Morgunblaðið - 27.09.2011, Qupperneq 11
síðan Flensborgarhlaupið en við
starfsfólkið höfum gengið með hug-
mynd að slíku hlaupi í maganum í
nokkurn tíma. Hlaupið verður ræst
frá skólanum klukkan 12 og hlaupið í
átt að Kaldárseli og aftur til baka.
Lengra hlaupið er 10 km og er tíma-
taka í því, hitt er 3 km skemmti-
skokk/kraftganga/ganga. Hlaupið er
opið öllum sem vilja vera með en
skokkhópar Hauka og FH munu t.d.
sameinast þarna með nemendum og
starfsfólki. Það verður bæði hvetj-
andi og skemmtilegt,“ segir Magnús
Þorkelsson aðstoðarskólastjóri.
Hollir valkostir vinsælir
Magnús segir að verkefnið hafi
haft góð áhrif í skólanum.Verið er að
gera langtímarannsókn á árangrinum
en þó svo að niðurstöður liggi ekki
fyrir strax segist Magnúst sjá ýmsar
breytingar í daglegu lífi skólans.
Til að mynda séu hollir valkostir í
mötuneytinu mjög vinsælir meðal
nemenda. Þá er íþróttaafrekssvið
starfrækt í Flensborgarskólanum en
á því stunda um 200 krakkar nám af
alls 850 nemendum skólans. Magnús
segir þennan hóp vera áberandi í
húsinu og hafa jákvæð áhrif á dag-
legt starf skólans þegar komi að holl-
ustu og hreyfingu. Sjálfur hefur
Magnús hlaupið Reykjavíkurmaraþon
og hálft maraþon í útlöndum.
„Við vitum að það er hugur í ýms-
um hópum hérna í kringum okkur fyr-
ir laugardeginum og vonum að það
verði mjög góð þátttaka. Það verður
smátruflun á umferð svona í kringum
skólann og kringum Kaldársel og við
biðjum því ökumenn að sýna okkur
tillitssemi,“ segir Magnús.
Jökulfjarðaferð Þóra vílar ekki fyrir sér að róa á kajak við kaldar Íslandsstrendur, hér við Jökulfirði í sumar.
kerfi sem kajakfólk miðar sig við.
Prófið sem Þóra þreytti var sam-
kvæmt breskum stöðlum og hingað
komu af því tilefni tveir breskir
prófdómarar.
Ögraði sjálfri sér
„Fjögurra stjörnu próf þýðir
að maður er algjörlega sjálfbjarga
og fær leyfi til að leiða hóp þriggja
stjörnu ræðara. Þetta eru alþjóðleg
réttindi sem ég gæti nýtt mér hvar
sem er í heiminum en ég hugsaði
þetta nú bara til að ögra sjálfri
mér
og sjá hvort maður geti þetta
eins og strákarnir. Þetta er líka
eðlileg þróun á því sem maður hef-
ur verið að gera. Fyrir prófið þarf
maður að undirbúa sig vel. Æfa
alls konar tækniatriði sem maður
er prófaður í og vera góður í korta-
lestri og að lesa á áttavita. Einnig
þarf maður að geta planað ferðir
og kunna að afla sér upplýsinga um
veður og strauma. Annar prófdóm-
aranna er vel þekktur í kajak-
heiminum en þeir koma hingað ár-
lega til að taka út ræðarana og
kenna. Fyrst fer maður á námskeið
hjá þeim, svo líður ár og þá er
hægt að taka þetta próf. Prófið fer
fram við Gróttu en oft er líka farið
í Sandvík á Reykjanesi eða í Þor-
lákshöfn. Það þarf að vera alla
vega eins metra alda og í þessu
prófi er leitað að erfiðari aðstæðum
en venjulega,“ segir Þóra.
Þóra segir Kayakklúbbinn
hafa til afnota frábært svæði í
Geldinganesi og eins sé mikið siglt
út að Viðey, Lundey og Þerney. Á
þessum slóðum sé yfirleitt hægt að
finna aðstæður sem henti bæði
vönum sem óvönum ræðurum.
Kajakræðararnir láta veðrið ekki
stoppa sig og róa allt árið. Þó auð-
vitað sé ekki róið í snarvitlausu
veðri. Sjálf reynir Þóra að róa að
minnsta kosti einu sinni í viku auk
þess að fara á sundlaugaræfingu.
Yfirleitt reynir hún líka að sækja
eina æfingu í miðri viku og þá er
aðeins stífari róður.
„Það er gott að vera í góðu
formi fyrir og þokkalega sterkur.
En annars hefur þetta mest með
tækni að gera og konur eiga oft
auðveldara með hana þar sem þær
eru mýkri og liðugri.
