Morgunblaðið - 15.06.2011, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2011
Upp hefur komist um mikinn blekkingarleik
á vefsíðunni LezGetReal þar sem m.a. sýr-
lensk lesbía hefur í raun reynst fertugur
bandarískur karlmaður. Að auki hefur komist
upp að annar af umsjónarmönnum síðunnar,
sem skrifaði undir nafninu Paula Brooks, er
einnig karl. Uppi varð fótur og fit er sýr-
lenska lesbían Amina Arraf, var sett í varð-
hald vegna skoðana sinna. Lesendur síðunnar
fóru í mikla herferð og börðust fyrir lausn
hennar.
Í afsökunarbeiðni sem birt hefur verið á
síðunni segir Linda Carbonell, umsjón-
armaður síðunnar, að síðustu dagar hafi verið
ömurlegir fyrir alla sem að síðunni koma
enda hafi Paula Brooks verið mikilvægur
hlekkur í baráttunni fyrir réttindum samkyn-
hneigðra í Sýrlandi og víðar.
Bill Graber, karlinn á bak við Paulu Bro-
oks, segist ekki hafa ætlað að særa eða
blekkja neinn. Þá hefur karlinn sem þóttist
vera sýrlenska lesbían einnig beðist afsök-
unar. Blogg hans hét áður „Samkynhneigð
stúlka í Damaskus“ en heitir nú réttilega
„Blekkingin“. Sá biðst afsökunar á því að
hafa skaðað málstað samkynhneigðra með
uppátæki sínu.
Stuðningsmenn „Aminu“ eru þó enn bál-
reiðir. Sumir segjast hafa lagt sig í hættu við
að rannsaka handtöku hennar sem sögð var
m.a. vera í kjölfar skrifa Aminu um forseta
Sýrlands, Bashar al-Assad.
Graber hefur reynt að réttlæta gjörðir sín-
ar og m.a. bent á að það hafi verið hann sem
kom upp um blekkinguna sem sýrlenska
lesbían Amina var. sunna@mbl.is
„Sýrlenska lesbían“ reyndist karl
Aðstandandi vefsíðu sem barðist fyrir réttindum samkynhneigðra fletti ofan af karli sem þóttist
vera sýrlensk lesbía Reyndist svo sjálfur sigla undir fölsku flaggi Lesendur síðunnar æfir
Reuters
Uppreisn Mótmæli ungs fólks gegn forseta Sýrlands fara nú fram reglulega á götum úti.
veg fyrir fjölgun „óæskilegra sam-
félagshópa“, t.d. til hindra blöndun
kynþátta og til að koma böndum á
fjölgun innflytjenda, s.s. gyðinga og
Ítala, segir í frétt BBC um málið.
Indiana var fyrsta ríkið sem hóf að
framkvæma ófrjósemisaðgerðirnar,
árið 1907. Síðustu aðgerðirnar í
tengslum við verkefnið voru fram-
kvæmdar árið 1979.
Framkvæma mátti aðgerðirnar á
tilteknum þjóðfélagshópum, s.s.
glæpamönnum, „vandræðaungling-
um“, samkynhneigðum körlum, fá-
tækum sem þáðu framlög frá hinu op-
inbera, fólki sem var veikt á geði eða
var flogaveikt. Í sumum ríkjum var
gengið enn lengra, og voru ákveðnir
hópar, s.s. gyðingar, blökkumenn og
innflytjendur frá Suður-Ameríku,
gerðir ófrjóir gegn vilja sínum.
„Í raun var þetta þjóðernishreins-
un,“ segir Paul Lombardo, sagnfræð-
ingur við ríkisháskólann í Georgíu.
Lögin sem heimiluðu aðgerðirnar
voru vægast sagt loðin og voru þess
eðlis að foreldrar höfðu oft ekki annað
val en að leyfa ófrjósemisaðgerðir á
börnum sínum, að öðrum kosti hefðu
þau misst bætur. Rökin fyrir aðgerð-
unum voru m.a. þau að glæpamenn
myndu ala af sér glæpamenn sem
myndu enda á framfæri hins opin-
bera.
Kynþáttahreinsanirnar voru rétt-
lættar með því að „því færri svört
börn sem myndu fæðast – þeim mun
betra, að mati margra á þessum
tíma,“ segir Lombardo.
„Blökkumenn myndu hvort eð er
enda á framfæri þess opinbera
Nokkur ríki Bandaríkjanna hafa í
gegnum árin beðist afsökunar á því
að hafa beitt fólk þeim órétti sem fólst
í framkvæmd ófrjósemisaðgerðanna.
Í Norður-Karólínu, þar sem mjög
margar aðgerðir voru framkvæmdar,
aðallega á konum, er nú unnið að því
að reikna út bætur til handa fórnar-
lömbunum.
Ófrjósemisaðgerðir sem þessar
tíðkuðust víða í hinum vestræna
heimi á síðustu öld. Voru lög sem
heimiluðu slíkar aðgerðir m.a. tekin
upp í Finnlandi, Svíþjóð og Noregi.
