Morgunblaðið - 27.09.2011, Page 28

Morgunblaðið - 27.09.2011, Page 28
28 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 2011 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÞETTA ER MÍN EIGIN UPPFINNING OG ER HIÐ MESTA ÞARFAÞING HVAÐ SAGÐIRÐU?! KALLI BJARNA GETUR EKKI SPILAÐ MEÐ OKKUR Í DAG VEGNA ÞESS AÐ HANN ÞARF AÐ PASSA LITLU SYSTUR SÍNA ER ÞETTA SATT?! ÞETTA ER MÉR AÐ KENNA ÉG ÞARF AÐ HITTA LÆKNINN ÞÚ ERT EKKI EINN UM ÞAÐ FÁÐU ÞÉR BARA SÆTI. ÉG SKAL SVO LÁTA ÞIG VITA EF HANN MÆTIR MIG DREYMDI AFTUR FLUGDRAUM ÉG VEIT EKKI HVORT ÞAÐ ER SNIÐUGT AÐ LEYFA KRÖKKUNUM AÐ VERA Í ÞESSUM ÞÆTTI AF HVERJU EKKI? ÞETTA ER SPENNANDI OG SKAÐLAUST ÉG HEF BARA ÁHYGGJUR AF ÞVÍ AÐ ÞAU HAFI EKKI GOTT AF ÞESSU PABBI ÞINN PASSAR UPP Á ÞAU. ÞAÐ ER EKKI EINS OG ÞAÐ EIGI AÐ SKILJA ÞAU EIN EFTIR Í EINHVERJUM DRAUGABÆ ÉG MEINA ÞAÐ ER HÆTT AÐ SÝNA ÞANN ÞÁTT *ANDVARP* ÞAÐ ER RÉTT HJÁ ÞÉR... VILTU KOMA ÚT AÐ GANGA Í GÓÐA VEÐRINU? ENDI- LEGA! ÆTLARÐU AÐ FARA Í BÚNINGINN UNDIR FÖTIN? NEI, ÉG ÆTLA AÐ SKILJA KÓNGULÓAR- MANNINN EFTIR HEIMA EN ÉG ÆTLA AÐ TAKA MYNDAVÉLINA! Hvernig var- ast má illsku Maðurinn þroskast með því að verða sér meðvitaður um hvað það er, sem leiðir til farsældar, þannig að hann verður sér með- vitaður um ósjálfráð viðbrögð, og þegar hann gerir sér ljóst að ósjálfráðu viðbrögðin geta leitt til slæmrar niðurstöðu þá lætur hann ekki stjórnast af þeim. Það er hálfgerð þversögn í því að hug- myndir um rangt og rétt geta leitt til ills hugar í garð þeirra, sem maður telur hafa gert rangt, en illur hugur leiðir til ófarn- aðar. Menn verða að vera ábyrgir gagnvart lögum, en forðast ber að bera haturshug til fólks. Borgari. Hálsmen tapaðist Hálsmen, kross með hvítri perlu, tapaðist á leiðinni frá Gullsmiðju Óla á Ingólfstorgi að Vitastíg. Finnandi hringi í síma 695-1069. Kraftur í skáklífi eldri borgara Það er mikill kraftur í skáklífi eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu. Í Reykjavík eru það Æsir sem tefla alla þriðjudaga í Stang- arhyl 4 Reykjavík, frá septemberbyrjun til maíloka, kl. 13-16.30. Í Hafnarfjarðarkirkju tefla Riddararnir alla miðvikudaga allt árið. Það er löngu sannað að hverskonar heila- leikfimi seinkar heila- hrörnun og skákiðkun er ágæt aðferð til þess. Svo er það auðvitað hin besta skemmtun að tefla við góða vini og félaga. Ég vil hvetja alla skákáhugamenn sem orðnir eru sextugir að líta inn hjá þessum klúbbum ef þeir eiga lausa daga, það er vel tekið á móti öllum og menn þurfa ekki að vera ein- hverjir ofurmeistarar til þess að vera gjaldgengir. Finnur Kr. Finnsson. Ást er… … að halda honum félagsskap í hjólatúrnum. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnust. kl. 9, ganga kl. 10.30, postulín kl. 13, leshópur kl. 13.30, jóga kl. 18. Leikfimi hefst 3. okt. Skrán. lýkur 29. sept. Árskógar 4 | Smíði/útskurður kl. 9, botsía kl. 9.30, handavinna kl. 13. Boðinn | Handav. m/leiðb. kl. 9. Vatns- leikfimi kl. 9.15 (lok. hóp.), ganga kl. 11. Bólstaðarhlíð 43 | Myndvefn., línudans kl. 13.30, handav. Haustfagnaður 14. okt., uppl. í s. 535-2760. Dalbraut 18-20 | Handav. kl. 9, félagsvist kl. 14. Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11. Helgistund, gestur sr. Gísli H. Kolbeins. Kaffi. Fella- og Hólakirkja | Dagskrá hefst kl. 13. Spil/spjall. Kaffi kl. 15, framhaldssaga. Helgistund að lokum. Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák kl. 13. Félagsvist kl. 20. Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.15, handav., gler og postulín kl. 9.30, jóga kl. 10.50, tréskurður kl. 13, alkort kl. 13.30, línudans kl. 18, samkvdans kl. 19. