Morgunblaðið - 27.09.2011, Side 24

Morgunblaðið - 27.09.2011, Side 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 2011 Nú er þrautum þínum lokið, amma mín, og langar mig að þakka þér með nokkrum orðum að lokum. Takk fyrir að standa með mér í gegnum súrt og sætt. Ég man margar góðar stundir með þér sem hafa haft mikil áhrif á mig. Ég man sérstaklega eftir kjötsúpunni þinni og spjalli sem gat lagað nánast hvaða vandamál sem var. Við áttum saman góðar stundir yfir uppá- haldsþættinum okkar, Leiðar- ljósi. Það sem ég á eftir að sakna mest er það að hafa ekki lengur bandamann í rökræðum við aðra fjölskyldumeðlimi. En þar komstu alltaf sterk inn. Ég veit svo sem ekki hvort það var til að koma mér til bjargar eða hvort við vorum svona furðulega lík að því leytinu til að við segjum Þórey Jónsdóttir ✝ Þórey Jóns-dóttir fæddist á Þorvaldsstöðum í Breiðdal hinn 5. maí 1936. Hún lést á Sjúkrahúsi Akra- ness hinn 10. sept- ember síðastliðinn. Útför Þóreyjar var gerð frá Akra- neskirkju 16. sept- ember 2011. Hún var jarðsett á Þor- valdsstöðum í Breiðdal mánu- daginn 19. september. kannski hluti sem aðrir myndu ekki segja eða þora ekki að segja. Ég held hins vegar að við höfum bæði verið svolitlir prakkarar og veit að við sögð- um oft hluti meira til að sjá viðbrögð fólks heldur en að meina allt sem við sögðum. Mér finnst ég allavega mjög heppinn að hafa fengið að kynnast þér svona vel. Ég fékk líka að búa hjá þér um tíma og mér fannst það af- skaplega gott, þú studdir mig vel á tíma sem ég þurfti virkilega á stuðningi að halda. Ég man líka að á þeim tíma átti ég að mæta í vinnu á miðnætti og þá mætti ég þér stundum í dyrunum á leið- inni út þar sem þú varst að koma skælbrosandi heim úr myndlista- klúbbnum og ég sagði góðan daginn og þú sagðir góða nótt. Stundum lenti ég í því að vinir mínir spurðu mig að því hvaða kona þetta hefði verið sem ég var að tala við og þegar ég sagði þeim að þetta væri amma mín þá trúðu þeir mér ekki allir, því þú varst svo ungleg. Ég minnist þín alltaf sem afskaplega myndar- legrar konu sem bar af sínum jafnöldrum og mér fannst þú vera mikil gella þó þú værir amma mín. Ég veit að þú áttir erfitt um tíma í þínu lífi og ég man að ég hafði miklar áhyggjur af þér, en ég var því miður of ungur þá til að geta eitthvað lagt til málanna. En þá kom styrkur þinn og fjöl- skyldu okkar berlega í ljós og þú náðir að yfirstíga þær hindranir. Ég hafði reyndar tröllatrú á því að þú myndir líka sigrast á þess- um hræðilega sjúkdómi sem lagði þig í lokin en kannski var það bara af því að þú hefur alltaf verið svo ung og hress að ég taldi að það þyrfti mun meira til að leggja þig. Kannski var það líka bara barnsleg trú mín að þinn tími væri ekki kominn. En eins og ég á eftir að sakna þess að fá hjá þér fótanudd og spjall þá samgleðst ég þér yfir að erfið- leikarnir eru á enda og ég veit að það eru örugglega góðar mót- tökur sem þú færð hjá þínu fólki þarna hinum megin. Ég þakka þér fyrir öll ljóðin, listaverkin, skoðanirnar, jólarjúpuna, kjöt- súpuna, hlátrasköllin og fallegar minningar um þig. Ég þakka þér fyrir hvað þú varst góð við hann Bjart Óla son minn og hvað þú varst honum mikill félagi og þú varst líka í miklu uppáhaldi hjá henni Rúnu konu minni. Ég er stoltur af því að fá að bera nafnið þitt og afa. Ástarkveðja. Þitt ömmubarn, Eyþór Ólafur Frímannsson og fjölskylda. Miðvikudaginn 21. septem- ber síðastliðinn var hún Sigríð- ur J. Guðmundsdóttir amma okkar borin til grafar. Við kveðjum yndislega ömmu hinstu kveðju. Amma Sigga eins og við köll- uðum hana alltaf var okkur mjög kær og góð. Það verður erfitt að hugsa sér að hún sé farin og komi ekki aftur. Hún var alltaf til staðar þegar við sem litlir strákar komum heim úr skóla. Hún bjó í íbúð sem var í húsinu okkar og gátum við alltaf reitt okkur á að hún biði eftir að við kæmum heim. Einnig var hún alltaf reiðubúin að fara með bænirnar okkar á kvöldin og varð faðirvorið alltaf fyrir valinu. Þegar við vorum Sigríður J. Guðmundsdóttir ✝ Sigríður J.Guðmunds- dóttir fæddist í Reykjavík 24. des- ember 1932. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 10. sept- ember 2011. Útför Sigríðar J. fór fram frá Bú- staðakirkju 21. september 2011. búin að fara með það klóraði hún okkur á bakinu þangað til við sofn- uðum. Hún var alltaf svo róleg og yfirveguð og sagði aldrei nei ef við báðum hana um að klóra okkur eftir að við höfðum far- ið með bænirnar. Einnig er okkur mjög minnisstætt að hún kvartaði aldrei svo að við heyrðum, hvort sem hún var slöpp eða þreytt. Oftar en ekki var hún með mjólk og kex þeg- ar komið var heim úr skólanum og skipti ekki máli þó að teknir væru vinir með úr skólanum. Allir voru velkomnir til hennar. Einnig man ég, Oliver Snær, eftir að hún geymdi nammið sitt uppi á skáp við sjónvarpið og var sá skápur mun hærri en ég, það stoppaði mig þó ekki að klifra upp á skápinn og reyna að ná í nammið. Það fór nú ekki betur en svo að einn dag- inn valt skápurinn og ég datt í gólfið, hurðirnar oppnuðust og allt leirtauið hennar kom yfir mig, hurðirnar á skápnum björguðu mér þar sem þær opnuðust og stóðu fastar í parketinu. Allir nema amma urðu reiðir, hún var mest sátt að ég slasaðist ekki þó að nokkrir bollar, diskar, skálar og annað glerdót sem hún átti hefði allt brotnað. Hún sagði seinna við mig og Nökkva Snæ bróður minn að hann mætti eiga allt glerdót sem ekki brotnaði en hún vildi að ég fengi það sem brotnaði í poka eftir sinn dag. Eftir að hún flutti í Ljós- heimana hittumst við ekki eins oft, en þegar við hittumst fannst henni gaman að fara með okkur á McDonalds og kaupa handa okkur barnabox þar. Minning um góða konu og yndislega ömmu lifir og mun lifa. Konu sem aldrei kvartaði yfir neinu. Var alltaf til staðar, horfði með okkur á Konung ljónanna, Toy Story og Litlu hafmeyjuna eins oft og við vild- um þó að það væri í hundr- aðasta skipti. Alltaf gaf hún okkur ráð við öllu sem við spurðum hana um og reyndust þau ráð okkur alltaf vel. Nú höldum við áfram út í lífið með góðu ráðin í farteskinu og munu þau alltaf vera okkur minnisstæð. Við þökkum þér allar samverustundirnar okkar og þú munt fylgja okkur alla tíð. Elsku amma Sigga, hvíldu í friði. Oliver Snær Jónsson og Nökkvi Snær Jónsson. ✝ Sigfús KristinnSvavarsson fæddist í Reykjavík 23. mars 1944. Hann lést á krabba- meinsdeild Land- spítalans 20. sept- ember 2011. Foreldrar hans voru hjónin Svavar Sigurðsson, varð- stjóri í slökkviliði Reykjavíkur, f. í Reykjavík 10. maí 1912, d. 25. júlí 1976 og Ingibjörg Ágústa Kolbeinsdóttir, f. í Reykjavík, 26. ágúst 1915, d. 15. júní 1998. Systur Sigfúsar eru: Aðalheiður Svavarsdóttir, f. 1. febrúar 1937, Jóhanna Svavarsdóttir, f. Sigmar, f. 29. janúar 1985, Sæv- ar, f. 6. apríl 1989 og Sæunn Björg, f. 16. júlí 1998. 2. Stein- unn Björk, f. 12. desember 1963. Fyrrverandi maki hennar er Viggó Valdimarsson, f. 19. mars 1959. Dætur þeirra eru: Anna Emilía, f. 6. júlí 1986 og Sólborg Eva, f. 19. desember 1993. 