Morgunblaðið - 26.04.2011, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 116. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Vilja rannsaka gamalt mannshvarf
2. Röktu slóðina í heimahús
3. Reynt að hengja 11 ára dreng
4. Api gengur laus í Danmörku
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Söngkonan og söngvaskáldið
Mariah Ver Hoef frá Alaska kynnir
nýútkomna sólóplötu sína „Space
between two worlds“ í Evrópu á
næstunni og verða fyrstu tónleikarnir
á Íslandi; í Merkigili á Eyrarbakka kl.
20 í kvöld og á Rósenberg kl. 21 ann-
að kvöld.
Evróputúrinn hefst
í kvöld á Eyrarbakka
Helgi og hljóð-
færaleikararnir
hafa gefið út plöt-
una Nakta apann
með tuttugu nýj-
um lögum eftir
alla hljómsveitar-
meðlimi, ýmist
eina sér eða með
öðrum, en allir
textar eru eftir Helga Þórsson. Út-
gáfutónleikar verða á Dalvík föstu-
daginn 29. apríl nk. og á Græna hatt-
inum á Akureyri daginn eftir.
Tónleikar Helga og
hljóðfæraleikaranna
Grammyverðlaunahafinn Elvis Cos-
tello heldur tónleika í Hörpu 21. nóv-
ember nk. og hefst forsala aðgöngu-
miða á netinu (Harpa.is)
klukkan 12:00 í dag.
Costello verður
einn á sviðinu á
tónleikunum og á
heimasíðu hans
(elviscostello.is) er
hægt að panta óska-
lög fyrir tón-
leikana.
Miðasala á tónleika
Elvis Costellos
Á miðvikudag Suðaustan 8-15 m/s og talsverð rigning austantil
framan af degi, en annars suðvestlæg eða breytileg átt, 3-8 og
skúrir. Hiti 5 til 10 stig, en kólnar um kvöldið.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan og suðvestan 8-15, hvassast vest-
ast. Rigning eða súld vestantil á landinu, en annars þurrt að kalla.
Hiti 5 til 13, hlýjast austantil.
VEÐUR
Valsmenn urðu í gær
deildabikarmeistarar í
knattspyrnu karla í annað
sinn þegar liðið lagði Fylk-
ismenn, 3:1, í fram-
lengdum leik í Kórnum.
Þetta var annar titill Vals-
manna á undirbúnings-
tímabilinu en þeir hömp-
uðu einnig Reykjavíkur-
meistaratitlinum.
Íslandsmótið hefst svo
um næstu helgi með leik
KR og Breiðabliks. »4
Valsmenn unnu
deildabikarinn
Hermann Hreiðarsson náði þeim
áfanga um helgina að spila sinn 500.
deildarleik á ferl-
inum og er
hann þriðji ís-
lenski knatt-
spyrnumað-
urinn í sögunni
sem nær þeim
leikjafjölda.
Arnór Guð-
johnsen hefur
átt leikjametið
lengi en hann
spilaði samtals
523 deildar-
leiki á sín-
um ferli.
»1
Hermann sá þriðji í 500
leikja klúbbinn
Katrín Ómarsdóttir, landsliðskona í
knattspyrnu, hefur skrifað undir samn-
ing við nýtt bandarískt atvinnumanna-
lið, Orange County Waves í Kaliforníu.
Orange County Waves mun spila í
WPSL í sumar en áætlað er að liðið
verði með í WPS-deildinni næsta sum-
ar. Þar á Ísland einn fulltrúa, Hólmfríði
Magnúsdóttur, sem leikur með Phila-
delphia Independence. »1
Katrín til liðs við
Orange County Waves
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir
ben@mbl.is
Goðsögnin um Fönixinn sem brenn-
ur upp í eldinum og rís svo upp úr
öskunni með nýja vængi er inn-
blástur sýningar sem sett verður
upp á Listahátíð í Reykjavík eftir
tæpan mánuð, þar sem sönglist,
danslist og leikhús er brætt saman í
eina heild.
