Morgunblaðið - 27.09.2011, Side 36
ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 270. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Danskur handboltamaður lést
2. Snortin og þakklát
3. Madonna huggar stelpuna sína
4. Þolir ekki ágang aðdáendanna
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Næsta plata Bjarkar kemur út 10.
október. Útgáfudeginum var hnikað
til, m.a. vegna þróunar nokkurra
„appa“ og einnig ákvað Björk að nýta
sér tónleikaupptöku af einu laginu
frá Manchester.
Biophilia kemur út
10. október
Þrjár af fram-
bærilegustu
þungarokks-
sveitum landsins
hita upp fyrir tón-
leikaferðalag um
Frakkland á
Gauknum 1. októ-
ber næstkomandi.
Angist, Moment-
um og Moldun hefur verið boðið í
tónleikaferðalag til Frakklands í októ-
ber og munu þær spila þar á fimm
tónleikum í fimm borgum á jafn-
mörgum dögum.
Tónleikatvenna á
Gauknum 1. október
Hinir árlegu stórtónleikar Jólagest-
ir Björgvins verða að venju haldnir
fyrstu helgina í desember, nánar til-
tekið laugardaginn 3.
desember. Söngvara-
úrvalið hefur aldrei
verið glæsilegra en
sérstakir gestir
verða Robin
Gibb úr
Bee Gees
og Paul
Potts.
Risatónleikar í Höll-
inni 3. desember
Á miðvikudag Austlæg átt 8-15 m/s, hvassast við suðaustur-
ströndina. Rigning, fyrst sunnanlands. Hiti 8 til 14 stig.
Á fimmtudag Sunnan og suðaustan 5-10 m/s og dálítil rigning.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í suðaustan 8-15 með rigningu fyrst
allra syðst, en lengst af hægari og þurrt á norðanverðu landinu.
Lægir sunnantil annað kvöld og dregur úr úrkomu. Hiti 7 til 14 stig.
VEÐUR
Framarar hófu keppnis-
tímabilið í handboltanum
eins og best varð á kosið og
unnu mjög öruggan sigur á
Íslandsmeisturum FH í Kapla-
krika, 28:23. Bæði lið koma
mikið breytt til leiks frá því í
fyrra en Ingimundur Ingi-
mundarson, Sigurður Egg-
ertsson og Sebastian Alex-
andersson komu sterkir til
leiks með Frömurum sem
léku hrikalegan varnar-
leik. »2-3
Framarar mæta
sterkir til leiks
Baldur Sigurðsson frá Reykjahlíð í
Mývatnssveit er uppalinn í ung-
mennafélaginu Eilífi en er nú orðinn
Íslandsmeistari með KR.
Baldur skoraði mikil-
væg mörk fyrir KR-
inga á lokaspretti Ís-
landsmótsins og segir
að mörkin virðist
koma í gusum hjá
sér. »4
Mývetningurinn í meist-
araliðinu skorar í gusum
Akureyringar voru ekki í vandræðum
með Aftureldingu í fyrstu umferð Ís-
landsmótsins í handbolta og unnu
ellefu marka sigur í Mosfellsbæ. Ný-
liðar Gróttu komu hins vegar á óvart
og tóku stig af Val með góðum enda-
spretti. Haukar komu til leiks með
öfluga skyttu frá Svartfjallalandi,
sem skoraði 12 mörk í sigurleik gegn
HK í Digranesi. »2-3
Svartfellska skyttan
skaut HK í kaf
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þessi blanda virðist virka vel á menn, skepnur og
plöntur. Upptaka efnanna virðist auðveld,“ segir
Jörundur Garðarsson, framkvæmdastjóri og eig-
andi Hafkalks ehf. á Bíldudal, sem selur kalkþör-
unga sem skepnufóður og áburð og pakkar og sel-
ur fæðubótarefnið HAFKALK.
Jörundur er gæðastjóri hjá Íslenska kalkþör-
ungafélaginu en rekur verksmiðjuna á Bíldudal.
