Morgunblaðið - 13.07.2011, Side 26

Morgunblaðið - 13.07.2011, Side 26
26 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2011 Sudoku Frumstig 4 9 2 3 6 5 1 7 6 3 9 7 4 2 3 1 6 7 3 1 8 4 1 2 7 2 4 6 5 3 2 3 6 9 7 7 3 5 2 1 9 4 6 7 3 1 1 5 7 4 2 3 9 2 3 4 5 2 2 6 7 9 3 4 9 1 3 8 9 8 7 4 1 5 3 6 6 3 1 4 2 7 9 5 8 5 8 7 9 3 6 2 4 1 4 9 2 8 1 5 3 6 7 8 7 5 3 6 1 4 9 2 9 1 4 5 8 2 6 7 3 3 2 6 7 9 4 8 1 5 2 6 8 1 5 9 7 3 4 7 5 9 2 4 3 1 8 6 1 4 3 6 7 8 5 2 9 3 6 4 8 5 9 2 1 7 9 2 7 4 1 3 8 5 6 5 1 8 7 6 2 3 4 9 6 7 1 2 4 8 5 9 3 8 3 5 9 7 1 6 2 4 4 9 2 6 3 5 7 8 1 7 5 9 3 2 4 1 6 8 1 8 6 5 9 7 4 3 2 2 4 3 1 8 6 9 7 5 4 2 5 7 9 3 1 6 8 9 7 8 6 1 2 5 4 3 1 6 3 8 5 4 9 2 7 7 4 2 5 6 9 3 8 1 3 8 6 1 2 7 4 5 9 5 1 9 3 4 8 6 7 2 6 9 4 2 8 1 7 3 5 2 5 7 9 3 6 8 1 4 8 3 1 4 7 5 2 9 6 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er miðvikudagur 13. júlí, 194. dagur ársins 2011 Orð dagsins: Guð sé oss náðugur og blessi oss, hann láti ásjónu sína lýsa meðal vor. (Sálm. 67, 2.) Oft er talað um hringrás peningaog margfeldisáhrif þeirra við það að fara úr einum vasa í annan. Víkverji rakst nýlega á nokkuð góða dæmisögu um slíka hringrás, sem eignuð var heimspekingnum Peter Sloterdijk. Hún hefst á því að maður einn kemur inn á gistiheimili í þorpi einu, kveðst sennilega þurfa á gistingu að halda. Til að tryggja að hann fái herbergi leggur hann fram tíu þúsund króna tryggingu. Maðurinn er ekki fyrr farinn en hótelstjórinn fer til smiðsins í þorp- inu og borgar honum tíu þúsund krónur, sem hann skuldaði honum. Smiðurinn tekur fagnandi við fénu og fer til slátrarans til að borga honum tíu þúsund króna skuld. Slátrarinn verður hinn kátasti því að nú getur hann borgað pípulagn- ingamanninum fyrir að gera við kló- settið hjá sér. Pípulagningamað- urinn hýrnar við, læðist til gleðikonu þorpsins og gerir upp gamla skuld. Gleðikonan fer rak- leiðis til hótelstjórans og borgar honum tíu þúsund krónur, sem hún skuldaði honum fyrir herbergi. Hún er ekki fyrr farin en ferðalangurinn kemur aftur. Hann þarf ekki lengur á herberginu að halda, fær pantinn endurgreiddan og heldur á brott. Í þorpinu er jafn mikið af peningum í umferð og áður en ferðalangurinn kom, en koma hans varð til þess að fimm manns gátu gert upp skuldir sínar. Ágæt brella, en dugar því miður tæplega til að gera upp skuldir heimsins. x x x Víkverji fjallaði í liðinni viku umama af flugum og velti fyrir sér hvers vegna ekki væri hægt að fá flugnanet í glugga á Íslandi. Hann fékk ábendingu frá lesanda, sem rétt er að koma áfram. Les- andinn kvaðst hafa keypt flugnanet, vængi fyrir svalahurðir, í Byko. Þeim mun fylgja einhvers konar franskur rennilás. „Þetta má klippa niður í passlega stærð,“ segir les- andinn. „Setja fyrst rennilás í kringum gluggaopið og þrýsta net- inu að. Þá getur Víkverji verið öruggur í íbúðinni sinni og haft gott loft.“ víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 vandræðaleg, 8 mikið af einhverju, 9 logið, 10 væn, 11 kaggi, 13 end- urtekið, 15 flösku, 18 öflug, 21 hlemmur, 22 áreita, 23 gömul, 24 dæmafátt. Lóðrétt | 2 angan, 3 toga, 4 lita blóði, 5 eru í vafa, 6 vangá, 7 mikill, 12 ekki gam- all, 14 lengdareining, 15 gróð- ur, 16 ráfa, 17 lina á, 18 fisk- ur, 19 fóðrunar, 20 slunginn. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 bráka, 4 hemja, 7 atóms, 8 óefni, 9 afl, 11 aðan, 13 hann, 14 ýkinn, 15 þjór, 17 étur, 20 kar, 22 kúgun, 23 úlfum, 24 agnar, 25 tjara. Lóðrétt: 1 Braga, 2 ámóta, 3 ausa, 4 hjól, 5 mafía, 6 arinn, 10 feita, 12 nýr, 13 hné, 15 þekja, 16 ólgan, 18 tyfta, 19 remma, 20 knýr, 21 rúmt. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Magnaður Frakki. S-Enginn. Norður ♠K84 ♥Á74 ♦Á986 ♣K108 Vestur Austur ♠ÁDG1096 ♠532 ♥D10852 ♥KG93 ♦2 ♦KD75 ♣9 ♣74 Suður ♠7 ♥6 ♦G1043 ♣ÁDG6532 Suður spilar 5♣. Franski spilarinn Jean-Christophe Quantin sér ýmsilegt við borðið sem aðrir koma ekki auga á – ekki einu sinni Jeff Meckstroth. Í milliriðli EM urðu þeir báðir sagnhafar í 5♣ eftir svipaðar sagnir: opnun á 3♣ og hálita- innákomu vesturs á 4♣. Og báðir fengu út einspilið í tígli. Meckstroth gafst einfaldlega upp; tók á ♦Á, þvældist síðan stefnulaust á milli handanna, en gaf á endanum þrjá slagi – á ♠Á og tígulhjón. Quantin gerði sér strax grein fyrir mikilvægi spaðaáttunnar. Hann tók líka á ♦Á, spilaði svo ♥Á og stakk hjarta, fór inn í borð á lauf og stakk aftur hjarta. Spilaði síðan spaða að kóng. Vestur drap og spilaði ♠D. Quantin fleygði tígli í ♠K, tók annað tromp, spilaði ♠8 og henti öðrum tígli heima. Komdu nú! 13. júlí 1864 Fjórtán manns drukknuðu í lendingu við Péturseyjarmel í Mýrdal. Á skipinu voru 27 manns á leið frá Vest- mannaeyjum. 13. júlí 1914 Dýraverndunarfélag Reykja- víkur var stofnað. Tryggvi Gunnarsson bankastjóri var fyrsti formaðurinn. Nafni fé- lagsins var síðar breytt í Dýra- verndunarfélag Íslands. 13. júlí 1957 Nesti í Fossvogi var opnað. „Nýstárlegur veitingastaður,“ sagði Tíminn. Ári síðar var opnað Nesti við Elliðaár. 13. júlí 1959 Eyjólfur Jónsson synti frá Vestmannaeyjum að Land- eyjasandi á fimm og hálfri klukkustund en leiðin er rúm- ir ellefu kílómetrar. „Sund- afrek þetta er einstakt og er ekki vitað til þess að nokkur maður hafi fyrr synt milli lands og Eyja,“ sagði í Þjóð- viljanum. 13. júlí 1973 Nýja eldfjallið á Heimaey hlaut nafnið Eldfell, að tillögu Örnefnanefndar. Fjallið hafði myndast í gosinu sem stóð frá því í janúar og fram í júní. 13. júlí 1987 Verksmiðja Málningar hf. í Kópavogi brann til kaldra kola ásamt tækjum og birgð- um. „Húsið alelda á svip- stundu,“ sagði DV. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Skúli Axelsson tæknimaður er 30 ára í dag. Hon- um líst vel á afmælið en í tilefni dagsins ætlar hann að bjóða gestum heim til sín í kvöld. „Ég ætla að bjóða fjölskyldunni í kvöldmat,“ segir Skúli um afmælisdaginn. Hann segist ekki vanur að halda upp á afmæli sín en ákvað í ár að breyta útaf van- anum með heimboði. Skúli starfar sem deildarstjóri hjá Skýrr. Hann er kvæntur Birnu Bryndísi Þorkelsdóttur og eru hjónin búsett í Reykjavík ásamt dætrum sínum tveim. „Við eigum tvö yndisleg börn, Ingunni Eyju sem er þriggja og hálfs árs og Ágústu Fríði sem er rétt rúmlega ársgömul,“ segir Skúli. Aðspurður um sumarið segist Skúli nýkominn úr fríi þar sem hann fór í ferðalag innanlands. „Ég er nýkominn úr sumarfríi. Við fórum til Akureyrar og skemmtum okkur mjög vel,“ segir Skúli en ásamt því að dvelja á Akureyri ferðaðist hann um sveitirnar í kring, meðal ann- ars á Mývatn. Á Norðurlandi hefur sumarið verið heldur kalt en að sögn Skúla fór veður skánandi er leið á ferðina. „Það var smá-kalt þarna fyrri hluta frísins en undir lokin var komið gott veður,“ segir Skúli, ánægður með sumarfríið. kristel@mbl.is Skúli Axelsson er þrítugur í dag Býður fjölskyldunni heim