Morgunblaðið - 13.07.2011, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.07.2011, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2011 www.noatun.is www.noatun.is Pantaðu veisluna þína á eða í næstu Nóatúns verslun Grillveislur 1299 Á MANN VERÐ FRÁ MEÐ MEÐL ÆTI Grísahnakkasneiðar Lambalærissneiðar Kjúklingabringur Lambafille Þín samsetning Grillveislur Nóatúns Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Það var gerður launasamningur í sex vikur, sem voru mistök,“ segir Markús H. Guðmundsson, for- stöðumaður Hins hússins, og vísar til máls langveiks drengs sem að sögn foreldra fékk einungis greidd laun fyrir fjórar vikur af sex. Dreng- urinn, sem er á 17. aldursári, starf- aði fyrir fyrirtæki á höfuðborg- arsvæðinu fyrir milligöngu Hins hússins. Markús segir mistökin hafa verið leiðrétt á sínum tíma og for- eldrar boðaðir á fund viku áður en ungmennin hófu störf. Á þeim fundi var fyrirkomulag kynnt foreldrum. „Það eru öll ungmenni í Reykja- vík á þessum aldri sem fá fjórar vik- ur [launaðar] og þá buðum við þeim upp á tvær vikur launalaust í starfs- þjálfun hjá okkur.“ Markús segir rangt að þau ung- menni sem ekki sáu sér fært að mæta á lokahátíð námskeiðsins, myndu ekki fá greidd laun fyrir þann dag líkt og foreldrar drengsins hafa haldið fram. „Ég hef kannað það hjá öllum starfsmönnum hér. Við hótuðum því ekki að mættu þau ekki á lokahátíðina fengju þau ekki greidd laun. Það er bara rangt,“ seg- ir Markús. „Þetta kemur mér mjög á óvart. Hann bað aldrei um að koma ekki á lokahátíðina, enda er hún með hljómsveitum og skemmtikröftum. Svo komu þau bæði hér [drengurinn og móðir drengsins] og þökkuðu starfsfólki fyrir vel unnin störf.“ Markús segir drenginn mjög ánægðan með það starf sem unnið er á vegum Hins hússins og að öll þau ungmenni sem fengu vinnu í sumar á þeirra vegum hafi unnið í alls fjórar vikur ásamt því að nýta sér tvær vik- ur í starfsþjálfun. Drengurinn sagður ánægður með störf Hins hússins  Forstöðumaður Hins hússins segir að um mistök sé að ræða  Stóð ekki til að ungmennin fengju 6 vikur greiddar Morgunblaðið/Ernir Vinna Markús segir að í boði hafi verið launalaus starfsþjálfun. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það er aðallega vegna þess að tæki og tól í ostaframleiðslulínunni eru orðin gömul og afkastalítil en einnig er horft til möguleika á að nýta hráefnið betur,“ segir Snorri Evertsson, mjólkursamlagsstjóri í Mjólkursamlagi Kaupfélags Skag- firðinga á Sauðárkróki en samlagið hefur þanist út á síðustu árum. Hafnar eru framkvæmdir við stækkun húsnæðis mjólk- ursamlagsins. Byggð er 1.300 fer- metra nýbygging, yfir ostafram- leiðslulínu sem keypt hefur verið. Ekki eru nema tvö ár liðin frá því mjólkursamlagið byggði tæplega 1.000 fermetra viðbyggingu. „Við sáum þessa þróun ekki fyrir þegar við byggðum síðast,“ segir Snorri. Þá á mjólkursamlagið Mjólku í Hafnarfirði. Sérhæft ostabú Síðasta viðbygging var aðallega til að geta tekið við auknum verk- efnum frá MS, framleiðslu á rifn- um osti til pitsugerðar og annarrar matargerðar. Rifni osturinn er sífellt meira notaður og er framleiðslan nú um 1.100 tonn á ári. Í það fara 11 milljónir