Morgunblaðið - 03.06.2011, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2011
Róbert B. Róbertsson
robert@mbl.is
Eyjamenn hafa löngum veriðþekktir fyrir vasklegaframgöngu bæði á sjó og ílandi og sannaðist það
eina ferðina enn þegar þeir bræður
Daði, Einar Gauti og Sindri Ólafs-
synir voru í fríi á Spáni í endaðan
maí. Bræðurnir voru nánar tiltekið
staddir á ströndinni La Zena, sem er
í grennd við Torrevieja, þegar at-
burðurinn voveiflegi átti sér stað.
Engin strandgæsla var á svæð-
inu þar sem mesta ferðamanna-
tímabilið var ekki hafið og því engar
merkingar á ströndinni sem gáfu til
kynna að óráðlegt væri að fara í sjó-
inn. Slæmt var í sjóinn þennan dag en
bræðurnir létu það ekki á sig fá og
syntu út til þess að leita að skeri sem
þeir höfðu komið auga á fyrr í ferð-
inni. Leitin gekk illa og ákvað elsti
bróðirinn, Sindri, að synda til baka á
undan bræðrum sínum. Þegar hann
nálgaðist land heyrði hann hrópað á
hjálp.
„Sindri sá höfuð koma upp úr
sjónum og sá að þetta var karlmaður
og spurði hann hvort hann þyrfti
hjálp, sem hann játti. Hann var mjög
máttfarinn og hélt sér varla á floti
sjálfur. Ég held að Sindri hafi séð
fram á að það ætti eftir að reynast
erfitt að koma manninum í land út af
útstreyminu,“ segir Daði Ólafsson.
Fleira fólk í sjónum
Nokkrum andartökum síðar
komu Daði og Einar Gauti Sindra til
hjálpar og komu þeir manninum í
land í sameiningu, en hann var orðinn
blár og kastaði upp sjó. Eiginkona
Sindra, Hildur Sólveig Sigurð-
ardóttir, sem er sjúkraþjálfari,
hringdi eftir sjúkrabíl og hlúði að
manninum.
Eyjapeyjar bjarga
mannslífum í fríinu
„Ég hélt að hún væri dáin. Hún hékk með höfuðið fram á bringu, blá í framan og
augun alveg opin og stjörf,“ segir Daði Ólafsson, sem ásamt bræðrum sínum
tveimur bjargaði tveimur mannslífum á Spáni í maí síðastliðnum.
Ólafssynir F.v. Einar Gauti, Daði og Sindri á góðum degi í Herjólfsdal.
Ströndin Það var þarna sem björgunaraðgerðir drengjanna fóru fram.
Átt þú í vandræðum með að finna
svarið við spurningum sem þú hefur
velt fyrir þér í lengri eða skemmri
tíma? Vísindavefurinn er tæki sem
auðvelt er að nota til að finna svarið.
Vísindavefur Háskóla Íslands var
stofnaður þann 29. janúar árið 2000.
Heimasíðan er með allar tegundir vís-
inda og fróðleiks á sinni könnu, hvort
sem það er stærðfræði eða sálfræði.
Mikið af skemmtilegum fróðleik er að
finna á síðunni sem og tenglum á
aðrar vefsíður í svipuðum dúr.
Á Vísindavefnum er hægt að senda
inn spurningar um allt milli himins og
jarðar og lesa svör við spurningum
sem þegar hefur verið svarað. Á þeim
ellefu árum sem síðan hefur verið
uppi, hefur þar safnast gríðarlega
mikið efni og eru því miklar líkur á
því að svarið, við spurningunni sem
brennur á þér, sé nú þegar að finna á
síðunni.
Fólkið sem stendur að síðunni hef-
ur mikla reynslu og er það allt há-
skólamenntað á mismunandi sviðum.
Vefurinn tekur að sér fjöldann allan
af verkefnum, fyrir einstaklinga, fyr-
irtæki og stofnanir, stærri sem
smærri, gegn greiðslu en það kostar
þó ekkert að senda inn spurningu.
Lendi maður í rökræðum við félaga
sinn, þá er mjög auðvelt að nota Vís-
indavefinn til að skera úr um ágrein-
inginn. Fróðleiksfúsir ættu ekki að
láta það ógert að heimsækja þessa
frábæru vefsíðu, visindavefur.hi.is.
Vefsíðan www.visindavefur.hi.is
Albert Einstein Eðlisfræðingur sem
vissi svör við mörgum spurningum.
Skemmtileg fróðleikssíða
Nú þegar allt angar af nývöknuðum
gróðri og lífið er svona spriklandi
kátt eins og það verður á Íslandi
þegar sumarið lætur á sér kræla, þá
er um að gera fyrir konur þessa
lands að draga fram sumarkjólana
og leyfa leggjunum að njóta sín. Það
gleður alla að sjá föngulegar konur
á öllum aldri spranga um á fislétt-
um sumarkjólum í sandölum eða
háum hælum, og ekki má gleyma að
smæla framan í heiminn af öllum
lífs og sálar kröftum. Kasta svo
bara yfir sig hlýju sjali eða gollu ef
snemmsumargjólan fer að kalla
fram kuldabólur. Njóta lífsins, það
er málið.
Endilega...
