Morgunblaðið - 03.06.2011, Page 11
Bræður Drengirnir skemmtu sér konunglega í fríinu. Hér eru þeir að reyna fyrir sér í bodsía.
„Við vorum í þann mund að
leggja af stað á barinn þegar það er
bankað í mig og Einar Gauta og við
látnir vita að það sé fleira fólk í sjón-
um. Ég horfi út á sjó og sé að það
eru tveir menn að berjast við að
koma konu í land u.þ.b. tuttugu
metrum frá landi. Við rjúkum af stað
til að hjálpa mönnunum, sem voru
orðnir mjög þreyttir.“
Daði og Einar Gauti komu síðan
konunni í land, en hún var þá orðin
meðvitundarlaus.
„Ég hélt að hún væri dáin. Hún
hékk með höfuðið fram á bringu, blá
í framan og augun alveg opin og
stjörf. Þá byrjaði að vella froða upp
úr henni og við flýttum okkur eins
og við gátum með hana í land. Þegar
við komum í land tók Hildur á móti
konunni ásamt spænskri konu og
manni og hjálpuðust þau að við end-
urlífgun. Sjúkraflutningamenn
komu síðan á staðinn og tóku við af
Hildi.“
Eiginmaður konunnar tjáði
drengjunum síðar að konan hefði lif-
að þetta af og var hann þeim mjög
þakklátur.
Björgunarafrek
Erlendir fjölmiðlar hafa fjallað
um björgunarafrek drengjanna, sem
og drukknanir á svæðinu, og á vef
Costa news og Euro weekly kemur
fram að þrír ferðalangar hafi
drukknað á sömu slóðum.
Bræðurnir þrír eru ekki óvanir
sjónum, en þeir hafa allir komið ná-
lægt sjómennsku með einum eða
öðrum hætti. Daði leggur nú loka-
hönd á meistararitgerð sína í sjáv-
arútvegsfræði frá Háskólanum á
Akureyri, Einar Gauti vinnur í fiski
og Sindri starfar hjá Skipalyftunni í
Vestmannaeyjum.
svæðið er einnig opið öllum tjald-
gestum þessa helgi. Má áætla að
um 50 víkingar verði á svæðinu.
Hefst hátíðin á laugardag og stend-
ur fram á seinnipart sunnudags.
Víkingarnir í Rimmugýgi hvetja fólk
eindregið til að koma á vorhátíðina
og skoða víkinga í sínu eðlilega um-
hverfi. Allir eru velkomnir og enginn
aðgangseyrir.
Rimmugýgur er félag áhuga-
manna um menningu og bardagalist
víkinga, sem var stofnað árið 1997.
Morgunblaðið/Ómar
Kappar Þeir eru sumir hverjir
vígalegir víkingarnir en samt
bestu skinn.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2011
Brúðubíllinn er mörgum börnum afar kær
enda hefur hann og dýrin sem honum fylgja
verið á flakki á sumrin undanfarin þrjátíu ár.
Sýning Brúðubílsins í júní þetta árið heitir
„Ævintýri Lilla“ en sýningin í júlí heitir
„Sögurnar hans Lilla“.
Forsýning verður núna á mánudaginn 6.
júní kl. 14:00 í Hallargarðinum en frumsýn-
ing Brúðubílsins verður daginn eftir, þriðju-
daginn 7. júní kl 14:00 í Árbæjarsafni.
Allir eru velkomnir á þessar sýningar sem
eru á vegum ÍTR.
Handrit og brúður eru eftir Helgu Stef-
fensen, brúðustjórnun er í höndum Helgu
og Gígju Hólmgeirsdóttur, leikstjóri er
Sigrún Edda Björnsdóttir og bílstjóri og
tæknimaður er Atli Rúnar Bender.
Brúðubíllinn fer af stað eftir helgi
Morgunblaðið/Ernir
Kunnuglegar Hér eru persónur úr leikritinu „Ævintýri Lilla“.
Brúðubílsfólkið Atli Rúnar, Helga, Sigrún Edda Björnsdóttir og Gígja.
Dagskrána má sjá á
www.brudubillinn.is eða
sumar2011@itr.is
Lilli hefur ver-
ið með frá
upphafi.
Ævintýrin bíða Lilla og félaga
Rauði kross Íslands býður upp á
skyndihjálparnámskeið, sniðin að
þörfum einstaklinga og hópa.
