Morgunblaðið - 26.04.2011, Page 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 2011
Hjördís Stefánsdóttir
hjordst@hi.is
Bjólfskviða hefur notið nokkurrar vinsældar hin
síðustu ár en þrjár frekar stórar kvikmyndir
hafa verið byggðar á henni. Kviðan er fornenskt
miðaldakvæði sem segir af víkingahetjunni
Bjólfi og viðureignum hans við risann Grendil og
forynjuna móður hans. Hetjudáðir Bjólfs eru
einnig nokkuð vel skrásettar í norrænum sögum.
Lýsingarnar á Grendli og forynjunni eru ekki
mjög ítarlegar í þessum frásögnum en ótukt-
arskapur þeirra hefur orkað á sköpunargleði
umræddra kvikmyndagerðarmanna sem í eig-
inlegu framhjáhlaupi hafa gert ásatrúar-
samfélag víkinga að umfjöllunarefni sínu.
Frægust af þessum þremur myndum er Holly-
wood-myndin Beowulf (2007) í leikstjórn Robert
Zemeckis. Ray Winstone lék Bjólf og Anthony
Hopkins brá sér í gervi föður hans. Grendill og
forynjan voru leikin af Crispin Glover og Angel-
inu Jolie en í öðrum hlutverkum voru meðal ann-
ars Robin Wright Penn og John Malkovich.
Myndin Beowulf & Grendel (Kanada, Ísland,
Bretland, 2006) var öllu óháðari. Þar voru frum-
samdir viðbótarsögurþræðir spunnir við kviðuna
og fjöldi persóna aukinn en meðal nýliða er ör-
laganorn. Myndin var tekin á Íslandi í leikstjórn
Vestur-Íslendingsins Sturlu Gunnarssonar en
með aðalhlutverk fóru Gerard Butler sem Bjólf-
ur, Stellan Skarsgård sem Danakonungurinn
Hrothgar og Ingvar E. Sigurðsson sem grodd-
inn Grendel. Líkt og í hinum myndunum sem
hér er rætt um snýst fléttan aðallega um þá ógn
sem siðmenningu miðalda stafar af óvættum for-
tíðar.
Frá Bjólfi til Valhallar Óðins
Önnur Hollywood-mynd, The 13th Warrior
(1999), fjallar sömuleiðis um bardagann við
Grendils-mæðginin en nálgunin er önnur. Að-
alhetjan er arabinn Ahmad ibn Fadlan (Antonio
Banderas) sem sendur er í útlegð á slóðir vík-
inga. Handrit myndarinnar er aðlögun á met-
sölubók eftir Michael Crichton sem aftur bygg-
ist á Bjólfskviðu og sögulegum heimildum er
liggja eftir samnefnda aðalhetju. Víkingasiðir
norrænu mannanna eru framandi í augum Ah-
meds og jafnvel barbarískir en hann verður
meðal annars vitni að bátsbálför konungs þar
sem ungri konu er fórnað svo að konungurinn
geti tekið með sér brúði til Valhallar.
Valhöll kemur einnig við sögu í myndinni Val-
halla Rising (Danmörk, Bretland, 2009) sem
frumsýnd var á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum
fyrir tveimur árum. Handritið byggist á goðsög-
um um Óðin og ferðir hans í mannheimum en
söguhetjan, One-Eye, er mállaus norrænn
stríðsmaður gæddur yfirnáttúrlegum kröftum.
Honum hefur verið haldið föngnum í Hálönd-
unum um áraraðir en sleppur með aðstoð ungs
drengs. Þeir flýja um borð í skip krossfara og
sigla í átt að Landinu helga. Grimm örlög bíða
krossfaranna þegar þeir ná landi og One-Eye
áttar sig á því að hann hefur ferðast til heljar og
að hann er guðleg vera sem sómir sér best í Val-
höll.
Þór og rimmur ásanna
Sonur Óðins, þrumuguðinn Thor, er að-
alhetjan í samnefndri nýrri Hollywood-mynd
sem frumsýnd verður hérlendis á föstudaginn.
Um er að ræða þrívíddar-ofurhetjumynd byggða
á myndasögum frá Marvel útgáfufyritækinu.
Thor (Chris Hemsworth) er kraftmikill en
hrokafullur stríðsmaður sem með glannalegu
framferði kyndir undir gömlum erjum og kemur
af stað stríði meðal ása. Fyrir vikið er hann
sendur í útlegð í mannheima samtímans. Þar
vinnur hann sanna hetjudáð þegar hann ver
mannfólkið fyrir illvirkjum erkióvinarins Loka.
