Morgunblaðið - 14.07.2011, Síða 11
Þurrkaður fiskur Siglingar og strandmenning verða í forgrunni á samnorrænu hátíðinni Sail Húsavík sem verður
haldin um helgina. Að sögn Sigurbjargar getum við lært ýmislegt um strandmenningu af grannríkjum okkar.
þessu landi. Þetta voru ekki göngu-
garpar sem höfðu áhuga á að fara
upp á hálendi. Íslendingar í ferða-
þjónustu voru endalaust að reyna að
stugga mér til fjalla eins og sauð-
kind að vori og það varð til þess að
vekja þennan áhuga minn á strand-
menningu. Að auki hef ég búið í
Noregi og kynnst því hvernig Norð-
menn hafa verndað sína strand-
menningu með því að nýta hana og
nota til nýsköpunar og atvinnu-
uppbyggingar og það er það sem ég
vil sjá hér.“
Auður við strönd landsins
Árið 2003 kom Sigurbjörg að
stofnun Íslenska vitafélagsins – fé-
lags um íslenska strandmenningu, í
samvinnu við Þjóðminjasafnið,
Fornleifavernd, Húsafriðunarnefnd,
Siglingastofnun, söfn víða um land
og aðra einstaklinga. „Við höfum
haldið miklum og góðum tengslum
við strandmenningarfélög á Norð-
urlöndunum. Árið 2007 héldum við
heilsdagsráðstefnu á Hótel Sögu og
fengum til liðs við okkur flestöll fé-
lög í íslenskri ferðaþjónustu í því
skyni að opna augu þeirra fyrir því
hvað við eigum mikla afþreyingu við
strönd. Við höfum staðið fyrir
fræðslukvöldum í Sjóminjasafni
Reykjavíkur einu sinni í hverjum
vetrarmánuði allan veturinn, höfum
farið út á land og haldið minni mál-
þing, við gefum út lítið blað og við
höfum reynt að vekja þjóðina til um-
hugsunar um þennan auð sem við
eigum við strönd landsins.“
16.-23. júlí nk. verður sam-
norræna strandmenningarhátíðin
Sail Húsavík haldin en hún er hugs-
uð sem vettvangur fyrir lærða og
leikna til að hittast og miðla þekk-
ingu sinni og koma á tengslum milli
þjóðanna. Þetta er í fyrsta sinn sem
hátíðin er haldin en Íslenska vita-
félagið kom að stofnun hennar. „Há-
tíðin er merkileg fyrir það að þetta
er í fyrsta sinn sem grasrótarfélög á
Norðurlöndum standa að sameigin-
legri hátíð. Þetta er fyrsta hátíðin
en ekki sú síðasta,“ segir Sigurbjörg
en á næsta ári verður hún haldin í
Ebeltoft í Danmörku, árið 2013
verður hún í Karlskrona í Svíþjóð
og 2014 í Osló í Noregi. „Það var að
frumkvæði Íslenska vitafélagsins
sem fulltrúum norrænu strand-
menningarfélaganna var boðið að
koma og ræða þessi mál og þetta er
afraksturinn.“
Margt hægt að læra
af grannríkjunum
Spurð um helstu viðburði hátíð-
arinnar segir Sigurbjörg Norðmenn
eiga stærsta þáttinn í þeim. Ellefu
bátar og skip komi frá Noregi, þar
af MS Sjøkurs. „Það var eitt af
fyrstu strandferðaskipum sem
Hurstigruta átti en er núna skóla-
skip með aðsetur í Kristiansand.
MS Sjøkurs var smíðað 1956 og er
systurskip okkar gamla og góða
Gullfoss. Um borð í skipinu eru
minni bátar sem eru með elsta
handverki sem tíðkaðist við bygg-
ingu báta. Svo mætir á hátíðina hún
Rita sem kemur frá eyjunni Vega,
en hún er á heimsminjaskrá
UNESCO fyrir æðardún og æðar-
dúnstekjur og það er sú ágæta eyja
sem þátturinn Himmelblå var tek-
inn upp á. Við erum ábyggilega 30
árum á eftir Norðmönnum í að nýta
æðardún.“
Sigurbjörg segir að á hátíðinni
verði einnig sýndar kvikmyndir,
haldnir verði fyrirlestrar og mál-
þing, þjóðdansar dansaðir auk þess
sem öll skipin og bátarnir verði til
sýnis. „Ég ætla að vona að hátíðin
verði til þess að vekja þjóðina til
umhugsunar um þann auð sem við
eigum. Ég vona að fólk komi til að
læra, það sé opið fyrir að skoða
hvernig aðrir eru að gera þetta og
hvernig það hefur tekist til. Við get-
um lært óhemjumikið af grann-
ríkjum okkar.“
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2011
Krókur 220,-
Héraeyra 220,-
Black Gnat 220,-
Nobbler Svartur 290,-
Dýrbítur 290,-
JW Nymph 290,-
Randy Candy 390,-
Colburn Special 390,-
Hairy Mary 390,-
Sunray Shadow 390,-
Black Eyed Prawn 450,-
Black Eyed Prawn 450,-
Bjarni Rauði 220,-
Watson´s Fancy 220,-
Black Flying Ant 220,-
Alda 290,-
Hólmfríður 290,-
Nobbler 290,-
Green Collie Bitch 390,-
Nagli 390,-
Fransis 390,-
HKA Sunray/Bismo 450,-
Fransis 450,-
Black Sheep 450,-
Brassi 220,-
Tailor 220,-
Peacock 220,-
Black Ghost 290,-
Rektor 290,-
Heimasætan 290,-
Munroe Killer 390,-
Fransis 390,-
Black Sheep 390,-
HKA Sunray/Bismo 450,-
Snælda 450,-
Fransis 450,-
Latexpúpa rauð 220,-
Bleik og blá 220,-
CDC Winged 220,-
Flæðarmús 290,-
Supertinsel 290,-
Black Ghost 290,-
Hairy Mary 390,-
Stekkur Blá 390,-
Haugur 390,-
Skógá 450,-
Snælda 450,-
Dark Side of the Moon 450,-
Í sérverslun fluguveiðimannsins á netinu, Flugan.is, f
ærðu á
fjórða hundrað gerðir af vönduðum, vel hnýttum og v
eiðnum
flugum. Flestar þeirra færðu einnig í Veiðihorninu, Síð
umúla 8.