...skartið sum-
arkjólunum
Núna um helgina ætlar
Víkingahópurinn Rimmugýgur að
halda Vorhátíð í Reykholti í Bisk-
upstungum. Þetta verður einhvers-
konar upphitun fyrir sumarið og þeir
munu tjalda víkingatjöldum, setja
upp smiðjur og gera margt fleira
skemmtilegt, til dæmis sýna gestum
og gangandi hvernig lífið gæti hafa
gengið fyrir sig á víkingamarkaði fyr-
ir þúsund árum. Einnig munu þeir
æfa bardagalist og ýmis tilþrif að
hætti víkinga. Víkingarnir verða stað-
settir við tjaldsvæðið í Reykholti og
eru þangað komnir í samvinnu við
veitingahúsið Kaffi Klett. Tjald-
Rimmugýgur heldur hátíð í sveitinni
Víkingar ætla að berjast og
smíða um helgina í Tungunum
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Hún svaraði í símann með þessum málrómi,sem hún hafði þróað með sér í gegnum árin ístarfi og var í senn blíður og ákveðinn, ogbað viðmælendur vinsamlegast um að bíða
augnablik meðan hún setti símtalið í bið og sló hratt og
örugglega á rétta hnappa á símanum til að áframsenda
símtalið til þess aðila sem óskað var eftir að ná sambandi
við; t.d. sérfræðings sjávarútvegsráðuneytis á sviði haf-
réttar í síma 368 eða umsjónarmanns auðlindaskrifstofu
sem var í 270 og hún tók spangagleraugun af nefinu og
lét þau hanga í keðjunni um hálsinn á sér, sem enn var
mjög jafnt sólbrúnn allan hringinn og í samræmi við
andlitslitinn, þrátt fyrir að rúmlega mánuður væri liðinn
síðan hún kom heim úr páskaferðinni suður á bóginn – að
vísu höfðu sólböðin verið einstaklega skilvirk og vel
heppnuð í ferðinni, veður himneskt og jafnframt var húð
hennar, í kjölfar skipulagðra og kerfisbundinna sólbaða
um áratugabil, loks farin að birtast öðrum sem brún
per se, sjálfstætt og óháð árstíð eða veðurfari – og
hún svaraði símtölum, náði sér í kaffi og brosti og
kannski hefði mátt draga þá ályktun að dagurinn
í dag væri sérstakur dagur í augum Fanneyjar
Davíðsdóttur vegna þess að hún var óaðfinn-
anlega klædd og snyrt eins og hún væri ekki í
raun staðsett í móttöku ráðuneytisins
heldur í leikhúsi á laugardagskvöldi en
samstarfsmenn hennar voru vanir því að
hún væri glæsileg til fara, sama hvert
tilefnið var, og sögðu því ekkert og
nálguðust hana með sama hætti og þeir
gerðu alltaf og enginn veitti því athygli
að Fanney var óvenjulega brosmild í
dag og glaðlynd í garð þeirra sem
hringdu inn og skartaði ennfremur
gullfallegu og dýrmætu armbandi sem
hún bar einungis við hátíðleg tilefni og
greip utan um með reglulegu millibili,
hvort tveggja til að staðfesta fyrir sjálfri
sér að það hefði ekki dottið af og einnig til
þess að renna fingrunum einu sinni enn yfir
óvenjulegt mynstrið á yfirborði þess, vegna
þess að þetta var í raun stór dagur í hennar lífi og um
kvöldið var hún á leið í glæsilegan kvöldverð á einum af
tilkomumestu veitingastöðum borgarinnar sem eig-
inmaður hennar ætlaði að bjóða henni á í tilefni af tutt-
ugu ára brúðkaupsafmæli þeirra en hún sá enga ástæðu
til þess að segja samstarfsmönnum sínum frá áætlunum
sínum; hún var ekki ein þeirra sem stöðugt þurftu að
básúna og útlista fyrir öðrum óskir sínar, þrár, drauma
og daglegt líf og það nægði henni að vita að hún var ham-
ingjusöm og hún var viss um að hamingjunnar yrði best
notið í þögn og jafnframt gerði hún sér grein fyrir þeim
forréttindum sem fólust í því að vera í langvinnu og
farsælu hjónabandi sem ennþá, eftir tuttugu ár, var í
hennar augum jafnspennandi og -líflegt og það var í
upphafi og í raun væri engum greiði gerður með
því að áminna fólk um hversu fágætt er að fá að
upplifa langtíma-hamingju og – full-
nægju með þeim sem maður elskar
og upplifa þá tilfinningu, án þess að
hún verði klisja, að maður sé í sam-
bandi með hinum eina rétta í veröldinni
og þess vegna reyndi Fanney að fela
bros sitt á meðan hún faxaði eyðublöð
til lögfræðisviðs Fiskistofu og
hreinsaði vaskinn í kaffihorninu og
hlakkaði kannski eða kannski ekki
aðeins meira til þess en venjulega að
stimpla sig út úr kerfinu í dag.
»... og hún tók spangagleraugun af nef-inu og lét þau hanga í keðjunni um
hálsinn á sér, sem enn var mjög jafnt sól-
brúnn allan hringinn og í samræmi við
andlitslitinn ...
HeimurHalldórs
Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is