Morgunblaðið - 09.06.2011, Síða 11
Trjáklifur Ekki er hjá því komist að príla, eiginmaðurinn og vinnumaður klippa eitt af mörgum ólífutrjám.
sé allt æðislegt og yndislegt á bú-
garðinum en þau hafi ekki áttað sig
á hversu mikillar vinnu það krefst að
standa í þessari ræktun. „Við tókum
ekki við ræktuninni fyrr en ári eftir
að við keyptum en vorum með
bændunum eins og gráir kettir,
bæði til að læra af þeim og hjálpa
þeim. Við ferðuðumst líka mikið um
héraðið og kynntum okkur og
kynntumst vínbændum, fengum að
vera með og sjá og hjálpa til. Við
lágum á netinu og pöntuðum allar
víngerðarbækur sem við fundum.
Svo var bara byrjað. Þau eru mörg
handtökin við ræktunina, það þarf
að klippa vínviðinn, binda hann upp,
laga alla staura og úða. Og allt hand-
unnið á tveimur jafnfljótum. Við
komumst yfir þetta fyrsta sumarið
með hjálp sonar okkar en það var of-
boðslega mikil vinna. Auk þess
þurftum við að endurgera víngerð-
arkjallarann alveg frá grunni, þar
voru rottur og kakkalakkar. Við
þurftum að flísaleggja og þrífa öll
kerin og það var margra mánaða
þrælavinna en ofsalega gaman.“
2.000 lítrar af ólífuolíu
Þau voru með sína fyrstu vín-
uppskeru haustið 2009 og gerðu allt
eftir bókinni. „Við stöppuðum berin
sjálf og stefndum til okkar mörgu
fólki. Þetta var mikil hátíð. Næsta
uppskera var í nóvember en þá tín-
um við ólífurnar. Við eigum að geta
fengið um 2.000 lítra af ólífuolíu en
helmingurinn af
uppskerunni fraus
og eyðilagðist, svo
við fengum aðeins
hálfa uppskeru. Sú
uppskera kom öll
hingað til Ís-
lands, nema lít-
ill hluti sem ég
seldi úti beint
til bændanna
nágranna
minna. Árið eft-
ir, 2010, feng-
um við aftur
aðeins hálfa
uppskeru af
því sumarið
var svo blautt.
Það er gífurleg
vinna að halda þessum plöntum við,
bæði vínviðinum og ólífutrjánum,
sérstaklega ólífutrjánum því þau
voru úr sér vaxin. Við erum enn að
klippa þau til, við erum með 650 tré
og komumst yfir að klippa tvö til
þrjú tré á dag.“
Ekki bara púl,
líka gaman
Til að gerast viðurkenndur
bóndi þurfti Valgerður að fara á
námskeið og prófið var munnlegt, á
ítölsku. „Við vorum tvær konur og
níu karlar sem mættum í prófið og
við vorum bara tvö sem náðum, ég
og einn karlinn,“ segir Valgerður og
hlær. Hún segist hafa notfært sér
menntun sína sem líffræðingur og
snúið svörum sínum upp í tilvitnanir
í rannsóknir.
„Þar sem ég er skráður bóndi
og rek þennan búgarð hef ég verið
meira á Ítalíu en maðurinn minn, en
líf okkar einkennist núna þó nokkuð
af því að fljúga á milli Íslands og
Ítalíu, því strákarnir okkar eru
núna hér heima í skóla. Ég er búin
að ráða mann til að halda búskapn-
um í horfinu því það var svo mikið
að gera í fyrrasumar að ég gat ekki
skroppið heim. Þá er þetta ekki orð-
ið eins og maður vill hafa það. Við
viljum að þetta sé líka gaman, ekki
bara púl.“
Íslendingar tekið olíunni vel
Valgerður segir að ef þau nái
2.000 lítra ólífuolíuuppskeru og geti
selt hana alla muni búið standa undir
sér. „Olían gefur eingöngu af sér því
ég hef ekki leyfi til að setja vínið
okkar á flöskur og selja á almennum
markaði. Við erum með 10.000 lítra
af víni sem við seljum aðeins þeim
sem koma við hjá okkur, og drekk-
um það sjálf. Þetta er hversdagslegt
bændavín, því þetta er gömul vín-
ekra og gamlar vínviðarplöntur sem
við þurfum að endurnýja. Ég er búin
að fá leyfi til að rífa upp allar vínvið-
arplönturnar og móta landið upp á
nýtt. Þetta er 10-15 ára plan hjá okk-
ur,“ segir Valgerður og bætir við að
þetta hafi allt saman verið mikið æv-
intýri. „Það hefur verið gefandi og
þroskandi að standa í þessu. Mér
finnst líka svo frábært hvað Íslend-
ingar hafa tekið ólífuolíunni okkar
vel. Ég hef verið að kynna hana og
fræða fólk um að ólífuolía er ekki það
sama og ólífuolía. Í fjöldaframleiddri
olíu veit neytandinn ekkert hvaðan
ólífurnar koma eða hvernig er búið
að fara með þær. Í ódýrustu olíunum
er stundum ekki ein einasta ólífa.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2011
Laugavegi 63 • S: 551 4422
–flottir báðum megin
einlitir/köflóttir kr. 25,900,-
Vattjakkar
20%
afslá
ttur
Skoðiðfleiri vörur áwww.laxdal.is
Margir telja Lucca-héraðið
besta ólífuhérað heims. Olían
er bragðmikil en þó létt, auð-
þekkjanleg af blómaangan og
ávaxtakeim með örlítilli
beiskju í undirtón.