Ófrjóir gegn vilja sínum
Yfir 60 þúsund Bandaríkjamenn fóru í ófrjósemisaðgerðir gegn vilja sínum á ár-
unum fyrir 1979 Markmiðið að koma í veg fyrir fjölgun fátækra og veikra
BAKSVIÐ
Sunna Ósk Logadóttir
sunna@mbl.is
Elaine Riddick var nauðgað árið
1968. Þá var hún þrettán ára. Er hún
ól barnið á sjúkrahúsi var fram-
kvæmd á henni ófrjósemisaðgerð, án
hennar vitundar. Ólæs amma hennar
hafði reyndar gefið samþykki sitt,
með því að setja „x“ á vottorð á
sjúkrahúsinu.
Elaine var ein 60 þúsund Banda-
ríkjamanna sem voru gerðir ófrjóir
gegn vilja sínum fyrir árið 1979 í op-
inberri aðgerð með það að markmiði
að hefta fjölgun fátækra og geðveikra
í landinu. Nú, áratugum síðar, hefur
eitt ríki, Norður-Karólína, ákveðið að
bjóða fórnarlömbum aðgerðanna
bætur.
Hópur á vegum stjórnvalda ríkis-
ins leitar nú um 2.900 fórnarlamba
sem talin eru enn vera á lífi. Er ætl-
unin að safna upplýsingum um fólkið
og leyfa því að segja sögu sína.
Óæskilegir samfélagshópar
Aðgerðirnar á sínum tíma voru á
landsvísu. Var þeim ætlað að koma í
Bandaríska varnarmálaráðuneytið
er komið í herferð gegn óvarkárni
hermanna í netheimum. Snýr her-
ferðin aðallega að samskiptasíðum
á borð við Twitter og Facebook.
Eru hermenn og fjölskyldur þeirra
sem nota slíkar síður varaðir við
því að kæruleysislegt hjal geti kost-
að mannslíf. Hefur skilaboðunum
m.a. verið dreift í auglýsinga-
myndböndum á YouTube. Í einu
myndbandinu skrifar móðir á vegg-
inn sinn á Facebook að sonurinn
hafi það gott og njóti sín á nýja
staðnum. Skömmu síðar birtist
maður í hermannabúningi á þrösk-
uldnum og í kjölfarið kemur boð-
skapurinn: „Það eru ekki aðeins
vinir og vandamenn sem lesa skila-
boð á veggnum þínum.“
Á vef varnarmálaráðuneytisins
er nú auk þess að finna örygg-
isleiðbeiningar um hvernig beri að
haga sér í netheimum. Mælst er t.d.
til þess að hermenn gefi sem minnst
af persónulegum upplýsingum um
sig á samskiptasíðum. Er sérstak-
lega varað við því að auðkennis-
þjófar nýti sér fjarveru hermanna
og geti valdið þeim miklu fjárhags-
legu tjóni.
Í síðari heimsstyrjöldinni fór
varnarmálaráðuneytið í sambæri-
lega herferð þar sem hermenn og
ættingjar þeirra voru varaðir við að
gefa upp viðkvæmar upplýsingar.
sunna@mbl.is
Hermenn varaðir
við óvarkárni
í netheimum
BANDARÍKIN
Á hvaða fólki voru framkvæmdar
ófrjósemisaðgerðir, gegn vilja
þess?
Í skjölum frá Norður-Karólínu kem-
ur fram að hópurinn var nokkuð
breiður en óæskileg kynferðisleg
hegðun var augljóslega meðal þess
sem þótti nauðsynlegt að koma í
veg fyrir með ófrjósemi. Fyrir árið
1950 var t.d. ófrjósemisaðgerð
framkvæmd á ungri stúlku sem
hefði skilið við eiginmanninn og í
kjölfarið viðhaft „ósæmilega“ hegð-
un. Þá var einnig framkvæmd að-
gerð á 16 ára blökkustúlku sem
þótti sýna „afbrigðilega“ kyn-
hegðun í kjölfarið.
En hvað um aðra hópa?
Fátækir voru einnig skotmark að-
gerðanna. Fyrir árið 1950 var t.d.
framkvæmd ófrjósemisaðgerð á
hvítri þriggja barna móður sem
hafði þegið bætur í nokkur ár auk
þess að hafa orðið „uppvís“ að því
að eiga í kynferðissambandi við
„negra“.
Spurt&svarað
Tvö stærstu
kennarasambönd
Bretlands hafa
ákveðið að hefja
verkfall í lok
mánaðarins.
Verði af verkfalli
mun það hafa
áhrif á fleiri þús-
und skóla víðs-
vegar um landið. Kennararnir eru
ósáttir við boðaðar breytingar á
eftirlaunum þeirra sem m.a. fela í
sér að eftirlaunaaldur kennara
hækkar.
Kennararnir segja breytingarnar
af pólitískum toga en ekki fjárhags-
legum. sunna@mbl.is
Kennarar vilja
óbreytt eftirlaun
BRETLAND
Kappreiðar eru vinsæl íþrótt í Bretlandi. Mörg
hundruð manns fylgjast með þeim úr áhorf-
endastúkunni og enn fleiri láta sér nægja að sitja
heima fyrir framan sjónvarpið og fylgjast með.
Á fyrsta degi hinna vinsælu konunglegu As-
cot-kappreiða var það knapinn Tom Quealy á
hestinum Frankel sem bar sigur úr býtum.
Keppnin fer fram á Suður-Englandi og er ein sú
stærsta sinnar tegundar.
REUTERS
Frankel varð fremstur