Morgunblaðið - 04.10.2011, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 04.10.2011, Blaðsíða 35
MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2011 Árið 2010 námu tekjur af útflutningi áls 225 milljörðum króna. Þetta svarar til um það bil 25% af útflutningstekjum þjóðarinnar. Drjúgum hluta þeirra var varið í kaup á innlendum aðföngum en innlend útgjöld íslensks áliðnaðar námu um 80 milljörðum króna á árinu. Það eru yfir 200 milljónir á degi hverjum. Það munar um minna. Samál • Sími: 571 5300 • Fax: 571 5301 • www.samal.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 1 -1 7 0 7 milljarðar Útflutningstekjur af áli 225 Dóttir heimilisgyðjunnar Mörthu Stewart, Alexis, hef- ur ýmislegt út á móður sína að setja en hún gaf nýverið út bókina Whateverland: Learn- ing to Live Here, þar sem hún uppljóstrar ýmsu vandræða- legu um elsku mömmu. „Martha gerir allt betur, þú getur ekki unnið,“ segir Alex- is meðal annars í bókinni. „Ef ég gerði eitthvað og það var ekki fullkomið, þá þurfti ég að gera það aftur. Ég ólst upp við það að límbyssu var miðað að höfðinu á mér.“ Hrekkjavaka og jólin voru ekki í hávegum höfð á heimili Stewart-fjölskyldunnar, þó að bækur og sjónvarpsþættir fjölskyldumóðurinnar gefi annað til kynna. „Martha hafði ekki áhuga á því að vera barnvæn. Hún lét mig sjálfa pakka inn jólagjöf- unum til mín. Hún afhenti mér hluti rétt fyrir jól og sagði: „Pakkaðu þessu inn, en ekki kíkja.““ Á hrekkjavöku fékk Alexis engan búning heldur voru öll ljós í húsinu slökkt til þess að fólk héldi að enginn væri heima. Alexis segir einnig frá því í bókinni að móðir hennar hafi vanið sig á að pissa með sal- ernisdyrnar opnar og að það hafi aldrei verið til neinn tilbúinn matur á heimilinu þegar hún var yngri. Þrátt fyrir að eiga ýmislegt óuppgert við móður sína til- einkar Alexis henni bókina og Martha á sjálf texta um dótt- ur sína í bókinni. Það mætti því ætla að þessi drottning heim- ilishaldsins vissi upp á sig skömmina. Martha Stewart ekki besta móðirin Reuters Leikarinn gamansami Seth Rogen gekk um helgina að eiga unnustu sína, Lauren Miller, í Sonoma í Kali- forníu. Athöfnin fór fram að hætti gyðinga og sá rabbíni um að gefa parið saman. Fjöldi þekktra leikara var meðal gesta, t.a.m. Paul Rudd, Jonah Hill og leikstjórinn Judd Apa- tow ásamt eiginkonu sinni Leslie Mann. Að sögn heimildarmanns var mikið hlegið í brúðkaupinu. „Önnur hver setning var brandari og gest- irnir gátu ekki stillt sig um að skelli- hlæja. Þetta var mikil skemmtun frá upphafi til enda.“ Reuters Hjón Seth Rogen og Lauren Miller. Seth Rogen kvæntur Reg Traviss, sem var kærasti Amy Winehouse heitinnar, hefur sagt frá því að þau skötuhjúin hafi rætt um að gifta sig áður en hún lést og talað saman um hvernig brúðkaupið yrði. „Við höfðum talað um að gifta okkur. Það var ekki búið að ákveða neinar dagsetningar en það var umræðu- efni og hafði verið í nokkurn tíma. Það mætti segja að við höfum verið komin langt með að ræða líf okkar saman þegar, allt í einu, hún hvarf.“ Reuters Winehouse Lést í sumar. Höfðu rætt hjónaband Cameron Diaz virðist vera að hlúa að brotnu hjarta þessa dagana eftir sambandsslit við hafnaboltaspilarann Alex Rodriguez. Parið hætti saman fyrir tveim vikum eftir tveggja ára samband. Hún gerði sér ferð á snyrtistofu í West Vil- lage New York en svo virtist sem dekrið hafi ekki náð að gleðja leikkonuna. Rodriguez er um þessar mundir að flytja frá New York til Miami Beach þar sem hann fjárfesti í 18.000 fermetra húsi eftir sambandsslitin við Diaz. Cameron Diaz miður sín eftir sambandsslitin Cameron Diaz

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.