Morgunblaðið - 13.07.2011, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.07.2011, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2011 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is H ér eru nokkrar hug- myndir að góðum bókum til að lesa í frí- inu. Ætti hver að geta fundið lesefni eftir sínu áhugasviði. Fyrir hinn fróðleiksfúsa Þeir sem hafa gaman af því að taka það ró- lega í ferðalaginu, stoppa reglulega, njóta náttúrunn- ar og horfa í kringum sig ættu að hafa meðferðis bókina Íslenskur fuglavísir eftir Jóhann Óla Hilm- arsson. Bókin er nýkomin út ræki- lega endurskoðuð og aukin. Þar má lesa um liðlega 160 fuglategundir, sjá myndir og kort. Einnig er vegvís- ir um fuglaskoðun á Íslandi. Bókin hentar vel sem greiningarhandbók, jafnt fyrir þjálfaða fuglaskoðara sem fjölskylduna á ferð um landið. Fyrir úti- legumanninn Þeir sem dvelja úti í nátt- úrunni nánast all- an ársins hring þurfa að kunna að bjarga sér. Það er ekki nóg að kunna að gera fíflamjólk og veiða fisk eða gerast sauðaþjófur. Alls konar sjúkdómar geta komið upp í útlegðinni og þá er ekki verra að hafa bókina Íslenskar lækn- ingajurtir; söfnun þeirra, notkun og áhrif eftir Arnbjörgu Lindu Jó- hannsdóttur við höndina. Í henni er meðal annars gerð grein fyrir lækn- ingamætti íslenskra jurta. Fyrir barnið Börn vilja fróðleik í bland við skemmtun. Ef þið eruð að keyra um Vestfirði er til- valið að láta barnið lesa Óskabarn: Bókin um Jón Sigurðsson á ferðalaginu. Fróðleg bók fyrir börn með myndskreyt- ingum um ævi Jóns Sigurðssonar sjálfstæðishetju. Ef þið komið við á Hrafnseyri verður barnið enn glað- ara að geta miðlað af fróðleik sínum um Jón eftir lesturinn. Fyrir ungling- inn Unglingar vilja lesa um aðra unglinga, einhverja sem glíma við sömu „vandamál“ og þeir. Í staðinn fyrir að pína unglinginn til að taka þátt í öllu æðislega fjölskyldufjörinu er allt í lagi að leyfa honum að sitja á kantinum og lesa Þannig er lífið núna eftir Meg Rosoff. Sagan sýnir hrylling heimsins en um leið hve full- ur hann er af kærleika og umburð- arlyndi. Nákvæmlega það sem ung- lingurinn þarf að átta sig á. Fyrir hinn væmna Væmnir vilja léttan og hjart- næman lestur. Eitthvað sem hreyfir við hjartslættinum og skapar kökk í hálsinum um leið og setið er í sól- baði og hanastéli sötrað. Kisufólk er oft næmara á til- finningar en aðrir og því er sagan um Dewey: Litla bókasafnsköttinn sem snéri öllu á hvolf eftir Vicki Myron góð fyrir þá. Auðlesin og hjartnæm saga um lít- inn sætan kött sem kemur við hjart- að í mörgum. Fyrir þann myrkfælna Hinn myrk- fælni elskar að hræða sjálfan sig. Velur bækur sem hann veit að munu fá hann til að pissa undir og þjást af svefnleysi. Náttbál eftir Johan Tehorin byrjar á fárviðri sem gengur yfir, við sögu kemur gamall viti og aðkomufólk. Þetta er allt í senn sakamálasaga, drauga- saga og fjölskyldudrama þar sem sérkennilegar persónur og heillandi umhverfi sameinast í harmræna og spennandi fléttu. Góð fyrir þá sem eru að fara einir í bústað og vilja ekki svefnsama nótt. Fyrir hina rómantísku Í síðkjól hún gengur glaðlega um götur og garða, læt- ur sig dreyma um sumarástina og hef- ur trú á að hún komi ríðandi á hvít- um hesti á morgun. Hvaða bók ætlar þú að lesa í fríinu? Margir heita sér því að lesa mikið í sumarfríinu. Klára staflann á náttborðinu sem safnaðist þar í jólafríinu. En það er ekkert gaman að lesa þungar heims- bókmenntir á sumrin, þá eru það kiljurnar eða handbækurnar sem gilda. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi í bókabúðunum nú um mundir eins og sjá má af eftirfarandi yfirliti. Á bak við síðuna designmom.com stendur Gabrielle Blair, grafískur hönnuður og móðir sex barna á aldr- inum 1-14 ára. Hún opnaði síðuna ár- ið 2006, tveimur mánuðum eftir fæð- ingu fimmta barnsins, þá aðeins 31 árs. Fjölskyldan bjó lengst af í New York en flutti fyrir tveimur árum til Colorado. Sl. vetur flutti hún til Frakklands þar sem hún hyggst dvelja í eitt ár. Blair lýsir síðunni þannig að þar skarist móðurhlutverkið og hönnun. Viðfangsefni hennar eru fjölbreytt, allt frá því hvernig eigi að skreyta barnaherbergi á ódýran hátt, til hvernig eigi að klæða ung grunn- skólabörn. Að auki er Blair dugleg að