Morgunblaðið - 13.07.2011, Page 28

Morgunblaðið - 13.07.2011, Page 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2011 Í þjóðararfi okkar er ljóðið ávallt á næsta leiti.29 » Á fimmtudag halda þær Hafdís Vigfúsdóttir flautuleik- ari og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari tónleika í Sel- inu á Stokkalæk. Þær hyggjast flytja nokkur þekktustu verk flautu- og píanóbókmenntanna, þar á meðal Sónötu í Es-dúr eftir Johann Sebastian Bach, Cantabile et Presto eftir George Enesco og Le merle le noir eftir Oli- vier Messiaen. Hafdís Vigfúsdóttir hefur lokið burtfararprófi frá Tónlistarskóla Kópavogs, B.Mus.-gráðum frá Listahá- skóla Íslands og Konunglega Konservatoríinu í Haag auk fjögurra diplóma í flautuleik og kammertónlist frá Konservatoríinu í Rueil-Malmaison í Frakklandi. Hún hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveit áhugamanna. Hún hefur meistaranám við Tónlistarháskólann í Ósló í haust. Eva Þyri Hilmarsdóttir stundaði MA-nám í meðleik við The Royal Academy of Music í London og útskrif- aðist þaðan sumarið 2010 með láði, hlaut DipRAM og The Christian Carpender Piano Prize fyrir framúrskar- andi lokatónleika. Eva Þyri lauk píanókennaraprófi og burtfararprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og síð- ar Diplomeksamen og einleikaraprófi frá Tónlistarhá- skólanum í Árósum. Tónleikarnir hefjast kl. kl. 20. Á tónleikunum verða veitingar og eru miðapantanir í síma 4875512 og 8645870. Flautu- og píanó- bókmenntir í Selinu  Þekkt píanó- og flautuverk flutt á tónleikum á Stokkalæk Samspil Hafdís Vigfúsdóttir og Eva Þyri Hilmarsdóttir halda tónleika í Selinu á Stokkalæk. Franski slagverksleikarinn Lucie Antunes kemur fram á tónleikum Sumartónleika í Skálholti á fimmtudagskvöldið. Á efnisskrá tónleikanna er einleiksverk eftir Vinko Globokar, Michel Chapon og Karlheinz Stockhausen. Einnig frumflytur Antunes verkið Saman – eða Ensemble – eftir Elínu Gunnlaugsdóttur staðartónskáld en í verkinu leikur Sigurður Hall- dórsson á selló. Hluti efnisskrár- innar verður einnig í formi spuna. Lucie Antunes hóf nám í slag- verksleik 15 gömul í heimaborg sinni Marseille. Fjórum árum eftir að hún hóf nám vann hún til fyrstu verðlauna í slagverkskeppni í Frakklandi og hefur unnið til fjölda slíkra verðlauna upp frá því í Frakklandi og víðar í Evrópu. Hún stundar nú nám í Conserva- toire Supérieur de Lyon. Und- anfarin ár hefur Antunes lagt áherslu á flutning á nútímatónlist og dvaldi meðal annars við nám í Cité Internationale des Arts í Par- is. Tónleikarnir hefjast kl. 20.00. Lucie Antunes Franski slagverks- leikarinn Lucie Antunes. Lucie Ant- unes leikur í Skálholti  Frumflytur verk eftir Elínu Gunnlaugsdóttur Eftir Jane Austen liggja sex skáldsögur og eitt skáld- sögubrot. Brotið það, sem hún byrjaði á nokkrum árum áður en fyrsta bók hennar kom út, hefur verið gefið út undir nafn- inu The Watsons, en Austen skrifaði ekki nema fjórðung af verkinu, um 70 síður. Hand- ritið að The Watsons hefur verið í einkaeigu, allt nema fyrstu tólf síðurnar sem eru á safni í New York, eina handrit Austen sem svo er háttað um, og verður selt á uppboði í Lundúnum á fimmtudag. Fræðingar gera því skóna að fyrir handritið fáist um 100 milljónir króna hið minnsta. Bókmenntir Handrit Jane Austen til sölu Jane Austen Gríski gítarleikarinn Mihalis Moshoutis heldur tónleika í verslun 12 Tóna við Skóla- vörðustíg á fimmtudag. Mihalis Moshoutis er fædd- ur 1979 í Grikklandi. Hann nam klassískan gítarleik í Guildhall School of Music London og í The Royal Con- servatoire Hague, og er marg- verðlaunaður fyrir leik sinn. Þá hefur hann komið fram með mörgum af fremstu söngvurum Grikklands og leikið með fjölda hljómsveita. Tónleikarnir hefjast kl. 17.30 og eru allir vel- komnir. Aðgangur er ókeypis. Tónlist Gítartónleikar í 12 Tónum Mihalis Moshoutis Borgarbókasafn Reykjavíkur stendur