Hann er nú í 70% starfi. Sala á fæðubótarefnum
úr kalkþörungum hefur vaxið svo mikið að hann
hefur nú keypt nýtt hús fyrir framleiðsluna og er
með tvo starfsmenn í vinnu og reiknar með að
hætta í verksmiðjunni og snúa sér alfarið að
rekstri Hafkalks.
Meginhluti framleiðslu kalkþörungaverksmiðj-
unnar er fluttur á erlenda markaði. Jörundur hóf
eigin starfsemi með því að taka að sér að selja
steinefnafóður og áburð fyrir verksmiðjuna á inn-
lendum markaði en síðar bættist við pökkun og
sala fæðubótarefnis til apóteka og verslana.
Meginhluti kalkþörunganna sem dælt er af
botni Arnarfjarðar er þurrkaður í verksmiðjunni
á Bíldudal en valið hráefni er flokkað frá og þveg-
ið og sent út til Englands til verkunar fyrir mann-
eldisvinnslu. Jörundur flytur inn aftur hluta þess,
setur í hylki, pakkar og dreifir hér á landi.
Virðist hafa góð áhrif á fólk
Jörundur gerði samning við Icepharma um sölu
og dreifingu HAFKALKS fyrir tveimur árum og
hefur eftir starfsmönnum þar að kalkþörungarnir
hafi slegið í gegn á markaðnum. Hann fer varlega
í fullyrðingar um áhrif efnisins, vantar rannsóknir
til að vitna í. Hann segir þó að sumir kaupendur
séu að bæta sér upp kalkskort í fæði, til dæmis
til að fyrirbyggja beinþynningu. Þá segir
hann að þessi blanda virðist draga úr
verkjum vegna slitgigtar og kaupendur
hafi sagt sér að hún dragi úr fótaóeirð og
sinadrætti.
Jörundur hefur lengi haft áhuga á að
nýta þara og þang sem mikið er til af við
Ísland til matvælaframleiðslu. Hann telur
mikil tækifæri felast í framleiðslu á
kryddi og fæðubótarefnum.
Grunnurinn sé að rækta þara
og vinnur hann að því.
Virkar á menn og skepnur
Þörungar úr Arnarfirði
hafa slegið í gegn á mark-
aði fyrir fæðubótarefni
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Tækifærin liggja í sjónum Jörundur Garðarsson framleiðir fæðubótarefni úr kalkþörungum af botni
Arnarfjarðar og hefur áhuga á að framleiða krydd og fleiri vörur úr þara.
Vel hefur gengið að selja afurðir sem fram-
leiddar eru í kalkþörungaverksmiðjunni á
Bíldudal. Kalkþörungarnir fara um allan heim,
ekki síst í fóður fyrir mjólkurkýr og önnur
húsdýr, og sífellt bætast við nýir kaupendur,
að sögn Guðmundar Valgeirs Magnússonar
framkvæmdastjóra.
Jafnframt hefur írska fyrirtækið sem á Ís-
lenska kalkþörungafélagið dregið úr
framleiðslu í verksmiðju sinni á Ír-
landi og lagt meiri áherslu á Bíldu-
dal.
Aukin sala hefur leitt til þess að verksmiðjan
er nú fullnýtt. Unnið er á vöktum allan sólar-
hringinn og hefst ekki undan.
Fyrirtækið hefur fest kaup á öðrum þurrkara
og byrjað er á byggingu húss yfir hann. Reiknað
er með að framleidd verði 35 til 40 þúsund tonn
í ár og unnt verður að tvöfalda framleiðsluna á
næsta ári, eftir að nýi þurrkarinn verður tekinn í
notkun.
Guðmundur segir stefnt að því að nýta starfs-
leyfi verksmiðjunnar til fulls, en það leyfir 60
þúsund tonna framleiðslu á ári.
Sífellt bætast við nýir kaupendur
AFKASTAGETA KALKÞÖRUNGAVERKSMIÐJUNNAR Á BÍLDUDAL TVÖFÖLDUÐ
Guðmundur Valgeir
Magnússon