Morgunblaðið - 13.07.2011, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2011
inni en Guðrún Hildur Kolbeins, for-
maður björgunarsveitarinnar Vík-
verja, var í trukknum sem ferjaði
farþegana svo í land. Hún kveðst ekki
telja að Björn hafi ekið yfir síðasta ál-
inn á neitt óeðlilegum stað. „Mér
fannst hann bara vera rétt á eftir okk-
ur,“ segir Guðrún. Aðeins sé einn
sökudólgur í málinu og það sé áin.
Fimmtán mínútur til hálftími liðu frá
fyrri ferð rútunnar yfir og þar til hún
festist. Á þeim tíma breytti áin sér
mikið.
Í fyrradag ók Björn jeppa á undan
rútunni í hverri ferð til að kanna vöðin.
Því var hætt í gær, að sögn Björns,
eftir að starfsmenn Vegagerðarinnar
sögðu það óþarft þar sem rútan gæti
keyrt sömu leið og trukkarnir sem
fluttu bíla.
Páll Eggertsson, formaður björg-
unarsveitarinnar Lífgjafar, segist
telja að rútan hafi verið mjög nálægt
þeim stað þar sem áður hafði verið
farið. Í sama streng tekur Hörður D.
Björgvinsson, formaður Kyndils frá
Kirkjubæjarklaustri.
Flestir farþegarnir héldu áfram för
sinni en ein hjón fóru aftur til Víkur.
Öllum flutningum var hætt eftir atvik-
ið og myndaðist um það bil 400 metra
löng biðröð vestan megin.
Litlu mátti muna í Múlakvísl
Nítján manns sluppu með skrekkinn ofan af bílþaki sérútbúnu rútunnar sem festist í Múlakvísl
Brutu öryggisrúðu og fóru út um opnanlega glugga Fólk var skelkað en hélt samt ró sinni
Ljósmynd/Hrafnhildur Inga
Hættulegt Fljótt gróf undan rútunni, sem er sérstaklega styrkt og vegur 14 tonn. Hún hallaðist upp í strauminn en valt þó aldrei. Litlu munaði að illa færi.
Hlaup í Múlakvísl
BAKSVIÐ
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
„Þetta voru bara örfáar mínútur. Við
erum að tala um svona kortér. Það var
ekki meira. Manni fannst þetta heil ei-
lífð,“ segir Björn Sigurðsson bílstjóri,
sem ók sérútbúnu rútunni sem festist í
Múlakvísl í gær. Sautján farþegar,
flestir erlendir, voru um borð og tveir
bílstjórar. Allir komust heilu og
höldnu á þurrt land. „Við brutum eina
rúðu en svo fór fólk út um opnanlegu
gluggana og upp á þak. Þaðan var það
ferjað upp á þak á björgunarsveitarbíl
sem kom upp að,“ segir Björn.
Hann segir að enginn hafi misst
stjórn á sér. Fólkið fór fyrst hægra
megin í bílinn til að vinna gegn hall-
anum, en „auðvitað var fólk hrætt, það
er skiljanlegt. Það er það eina sem ég
get sagt, þetta bara gekk vel,“ segir
Björn. Öllu máli skipti að enginn
meiddist. Farþegar í bílnum voru á
öllum aldri en þó enginn sem átti erfitt
með að bjarga sér, segir Björn.
Segist hafa farið sömu leið
Haft var eftir sjónarvottum á mbl.is
í gær að rútan hefði farið aðra leið yfir
ána heldur en trukkarnir sem fluttu
bíla. Björn neitar því alfarið að hafa
farið á óvenjulegum stað yfir síðasta
álinn, þar sem rútan festist. „Nei, nei.
Það er bara rangt,“ segir Björn.
Björgunarsveitarmaður sem var með
honum í bílnum í fyrri ferð og sá atvik-
ið geti vitnað um þetta. Hins vegar
hafi hann keyrt yfir vestari kvíslina á
öðrum stað en áður, því hún hafi verið
orðin svo grunn. „En þarna austan
megin fer maður ekki nema á sínu
vaði og þar fór ég á nákvæmlega sama
stað og í ferðinni á undan,“ segir
Björn.
Ekki hefur náðst tal af björgunar-
sveitarmanninum sem var með í ferð-
Gerð bráðabirgðabrúar yfir Múla-
kvísl virðist skotganga. Seinni
partinn í gær voru fimm einingar
af brúargólfi komnar á stöpla, en
hver þeirra er sjö metra löng, að
sögn Bjarna Jóns Finnssonar, verk-
stjóra hjá Vegagerðinni. Því voru
komnir 35 metrar af nothæfri brú,
sem á að verða um 150 metrar á
endanum, eða um 21 eining. Róð-
urinn þyngist væntanlega þegar
lengra verður komið út í árfarveg-
inn en Bjarni segist reikna með að
hægt verði að bægja straumnum
frá við vinnuna alla leið yfir. 30-40
manns unnu við smíðina í gær.