Ættfræðin hefur eitthvað skolast til í sagna-
heimi myndarinnar þar sem bragðarefurinn
Loki er fóstbróðir Þórs og því alinn upp af Óðni
(Anthony Hopkins) og konu hans Frigg (Rene
Russo). Í raun réttri var Loki sonur Laufeyjar
og Fárbauta jötuns en í myndinni er blóðfaðir
Loka, jötunkonungurinn „Laufey“. Enn
fremur þarf ásynjan Sif sem er eiginkona
Þórs í Eddukvæðum, að lúffa fyrir
mennsku vísindakonunni Jane Foster (Na-
talie Portman) sem Þór ann af heil-
um hug í myndinni.
Einna frjálslegast er þó
farið með persónu Heim-
dalls, hins skyggna, skar-
peygða og velheyrandi
varðar brúarinnar Bifrast-
ar, inngangsins að Ásgarði. Í fræðunum er
Heimdallur vörður goðanna og Loki svarinn
óvinur þeirra og þessir tveir því andstæðingar
sem fella hvor annan í ragnarökum. Í myndinni
etur Heimdallur aftur á móti stundum kappi við
Þór að atbeina Loka. Heimdallur og Sif eru
sömuleiðis bæði vígaglöð í nýju útgáfunni og
jafnframt systkini. Enn fremur rennur tímasvið
forneskju saman við nútíma og ævintýralegur
ofurhetjubragur einkennir alla framvinduna eins
og við er að búast af mynd byggðri á teikni-
myndasögu. Það sem kemur hins vegar á óvart
er að myndinni er leikstýrt af Kenneth Branagh
sem nafnkunnur er fyrir gerð mikilsmetinna
kvikmyndaaðlagana eftir verkum Shakespeares
svo fróðlegt verður að sjá útkomuna.
Marvel-útgáfan er með aðra ofurhetjumynd í
vinnslu sem frumsýnd verður á næsta ári en
Thor er einnig í burðarhlutverki þar. Hugs-
anlega glæðist í framhaldinu áhugi kvikmynda-
gerðarmanna á menningararfleið ásatrúar og
það verður kannski vinsælt að byggja stórmynd-
ir á norrænni goðafræði eða víkingasiðum, jafn-
vel Íslendingasögunum. Að minnsta kosti er um
auðugan garð að gresja í þeim efnum.
Nánast ónýtt auðlind
Fáar kvikmyndir hafa verið byggðar á norrænni goðafræði og víkingasiðum en hugsanlega breyt-
ist það á næstunni Hægt er að tína til fimm nýlegar myndir um þetta efni sem vakið hafa eftirtekt
Stórmyndin Thor Miklu var til kostað við gerð og markaðssetningu myndarinnar og því hefur skapast töluverð eftirvænting fyrir frumsýningu hennar vestanhafs sem verður í byrjun maí. Hér
sést Óðinn (Anthony Hopkins) með syni sínum Þór (Chris Helmsworfth). Kvikmyndin verður frumsýnd hér á landi á föstudaginn, enn ein hetja Marvel-teiknimyndasagnanna komin á hvíta tjaldið.
Rimma Ingvar E. Sigurðsson sem Grendill og
Gerard Butler sem Bjólfur takast á í myndinni
Beowulf & Grendel frá árinu 2006.
Þó að fá nýleg verk byggist á
grunni norrænnar goðafræði má
finna vísanir í hana víða. Til
dæmis leikur Jim Carrey ófram-
færinn meðalmann í The Mask
sem tekur stakkaskiptum eftir
að hann rambar á grímu magn-
aða kröftum Loka og í The Mat-
rix Reloaded er geimskip nefnt
Mjolnir eftir hamri Þórs. Æsir og
valkyrjur koma nokkuð við sögu
í sjónvarpsþáttunum um stríðs-
prinsessuna Xenu og það sama
er að segja um Stargate SG-1
þættina. Sögur Tolkiens eru
sterklega litaðar af norrænum
fræðum en þær hafa áhrif á
flestar síðari tíma ævintýrasög-
ur og því eru álfar, dvergar og
jötnar orðin auðþekkjanlegar
verur. Persóna Fenris Greybacks
í Harry Potter-ævintýrunum
byggist á ímynd fenrisúlfsins og
Max Payne-tölvuleikirnir notast
töluvert við goðafræðina. Þar
eru persónur nefndar Balder og
Woden, Aesir-samsteypan kem-
ur við sögu, ásamt vímuefn-
inu Valkyr og skemmti-
staðnum Ragnarock.
Tomb Raider: Under-
world-tölvuleikurinn
vísar sömuleiðis í goða-
fræðina en þar ferðast
hetjan Lara Croft til Neifl-
heims og mundar á
þeirri vegferð vopn-
ið Mjolni.
Vísanir leyn-
ast víða
ÓDAUÐLEGIR ÆSIR
Jim Carrey í
The Mask