Morgunblaðið - 27.09.2011, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 2011
Bíldshöfða 18 | Sími 567 1466 | Opið frá kl. 8–22
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Á fjórða hundrað manns mætti á borgarafund í
Háskólabíói í gær sem bar yfirskriftina Er lög-
mætur eigandi skuldarinnar að rukka þig? Með-
al þeirra sem tóku til máls voru Björn Þorri
Viktorsson hæstaréttarlögmaður, Sturla Jóns-
son og Jóhannes Björn rithöfundur.
Vel var mætt á borgarafund um gildandi lög um lánagjörninga
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Brugðið á leik á borgarafundi
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Nemendum í 5., 6. og 7. bekk grunn-
skóla hér á landi líður almennt vel og
hafa sterka sjálfsmynd að eigin sögn.
Þetta kemur fram í nýrri rannsókn.
Athygli vekur að hátt í fjórðungur
nemenda les aldrei aðrar bækur en
skólabækur.
Rannsóknin sem hér um ræðir er
byggð á spurningum um líðan,
menntun, menningu, tómstundir og
íþróttaiðkun íslenskra ungmenna.
Rannsóknin var unnin af Rannsókn-
um og greiningu fyrir mennta- og
menningarmálaráðuneytið og lögð
fyrir nemendur í öllum grunnskólum
landsins í febrúar á þessu ári. Gild
svör bárust frá um 11.000 börnum.
Niðurstöður rannsóknarinnar
verða kynntar í dag, en nefna má að
þar kemur m.a. fram að börn sem
stunda íþróttir reglulega eru síður
einmana en önnur börn.
Hlutfall þeirra barna sem hreyfa
sig mikið hefur hækkað undanfarin
ár, en hlutfall þeirra sem hreyfa sig
lítið sem ekkert hefur líka hækkað.
Um 70% nemenda segjast eiga
marga vini. Nær enginn munur er á
kynjum í því sambandi en hins vegar
vekur athygli að 10 af hundraði nem-
enda í 5.-7. bekk, um 1.100, segjast
fáa eða enga vini eiga.
Mikill meirihluti nemenda segist
aldrei hafa tekið þátt í stríðni eða
einelti í skóla og eru stelpur fjöl-
mennari í þeim hópi.
Tæplega 11% nemenda finnst
námið of erfitt og næstum jafnmörg-
um finnst námið of létt.
Hátt í fjórðungur nemenda segist
engan tíma nota í lestur annarra
bóka en skólabóka. Strákar eru fleiri
en stelpur í þessum hópi.
Á um 17% heimila er talað annað
tungumál ásamt íslensku.
Um 20% nemenda búa ekki með
föður sínum en um 5% ekki með
móður.
Hátt í 10% nemenda finnst þau
ekki örugg á skólalóðinni.
Þá kemur í ljós, sem líklega kemur
ekki á óvart, að um 92% krakkanna
eiga gsm-síma.
Fjórðungur les bara skólabækur
Yfir 70% barna á miðstigi grunnskóla eiga marga vini Tæplega 10% segjast eiga fáa eða enga vini
Hlutfall þeirra barna sem hreyfa sig mikið hefur hækkað en líka þeirra sem hreyfa sig lítið eða ekkert
Morgunblaðið/Golli
Góð hreyfing Börn sem stunda íþróttir reglulega eru síður einmana.
Á fundi Lögreglufélags Suðurnesja í
gær var samþykkt tillaga þess efnis
að allir lögreglumenn í óeirðasveit
lögreglunnar á svæðinu segðu starfi
sínu lausu við sveitina. Um 25 manns
hafa sinnt þess háttar löggæslu þeg-
ar þarf á Suðurnesjum og annars
staðar.
„Við gerum þetta af illri nauðsyn
enda finnst okkur kjör okkar ekki
endurspegla okkar störf,“ segir
Hjálmar Hallgrímsson, lögreglu-
maður á Suðurnesjum. „Það virðist
gleymast fljótt hverjir stóðu fyrir ut-
an Alþingi og gættu friðar og sýndu
öllum virðingu, bæði borgurum og
ráðamönnum. Lögreglumenn hafa
sýnt ástandinu mikinn skilning og
það endurspeglast í störfum okkar
t.d. þegar mótmæli hafa farið úr
böndunum.“
Í dag ætlar Lögreglufélag Suður-
nesja að leggja fyrir fund Landssam-
bands lögreglumanna tillögu þess
efnis að lögreglumenn um allt land
segi upp starfi sínu í sveitum óeirða-
lögreglunnar. Komi til þess skapast
töluverð óvissa um öryggi og gæslu,
t.a.m. við setningu Alþingis á laug-
ardaginn næstkomandi. Lögreglu-
menn geta þó ekki sagt sig frá þeim
skylduverkum sem þeir þurfa að
sinna. Því gæti komið upp óvenjuleg
staða samþykki lögreglumenn á
fundi Landssambands lögreglu-
manna að segja upp í óeirðasveitinni.
vilhjalmur@mbl.is
Lögreglumenn í óeirða-
sveit Suðurnesja segja upp
Lagt til að allir
óeirðalögreglu-
menn fylgi á eftir
Morgunblaðið/Ómar
Uppsagnir Óeirðalögreglumenn
gætu allir sagt upp í dag.
Mikill meirihluti nemenda í 5., 6.
og 7. bekk grunnskóla hérlendis
fær hjálp frá pabba sínum,
mömmu eða systkinum við
heimanámið. Stelpur eru fjöl-
mennari í þeim hópi.
Einnig kemur fram í rann-
sókninni að miklum meirihluta
nemenda líður vel heima hjá sér
og ver drjúgum tíma með for-
eldrum sínum.
Líður vel með
foreldrunum
HEIMA ER BEST
Lögð verður
fram þingsálykt-
unartillaga á Al-
þingi í næstu
viku þess efnis að
Íslendingar
styðji umsókn
Palestínumanna
um aðild að Sam-
einuðu þjóð-
unum. Þetta
sagði Össur
Skarphéðinsson utanríkisráðherra
í ræðu sinni á allsherjarþingi SÞ í
gærkvöldi.
Össur sagði jafnframt að
heimskulegt væri að neita Palest-
ínumönnum um sjálfstæði.
Styðji umsókn
Palestínu að SÞ
Össur
Skarphéðinsson
„ESA getur ákveðið að kaupa rök
íslenskra stjórnvalda og fella málið
niður, stofnunin getur líka komist
að þeirri niðurstöðu að þetta breyti
engu um afstöðu hennar og eins
gæti verið að óskað yrði eftir frek-
ari svörum frá Íslandi,“ sagði Árni
Þór Sigurðsson, formaður utanrík-
ismálanefndar, eftir fund nefndar-
innar með Árna Páli Árnasyni,
efnahags- og viðskiptaráðherra, í
gær, um svör Íslands vegna Ice-
save-málsins, en frestur til að skila
þeim til ESA rennur út um mánaða-
mótin næstu.
Ýmsir mögu-
leikar í Icesave