Morgunblaðið - 14.07.2011, Page 16

Morgunblaðið - 14.07.2011, Page 16
16 VEIÐIVÖTN Guðni Einarsson gudni@mbl.is Hlýnun loftslags undanfarinna ára hefur haft áhrif í stöðuvötnum, ám og lækjum landsins. Nýjar tegundir hafa numið hér land og rutt sér til rúms á meðan öðrum hefur hnignað. „Við sjáum breytingar á stofn- stærð, sérstaklega í bleikjunni. Hún er að láta undan víða og við höfum haldið að það geti verið eitthvert samspil þarna á milli, annaðhvort vegna samkeppni um fæðu og rými eða vegna afráns. Sjóbirtingur er jafnvel líka að fara niður á við, þó ekki jafn hratt og bleikjan,“ sagði Sigurður Már Einarsson fiskifræð- ingur hjá Veiðimálastofnun. Bleikjan er ekki mjög hitakær tegund. Sigurður sagði vitað að stofnstærð bleikju hafi minnkað verulega á hlýindaskeiðum. Hún láti þá undan en hitakærari tegundir á borð við lax komi þá sterkar inn. „Laxinn er sterkastur af þessum laxfiskum í hita. Þegar hitnar fer laxinn upp en bleikjan niður. Út- breiðslumörk laxins breytast með hlýnun. Hann fer að veiðast meira á Vestfjörðum og öðrum kaldari svæð- um þar sem hann er ekki á kulda- skeiðum,“ sagði Sigurður. Djúp dýfa í Borgarfirði Hann sagði engin dæmi um aðra eins dýfu og bleikjan hefur tekið, t.d. í Borgarfirði. „Við höfum ekki séð svona djúpa sveiflu áður. Það er nánast ekkert eða mjög lítið af bleikju þarna,“ sagði Sigurður. Hann nefndi til dæmis að í kringum árið 2000 hafi veiðst 4-5 þúsund bleikjur á hverju ári á vatnasvæði Hvítár í Borgarfirði. „Ég veit ekki hvort þær náðu 400 í fyrra. Þetta er svona,“ sagði Sigurður. Settar hafa verið veiðitakmarkanir á bleikju á vatnasvæði Hvítár að hluta til að vernda bleikjuna. Veiðitíminn í efri hluta árinnar hefur m.a. verið stytt- ur í þeim tilgangi. Sigurður segir að ástand bleikjunnar sé mjög alvarlegt og valdi mönnum áhyggjum. Sigurður sagði grun leika á að flundran eigi þátt í þessu en einnig fleiri meðvirkandi þættir. Þar má nefna aukna útbreiðslu lax sem kunni að ýta bleikjunni í burtu. Sig- urður lagði áherslu á að samspil þessara tegunda og umhverfisins sé flókið. Sjógenginn urriði, sjóbirtingur, er að nema ný svæði í ám á Vesturlandi og Vestfjörðum þar sem sjóbleikja var áður ríkjandi tegund. Þá er lax að sækja á í ám þar sem hann var sjaldgæfur áður, að því er fram kom í ársskýrslu Veiðimálastofnunar 2010. Um leið og bleikju hefur fækkað í mörgum ám þar sem hún var áður útbreidd þá hefur henni fjölgað inn til landsins, t.d. í Veiðivötnum sem liggja hátt. Svo virðist sem henni líði betur í svölu vatni hálendisins en þar sem er hlýrra. Bleikjan hörfar undan hlýindunum Morgunblaðið/Golli Bleikja Stofnstærð bleikju hefur minnkað á hlýindaskeiðum. Bleikjan á myndinni veiddist í Fljótaá í Skagafirði. Bleikjuveiði - samkvæmt veiðiskýrslum í net og á stöng á vatnasviði Hvítár í Borgarfirði 2001-2010 4000 3500 3000 2500 2000 1500 1000 500 0 20022001 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 Heimild: Veiðimálastofnun Stangaveiði Netaveiði Bleikja (Salvelinus alpinus) er hánorræn tegund með út- breiðslu um allt