BESTU FLUGURNAR!
JÁ, ÞÚ FÆRÐ ALLAR BESTU FLUG
URNAR
Á BETRA VERÐI HJÁ OKKUR
KANNASTU VIÐ ÞESSAR?
Fransis, Snælda, Blue Charm, Avatar, Collie Dog, Green Butt, Bismo, Flæðarmús, Hairy Mary, Peacock, Killer, Sunray Shadow,
Kötturinn, Green Brahan, Black & Blue, Skröggur, Rusty Rat, Randy Candy, Mýsla, Leonardo, María, Colburn Special, Black Ghost,
Krókur, Black Labrador, Héraeyra, Skógá, Green Highlander, Kolskeggur, Blue Sheep, Undertaker, Iða, Hólmfríður, Haugur, Gray
Ghost, Nagli, Nobbler, Super Tinsel, Red Butt, Black Sheep, Dimmblá, Rektor, Crossfield, Laxá Blá, Dýrbítur, Þingeyingur, Alder,
Montana, Black Gnat, Dark Side of the Moon, Stardust, Alda, Dentist, Silver Sheep, Munroe Killer, Rocket, Alma Rún, Watson Fancy
SÍÐUMÚLI 8 - SÍMI 568 8410
Í dag er haldinn
hátíðlegur Ba-
stilludagurinn,
þjóðhátíðar-
dagur Frakka.
En á þessum
degi er minnst
árásarinnar á
Bastilluna í
Frönsku bylting-
unni hinn 14.
júlí árið 1789.
Gera Frakkar sér
jafnan glaðan
dag á þessum degi en Daníel Frið-
jónsson upplifði stemninguna í París
síðastliðið sumar.
„Ég komst nú reyndar ekki út yfir
daginn því það var úrhellisrigning og
þrumuveður. En um kvöldið var veðr-
ið orðið betra og þá fór ég niður á
Trocadero-torgið rétt hjá Eiffel-
turninum til að fylgjast með flug-
eldasýningunni. Þetta var vel sam-
sett flugeldasýning og öll í fánalit-
unum. Ég hef aldrei séð svona á
Íslandi og var sérstaklega gaman að
sjá þessa sýningu,“ segir Daníel sem
dvaldi sumarlangt í borginni ásamt
kærustu sinni. Hún var þar við störf
en hann fylgdi með, líkt og hann
orðar það, og naut þess að kynnast
landi og þjóð. Þegar Daníel ætlaði
síðan heim aftur eftir flugeldasýn-
inguna var það hægara sagt en gert
því allar neðanjarðarstöðvar í grennd
við torgið voru lokaðar. Hann þurfti
því að fara í góðan labbitúr en um allt
voru pylsuvagnar og aðrar veitingar
til sölu og mikil stemning á götunum
í kringum torgið. Daníel segist ekki
vera farinn að huga að hátíðahöldum
í dag en þó geti vel verið að hann
opni rauðvínsflösku í tilefni dagsins.
Víst er að Frakkar búsettir hér-
lendis svo og ýmsir Frakklandsvinir
munu gera sér glaðan dag í dag. Líkt
og venjan er munu allmargir þeirra
koma saman í kokteilboði franska
sendiherrans. Fyrir hina er tilvalið að
halda franskt þemakvöld, elda
franska sérrétti undir ljúfum frönsk-
um tónum og fá sér ost og kannski
eins og eitt rauðvínsglas.
Bastilludeginum fagnað
Mikil hátíðahöld í París þar sem glæsileg flug-
eldasýning er vel samsett af fánalitunum
ljósmynd/Reuters
Hátíð Á Trocadero torginu, rétt við Eiffel turninn, safnast fólk saman.
Daníel
Friðjónsson