Nýirborgarar Reykjavík Júlía Rósa fædd- ist 16. mars kl. 5.27. Hún vó 3.735 g og var 51,5 cm löng. Foreldrar hennar eru Rí- key Júlíusdóttir og Björn Guðmundsson. Flóðogfjara 13. júlí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 4.43 3,3 10.55 0,8 17.15 3,8 23.35 0,7 3.35 23.33 Ísafjörður 0.52 0,6 6.42 1,9 12.58 0,6 19.15 2,3 2.57 24.21 Siglufjörður 2.47 0,3 9.26 1,1 15.08 0,4 21.25 1,3 2.38 24.06 Djúpivogur 1.39 1,8 7.46 0,6 14.22 2,1 20.38 0,6 2.55 23.12 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Ef samband á að haldast þurfa báðir aðilar að leggja sig fram um að hlúa að því. Einhverjir finna sig knúna til þess að tala við foreldra sína. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú hefur í mikinn reynslusjóð að sækja og átt því að vera vel undir erfið verkefni búin(n). Vegna hugsjóna þinna langar þig að leggja ákveðnum málstað lið. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú ættir að setjast niður og fara yfir skuldastöðu þína. Það er miður ef óhófleg eyðsla þín kemur niður á samband- inu. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Græðgi er ljótur ávani. Þótt margir hlutir séu eftirsóknarverðir ferst heimurinn ekki þótt þú komir ekki höndum yfir þá. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Mundu að það er ekki allt gull sem glóir og að lífshamingjan felst ekki bara í efnislegum gæðum þótt gagnleg séu. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú geislar af gleði og það hefur já- kvæð áhrif á flesta sem í kringum þig eru. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þér finnst þú þurfa að verjast fólki sem krefst þess að þú sjáir hlutina í þess ljósi. Láttu athugasemdir þeirra sem vind um eyru þjóta. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Það er engin ástæða til þess að láta hugfallast, þótt ekki hafi allir hlutir gengið upp á besta veg. Sjáðu takmarkið fyrir þér eins og því hafi verið náð. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú átt erfitt með að halda þig við efnið og endar alltaf í pælingum um framtíðarplön. Fljótfærni í þeim efnum get- ur reynst harla afdrifarík. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Félagi lætur skoðun í ljós sem er ólík þinni. Dragðu djúpt andann og snúðu málunum þér í hag. Kynntu þér allar að- stæður og vertu við öllu búinn. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Yfirmaður þinn gæti komið með óvænta uppástungu í dag sem þú ert ekki sammála. Varastu samt allt það sem gæti sett stöðu þína í tvísýnu. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú þarft að taka þýðingarmikla ákvörðun í máli sem snertir annan ein- stakling. Snúðu þér að nútíðinni og láttu reynslu þína verða þér og öðrum til góðs. Stjörnuspá 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5 Rxd5 5. Bd2 Rb6 6. Rf3 Bg7 7. Bf4 0-0 8. e3 c5 9. dxc5 R6d7 10. Hc1 Rxc5 11. Rd5 Rbd7 12. Bc7 De8 13. Bg3 Re6 14. Bb5 Dd8 15. Rc7 Rxc7 16. Bxc7 De8 17. Re5 Bxe5 18. Bxe5 a6 19. Hxc8 Dxc8 20. Bxd7 Dc4 21. b3 De4 22. Bc7 Dxg2 23. Ke2 b5 24. Hg1 De4 25. f3 Db4 26. Dc2 e6 Staðan kom upp á hollenska meist- aramótinu sem lauk fyrir skömmu í Boxtel í Hollandi. Stórmeistarinn Wou- ter Spoelman (2.564) hafði hvítt gegn kollega sínum Robin Swinkels (2.483). 27. Bxe6! fxe6 28. Hxg6+! Kf7 29. Hg4 De7 30. Be5 Hfc8 31. Dxh7+ Ke8 32. Hg8+ Kd7 33. Hg7 og svartur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.