lítra af mjólk sem er nærri tíundi hluti mjólkurfram- leiðslunnar í landinu. „Þetta var mikil viðbót fyrir okkur en við kaupum 70% ostanna í þessa fram- leiðslu frá MS en 30% þeirra koma úr okkar framleiðslu. Samhliða þessum breytingum sérhæfði Mjólkursamlag KS sig í framleiðslu á osti, smjöri og smjörva. Þannig eru framleidd 1.600 tonn af ostum á ári sem er um 40% heildarframleiðslunnar í landinu. Mjólkurvörurnar sem eru í verslunum í Skagafirði eru hins vegar keyptar af MS en mjólk- ursamlagið annast dreifingu þeirra. Notuð tæki frá Svíþjóð Aukin framleiðsla reynir á tækin í ostalínunni og segir Snorri að nauðsynlegt sé orðið að endurbæta þau verulega eða skipta út. „Við vissum af mjólkurbúi í Sví- þjóð sem var verið að loka. Tækin eru tveggja til sex ára gömul og þóttu henta okkur, þótt þau séu vel við vöxt,“ segir Snorri. Hann segir að hægt sé að auka framleiðsluna síðar meir, ef markaðsaðstæður leyfi. Ákveðið var að byggja nýtt hús yfir nýju línuna til þess að ekki þyrfti að stöðva framleiðsluna í marga mánuði á meðan unnið væri að niðurrifi þeirrar gömlu, lagfær- ingar á húsnæði og uppsetningu og prófun nýju tækjanna. Stefnt er að því að nýja ostal- ínan verði tekin í notkun á næsta ári. Kaupfélag Skagfirðinga keypti mjólkursamlag Mjólku í Hafn- arfirði á síðasta ári. Rifostafram- leiðslan var flutt norður en Mjólka er rekin áfram sem sjálfstæð ein- ing þar sem meðal annars eru framleiddar sýrðar mjólkurafurðir og fetaostur. Inni í því fyrirtæki er einnig Vogabær sem framleiðir ídýfur og sósur. Mysupróteinið verðmætt Mikilvægur þáttur í endurnýjun tækjanna er að nú skapast tæki- færi til að nýta betur hráefnið. Færri mjólkurlítra þarf í hvert ostakíló. Henda þarf stórum hluta mys- unnar sem verður til við ostafram- leiðsluna. „Próteinið í mysunni er gott til uppbyggingar vöðva og með heilsusprengingunni í sam- félaginu eru ótrúleg verðmæti í henni. Þróuð hefur verið tækni til að nýta það á arðbæran hátt og með því drögum við einnig úr mengun,“ segir Snorri. Unnið er að þróun vörum úr mysunni. Óvissa hjá kúabændum Kaupfélag Skagfirðinga hefur unnið með kúabændum í héraðinu að auka framleiðsluna. Á und- anförnum fimmtán árum hefur framleiðslan í héraðinu aukist úr átta í tólf milljónir lítra. Bændur hafa byggt ný fjós og bætt við sig framleiðslurétti. Nýtt fyrirkomulag á sölu á mjólkurkvóta hefur skapað erf- iðleika og óvissu hjá mörgum kúa- bændum. Menn eru skuldugir eftir uppbyggingu og ekki hefur geng- isþróunin og hækkun lánanna hjálpað til. „Þeir þurfa að fram- leiða meira til að auka framleiðni búanna en hafa ekki tækifæri til að kaupa kvóta, nema tvisvar á ári, og vita þá ekki hvort þeir fá eitthvað keypt. Ég tel að á meðan verið er að koma nýju kerfi á þurfi að hafa fleiri markaðsdaga,“ segir Snorri. Rifni osturinn rifinn út  Mjólkursamlag KS stækkar enn við sig  Byggt yfir nýja ostalínu  Mysan verðmæt og verður nýtt í heilsuvörur Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Pökkun Þeir þurfa að vera handfljótir starfsmennirnir sem pakka rifna ost- inum. Færibandið fæðir þá stöðugt á tilbúnum pokum. Andri Karl andri@mbl.is „Þetta svæði er þarna en nýtist fugl- unum ekki sem skyldi því það er enginn eftirlitsmaður sem tryggir öryggi þeirra. Þarna leika lausum hala hrafnar, kettir og minkar og meðal annars af þeim sökum er til- tölulega lítið andavarp. Endurnar fá ekki frið í friðlandinu,“ segir Ólafur K. Nielsen, fuglafræðingur hjá Nátt- úrufræðistofnun Íslands, um ástand- ið í Vatnsmýrinni og Tjörninni í Reykjavík. Sviðsstýra hjá umhverf- is- og samgöngusviði borgarinnar segir að starf umsjónarmanns Tjarnarinnar hafi verið auglýst á síðasta ári en enginn fengist í starf- ið. Líkt og greint var frá í Morgun- blaðinu í gær skiluðu Ólafur og Jó- hann Óli Hilmarsson fuglafræðingur árlegri skýrslu um ástand fuglalífs Tjarnarinnar til Reykjavíkurborgar í byrjun árs. Hún hefur hins vegar ekki fengið umfjöllun í umhverfis- og samgönguráði og fær ekki fyrr en í næsta mánuði. Enginn „andapabbi“ frá 1986 Reykjavíkurborg hefur látið vakta fuglalífið við Tjörnina frá árinu 1973 til að geta metið aðstæður og gripið til aðgerða. Í skýrslunum hefur oftar en ekki á undanförnum árum verið lýst afar bágbornu ástandi og sjald- an hefur ástandið verði jafn slæmt og á síðasta ári. Á árinu 1986 var tekin sú ákvörð- un að leggja niður starf umsjónar- manns andanna, en það gekk undir heitinu „andapabbi“. Sá sinnti meðal annars því starfi að verja varplöndin og hrekja burtu varga. Í mars á síð- asta ári sagði garðyrkjustjóri borg- arinnar hins vegar að Umhverfis- og samgöngusvið hefði gert ráðstafanir til að ráða að nýju umsjónarmann með fuglalífinu. „Nú mætti kalla það andaforeldri,“ sagði Þórólfur Jóns- son garðyrkjustjóri. Þrátt fyrir það var enginn ráðinn til starfsins. Ellý Katrín Guðmunds- dóttir, sviðsstýra umhverfis- og samgöngusviðs, segir það þó hafa verið reynt. „Því miður fengum við engan í verkið. Þetta var hluti af svo- nefndum atvinnuátakssjóði og við gátum ráðið inn starfsfólk í skamm- tímaráðningar. Þá greiddi atvinnu- átakssjóðurinn laun á móti Vinnu- málastofnun. Það sóttu þarna nokkrir líffræðingar um en þeim hugnaðist ekki starfið.“ Ólafur bendir einnig á að það hafi verið hlutverk friðlandsins að varð- veita hinn náttúrulega gróður. Hins vegar þeki nú orðið bróðurpartinn af friðlandinu ágengar plöntur á borð við skógarkerfil, hvönn og netlu. „Umgjörðin er þarna en það þarf einhverja hugmyndafræði, línur og áhuga á að unnið sé eftir því,“ segir Ólafur. Ellý Katrín bendir hins vegar á að í apríl hafi verið skrifað undir sam- komulag við Háskóla Íslands og Norræna húsið um endurbætur á friðlandinu. Það eigi að tryggja örugg varplönd fyrir Tjarnarfugla. „Í haust verður strax farið að grafa síki þarna og það er ýmislegt í und- irbúningi hjá okkur.“ Ekki náðist í Karl Sigurðsson, for- mann umhverfis- og samgönguráðs. Auglýstu en fengu engan „andapabba“  Enginn friður í friðlandi Vatnsmýrar Morgunblaðið/Ómar Mávar Lítið fer fyrir öndum þegar gefið er brauð við Tjörnina í dag. Fuglalífið við Tjörnina » Umhirða og ræktun fuglalífs Tjarnarinnar hófst um 1920 í borgarstjóratíð Knud Zimsens og á sér því langa sögu. » Fjöldi andapara var mestur á 8. áratug síðustu aldar en síðan fór þeim fækkandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.