fyrir fjölskyldugöngu annað kvöld. Í göngunni kynna Sigrún Jóna Kristjánsdóttir og Sunna Björk Þórarinsdóttir nýlegar bækur fyrir börn á söguslóðum sínum víðs vegar í miðbænum. Rithöfundarnir Þórarinn Leifsson og Margrét Örnólfsdóttir hitta göngugesti og meðal viðkomustaða eru Hótel Borg, Hólavallagarður, Hljómskálagarðurinn og Reykjavíkurtjörn. Gangan tekur ríflega klukkustund. Lagt verður af stað frá Borgarbókasafni í Grófarhúsi kl. 20. Barnabækur Barnabókaganga um miðbæinn Þórarinn Leifsson Árni Matthíasson arnim@mbl.is Sýningin Læsi verður opnuð í Ný- listasafninu næstkomandi laug- ardag. Á sýningunni verða bókverk úr eigu safnsins auk verka sem feng- in voru að láni til að fylla upp í eyður í safneigninni. Sýningastjóri er Jón B.K. Ransu. Á sýningunni eru listaverk sem byggð eru á samspili texta, forma og rýmis og flest eru í eigu Ný- listasafnsins, en þar er að finna stærsta safn af bóklistaverkum á Ís- landi. Nokkur verk sem þóttu ómiss- andi í þetta samhengi, voru fengin að láni hjá höfundum þeirra. Sýnd eru verk eftir átján lista- menn; Áslaugu Thorlacius, Birgi Andrésson, Dieter Roth, Douwe Jan Bakker, Finnboga Pétursson, Franz Graf, Friðrik Þór Friðriksson, Hildi Hákonardóttur, G.Erlu, Gunndísi Ýri Finnbogadóttur, Hlyn Hallsson, Jan Vos, Kristján Guðmundsson, Níels Hafstein, Ragnhildi Jóhanns- dóttur, Rúnu Þorkelsdóttur, Rúrí og Steingrím Eyfjörð. Jón B.K. Ransu segir að í verk- unum á sýningunni sé bókin sjálf listaverkið en ekki til þess að lesa bókmenntir. „Nýlistasafnið á mjög fínt safn af bóklistaverkum og þetta eru verk sem fjalla um formið bók sem hægt er að nota öðruvísi en endilega bara að fletta þeim. Það er gott að vitna í grein Gunnars Harð- arsonar í þessu samhengi þar sem hann talar um að eiginleiki bókar sé eiginlega tvívíður þegar við lesum hverja síðu fyrir sig, en þegar komið er inn í heim myndlistarinnar kemur ytra byrðið líka til og eiginlegt bók- verk er ytra byrði og innihald.“ Eins og getið er eru verkin ekki öll í eigu safnsins, þó að það eigi mjög gott safn bókverka. „Ég fékk nokkur verk lánuð sem mér fannst vanta inn í samhengið en annars er þetta safn verka allt frá því að safnið var stofnað og menn hafa gefið því. Til dæmis er eitt verk eftir Dieter Roth frá 1958, en yngstu verki eru eftir listamenn sem eru nýútskrif- aðir úr Listaháskólanum.“ Bækur sem eru ekki bara bækur í Nýlistasafninu  Sýning á bók- verkum opnuð á laugardag Morgunblaðið/Golli Bókverk Jón B.K. Ransu er sýningarstjóri á sýningunni Læsi sem opnuð verður í Nýlistasafninu á laugardag. Danshátíðin Reykjavík Dance Festi- val verður haldin 5. til 11. september næstkomandi víða um borg. Sviðs- verk verða frumsýnd í Tjarnarbíói, dansmyndir sýndar í Bíó Paradís og verk sýnd víðsvegar um bæinn utan- dyra og í óhefðbundnu rými. Boðið verður upp á námskeið fyrir dansara á hátíðinni í leiðsögn danslista- mannsins Iñaki Azpillaga. Danshátíðin var fyrst haldin og 2002 og árlega upp frá því nema að hún féll niður 2008. Dansarar eru flestir íslenskir, en einnig verður töluvert af erlendum dönsurum og tónlistarfólki í samstarfi við íslenska listamenn. Meðal þeirra listamanna sem bókað hafa þátttöku sína eru danshópurinn Raven, Bjargey Ólafs- dóttir, Margrét Sara Guðjónsdóttir, Samsuðan & Co, Steinunn Ketils- dóttir og Sveinbjörg Þórhallsdóttir, Lára Stefánsdóttir, Menningar- félagið, John The Houseband, Brog- an Davidson, Helena Jónsdóttir, Alma Söderberg, Tranz, Lillian Pi- neda, Katla Þórarinsdóttir, Guðrún Óskarsdóttir og Keren Rosenberg. Eitt af meginmarkmiðum hátíð- arinnar er að stækka markaðssvæði íslenskra dansverka og af því tilefni hafa aðstandendur hátíðarinnnar boðið hingað skipuleggjendum er- lendra hátíða. Danshátíð í Reykjavík í haust  Reykjavík Dance Festival í september Alþjóðleg Danslistaflokkurinn John The Houseband.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.