blogga um daglegt líf en einnig vísar hún gjarnan á aðrar síður ef hún rekst á sniðugt efni þar, t.d. hvernig eigi að gera flottar fléttur eða aðrar hárgreiðslur. Vefsíðan www.designmom.com Móðurhlutverkið og hönnun Sýningin Rósótt og köflótt stendur nú yfir á Skörinni í Aðalstræti 10. Þar sýnir Ólöf Erla Bjarnadóttir leir- listakona nýja kökudiska á fæti úr postulíni. Diskarnir eru annars vegar skreyttir með rósum og eru óður til þeirra kvenna sem hafa lagt metnað sinn í að skreyta hinar ýmsu rjóma- tertur og hnallþórur gegnum tíðina. Allir eru þeir fagurlega skreyttir og því er óþarfi að skreyta terturnar sem á þá fara. Hins vegar eru til sýnis köflóttir diskar sem vísa meira í hvunndagsbrauð 20. aldar s.s. kleinur, randalínur og flatbrauð. Sýningunni lýkur á morgun og því er best fyrir að áhugasama að skella sér sem fyrst en opið er til klukkan 20. Endilega … … kíkið á rós- ótt og köflótt Fallegt Diskarnir eru vel skreyttir. „Ég hef alltaf borið mikla virðingu fyrir Coco Chanel sem var mikill brautryðjandi og breytti eiginlega tískuheiminum. Hún var óhrædd við að fylgja sínu innsæi og brjóta upp þessar hefðir sem voru svo stífar. Það má eiginlega segja að hún hafi verið kvenhetja tískuheimsins. Hún hann- aði stílhreinar línur en hafði samt þetta kvenlega og mjúka með. Á tímabili gekk hún líka með hatta sem sátu svona djúpt á höfðinu og eru sætir og skemmtilegir,“ segir Helga Rún Pálsdóttir klæðskerameistari, hattadama, leikmynda- og búninga- höfundur og fatahönnuður. „ Sjálf reyni ég að nota íslenskt hráefni í mína hatta og hef til að mynda notað karfahreistur til að skreyta hatta og hárspangir. Hraun- mola nota ég líka og hrosshár og gæru í stað fjaðra. Svo hef ég skipt pallíettum út fyrir laxaroð skreytt með karfahreistri. Það kemur dömu- lega út. Allar hatt- arnir mínir eru handgerðir og ég geri fátt af hverju því ég vil ekki að við séum öll eins,“ segir Helga Rún sem sjálf er mikil hattadama og fer ekki út úr húsi án þess að vera með hatt, hárspöng eða hárband á höfðinu. Helga Rún opnar sýningu á höttum og höfuðskrauti úr smiðju sinni í HERBERGINU, Kirsu- berjatrénu, hinn 14. júlí. Uppáhalds fatahönnuðurinn Brautryðjandinn Coco Chanel Ljósmynd/annaosk.com Dömulegt Hattar úr smiðju Helgu Rúnar Pálsdóttur í anda Coco Chanel. Helga Rún Pálsdóttir Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Danir virðast vera alveg vitlausir í melónur ef marka má frétt á vef- síðu danska dagblaðsins Politiken. Árið 2010 var neytt alls 40,7 milljón kílóa af melónum í Dan- mörku en það samsvarar því að hver Dani hafi borðað alls 7,3 kíló af melónu yfir árið. Melónuát hef- ur því aukist mikið þar í landi en fyrir um 20 árum var árleg neysla aðeins rétt um tvö kíló af mel- ónum á mann. Þá eru Danir ekki einungis sólgnir í melónur heldur virðast þeir líka vilja hafa þær eins stórar og hægt er. Þannig voru 48% þeirra melóna sem seldar voru árið 2010 vatnsmel- ónur en hinum 52% deildu hun- angsmelónur, kantalópur og gal- íamelónur. Holl viðbót Það er svo sem ekki hægt að kvarta yfir því að melónur lendi í auknum mæli í innkaupavögnum Dana. Enda er þessi framandi ávöxtur ekki bara sætur og góður heldur líka hollur og frískandi, sérstaklega á sumrin þegar heitt er í veðri. Melónan er þó ekki ein- göngu borðuð sem snarl eða eft- irréttur heldur er hún líka tilvalin til að nota með ýmiss konar mat. Það hefur löngum verið vinsælt á Ítalíu að borða melónu með par- maskinku enda þykir sætt bragð hennar passa vel við salt bragðið af skinkunni. Einnig er orðið vin- sælt að nota melónur í salat og þá gjarnan með fræjum og hnet- um. Melónan er af Cucurbitacæ- ætt eins og kúrbítur og upp- runalega frá Indlandi og líklega Afríku. Til að velja réttu melónuna skal fara eftir lykt og þyngd. Ef melónan er þung, af henni góður og mikill ilmur og hýðið mjúkt við stilkinn er ávöxturinn tilbúinn og mun þroskast áfram í sól í gluggakistunni. Mataræðið hefur nokkuð breyst í gegnum árin Morgunblaðið/Ómar Matgæðingar Dönum finnst gott að hafa melónu í salatinu sínu. Sæt Melóna er góð með ýmsu og vin- sælt að nota hana með parmaskinku. Danir eru nú vitlausir í melónur og nota hana mikið í matargerð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.