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefnaður, jóga/myndlist kl. 9.30, ganga kl. 10. Málm/silfursm/kanasta kl. 13, jóga kl. 18. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Qi gong kl. 8.10, trésmíði/trésk. kl. 9 og 13, fullbókað, vatnsleikf. kl. 12, op. hús í kirkju, bútas/karlaleikf. kl. 13, botsía kl. 14, Bón- susrúta kl. 14.45. Línudans kl. 15 og 16. Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarnarnesi | Vatnsleikfimi kl. 7.15. Gler í Mýrarhúsa- skóla kl. 9. Kaffispjall í krók kl. 10.30. Jóga kl. 11. Karlakaffi kl. 14. Skapandi skrif kl. 14.30. Opinn salur, frístund kl. 14. Málun/ teiknun í Valhúsaskóla kl. 17. Félagsstarf Gerðubergi | Perlusaumur og postulín kl. 9. Stafganga kl. 10.30 um Elliðaárdal. Þri. 4. okt. hefst glerskurður. Fös. 7. okt. hefst bókband. Grensáskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9, botsía kl. 10.30, Bónusbíll kemur kl. 12.15, gler kl. 13. Tímap. hjá Helgu fótafr. í s. 6984938, tímap. á hárgrst. í s. 8946856. Haustlitaferð 28. okt. Farið kl. 12.30. Ekið um Nesjav.leið, Þingvelli og Lyngdalsheiði. Kaffiv. í Þrastalundi. Skrán. á skrifstofu. Hraunsel | Qi gong/myndmennt kl. 10, leikfimi kl. 11.30 í Bjarkarhúsi, bolta- leikfimi kl. 12 í Haukahúsi, brids kl. 13, vatnsleikfimi kl. 14.40. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 9/10. Búta- saum. kl. 9. Helgistund kl. 14, sr. Ólafur Jóhanns. Stólaleikfimi kl. 15. Hæðargarður 31 | Hringborðið kl. 8.50. Glersk. og thaichi kl. 9. Leikfimi kl. 10. Hláturjóga kl. 13.30. Tölvukennsla kl. 13.15. Bónus 12.40. Bókabíll 14.15. Gáfu- mannakaffi kl. 15. Perlufestin kl. 16. Bókmhóp. kl. 20. Íþróttafélagið Glóð | Línudans hóp. I kl. 14.40, hóp. II kl. 16.10, zumba kl. 17.30 í Kópavogsskóla. Korpúlfar Grafarvogi | Bingó á morgun kl. 13.30. Safnaðarheimilið Kirkjuhvoll, Garða- bæ | Bíó í opna húsinu, kyrrðarst. og súpa í hád. Seljakirkja | Menningarvaka í kvöld kl. 18. Ragnar Gunnarsson segir frá kristniboði í Afríku og Rósalind Gísladóttir syngur. Mat- ur á eftir. Þátttökutilk. í s. 567-0110. Vesturgata 7 | Handav. kl. 9.15, leshópur kl. 13, kaffiv. kl. 14.30. Vitatorg, félagsmiðstöð | Bútasaumur og glerbr. kl. 9, morgunstund kl. 9.30, framhsaga kl. 12.30, handavinnust. kl. 13, félagsvist kl. 14. Jón Gissurarson sendi Krist-björgu F. Steingrímsdóttur hamingjuóskir með áttræðis- afmælið, sem sagt var frá í Vísna- horni í gær: Ýlugráa ellin móð á þér lítt nær taki. Áttatíu árin góð eru nú að baki. Bjarni Stefán Konráðsson orti eitt sinn um vin sinn áttræðan: Áttatíu árin þín eru full af striti, og þú gerðir elskan mín aldrei neitt af viti. Það var haustlegt um að litast hjá Hólmfríði Bjartmarsdóttur, Fíu á Sandi, morgun í Aðaldal. Er hún leit í spegilinn datt henni í hug: Á mér sé ég engan kost ekkert finnst mér gaman. Ég minni helst á merarost mjólkurhvít í framan. Og þegar hún leit út um gluggann og sá einn grannann hlaupa hjá varð henni að orði: Á honum hárin illa tolla aðeins skeggið fölt og grátt. Eins og blásin biðukolla bogin undan norðanátt. Kerlingin á Skólavörðuholti var í banastuði þegar hún orti fyrir helgi: Víst er hún nú af mér lokkandi lyktin og laðar að vonbiðlafjöld, ég óska þess bara að bévítans gigtin böggi mig ekki í kvöld. Ekki hefur henni gengið að ósk- um, því eftir helgina bætti hún við: Svöng og pirruð orðin er, edrú, blönk og vot, það krefst þess að ég komi mér upp karli eins og skot. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af merarosti og hausti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.