Morgunblaðið - 15.06.2011, Side 12
Á fimmtudag sl. var formlega opn-
að nýtt tjaldsvæði á Hellissandi á
svæði sem heitir Hrossabrekkur.
Það voru Jón Þór Lúðvíksson og
Kristján Þórðarson bæjarfulltrúar
sem klipptu á borðann á nýja tjald-
svæðinu.
Á tjaldsvæðinu er þjónustuhús
með góðri aðstöðu fyrir tjaldgesti.
Aðstaðan á tjaldsvæðinu er eins og
best verður á kosið, góð salernis-
aðstaða, sturtuaðstaða, rafmagn
fyrir þá sem vilja og einnig er hægt
að losa seyru úr húsbílum og fleira.
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
Snæfellsbæjar, segir í samtali við
Morgunblaðið að tjaldsvæðið sé
góð viðbót við ferðaþjónustu á
svæðinu. Ferðamannastraumurinn
fari ört vaxandi á Snæfellsnesi,
bæði meðal erlendra og innlendra
ferðamanna og hafi tjaldsvæðið í
Ólafsvík oft verið yfirfullt síðast-
liðið sumar.
Morgublaðið/Alfons
Klippt á borða Jón Þór Lúðvíksson og Kristján Þórðarson bæjarfulltrúar klippa á borð-
ann og opna formlega nýja tjaldstæðið á Hellissandi á Snæfellsnesi.
Nýtt tjaldsvæði opnað á Hellissandi
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2011
VELKOMIN Á BIFRÖST
Umsóknarfrestur
rennur út í dag
Skilaðu umsókn
núna á bifrost.is
Háskólasamfélagið á Bifröst er einstakt samfélag sem sameinar vandað nám
og frábært umhverfi fyrir börn og fullorðna. Við leggjum áherslu á að undirbúa
nemendur fyrir atvinnulífið með markvissri kennslu og raunhæfum verkefnum.
Markmið okkar er háskóli í tengslum við raunveruleikann.
FRUMGREINANÁM GRUNNNÁM MEISTARANÁM
Frumgreinanám
í stað- og fjarnámi
HHS – heimspeki, hagfræði
og stjórnmálafræði
Viðskiptafræði í stað-
og fjarnámi
Viðskiptafræði í fjarnámi með
áherslu á markaðssamskipti
Viðskiptalögfræði
MA í menningarstjórnun
MA í menningarfræði
MS í alþjóðaviðskiptum
Frelsismen ÞÚ GETUR selur menið.
ÞÚ GETUR! – forvarna- og
fræðslusjóður, stendur nú fyrir sölu
á Frelsismeninu til eflingar geð-
heilsu. Allur ágóði af sölunni renn-
ur óskertur í námsstyrki til ungs
fólks með geðraskanir.
Markmið forvarna- og fræðslu-
sjóðsins ÞÚ GETUR! er að vekja
fólk til meðvitundar um mikilvægi
góðrar geðheilsu og eflingu henn-
ar. Þar að auki eru verkefni sjóðs-
ins að styrkja þá til náms sem hafa
átt við geðræn veikindi að stríða og
að efla þjónustu við geðsjúka á sviði
fræðslu og forvarna.
Styrkja geðsjúka
Opnuð hefur verið sýningin
„Franskir sjómenn við Íslands-
strendur“ á Minjasafni Egils
Ólafssonar á Hnjóti í Örlygshöfn
á Vestfjörðum.
Sýningin er um veru Frans-
manna hér við land. Hún sam-
anstendur af gömlum myndum og
munum, mörgum yfir 100 ára, 17
plakötum um helstu samskipti
sjómannanna við landsmenn,
frönskum og íslenskum bókum
um útgerð þeirra á Íslandsmið og
nútímahorni þar sem nýju sam-
skiptunum er lýst.
Þá hefur einnig verið opnuð ný
kaffitería á safninu „Gott í
kroppinn“ sem rekin er af hjón-
unum Sverri Kristjánssyni og
Heiðrúnu Sigurðardóttur.
Minjasafnið er opið alla daga
frá kl. 11.00 til kl. 19.00, en kaffi-
terían er opin frá kl. 11.00 til kl.
20.00 alla daga.
Forstöðumaður Minjasafns Eg-
ils Ólafssonar er María Ósk-
arsdóttir.
Hnjótur Franskir sjómenn fá nú sinn sess í
Minjasafninu að Hnjóti.
Franskir sjómenn
við Íslandsstrendur
Ríkisstjórn Íslands ákvað síðastliðið haust, að tillögu
umhverfisráðherra, að tileinka 16. september ár hvert
íslenskri náttúru. Dagurinn er fæðingardagur Ómars
Ragnarssonar. Sem frétta- og þáttagerðarmaður hefur
Ómar Ragnarsson verið óþreytandi við að opna augu al-
mennings fyrir þeim auðæfum sem felast í náttúru
landsins og mikilvægi þess að vernda hana og varðveita.
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra vekur í bréfi
sem hún sendi fjölmiðlum í gær athygli á því hlutverki
sem íslensk náttúra gegnir í sjálfsmynd þjóðarinnar. „Æ
fleiri gera sér grein fyrir mikilvægi þess að njóta þess
sem íslensk náttúra hefur að bjóða og við erum stolt af
því að sýna gestum hina einstöku náttúru landsins,“ skrifar Svandís. Með
því að tileinka íslenskri náttúru sérstakan heiðursdag sé mikilvægi hennar
undirstrikað um leið og Íslendingar séu minntir á hversu mikils virði hún
er. sunna@mbl.is
Dagur íslenskrar náttúru haldinn í haust
Svandís
Svavarsdóttir
KARLMAÐUR á þrítugsaldri var
tekinn í tvígang fyrir fíkniefnaakst-
ur um helgina. Fyrst var hann
stöðvaður í Kópavogi á laugardags-
kvöld og færður á lögreglustöð en
sleppt nokkru síðar en viðkomandi
hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.
Ekki lét maðurinn sér samt segjast
og settist aftur undir stýri í annar-
legu ástandi nokkrum klukkutím-
um síðar. Þá hafði hann komist yfir
annan bíl í Kópavogi. Lögreglunni
tókst hins vegar að stöðva för hans
og reyndi maðurinn þá að komast
undan á hlaupum. Hann var því
handtekinn öðru sinni og var þá
einnig með fíkniefni í fórum sínum.
Handtekinn tvisvar
STUTT
Fáskrúðsfjörður | Hoffell SU 80 kom til Fáskrúðsfjarðar
fyrir síðustu helgi með um 250 tonna afla. Aflinn var
sambland af makríl og síld. Þó er meira af makríl sem fer
til vinnslu hjá Loðnuvinnslunni.
Í samtali við Gísla Jónatansson, framkvæmdastjóra
Loðnuvinnslunnar, kom fram að aflinn fer allur til
vinnslu. Makríllinn er frystur en síldin söltuð.
Bolfiskkvóti fyrirtækisins þetta fiskveiðiárið hefur nú
verið veiddur svo makríllinn er mikil búbót fyrir Loðnu-
vinnsluna.
Makríl og síld landað
Morgunblaðið/Albert Kemp
Gert klárt Vinnsla er hafin á makríl hjá Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði.