Morgunblaðið - 13.07.2011, Page 19

Morgunblaðið - 13.07.2011, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2011 Þrif Margir kvarta yfir órækt og óþrifnaði í Reykjavík en þegar litið er upp í miðborginni má iðulega sjá Kínverja þrífa glerið í Hörpu og þeir virðast kunna vel til verka á þessu sviði. RAX Við hjónin vorum í fríi á Suðurlandi og ákváðum að líta við á Sólheimum og skoða þetta sérstaka sam- félag sem hafði verið í um- ræðunni undanfarið og ver- ið sett í einhverja biðstöðu um óákveðinn tíma. Strax þegar við ókum inn á svæð- ið fundum við einhverja ólýsanlega tilfinningu um vellíðan og rólegheit. Við lögðum bílnum og gengum fram hjá lífræna kaffihúsinu inn í versl- unina á staðnum. Við skoðuðum þar fal- lega listmuni, kerti og matvöru sem framleidd er á staðnum. Í versluninni var hægt að setjast niður í þægilegt sófasett og skoða ársskýrslu Sólheima, fréttabréf um lífið á staðnum og upplýsingar um menningarviðburði í Sólheimum þetta sumarið. Þar sáum við að eftir um tvo tíma væru tónleikar í kirkjunni sem gam- an væri að njóta. Við keyrðum síðan að kirkjunni og fyrir framan hana sat hljóð- ur vinalegur eldri maður í hjólastól og við spurðum hann hvort kirkjan væri opin. Hann sagði að hún yrði opnuð kl. 13:00, en tónlistarfólkið væri þar að æfa sig fyr- ir tónleika kl. 14:00 og það kostaði ekkert inn. Við spjölluðum við hann og hann sagði okkur að hann væri nýbúinn að halda upp á sjötíu ára afmælið sitt og hefði búið á Sólheimum í yfir 60 ár. Við spurðum hann hvernig það hefði verið að búa í þessu samfélagi og hann ljómaði þegar hann var að lýsa þessum áratugum sínum á Sólheimum. Við fylltumst djúpri þakklætistilfinn- ingu fyrir hönd þessa eldri manns fyrir það sem hann líf sem hann hafði upplifað og einhverjir höfðu skapað fyrir hann. Hann lýsti Sólheimum eins og paradís á jörðu og hvað er hægt að gera meira og betra fyrir svona einstakling sem ekki geta gert þetta sjálfir á eigin vegum. Við fórum síðan aftur og lögðum bílnum í miðbænum og gengum í gegnum þorpið upp að kirkjunni. Tónleikarnir voru ein- stakir og Unnur Birna sem söng þar með hljómsveitinni Munaðarlausir fór á kost- um í söng og spilun á fiðlu. Heimilisfólkið á Sólheimum sem var þarna naut greinilega þessarar fallegu tónlistar eins og allir hinir sem höfðu komið á tónleikana. Það er gaman að geta þess að Sesselía sem var frum- kvöðull að samfélaginu á Sólheimum var afasystir söngkonunnar og faðir hennar hafði unnið þar um árabil. Það kom fram hjá henni hvað það væri einstaklega gam- an að halda tónleika á þess- um stað og fyrir fólkið sem býr á Sólheimum. Eftir tón- leikana var boðið upp á fræðsluerindi um neysluvatn í Sesselíuhúsi. Eftir tón- leikana fengum við okkur kaffi á lífræna kaffihúsinu og skoðuðum listsýningu í næsta húsi. Þar voru ein- staklega fallegir hlutir og málverk eftir heimilisfólk til sýnis og verðið á þessum listmunum kom okkur á óvart. Það var í hærri kant- inum, en eftir að hafa skoðað þetta betur sáum við að þessum peningum væri vel varið. Gestum á staðnum hafði fjölgað verulega og heimilisfólkið var orðið meira sjáanlegt og einhvern veginn var þetta litla samfélag orðið enn vinalegra og ynd- islegra. Allt umhverfið svo fallegt og vel við haldið og í fyrsta skipti kvartaði mað- ur við sjálfan sig undan engum vindi, því gaman hefði verið að heyra hljóðið í vind- ahljóðfærinu sem var á túninu við lífræna kaffihúsið. Þegar við keyrðum út úr þessu litla samfélagi var ekki laust við að við öfund- uðum þá sem þarna búa. Það væri gaman að upplifa þetta sama í samfélagi okkar hinna, en þar snýst lífið meira um stress og vanlíðan sem við höfum meira að segja skapað sjálfviljug. Þeir sem staðið hafa að uppbyggingu Sólheima hafa greinilega margt sem þeir gætu kennt fólki í hinu almenna samfélagi. Síðan fór maður að hugsa til umræðunnar um þetta fallega samfélag þar sem verið er að rífast um eðlileg framlög sveitarfélags til starfsem- innar sem samt eru örugglega minni á hvern einstakling en væri í sambýli á höf- uðborgarsvæðinu. Umræðan ætti að snú- ast um það hvernig við getum sett í gang fleiri svona samfélög og við ættum að hafa það að markmiði að skapa öllum þessum frábæru einstaklingum sem fengu minni líkamleg og andleg verðmæti í fæðingu en við hin, einstakt samfélag lífsgæða. Síðan væri áhugavert að skoða möguleika á að yfirfæra þessa frábæru heimspeki sjálfbæra samfélagsins Sól- heima yfir á allt samfélagið. Eftir Guðmund G. Kristinsson » Þeir sem staðið hafa að uppbyggingu Sólheima hafa greinilega margt sem þeir gætu kennt fólki í hinu almenna samfélagi. Guðmundur G. Kristinsson Höfundur er sölu- og markaðsstjóri. Upplifun á Sólheimum Því fer víðs fjarri að Evrópusam- bandið hafi þróast jafnt og þétt í átt til sambandsríkis. Þró- unin hefur verið mjög sveiflukennd. Skipst hafa á tíma- bil, þegar sam- runaþróuninni, sem Monnet dreymdi um, miðar verulega áfram, og önnur þegar efasemdir og vanmáttur hafa ráðið ferðinni. Í grófum dráttum má segja að efnahagslægðin, sem fylgdi olíu- kreppunum á áttunda áratug síð- ustu aldar, hafi dregið úr þróun- armætti Evrópusamvinnunnar langt fram á níunda áratuginn. Gekk það svo langt að talað var um hrörnunarsjúkdóm (Eu- rosclerosis) sambandsins. Þá kom til sögunnar kraftmik- ill maður, franskur sósíalisti og fyrrverandi efnahags- og fjár- málaráðherra í forsetatíð Franço- is Mitterrand. Hagfræðingurinn Jacques Delors, forseti fram- kvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins frá 1985 til 1994, er al- mennt talinn hafa verið með öflugri forystumönnum ESB. Hann styrkti verulega samræm- ingarþróun sambandsins. Segja má að hann hafi átt leiðandi þátt í að fullvinna rammann um hinn innri markað. Hann lagði einnig grunninn að sameiginlegri mynt. Þótt það skref væri ekki stigið formlega fyrr en 1. janúar 1999, um 5 árum eftir að Delors lét af embætti framkvæmdastjóra, er þáttur hans í þróun evrusvæð- isins hafinn yfir allan vafa. Verð- ur fjallað ýtarlegar um evruna í öðrum greinum. Útgáfa sameiginlegrar mynt- ar, evrunnar, er langmikilvæg- asta skrefið sem stigið hefur ver- ið í átt til samhæfingar og miðstýringar innan þeirra Evr- ópuríkja sem kusu að tengjast evrunni. Að þessu leyti þokaði Delors sambandinu verulega í átt til sambandsríkis og jók mjög miðstýringu innan þess. Í framkvæmdastjóratíð Delors voru gerðar viðamiklar breyt- ingar á sjóðakerfi ESB, sem drógu úr valdi ríkisstjórna aðild- arlandanna. Sam- hæfingarstefna ESB miðar að því að draga úr fé- lagslegu og efna- hagslegu misræmi milli landa og hér- aða innan ESB. Verkfærin til að koma þessari sam- hæfingarstefnu í framkvæmd eru eins konar grunn- gerðarsjóðir. Starf- semi þessara sjóða var breytt í viðamiklum aðal- atriðum um 1988. Fram að þeim tíma hafði samræmingarstefnan verið smá í sniðum. Fram- kvæmdastjórnin veitti styrki, og ríkin ráðstöfuðu þeim. Breyting- arnar 1988 leiddu til rækilegrar endurskoðunar á samhæfing- arstyrkjum. Sett voru á laggirnar regluverk og verkferlar, sem stýrðu því hvernig fram- kvæmdastjórn ESB, ríkisstjórnir aðildarríkja og yfirvöld í héraði ynnu saman að því að móta stefnu og hrinda í framkvæmd verk- efnum sem nytu ESB-styrkja. Markmiðin með þeim breyt- ingum, sem gerðar voru á samræmingarstefnunni og helstu verkfærum hennar í tíð Delors, voru margvísleg. Breytingunum var ætlað að stofna til sam- ræmdrar stjórnmálalegrar stefnumörkunar innan þess breytilegra veruleika, sem ríki sambandsins mynda. Þá var enn fremur tilgangur Delors að bæta félagslegri vídd við meginviðfang sameiginlega markaðarins, sem var fyrst og fremst efnahagslegs eðlis. Breytingarnar áttu að leiða til þess að stofnanir Evrópusam- bandsins gætu með nokkuð eðli- legum hætti hreiðrað um sig í stjórnmálalífi og samfélags- málum aðildarríkjanna. Sem að líkum lætur hefur sam- ræmingarstefnan, sem Jacques Delors mótaði af dugnaði og festu, lengi verið svið þar sem framkvæmdastjórnin hefur blandað sér með mjög áberandi hætti inn í framkvæmdir. Tilraunir hafa verið gerðar til þess, í fræðiritum um ESB, að meta hve langt hafi gengið að þróa Evrópuvæðingu sambands- ins. Með því orðalagi er átt við samrunaþróun og er reynt að meta að hve miklu leyti stjórnmál eru mótuð af ríkjunum sjálfum, sameiginlega af þjóðríkjum og ESB eða einungis af Evrópusam- bandinu sjálfu. Í þessum aka- demísku æfingum er oft notaður skalinn 1 til 5 og táknar þá 1 þau málefni sem heyra eingöngu und- ir aðildarríkin, en 5 telst vera málefni ESB. Séð hef ég því hald- ið fram að meiri hluti fræði- manna, sem glímt hafa við þessa skilgreiningu, telji að eftir upp- haflega Evrópuvæðingu í nokkr- um rykkjum hafi þróunin staðnað einhvers staðar milli einkunn- anna 3 og 4. Þessi niðurstaða er þó ekki talin benda til að tilraun til samhæfingar og samþjöpp- unar valds hafi mistekist. Þvert á móti er það talið til merkis um að sambandið sé að þroskast. Nú- verandi stig, 3-4, nálgist það helst að teljast einhvers konar sam- bandsríki. Full ástæða er til að gjalda var- hug við útreikningum af þessu tagi. Ljóst er að torvelt er að líkja ESB við sambandsríki eins og málum er nú háttað innan sam- bandsins, þótt það tímabil sem hér hefur verið tæpt á, hafi vissu- lega fært sambandið nær sam- bandsríki. Hér hefur verið fjallað um Þýskaland og Frakkland sem leiðandi afl í Evrópusambandinu. Það er flókinn vefur landafræði, mannafla, sögu og menningar sem veldur því að þessar tvær þjóðir gegna forystuhlutverki í sambandinu. Innan sambandsins eru einnig fjölmennar þjóðir, sem ekki hafa leitt þróun ESB. Til þess liggja einnig ástæður, sem rekja má til legu, sögu og menn- ingar. Það er því rétt að tæpa á takmörkuðu hlutverki þeirra stóru á jaðrinum. Eftir Tómas Inga Olrich » Samhæfing- arstefna ESB miðar að því að draga úr félagslegu og efna- hagslegu misræmi milli landa og héraða innan ESB. Tómas Ingi Olrich Höfundur er fv. þingmaður og ráðherra. „Kemst þótt hægt fari“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.