Brúargerðin skotgengur
35 METRAR AF BRÚARGÓLFI SEINNI PARTINN Í GÆR
Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
Ásgeir Örn Þorsteinsson, sölu- og
markaðsstjóri flugfélagsins Ernis,
segir að brugðist hafi verið við með
skjótum hætti þegar þjóðvegur 1 fór
í sundur við Múlakvísl skömmu fyrir
miðnætti á föstudagskvöld. „Við
heyrðum fyrstu fréttir þarna um
nóttina og ákváðum að bæta við
tveimur flugferðum til Hafnar á
laugardeginum fyrir strandaglópa.
Við höfðum jafnframt þrjár ferðir á
sunnudeginum í stað einnar,“ segir
Ásgeir.
Flugfélagið flýgur venjulega ekki
á laugardögum. „Við erum með tvö
flug á dag á virkum dögum en við
verðum með aukaflug í þessari viku
og höldum þeim möguleika opnum
að bæta meiru við ef þarf.“ Hann
segir jafnframt að fraktpóstur hafi
hrannast upp síðustu daga.
Tvöföld vegalengd
Guðmundur Nikulásson, fram-
kvæmdastjóri innanlandssviðs Eim-
skipa, segir að hlaupið í Múlakvísl
hafi haft umtalsverð áhrif á starf-
semi fyrirtækisins. „Þetta hefur haft
töluverð áhrif á flutninga til Hafnar
og á Djúpavog. Við erum svo með
samstarfsaðila sem sér um Vík og
Klaustur og hann hefur leyst vand-
ann með því að keyra yfir ána á bíl-
um sem eru færir um það.“
Hann segir að bifreiðar fari nú
norðurleiðina til að komast á áfanga-
stað og við það aukist kílómetrafjöld-
inn mikið. „Þetta skapar heilmikil
vandræði. Í stað þess að aka 450 kíló-
metra til Hafnar förum við nú 900
kílómetra langa leið. Við höfum verið
að ræða um breytingar á gjaldskrá
til að mæta verulegum hækkunum á
okkar kostnaði. Aftur á móti viljum
við koma til móts við fyrirtæki og
íbúa á svæðinu og viljum ekki fara
alla leið í verðhækkunum. Það hefur
komið til tals að hækka gjaldskrána
um 30% tímabundið, sem er lítið mið-
að við tilkostnað, en við viljum milda
höggið eins og hægt er fyrir fyrir-
tæki og almenning.“
Guðmundur segist jafnframt hafa
áhyggjur af því hversu mikill þungi
verði leyfður á bráðabirgðabrúnni
sem verið er að reisa yfir Múlakvísl.
„Við vonum bara að þetta verk gangi
vel og að það taki stuttan tíma. Und-
ir venjulegum kringumstæðum er
leyfilegur heildarþungi um 49 tonn
en bráðabirgðabrýr eru oft hannaðar
fyrir minni þunga. Þetta er erfið
staða en við reynum eins og við get-
um að halda þjónustunni eins góðri
og mögulegt er.“
Jörundur Jörundsson, fram-
kvæmdastjóri innanlandssviðs Sam-
skipa, tekur í sama streng og segir
hækkanir á gjaldskrá vera óumflýj-
anlegar. „Vegalengdin hefur tvöfald-
ast og það átta sig allir, sem eiga
einkabíl, á því hvaða áhrif slíkt hefur
á eldsneytiskostnað hjá okkur.
Vegalengdin tvöfaldast
og gjaldskráin hækkar
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Flutningabifreiðar Birgðir voru fluttar yfir Múlakvísl í gærmorgun.
Listahátíðin LungA var sett á Seyð-
isfirði á mánudag. Hún stendur yfir
fram á næstkomandi sunnudag.
Að sögn Aðalheiðar Lóu Borg-
þórsdóttur, framkvæmdastjóra há-
tíðarinnar, hefur hlaupið í Múla-
kvísl ekki haft áhrif á fjölda gesta
til þessa. „Við höfum ekki orðið vör
við afbókanir vegna þess að þjóð-
vegurinn fór í sundur. Margir koma
hingað með flugi og svo keyra þeir
væntanlega bara norðurleiðina sem
ætla að koma á einkabílum. Norð-
urleiðin er jafnlöng frá Reykjavík
og suðurleiðin og við viljum minna
fólk á það.“
Margvíslegar listasmiðjur standa
nú yfir á hátíðinni og að sögn að-
standenda hennar hefur veður ver-
ið afar gott til þessa.
Gestir og þátttakendur á LungA
koma víða að og gert er ráð fyrir að
um 3.000 manns sæki hátíðina.
Á laugardag verður afrakstur
listasmiðjanna til sýnis víðs vegar
um bæinn.
Norðurleiðin hentar vel
á LungA á Seyðisfirði