„Við tínum ólíf-
urnar sjálf af trján-
um á Tenuta A Deo.
Tveimur sólar-
hringum síðar eru
þær komnar til hr.
Luca Perna sem
pressar þær
fyrir okkur af
alúð. Engar sí-
ur, engin auka-
efni og engar
ólífur frá ódýr-
ari svæðum
koma við sögu í
framleiðslu á
þessari vöru.“
Facebook:
Tenuta A Deo
Tenuta A Deo
BEINT FRÁ BÝLI
A DEO olía
Nóatún
Gildir 9.-12. júní verð nú verð
áður
mælie. verð
Lambalæri ................................ 1348 1498 1348 kr. kg
Lambalæri kryddað.................... 1348 1498 1348 kr. kg
Lambalæri m/villisveppum úrb. .. 1978 2198 1978 kr. kg
Lambaribeye ............................. 3598 3998 3598 kr. kg
Lambaribeye krydd að eigin vali .. 3598 3998 3598 kr. kg
Grísahnakki þriggja osta fylling ... 1399 1698 1399 kr. kg
Ungnautapiparsteik ................... 3590 3989 3590 kr. kg
Ungnautafile ............................. 3590 3989 3590 kr. kg
Ísl. m. kjúklingabringur ............... 2293 2698 2293 kr. kg
Metropole kaffi Reg./Dark Roast . 249 299 249 kr. pk.
Samkaup/Úrval
Gildir 9.-13. júní verð nú verð
áður
mælie. verð
Goði grillpylsur osta 300 g.......... 349 469 349 kr. pk.
Ísfugl kalkúnagrillsn./grillpoki ..... 1169 1798 1169 kr. kg
Kjötb./pakkað lambakótilettur .... 1349 1798 1349 kr. kg
Kjötb./pakkað lambafram-
partssn. ....................................
796 1098 796 kr. kg
Kjötb./pakkað lambainnralæri .... 2159 2998 2159 kr. kg
Kjötb./pakkað lambalærissn. ..... 1499 1898 1499 kr. kg
Tómatar ísl pk. 1 kg.................... 324 648 324 kr. kg
Coop hrískökur m/salti 100 g ..... 99 159 99 kr. pk.
Coop einnota grill ...................... 489 698 489 kr. stk.
Coop Cider epla eða peru 1,5 l ... 248 329 248 kr. stk.
Þín verslun
Gildir 9.-12. júní verð nú verð
áður
mælie. verð
Íslensk laxaflök.......................... 1998 2589 1998 kr. kg
Svínakótilettur ........................... 1198 1854 1198 kr. kg
Kjúklingabringur ........................ 2199 2749 2199 kr. kg
Pågen kanilsnúðar 260 g ........... 415 519 1600 kr. kg
Remi piparmyntukex 100 g......... 235 285 2350 kr. kg
Remi nougat 100 g.................... 249 298 2490 kr. kg
Weetos heilhveitihringir 375 g..... 579 649 1540 kr. kg
Duck klósettgel 36 ml ................ 748 998 20780 kr. ltr
Pop Secret 298 g ...................... 249 359 840 kr. kg
Nóa kropp 150 g ....................... 269 339 1790 kr. kg
Uppskera Nóg er að gera þegar koma þarf hráefninu í hús.
Berjabað Valgerður stappar berin
eins og vera ber eftir hefðinni.
Til að fagna komu tveggja nýrra Blue Lagoon-húðvara
var í gærkvöldi haldið heljarinnar boð ofan í lóninu sjálfu
fyrir um 400 konur. Kynnt var
endurnærandi skrúbb fyrir and-
lit og líkama, Blue Lagoon Silica
Mud Exfoliator, byggt á kísil úr
Bláa lóninu og inniheldur örfínar
kísilagnir sem slípa húðina og
fjarlægja dauðar húðfrumur.
Einnig var kynnt fótakremið Si-
lica Foot & Leg Lotion sem inni-
heldur líka kísil Bláa lónsins og
styrkir og nærir auk þess að inni-
halda mentól sem kælir, róar og
frískar fæturna.
Morgunblaðið/Eggert
Leðja Gestir Bláa Lónsins bera gjarnan á sig kísilríka leðjuna.
Fyrir andlit og tásur