Vindkælingin er hættulegust
og eins ef maður fer í sjóinn þegar
það er kalt, þó maður sé vel græj-
aður í þurrbúningi. Því er mikil-
vægt að fara aldrei einn og vera í
hóp.
Mig langar að róa meira hér
heima, ég fór í sumar í Jökulfirðina
og reri í fimm daga og hef farið
með klúbbnum síðastliðin þrjú
sumur á Breiðafjörðinn og róið þar.
Ég hvet alla sem hafa áhuga
til að kynna sér starfsemi klúbbs-
ins og prófa að koma og vera með,“
segir Þóra. En upplýsingar um
klúbbinn má nálgast á kayakklubb-
urinn.is.
Nú hefur bæst við listann afþeim efnum sem kven-kyns hlauparar mega
ekki innbyrða til að bæta árangur
sinn. Í raun er ekki um efni að
ræða heldur nokkuð mun áþreif-
anlegra, nefnilega karlmenn.
Umdeild regla
Alþjóðleg nefnd um frjálsar
íþróttir ákvað í lok ágúst að met í
kvennahlaupum myndu aðeins
gilda ef um væri að ræða kvenna-
hlaup. Var þetta ákveðið til að af-
nema hagsmuni karlmanna af því
að geta komið á ákveðnum
hlaupahraða sem væri of mikill
fyrir konur til að ráða við. Vekur
þetta fólk vissulega til umhugs-
unar um hvað það þýði nákvæm-
lega að slá heimsmet. Til að
mynda um það hvort kona hafi
ekki slegið met ef hún hleypur af
sér karlkyns keppinauta sína og
kemur fyrst í mark. Eins hvers
vegna það sé talið gott að karl-
menn fylgi eftir hlaupahraða hver
annars og gefi þá frekar í en
verra þyki ef kona fylgir í fótspor
karlkyns hlaupara.
Um þetta hafa spunnist miklar
umræður í hlaupaheiminum og
met sem kvenkyns hlauparar hafa
slegið eru samkvæmt þessu ekki
gildandi lengur. Hafa skipuleggj-
endur helstu maraþona heims eins
og í New York, Berlín og London
gagnrýnt þessa ákvörðun. Þykir
það bæði ruglandi og ósanngjarnt
að stysti tíminn sé ekki endilega
met.
„Ásetningur nefndarinnar var
að gera greinarmun á afreki
kvenna sem slá met þegar þær
hlaupa með körlum og þeim sem
slá met þegar þær hlaupa ein-
göngu með konum. En það er yf-
irleitt talið erfiðara. Við vildum
sýna fram á að konur gætu staðið
á eigin fótum og þær þyrftu ekki
karlmanna við til að slá heims-
met. En raunin er sú að hlaupa-
tími kvenna er að meðaltali
tveimur mínútum styttri þegar
karlmenn ákvarða hraðann. En að
kalla eitt afrek best í heimi og
annað heimsmet gerir almenning
augljóslega mjög ringlaðan,“ seg-
ir Mary Wittenberg, fram-
kvæmdastjóri New York-
maraþonsins og félagi í nefndinni.
Kemur þetta fram á vefsíðu
bandaríska tímaritsins New York
Times.
Nýjar hlaupareglur
Reuters
Met? Konur ku gefa í og auka hlaupahraða sinn hlaupi þær með körlum.
Met kvenna gerð ógild
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 2011
Þarft þú heyrnartæki?
Pantaðu tíma í fría heyrnarmælingu í síma 568 6880
Að láta mæla heyrnin er einföld leið til
að ganga úr skugga um hvort kominn sé
tími til að nota heyrnartæki.
Bjóðum upp á mikið úrval vandaðra
heyrnartækja í ólíkum verðflokkum.
Fallega hönnuð og þægileg heyrnartæki
sem eru nánast því ósýnileg bak við eyra.
Þú getur fengið heyrnartæki til prufu í
vikutíma og upplifað hversu einfalt það
er að heyra áreynslulaust á ný.
Kayakklúbburinn var stofnaður
vorið 1981. Starfsemi klúbbsins
hefur farið ört vaxandi undan-
farin ár og eru virkir félagar nú
um það bil 400. Innan kajak-
íþróttarinnar eru nokkrar gerðir
kajaka, en hér á landi er aðal-
lega lögð stund á róður á
straumvatns- og sjókajökum.
Klúbburinn hefur aðstöðu í
Sundlaugunum í Laugardal, í
Geldinganesi og í Nauthólsvík.
Yfir veturinn er hist á Geld-
inganesinu á laugardags-
morgnum klukkan 9.30 en þá
geta allir mætt sem vilja koma
og prófað að róa. Róið er allan
ársins hring.
Félagar um
það bil 400
KAYAKKLÚBBURINN