3. Bjarki, f. 3. mars 1971. Maki hans er Marta Kristín Hreið- arsdóttir, f. 10. maí 1971. Dætur þeirra eru: Karitas, f. 17. júní 2000 og Dóra, f. 30. júní 2005. Sigfús fæddist í Reykjavík og ólst upp á Hverfisgötu 53. Sig- fús var 18 ára þegar hann gift- ist Sólborgu, eftirlifandi eig- inkonu sinni, og bjuggu þau lengst af í Árbæ og Kópavogi. Sigfús starfaði í slökkviliði Reykjavíkur alla sína starfsævi eða til ársins 2003 er hann lét af störfum. Útför Sigfúsar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 27. sept- ember 2011, kl. 11. 21. júní 1940 og Kristín Svav- arsdóttir, f. 30. ágúst 1947. Sigfús giftist 10. maí 1962 Sólborgu Sæunni Sigurð- ardóttur, f. 7. mars 1944, dóttur hjónanna Sigurðar Hallgrímssonar, f. 31. október 1921 og Steinunnar Þórð- ardóttur, f. 1. nóvember 1912, d. 20. september 1984. Börn Sigfúsar og Sólborgar eru: 1. Ágústa Kolbrún, f. 17. febrúar 1962. Maki hennar er Þröstur Valdimarsson, f. 4. des- ember 1960. Börn þeirra eru: Betri vinnufélagar en Sigfús Svavarsson eru vandfundnir. Það er gott að umgangast menn sem búa yfir hjálpsemi og hlýju og hafa góð áhrif á umhverfi sitt með glaðværð og smitandi hlátri. Fæli maður Sigfúsi verk- efni var ástæðulaust að hafa frekari áhyggjur af því. Sigfús fetaði í fótspor föður síns þegar hann gekk til liðs við Slökkvilið Reykjavíkur. Svavar faðir hans átti langan og farsæl- an feril í slökkviliðinu og það átti einnig fyrir Sigfúsi að liggja. Hann byrjaði sem afleysinga- maður 1965 en fékk ráðningu sem brunavörður tveimur árum síðar. Hann var síðan eldvarna- eftirlitsmaður um árabil áður en hann var gerður að birgða- og innkaupastjóra 1992. Þeirri stöðu gegndi hann með sóma uns hann neyddist til að láta af störfum vegna heilsubrests 2004. Sigfús hafði til að bera þá kosti sem gera menn að góðum lagerstjóra. Hann var einkar nákvæmur og skipulagður í vinnubrögðum, reglusamur og samviskusamur og vænti hins sama af öðrum. Hann var ljúf- lingur en lét menn þó ekkert eiga inni hjá sér ef honum þótti að sér vegið. Sigfús var snyrtimenni svo af bar. Það kom ekki aðeins fram í störfum hans á lagernum í Skógarhlíðinni því heima fyrir var allt með sama brag. Röð og regla á öllu og bíllinn ævinlega stífbónaður, ekki bara boddíið heldur kramið sömuleiðis. Geri aðrir betur. Síðustu æviárin og til hinsta dags starfaði Sigfús hjá okkur við að safna saman úr blöðum allri umfjöllun um slökkvilið og sjúkraflutninga í landinu. Hann gætti þess vel að láta ekkert fram hjá sér fara. Og það brást ekki að á fyrsta virka degi hvers árs lagði hann á borð slökkvi- liðsstjóra möppu með umfjöllun nýliðins árs. Í þessu verkefni nutum við samviskusemi og ná- kvæmni Sigfúsar. Hann var safnari og áhugamaður um slökkviliðið og störf þess. Hon- um féll sjaldan verk úr hendi og síðustu árin smíðaði hann úr tré og beini af ótrúlegri nákvæmni. Lífsgildi Sigfúsar voru skýr. Hann hafði trúmennsku og um- hyggju að leiðarljósi, bæði í störfum og einkalífi. Aðdáunar- vert var að heyra hve fallega hann talaði um Sólborgu konu sína og ljóst að honum var mikið í mun að annast hana vel. Í slökkviliði þurfa menn að ávinna sér virðingu félaga sinna. Það gerði Sigfús svo sannarlega. Við minnumst hans einmitt þannig, af verðskuld- aðri virðingu og þökk fyrir sam- fylgdina. Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri. Sigfús Kristinn Svavarsson Þegar við systkinin Gunnar Valur, Marín Björk og Jónas Hrafn horfum til baka sjáum við að það er af mörgu að taka og margs að minnast þegar við Guðmunda Erlendsdóttir ✝ Guðmunda Er-lendsdóttir fæddist í Reykjavík 26. febrúar 1920. Hún lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 11. september 2011. Útför Guðmundu fór fram frá Ás- kirkju 21. sept- ember 2011. hugsum um ömmu Dídí. Það sem stendur upp úr er einstök amma sem var alltaf til staðar og virtist alltaf hafa nægan tíma til að hlusta og veita okk- ur þá athygli sem við þurftum. Hún var ung í anda, klár, vissi margt, kunni margt og gat svo margt að okkar mati að það var okkur eðlilegasti hlutur í heimi að blanda henni inn í flest okkar mál. Höfðu ýmsir vinir okkar á orði hvað við ættum unga ömmu og kom mörgum þeirra á óvart að heyra um öll þau umræðuefni sem voru gjald- geng í hennar eyru. Enda var auðvelt að tala við hana um nán- ast alla hluti, bera upp við hana vangaveltur og vandamál og hlusta heilshugar á það sem hún hafði til málanna að leggja. Hún var iðulega uppspretta góðra hugmynda og snilldarráða þegar við átti, og virtist alltaf vita hvenær við þurftum ráð og hvenær við þurftum eingöngu að láta hlusta á okkur. Ef okkur var heitt í hamsi lægði hún öld- urnar af sinni alkunnu snilld án þess að við áttuðum okkur á því. Amma Dídí fylgdist vel með því sem var í gangi, hún var allt- af „móðins“ eins og sagt er og fylgdist vel með straumum og stefnum. Hún var glæsileg kona í alla staði og bar sig fallega og því var auðvelt að vera stoltur af því að eiga svona flotta ömmu. Amma, systur hennar og mágkonur voru þekktar sem „slæðugengið“ í stórfjölskyld- unni og voru iðulega hrókur alls fagnaðar þegar fjölskyldan kom saman enda voru fliss og hlátra- sköll ávallt allsráðandi við þeirra borð og við krakkarnir sóttum í að vera nálægt og fá að fylgjast með umræðunum. Nú er orðið öllu tómlegra og rólegra hjá okkur því amma er sú næstsíð- asta sem kveður af slæðugeng- inu. En það er auðvelt að ímynda sér stemninguna sem er í gangi þar sem þær eru sam- ankomnar núna. Þegar við horfum til baka og hugsum um ömmu Dídí og þá fyrirmynd sem hún var okkur vaknar löngun til að leggja sig fram um að feta í hennar fót- spor. Marín Björk Jónasdóttir. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, ÞÓRA NÍELSÍNA HELGA HÁKONARDÓTTIR, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík mánudaginn 19. september, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, Suður- hlíð, Reykjavík, miðvikudaginn 28. september kl. 11.00 Helga Dagmar Jónsdóttir, Snjólaug Petrína Sveinsdóttir, Jónas Þór Jakobsson, Guðrún Margrét Sveinsdóttir, Auður Sveinsdóttir, Jóhann Valgeir Jónsson, Kristín Sveinsdóttir, Guðmundur Unnarsson, Áslaug Sveinsdóttir, Björn Grétar Þorsteinsson, Hákon Sveinsson, Haraldur Hákonarson, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur. ✝ Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og dóttir okkar, MARGRÉT ÁRNADÓTTIR, andaðist á krabbameinsdeild Landspítalans að kvöldi sunnudagsins 25. september. Útför hennar mun fara fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 4. október kl. 13.00. Gísli Örvar Ólafsson, Steinar Freyr Gíslason, Kristín Guðrún Jónsdóttir, Rúnar Bogi Gíslason, Kristín Ýr Gísladóttir, Árni V. Gíslason, Guðrún Steingrímsdóttir. ✝ ÞÓRUNN ÁRNADÓTTIR ljósmóðir, Strandvegi 3, Garðabæ, verður jarðsungin frá Vídalínskirkju í Garðabæ fimmtudaginn 29. september og hefst athöfnin kl. 15.00. Tómas Agnar Tómasson, Ingibjörg Erna Sveinsson, Helgi Ólafur Ólafsson, Agnes Vala Tómasdóttir Bryndal, Árni Haukur Tómasson, Marion Tómasson, Helga Brynja Tómasdóttir, Vilhjálmur Karl Gissurarson, Herdís Rún Tómasdóttir, Ingólfur Freyr Elmers, Óskar Bergmann Tómasson, Tómas Heimir Tómasson, Helena Tómasson, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.