norðurhvel jarðar. Útbreiðsla hennar nær norðar en nokkurrar annarrar ferskvatnsfisktegundar, sam- kvæmt vef Veiðimálastofnunar. Bleikjan getur lagað sig að mjög ólíkum aðstæðum og hrygnt hvort sem er í stöðu- vötnum eða straumvatni. Ýmist dvelur hún allan sinn aldur í ferskvatni og er þá staðbundin eða hún dvelur í ferskvatni fyrstu árin en gengur svo til sjávar yfir sumarið og aftur í ferskvatn þegar sumri hallar og kallast þá sjóbleikja. Bleikjan er til í mörgum af- brigðum og lagar hún sig mjög að umhverfi sínu. Bleikjan í Þingvallavatni er eitt frægasta dæmið um slíka aðlögun en í vatninu má finna fjögur afbrigði bleikju. „Það er murtan sem lifir á svifi, dvergbleikja sem lifir í gjótum og sprungum í hraun- inu, sílableikja sem er stærri og lifir á fiski og að síðustu kuð- ungableikja sem er aðlöguð að áti af botni,“ segir á vef Veiði- málastofnunar. Bleikjan ÓLÍKIR BLEIKJUSTOFNAR Murta Eitt afbrigði bleikju. Nýlegur landnemi í veiðivötnum landsins er flatfiskurinn flundra eða ósakoli (Platichthys flesus). Hún veiddist hér fyrst í Ölfusárósi í sept- ember 1999. Fram að því höfðu norðurmörk tegundarinnar verið við Færeyjar. Flundran fór að hrygna hér og er nú orðin útbreidd við allt Suður- og Vesturland, á Vest- fjörðum og farin að finnast á Norð- urlandi. Landnámi hennar er líklega ekki lokið að mati fiskifræðinga Veiðimálastofnunar. „Áhugi okkar á Veiðimálastofnun á flundru er aðallega vegna þess að hún er að vaða inn í ferskvatnið og er mjög þétt á mörgum ósasvæðum þar sem laxfiskar okkar nýta sömu svæðin,“ sagði Sigurður Már Ein- arsson, fiskifræðingur á Veiðimála- stofnun. Hann sagði talið líklegt að flundran sé í samkeppni við silung um fæðu bæði neðst í ánum og í sjó. Flundran undir smásjánni Nýlega hófst rannsókn á lífs- háttum flundru hér við land. Um er að ræða meistaraverkefni Ásgeirs Valdimars Hlinasonar við Landbún- aðarháskóla Íslands. Leiðbeinandi hans er Sigurður Már Einarsson, fiskifræðingur. Tekin voru sýni úr magainnihaldi flundra í Borgarfirði í fyrra en úr- vinnslu þeirra er ekki lokið. Þó er ljóst að fæðuval flundrunnar er mjög breitt. „Þá kom í ljós að hún er gráð- ug og hefur fjölbreytt fæðuval. Hún étur m.a. bogkrabba og ég hef séð hana taka laxaseiði og fleira,“ sagði Sigurður. Ásgeir Valdimar sagði að svo virðist sem flundran éti nær allt sem að kjafti kemur, hvort sem það er krabbi, marfló eða síli. „Hún virðist ekki vera matvönd,“ sagði Ásgeir. Hann sagði nokkuð ljóst að flundran hafi komið hingað vegna þess að skilyrðin fyrir hana hafi batnað með hlýnun. Ekki er vitað hvernig flundran barst en líklegt er talið að hún hafi borist frá Fær- eyjum. Hrognin eru sviflæg og kann hún að hafa borist með kjölfestu- vatni skipa. Hún heldur sig fyrst og fremst í ósum en hrygnir í sjónum og getur haldið sig í ferskvatni, jafn- vel allt árið. Flundra á fyrsta ári hef- ur t.d. fundist bæði í nóvember og maí. Ásgeir hefur sent spurningalista til veiðifélaga um allt land til að kanna útbreiðslu flundru. Þar er m.a. spurt hvort og þá hvenær flundra hafi