Morgunblaðið - 26.04.2011, Page 27
Íkarlakórnum Heimi er margtgóðra hagyrðinga, sem eflaust
kunna að syngja líka. Á tónleikum í
Hólaneskirkju á Skagaströnd var
kynnirinn Gunnar Sandholt óvenju
hógvær fyrir hlé í kynningu á lög-
unum, enda kom í ljós að hann hafði
gleymt að hafa með sér gleraugun
á svið. Eftir hlé sótti hann í sig
veðrið og skemmti fólki eins og
endranær með vísum og sögum
tengdum dagskránni. Árna á Upp-
sölum, raddfélaga hans úr öðrum
bassa, varð að orði:
Gunnar malar og malar,
magnaður lopann að spinna.
Endalaust talar og talar,
ég trúi honum minna og minna.
Nýverið fór kórinn í söngferð um
Suðurland söng meðal annars í Sel-
fosskirkju, þar sem kynnirinn fór
með vísu eftir Erling Sigurðarson
frá Grænavatni í Mývatnssveit:
Skagfirðingum er lífið leitt,
létta það eftir föngum,
ríða þétt við þjóðveg eitt
og þykjast vera í göngum.
Hirðskáld kórsins, Sigurður Han-
sen frá Kringlumýri í Blönduhlíð,
taldi sér málið skylt og svaraði að
bragði.
Þeir ganga um og gleypa loft,
gelta skríðandi,
því Þingeyingar eru oft
illa ríðandi.
Ekki lét hirðskáldið sitt eftir
liggja, en hann þekkir vel til í Holt-
unum, dvaldi þar við störf á yngri
árum og rómantískur texti lagsins
„Við linditréð“ vakti hjá honum
þessar kenndir:
Þó lífsins vindar líði hjá,
lifir mynd á skjánum,
því gengnar syndir gleymast hjá
gömlu linditrjánum.
Davíð Hjálmar Haraldsson slær á
létta strengi:
Ég get flogið, klifið kletta,
klukkur smíðað, samið lag,
dansað, hannað, hitt og þetta,
hugsað stórt – en bara í dag.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af Heimi og
linditrjánum
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
GÓÐA NÓTT
LÍSA
GÓÐA
NÓTT
JÓN
ÉG GET EKKI KYSST HANA Á
MEÐAN ÞÚ ERT HÉRNA GRETTIR
ÉG GET VERIÐ HÉRNA
EINS LENGI OG ÞÚ VILT
HERRA, ÉG ÞARF AÐ SKJÓTAST HEIM... ...ÉG GLEYMDI AÐ TAKA
VÍTAMÍNIN MÍN Í MORGUN
FINNST
ÞÉR LYKTIN
INNAN ÚR NÝJU
GRASKERI EKKI
ÆÐISLEG?
KÆRI
PENNAVINUR, HVERNIG ER
SUMARIÐ BÚIÐ AÐ VERA
HJÁ ÞÉR?
ÞAÐ ER BÚIÐ AÐ RIGNA
MIKIÐ HJÁ OKKUR
ÉG VONA AÐ ÞÚ NJÓTIR
ÞESS SEM EFTIR ER AF
SUMRINU.
ÞINN VINUR,
KALLI BJARNA
P.S. NJÓTTU
HAUSTSINS
HVERT
ERTU
AÐ
FARA?
ÉG ÆTLA AÐ
HJÓLA 10 KM MEÐ
FÓLKINU SEM ÆTLAR
AÐ „HJÓLA GEGN
HUNGRI”
HELDURÐU
AÐ ÞÚ
GETIR
HALDIÐ Í
VIÐ ÞAU?
MÉR
SKILST AÐ
ÞÁTT-
TAKENDURNIR
SÉU Í MISJAFN-
LEGA GÓÐU
FORMI
Ó,
NEI!
AF HVERJU
HELDURÐU AÐ ÉG
SÉ SANDMAN?
ÉG FYLGDIST MEÐ
ÞÉR Í GEGNUM
SJÓNAUKA Í GÆR...
