Morgunblaðið - 14.07.2011, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 14.07.2011, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 1 4. J Ú L Í 2 0 1 1  Stofnað 1913  163. tölublað  99. árgangur  –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG Sumartilboð Fosshótela! Bókaðu núna í síma 562 4000 Bókaðu á marketing@fosshotel.is www.fosshotel.is SELIRNIR GLEÐJA FERÐAMENN NETTENGING ÍSLANDS VAR Í HÆTTU SKÁLMÖLD Á TÓNLEIKAFERÐ UM FÆREYJAR VIÐSKIPTABLAÐ OG FINNUR.IS EVRÓPA Í ÁGÚST 40SELASETUR 22 „Sláttur er að byrja að minnsta kosti tveimur vikum seinna en í meðalári,“ segir Ólafur R. Dýrmundsson, ráðunautur hjá Bænda- samtökunum. Hann segir að mest sé byrjað að heyja á Suður- landi og Suðvesturlandi, svo og í Eyjafirði og Skagafirði. Sum tún í austurhluta Vestur-Skaftafellssýslu verði ekki heyjuð vegna ösku og verulegt kal sé í túnum á norðaustanverðu landinu. Heyskapur loks hafinn eftir kalda tíð Morgunblaðið/RAX  Lán til sjávarútvegs vega þyngst hjá Landsbankanum af viðskipta- bönkunum þremur. Í árslok 2010 námu útlán hans til sjávarútvegsfyr- irtækja 134 milljörðum króna, sem eru um 22,6% af heildarlánum bank- ans. Hjá Íslandsbanka nam fjárhæðin um 68 milljörðum eða 13,2% af heild- inni og hjá Arion nam hún 47,7 millj- örðum, 10,6% af lánum. Þetta kemur fram í ársskýrslu Bankasýslunnar. Þar segir að fyrirhugaðar breytingar á kvótakerfinu kunni að hafa umtals- verð áhrif á bankana. »Viðskipti Fimmtungur lána Landsbankans til sjávarútvegsins Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Að sögn sérfræðinga í upplýsinga- öryggi er tiltölulega auðvelt að brjótast inn í gögn annarra; bæði í snjallsímum og tölvum. Víða á net- inu má finna leiðbeiningar um hvernig komast á inn í talhólf ann- arra og hvernig hægt er að fá að- gang að gögnum úr snjallsímum og jafnvel stela þeim. Gagnaöryggi hef- ur verið mikið til umræðu upp á síð- kastið vegna innbrota blaðamanna News of the World í talhólf og síma fólks. Innanríkisráðuneytið hefur sett á stofn stýrihóp, þar sem unnið verð- ur meðal annars að aukinni gagna- vernd og verndun þjóðfélagslega mikilvægra gagna og opinberra skjala. Eitt af verkefnum hópsins er að herða viðbrögð við ýmissi óværu á netinu. „Allt snýst þetta um að geta treyst rafrænum samskiptum,“ segir Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðu- neytisstjóri í innanríkisráðuneytinu. Að sögn öryggisstjóra Símans er allur gangur á því hvort símnot- endur nota pin-númer til að komast inn í talhólf sín. Noti þeir ekki slík númer, þá er auðvelt fyrir óprúttna aðila að komast inn í talhólfin. Að sögn öryggisstjórans er þó ekki vit- að til þess að það hafi gerst. Jón Kristinn Ragnarsson, sér- fræðingur í upplýsingaöryggi, tekur undir þetta og segir að ef kveikt sé á Bluetooth gagnaflutningaforritinu í snjallsímum, geti aðrir tengst sím- anum og náð gögnum úr honum. Hann leggur áherslu á að fólk noti vírusvarnaforrit í snjallsímum, rétt eins og í tölvum. Friðrik Skúlason, tölvufræðingur, sem hefur lengi starfað að tölvu- öryggismálum, segir að Íslendingar hafi hingað til verið nokkuð and- varalausir um gagnaöryggismál. Auðvelt að brjótast inn  Íslendingar andvaralausir þegar kemur að öryggi gagna í tölvum og snjallsímum  Auðvelt að brjótast inn í gögn annarra  Tenging um Bluetooth talin varasöm Allur er varinn góður » Á netöryggi.is eru ýmis holl- ráð um örugga netnotkun, sem eiga einnig við um notkun snjallsíma. » Víða má finna leiðbeiningar á netinu um hvernig á að verj- ast símaþrjótum. Ekki ætti að taka við Bluetooth-tengingu frá óþekktu símtæki. Þegar þráðlaust net er notað ætti að gæta fyllstu varúðar. Straumur ferðafólks til Vestmanna- eyja hefur stóraukist eftir að brúin yfir Múlakvísl fór í hlaupi um síð- ustu helgi, samkvæmt upplýsingum frá ferðamannamiðstöð bæjarins. Fólk hefur breytt ferðaáætlunum sínum snarlega og farið til Vest- mannaeyja með Herjólfi, sem siglir nú fimm sinnum á dag frá Land- eyjahöfn. Veðurspáin fyrir helgina lofar góðu á vestanverðu Suðurlandinu og Reykjanesskaganum, með hæg- um vindi og hlýindum. Á því svæði er bæði margt um að vera og margt að sjá, fyr- ir þá sem verða á faraldsfæti. Með- al annars er Ís- landsmeist- aramót í hestaíþróttum á Selfossi og Bryggjuhátíð á Stokkseyri, auk fjölbreytts menningarlífs í bæjum og til sveita. »18-19 Meiri umferð í Eyjum  Flóð í Múlakvísl breytti stefnunni Lundi Ferðamenn fara til Eyja. MÞurfum að taka okkur á »6

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.