„Eftir því sem maður öðlast meiri
lífsreynslu sér maður að fólk fer
stöðugt í gegnum stórar breytingar
– það byggir upp líf sitt og svo hryn-
ur allt, það gengur í gegnum skiln-
að, veikist eða verður fyrir sorg og
allt hrynur. Rétt eins og gerðist
með Ísland,“ segir María Ellingsen
leikkona. „Ég stúdera mikið goðsög-
ur og hvernig þær spegla í stóru
samhengi það sem við göngum í
gegnum og mér fannst gaman að
þessari goðsögu um Fönixinn –
hvernig hann fer inn í eldinn og
brennur upp áður en hann endur-
fæðist. Þegar eitthvað hrynur þýðir
það ekki að maður sé dáinn heldur
að maður muni endurfæðast. Þetta
finnst mér mjög spennandi hugsun:
að ná að sleppa, deyja og fæðast á
ný.“
Unnu við Úlfhamssögu
María fékk til liðs við sig tónlist-
arkonuna Eivöru Pálsdóttur og
finnska nútímadansarann Reijo
Kela til að gera þessu viðfangsefni
skil, en þau unnu saman að upp-
færslu Úlfhamssögu árið 2004. „Við
höfum fikrað okkur áfram eftir
þessu þema en allir koma með sína
lífsreynslu inn í þetta og við vinnum
öll á mjög ólíkan hátt,“ heldur
María áfram. „Þetta er mjög per-
sónulegt og við höfum farið mjög
nálægt sjálfum okkur.“
Umgjörð sýningarinnar er
óvenjuleg, t.d. fyrir það að áhorf-
endur eru á sviðinu þar sem verkið
verður flutt og það er án talaðra
orða, svo leikkonan María „hreyfir
sig í gegnum stykkið“ eins og hún
orðar það. Eivör kemur líka við
sögu á sviðinu en hún semur og flyt-
ur lifandi tónlist sem hreyfingarnar
hverfast um. „Mér fannst þetta
strax mjög spennandi
hugmynd þegar María
kom með hana
og ég fæ mik-
inn inn-
blástur af því að
vinna með hana.
Þetta er svolítið
mikill spuni hjá
mér enn sem
komið er og
ég hugsa
að þannig
verði
það, alla vega að einhverju leyti,
þótt eitthvað verði ákveðið líka,“
segir hún.
Aðkoma Reijos að Úlfhamssögu
var með nokkru öðru móti en nú, en
í þeirri sýningu kom hann fram í
myndbandi sem var tekið upp í
Finnlandi, þar sem hann dansaði
nakinn á ísbreiðu. Núna verður
hann hins vegar í eigin persónu á
sviðinu. „Ég hugsa lítið um sjálfan
mig og söguna að baki verkinu held-
ur fyrst og fremst um tónlistina og
að upplifa andartakið og rýmið,“
segir hann og bætir því við að hon-
um henti vel að vinna með þessum
hætti. „Alla vega ef ég fæ nægilegt
frjálsræði. Ég hef unnið með dans-
spuna í næstum því 20 ár, svo mér
líkar ekki að endurtaka mig.“
Að sleppa, deyja og fæðast á ný
Ferðalag
Fönixins sett upp
á Listahátíð í vor
Morgunblaðið/Ómar
Listamennirnir María Ellingsen, Eivör Pálsdóttir og Reijo Kela unnu saman að Úlfhamssögu fyrir sjö árum.
Auk Maríu, Eivarar og Reijos
koma Snorri Freyr Hilmarsson
leikmyndahöfundur, Filippía El-
ísdóttir búningahönnuður og
Björn Bergsteinn Guðmundsson
ljósameistari að sýningunni en
verkefnastjóri og framleiðandi
er Sigrún Þorgeirsdóttir. Verkið
verður flutt þrisvar á Listahá-
tíð í vor en að auki er
stefnt að sýningum í
Færeyjum og Finn-
landi síðar á árinu.
Sýnt þrisvar
FLUTT Á LISTAHÁTÍÐ Í VOR