fundist á þeirra svæði og um fjölda og stærð fiskanna sem veiðst hafa. Hann sagði nokkur svör hafa borist en ekki nærri nógu mörg til þess að hægt sé að kortleggja landnám flundrunnar til fullnustu. Ásgeir lagði áherslu á mikilvægi þess að veiðifélögin svari spurning- unum svo hægt sé að átta sig á út- breiðslu flundrunnar. Landnám flundrunnar hefur stöðugt stækkað frá 1999 Þekkt landnám flundru á Íslandi 1999-2010 Gufudalsá 2003 Norðurfjörður 2005 Vatnasvæði Lýsu 2010 Ölfusá 1999 Stöðvará 2005 Morgunblaðið/Einar Falur Flundra Þessi veiddist í Hlíðarvatni. Sæsteinsuga (Petromyzon mar- inus) hefur lagst á laxfiska hér við land á undanförnum árum. Fyrsta staðfesta dæmið um steinsugusár á laxfiski hér á landi sást á sjóbirtingum í Kúða- fljóti í Vestur-Skaftafellsýslu haustið 2006. Síðar sama haust bárust fréttir af svipuðum sárum á sjóbirtingum úr öðrum nálæg- um ám, en aðallega á vatnasvæði Kúðafljóts. Allt að 80% af afla veiðimanna í Kúðafljóti báru merki steinsugusára þetta haust. Sæsteinsugan er frumstæður sníkjufiskur af flokki hring- munna. Hún getur orðið rúmur metri að lengd. Sæsteinsugan leggst frekar á stóra fiska, t.d. stóra sjóbirtinga, en smáa fiska. Hún sýgur sig fasta við fiskana og sýgur úr þeim næringu. Veiðimálastofnun telur mögu- legt að sæsteinsugan hrygni hér með hlýnandi veðurfari en hún hrygnir í fersku vatni. Lirfur sæ- steinsuganna gefa frá sér ákveð- ið hormón þar sem þær alast upp í ferskvatninu. Kynþroska sæ- steinsugur renna á lyktina til að finna hentugan hrygningarstað. Leit að steinsuguseiðum í ám sunnanlands hefur ekki borið ár- angur til þessa. Enn verður farið til leitar í ágúst næstkomandi og leitað á nýjum stöðum. Benóný Jónsson, líffræðingur hjá Veiðimálastofnun, hefur rannsakað lífríki ferskvatns og greindi fyrstur frá sárum af völdum sæsteinsugu á sjóbirt- ingum hér á landi. Hann sagði að það sem af er sumri hafi ekki orðið vart við sæsteinsugu og það sé eðlilegt. Sár eftir hana hafi einkum sést á sjóbirtingi og hann sé ekki farinn að veiðast. Þetta sjáist frekar þegar líði á haustið. Steinsugusár hafa sést á laxi aðallega á Suðvesturlandi. Sæsteinsuga leggst á laxfiskana Flundra (Platichthys flesus) eða ósakoli er flatfiskur og af kolaætt. Hún líkist mest skarkola og sandkola. Flundran þekkist frá þessum tegundum á því að meðfram bak- og raufarugga og rákinni eru smá-beinkörtur. Heimkynni flundru eru með ströndum Evrópu frá Marokkó til Færeyja og allt norður á Kólaskaga, samkvæmt vef Veiðimálastofnunar. Flundran lifir bæði í söltu vatni, ísöltu og fersku. Hún heldur sig gjarnan neðst í vatnakerfum, sérstaklega ungviðið, en annars við strendur. Í sjónum heldur hún sig við botn frá fjöruborði og allt niður á 100 metra dýpi og hrygnir alltaf í sjó. Á sumrin heldur flundran sig gjarnan í og við árósa og getur gengið upp í ár og læki. Flundra ÓSAKOLINN LIFIR BÆÐI Í FERSKU VATNI, ÍSÖLTU OG SÖLTU Hamskipti lífríkis og landslags MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2011

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.