Morgunblaðið - 14.07.2011, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2011
Vilt þú vita hvers virði
eignin þín er í dag?
HRINGDU NÚNA
Bær820 8081
Sylvia Walthers // best@remax.is Brynjólfur Þorkelsson // 820 8080
Rúnar S. Gíslason
Lögg. fasteignasali.
PANTAU FRÍTT
SÖLUVERMAT!
Ný flotbryggja hefur verið sjósett í
Norðurbugt vesturhafnarinnar í
Reykjavík. Þarna var áður olíu-
bryggja úr tré sem komin var til ára
sinna og var hún rifin fyrir nokkru.
Bryggjan er framleidd hjá Loft-
orku í Borgarnesi og er úr stein-
steypu. Fyrirtækið KRÓLI sá um
framkvæmd og uppsetningu.
Samtals eru þarna 14 svonefndir
viðlegufingur, sjö hvorum megin, og
geta því 28 bátar legið við festar í
einu. Auk þess er aukabryggja sem
liggur þvert á aðalbryggjuna og þar
er pláss fyrir stærri báta.
Norðurbugtarbryggjan er einkum
ætluð fiskibátum sem stunda róðra
frá Reykjavík. Mjög hefur þrengst
um núverandi aðstöðu þeirra í Suð-
urbugt við það að hvalaskoðunar-
bátum hefur fjölgað og ferðaþjón-
ustan hefur þurft stöðugt meira
pláss. Fyrstu notendur hinnar nýju
bryggju eru seglskútur sem nú eru
geymdar við Faxagarð en þær verða
síðan fluttar úr Norðurbugt í Aust-
urbugt þar sem verið er að útbúa
framtíðaraðstöðu fyrir segl-
skútumenn. sisi@mbl.is
Ný bryggja fyrir fiskibáta
Trébryggjan
vék fyrir steyptri
flotbryggju
Ljósmynd/Faxaflóahafnir
Flotbryggjan Fyrst um sinn munu seglskútur hafa aðstöðu við hina nýju steinbryggju.
„Eftir breytingar verða sex héraðs-
dýralæknar og þeir verða eingöngu
eftirlitsmenn,“ segir Halldór Runólfs-
son yfirdýralæknir og vísar til breyt-
inga á starfsemi héraðsdýralækna
sem taka gildi 1. nóvember.
Halldór segir ástæðu breytinganna
vera innleiðingu matvælalöggjafar
Evrópusambandsins sem kveður m.a.
á um aðskilnað þjónustu við dýraeig-
endur og eftirlits. Halldór segir að
ávallt hafi verið gerð sú krafa að þjón-
usta við dýraeigendur í dreifbýli yrði
tryggð við breytingarnar. „Um þetta
er skýrt tekið fram í nýju lögunum, að
skylda er sett á sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneytið að sjá til þess að
þjónustan verði fyrir hendi með
greiðslu staðaruppbóta.“
Lagt er upp með að slíkt tryggi að
dýralæknar starfi áfram í hinum
dreifðu byggðum landsins. Nýju lögin
gera ráð fyrir að leysa þurfi úr mál-
efnum dreifbýlis en slíkt hefur tekið
tíma. „Það hefur tekið langan tíma að
ná niðurstöðu í hvernig standa skuli
að staðaruppbótum,“ segir Halldór og
bendir á að unnið sé að lausn málsins.
Um ákveðna óvissu er því að ræða að
mati Halldórs. Hann kveðst þó von-
góður um að þær tillögur, sem komn-
ar eru fram af hálfu ráðuneytis í sam-
ráði við Matvælastofnun, dugi sem
lausn málsins. „Mikið er í húfi og ég
hef ýtt á eftir lausn. Það er ómögulegt
annað en að lausn fáist sem allra fyrst
og í síðasta lagi fyrir fyrsta nóvem-
ber.“ khj@mbl.is
Þjónusta verður
áfram tryggð
Trúir því að málið leysist sem fyrst
Stundum er sagt að stjórnmálinséu ekki lengur upp á líf og
dauða. Þess vegna veki þau ekki
sömu hughrif og áður og fjöldinn
fái útrás fyrir baráttugleði sína
með öðrum hætti en forðum var.
Nú mæta tugir þús-
unda á landsleiki í
íþróttum, t.a.m. fót-
bolta, víða um ver-
öld og stundum
brjótast út óeirðir í
kjölfar kappleikj-
anna þar sem
stuðningsmenn
hafa ákafir veifað
sínum þjóðfánum og jafnvel málað
sjálfa sig í fánalitunum.
Á fyrri hluta síðustu aldar hafðikommúnisminn náð heljar-
tökum á mestu landsvæðum heims,
Sovétríkjunum og Kína. Ekki var
helsta mótvægið, sem lét til sín
taka í byrjun 4. áratugarins, fas-
isminn, geðfelldari.
Lýðræðisríkin fundu fyrir slík-um öflum innan sinna vé-
banda og fólk hafði ríkar ástæður
til að óttast. Hugsjónir komm-
únista áttu öfluga talsmenn á Ís-
landi og þeir og málgögn þeirra
lýstu Sovétríkjunum sem sannri
fyrirmynd um jöfnuð og réttlæti.
Morgunblaðið hafði forystu umað afhjúpa blekkingarnar og
bregða upp sannri mynd. Þá varð
hugtakið „moggalygi“ til. Margur
ofstækismaðurinn tók það sér í
munn, en það gerðu einnig sumir
vísast í góðri trú og hafa væntan-
lega séð eftir því síðar. Morgun-
blaðið er undrandi yfir því að enn
séu þeir til sem kjósa að bregðast
við óþægilegum sannleika með
gamla uppnefninu „moggalygi.“
Það hugtak særir ekki nema þá
sem beita því.
Fyrir blaðið er það hluti afsögu, sögu sem fyllir það
stolti.
Jóhanna
Sigurðardóttir
„Moggalygi“
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 13.7., kl. 18.00
Reykjavík 13 skúrir
Bolungarvík 14 skýjað
Akureyri 15 skýjað
Kirkjubæjarkl. 12 alskýjað
Vestmannaeyjar 10 súld
Nuuk 6 skýjað
Þórshöfn 10 skýjað
Ósló 17 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 heiðskírt
Stokkhólmur 18 léttskýjað
Helsinki 20 heiðskírt
Lúxemborg 13 skýjað
Brussel 13 skýjað
Dublin 17 léttskýjað
Glasgow 17 léttskýjað
London 16 léttskýjað
París 17 skýjað
Amsterdam 12 súld
Hamborg 20 skúrir
Berlín 25 skýjað
Vín 32 léttskýjað
Moskva 23 skýjað
Algarve 32 heiðskírt
Madríd 25 léttskýjað
Barcelona 26 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 33 heiðskírt
Aþena 31 heiðskírt
Winnipeg 22 léttskýjað
Montreal 22 skýjað
New York 26 heiðskírt
Chicago 22 skýjað
Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
14. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:38 23:30
ÍSAFJÖRÐUR 3:02 24:16
SIGLUFJÖRÐUR 2:43 24:01
DJÚPIVOGUR 2:58 23:09