Mikilvægt er fyrir alla að vera með
grunnkunnáttu í skyndihjálp og
þekkja merki þess að ein-
staklingur sé hjálparþurfi. Endur-
lífgunarnámskeið er ætlað öllum
þeim sem vilja æfa sig í grunn-
atriðum endurlífgunar. Þeim sem
sækja námskeiðið er ætlað að öðl-
ast færni í að beita hjartahnoði og
blæstri og kunnáttu við notkun
hjartastuðtækis við endurlífgun.
Beita þarf endurlífgun ef um önd-
unar- og hjartastopp er að ræða.
Ef rétt er staðið að skyndihjálp
getur það skilið á milli lífs og og
dauða. Þeim sem vilja kynna sér
betur námskeið Rauða kross Ís-
lands er bent á að skoða heima-
síðu félagsins, sem er redcross.is.
Einstaklingar geta sent fyrirspurn
á central@redcross.is en fyrirtæki
og hópar ættu að beina sínum fyr-
irspurnum á gulla@redcross.is. Þá
er síminn á landsskrifstofu félags-
ins 570 4000.
Endurlífgunarnámskeið hjá
Rauða krossi Íslands
SKYNDIHJÁLP
Dagskráin 4. júní
Kl. 09.00 Bringusundskeppni, 100 m bringusundskeppni barna sem fædd eru árið 1999, vegleg
verðlaun fyrir þrjú efstu sætin. Byko og Intersport styrkja.
Kl. 10.00 Bíla- og mótorhjólasýning, fylgihlutir og tæki. Sjóvá og VÍS styrkja.
Kl. 14.00 Bændagangan, keppt verður í bændagöngu í tveimur flokkum, 14-16 ára með tvö 10
kg lóð og 17+ með tvö 20 kg lóð. Límtré-Vírnet styrkir.
Kl. 15.00 Kappreiðar, hestaspyrna (stuttar kappreiðar 150-250 m á beinni braut).
Flúðasveppir styrkir.
Kl. 16.00 Reipitogið, reipitog á milli fyrirtækja á suðurlandi, en keppt verður í 4 og 6 manna
liðum. KFC og Góa Linda styrkja.
Kl. 18.00 Makalausakeppnin, síðasta keppnisgrein dagsins verður keppni í armbeygjum en
keppendur þurfa fyrst að svara nokkrum laufléttum spurningum um heimilishald.
Skilyrði til að taka þátt í þessari keppnisgrein er að viðkomandi sé á aldrinum 25-45
ára og sé einhleypur. Hótel Geysir styrkir.
Þarna verður að sjálfsögðu sungið og trallað til klukkan 22:00 en þá lýkur formlegri dagskrá. Glæsileg
verðlaun verða veitt fyrir keppnirnar, en sem dæmi um vinninga fá þrír karlmenn og þrjár konur hótel-
gistingu með kvöldverði og morgunverði á Hótel Geysi í Haukadal og verða þessir 6 einstaklingar þar á sama
tíma. Á Hótelinu er náttúrusundlaug, gufubað og heitir pottar.
Nóg er af tjaldstæðum og ýmsir gistimöguleikar í boði. Þá má þess geta að á þessum árstíma eru Flúðir
orðinn einn ljúfasti helgardvalarstaður landsins enda er náttúrufegurðin þar ótrúleg. Rólegt og þægilegt
mannlíf og gott viðmót og kurteisi einkenna íbúa staðarins.
Flúðadeild Fordfélagsins stendur fyrir mikilli fjölskylduhátíð á
Flúðum laugardaginn 4. júní nk. Verður þetta sannkölluð
fjölskylduhelgi og margt að gerast. Allir eru velkomnir og er þetta
kjörinn helgardvalarstaður fyrir fjölskyldufólk með börn.
Fjölskylduhátíð Fordfélagsins á Flúðum
helgina 3.-5. júní 2011
Klipptu út auglýsingun
a, svaraðu spurningunu
m og
skilaðu þeim á sviðið á
Flúðum.
Vinningshafar fá flott v
erðlaun frá Freyju.
Hvað eru mörg stöðuvö
tn í Hrunamannahrepp
i ?
Hvað heita þau?
Hvert þeirra er dýpst?
Eru DJÚPUR að finna í
Hrunamannahreppi?
Hvar er DJÚPUR að finn
a í Hrunamannahreppi
?
Hvar heldur NYKURINN
sig þegar hann er í Hru
namannahreppi?
Nafn
Heimilisfang
Símanúmer
Þeir sem vilja skrá sig í þessar keppnisgreinar eða vantar frekari upplýsingar
geta sent á netföngin harri@simnet.is og snorrivv@hotmail.com
MELAR
FLÚÐUM