks.
Það er nefnilega svo
hörmulega oft sem
gleðigjafinn breytist í
hörmungarvald, allt
yfir í eyðileggingu
mannlegra eiginda.
Þessar staðreyndir fá
aukið vægi hjá almenningi ef um
þær er fjallað af þeim sem fást við
þennan ógnarvanda hið næsta sér
og hafa bæði siðræn og heilsufars-
leg gildi í fylgd með sér.
En aðalástæða þessa pistils míns
er sú að nú fær löggjafinn gullið
tækifæri til að sýna vilja sinn í
áfengismálum, m.a. varðandi áfeng-
isauglýsingar sem eiga að vera
bannaðar lögum samkvæmt, en
framkvæmdin ekki reynzt sú sem
löggjafinn á sínum tíma augljóslega
ætlaðist til. Hér á ég við frumvarp
sem nýlega hefur verið lagt fram á
Alþingi um breytingar á áfeng-
islöggjöfinni. Það er Ögmundur
Jónasson innanríkisráðherra sem
leggur frumvarpið fram fyrir hönd
ríkisstjórnarinnar. Fyrir hans hlut í
þessu máli skal þakkað alveg sér-
staklega. Það eru ýmsar mætar
breytingar sem þetta frumvarp
fjallar um og allar þær helztu til
bóta, m.a. um leyfilegt áfengismagn
í blóði ökumanns, enn meiri og um
leið sjálfsagðari takmarkanir á því,
enda ófáir harmleikirnir sem hafa
orðið að veruleika vegna áfeng-
isneyzlu ökumanna og vonandi
verða allir sammála um þetta á Al-
þingi. Það atriði sem við bindind-
ismenn teljum markverðast varðar
þó áfengisauglýsingar og hindrun á
undanskotum á þeirri löggjöf sem
þar er í gildi. Það heyrast strax
mótbárur við þessu atriði, enda
vita menn að fjölmiðlar,
auglýsingastofur, að ekki sé minnst
á alla framleiðendurna og seljend-
urna á þessari vöru hafa haft af
undanskotunum gífurlegar tekjur
og eiga því sína slæmu hagsmuni
að verja, enda þegar byrjaðir að
skrækja um boð og bönn, frels-
issviptingu og hvaðeina í þeim dúr.
Vitandi ættu þessir aðilar allir
að vera, að það sem þeir hafa verið
að gera með undanskotunum eru
brot á íslenzkri, ótvíræðri löggjöf
og ættu ekki aðeins að þegja held-
ur enn frekar að skammast sín,
sem er líklega til of mikils mælzt.
En nú er að sjá hvort alþing-
ismenn standa með íslenzkri lög-
gjöf, þannig að hún nái tilgangi
sínum eða hvort öskurapakórinn
verður öllu yfirsterkari. Við bíðum
og sjáum hvað setur, en vonum hið
bezta.
Nú reynir á röggsemi
löggjafans
Eftir Helga Seljan »… nú fær löggjafinn
gullið tækifæri til að
sýna vilja sinn í áfeng-
ismálum, m.a. varðandi
áfengisauglýsingar sem
eiga að vera bannaðar
lögum samkvæmt …
Helgi Seljan
Höfundur er formaður
fjölmiðlanefndar IOGT.