... ÉG SÁ ÞIG LEIKA VIÐ DÓTTUR ÞÍNA
Aðeins um Gnarr borgarstjóra
Hingað kom þýskt skip í kurteisisheimsókn og
Þjóðverjar hafa alltaf verið okkur vinsamlegir,
borgarstjórinn neitaði að taka á móti skipstjór-
anum. Þvílík ókurteisi, hann talar sennilega
ekkert erlent tungumál. Mér finnst þetta fyrir
neðan allar hellur.
Sigrún Sigurþórs.
Lestur Passíusálmanna
Ég vil þakka fyrir frábæran lestur ungmenna á
Passíusálmunum, ég óska þeim Guðs blessunar.
Öldruð kona.
Ást er…
… að dreyma um að
klæðast hvítu.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9,
gönguhópur kl. 10.30, vatnsleikfimi
kl. 10.45, postulínsmálun og tölvu-
færni (leiðbeint á tölvur) kl. 13, les-
hópur kl. 13.30, jóga kl. 18.
Árskógar 4 | Smíði/útskurður kl. 9.
Botsía kl. 9.45.
Bólstaðarhlíð 43 | Myndvefnaður,
útskurður, línudans kl. 13.30, handa-
vinna.
Dalbraut 18-20 | Handavinna kl. 9,
framsögn kl. 13, félagsvist kl. 14.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8,
Söngur/upplestur á 2. hæð kl. 14.
Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Skák kl. 13. Félagsvist kl. 20.
Félagsheimilið Boðinn | Handavinna
m/leiðbeinanda kl. 9, Gönguklúbbur
(róleg ganga) kl. 13, kínversk leikfimi
(tai-chi) í sal sjúkraþjálfunar kl.
13.30.
Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi
kl. 9.15, handavinnustofa, gler- og
postulín kl. 9.30, jóga kl. 10.50 og al-
kort kl. 13.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn-
aður kl. 9 jóga, myndlist og tréskurð-
ur kl. 9.30, ganga kl. 10, málm, silf-
ursmíði og tréskurður kl. 13, jóga kl.
18.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ
| Qi gong kl. 8.10, vatnsleikfimi kl.
12.10, bútasaumur/karlaleikfimi/opið
hús í kirkju kl. 13, botsía kl. 14, Bón-
usrúta kl. 14.45, línudans kl. 16.15.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustof-
ur kl. 9, glerskurður og perlusaumur.
Stafganga kl. 10.30. Jóga kl.15.30.
Fimmtudaginn 12. maí er leikhúsferð í
Þjóðleikhúsið á leikritið ,,Allir synir
mínir“, skráning hafin á staðnum og í
s. 575 7720.
Grafarvogskirkja | Opið hús kl.
13.30. Helgistund, handavinna, spil og
spjall.
Grensáskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30 og
9.30. Bútasaumur kl. 9. Helgistund kl.
14, sr. Ólafur Jóhannsson. Stóla-
leikfimi kl. 15.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun,
miðvikudag, kl. 13.30 er félagsfundur
Korpúlfa í Hlöðunni við Gufunesbæ.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Postu-
lín kl. 9/13, Vísnaklúbbur kl. 9.15,
leikfimi kl. 11, handverksstofa, ýmis
verkefni kl. 13, brids/vist kl. 13.
Norðurbrún 1 | Útskurður kl. 9. Sr.
Sigurður í húsinu kl. 13.30-14.
Safnaðarheimilið Kirkjuhvoll,
Garðabæ | Kyrrðarstund í hádegi.
Súpa og brauð. Opið hús kl. 13 þar
sem spilað er, saumað, prjónað og
spjallað.
Seljakirkja | Menningarvaka í Selja-
kirkju í kvöld kl. 18. Guðmundur Ár-
mann Pétursson, frkvstj. Sólheima,
segir frá sögu og starfi á staðnum.
Haukur Guðlaugsson, fyrrum söng-
málastjóri, leikur á orgel. Matur á eft-
ir. Þátttaka tilk. í s. 567-0110.
Vesturgata 7 | Aðstoð v/böðun,
handavinna kl. 9.15, spurt og spjall-
að/leshópur/spil kl. 13.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Búta-
saumur kl. 9, morgunstund kl. 9.30,
glerbræðsla kl. 9, framh.saga kl.
12.30, handavinnustofa kl.13, fé-
lagsvist kl. 14.