Morgunblaðið - 14.07.2011, Page 38

Morgunblaðið - 14.07.2011, Page 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2011 Gráða & feta ostateningar henta vel í kartöflusalatið, á pítsuna, í sósuna, salatið, ofnréttinn og á smáréttabakkann. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA ms.is Gráða & feta ostateningar í olíu Nýtt Hin fjölhæfa söngkona Ragnheið- ur Gröndal heldur í stutta tón- leikaferð um Norðurland ásamt djasshljómsveit bróður síns Hauks Gröndal. Á ferðinni um Norður- land munu þau leika á nokkrum stöðum og byrja þau á því að troða upp í Deiglunni á Lista- sumri á Akureyri í kvöld kl. 21:30. Á föstudag og laugardag, 15. og 16. júlí, leika þau í Gamla Bænum, Hótel Reynihlíð við Mývatn. Báðir tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og á sunnudagskvöldið 17. júlí koma þau fram á Gamla Bauk á Húsavík kl. 21:00. Systkinin Ragnheiður og Hauk- ur hafa unnið mikið saman í gegn- um tíðina og má heyra samvinnu þeirra hljóma á plötum þeirra beggja. Ragnheiður Gröndal hefur gefið út sex sólóplötur og er nú orðin ein ástsælasta söngkona landsins. Með systkinunum leika þeir Ásgeir Ásgeirsson á gítar, Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Pétur Grétarsson á trommur. Syngjandi ferðast Ragnheiður Gröndal um Norðurland  Syngur ásamt jazzhljómsveit bróður síns Hauks Gröndal  Koma fram í Deiglunni á Listasumri á Akureyri í kvöld Ljúf Ragnheiður Gröndal hefur sungið sig inn í hug og hjörtu Íslendinga. Kraumur tónlistarsjóður úthlutaði í gær styrk til verkefna íslenskra listamanna og hljómsveita sem taka þátt í Innrás Kraums 2011. Þeir sem hlutu stuðning Kraums eru Hallveig Rúnarsdóttir og Ferrit Schuil, hljómsveitirnar Valdimar, Ghostigital og Captain Fufano, Frelsissveit Nýja Íslands sem mun leika á djasshátíð og Skálmöld sem eru nú staddir í Færeyjum til þess að spila á G-festival. Tónleikaferðin Partíþokan hlýtur hæsta styrkinn að þessu sinni en verkefnið er hug- arfóstur Svavars Péturs Eysteins- sonar sem fer fyrir hljómsveitinni Prinspóló. Með í för verða FM Bel- fast, Borko og Sin Fang auk Prins- póló. Markmið Innrásarinnar og Kraums er að hvetja listamenn og hljómsveitir til tónleikahalds innan- lands, koma sér á framfæri víðar en á höfuðborgarsvæðinu og efla tón- listarlíf á landsbyggðinni. Sjóður- inn var settur á laggirnar í upphafi árs 2008 og hafa í kringum 80 hljómsveitir og listamenn fengið stuðning úr sjóðnum. Tvær milljónir til íslenskrar tónlistar Forsprakki Svavar Pétur í Prinspóló. Í Morgunblaðinu í gær birtist grein í Daglegu lífi þar sem gerð var grein fyrir heppilegu lesefni fyrir hinar ýmsu manngerðir til að lesa í sumarfríinu. Ein af þeim bókum sem mælt var með er bókin Óska- barn: Bókin um Jón Sigurðsson. Því miður gleymdist þar að nafngreina höfund bókarinnar. Höfundur er að sjálfsögðu Brynhildur Þórarins- dóttir og kom bókin út 17. júní síð- astliðinn. Við biðjumst velvirðingar á þess- um mistökum. Leiðrétting á grein um heppilegt lesefni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.