Morgunblaðið - 04.10.2011, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2011
Listaverkið mun upphaf-lega hafa verið sýnt íParís árið 1994 og öðlað-ist samstundis miklar
vinsældir og hóf sigurgöngu um
heiminn. Það var fært upp í Þjóð-
leikhúsinu 1997 við miklar vinsæld-
ir og er nú sýnt aftur 14 árum síð-
ar. Leikarar eru þeir sömu og
síðast en nú eru þeir komnir á
miðjan aldur og þurfa engan stuðn-
ing af hárkollum og bumbum.
Leikstjórn og leikmynd eru einnig
í höndum þeirra sömu og áður.
Persónur verksins eru þrjár, húð-
sjúkdómalæknirinn Serge, verk-
fræðingurinn Mark og Ivan sem er
nýlega búinn að skipta yfir í rit-
fangabransann. Átök verksins
kvikna af því að Serge hefur keypt
málverk eftir viðurkenndan málara,
frá góðu tímabili á ferli hans, fyrir
háa upphæð en málverkið er hvítur
flötur og ekkert annað. Verkfræð-
ingnum Mark finnst þetta forkast-
anlegt og Ivan, þriðji vinurinn,
sveiflast milli þessara félaga sinna
sem hann vill hvorugan styggja.
Mér fannst það örlítil vonbrigði
að setjast í aðalsal Þjóðleikhússins
og sjá það sem að mínu mati var
sláandi ljót leikmynd, hlaði af köss-
um úr brúnum bylgjupappa með
daufum merkingum sem sögðu til
um innihaldið. Mynd í leikskrá rifj-
aði það upp fyrir mér að þegar
verkið var sett upp á Litla sviði
Þjóðleikhússins var líka notaður
kassahlaði án þess að mér þætti
neitt athugavert við það. Kannski
er ástæðan mismunandi stærð sal-
anna. Maður gerir einhvern veginn
ráð fyrir að það sé eitthvað til-
komumikið, áhugavert eða snjallt
við leikmynd á stóra sviði Þjóð-
leikhússins. Á hitt er þó að benda
að þessi leikmynd nýtist með hug-
vitssamlegum hætti í sýningunni.
Þá verður hún heldur ekki gagn-
rýnd fyrir að taka mikið frá lista-
verkinu sjálfu þegar það er til sýn-
is!
Listaverkið er um 100 mínútur
að lengd og flutt án hlés. Það er
vel skrifað og hver persóna um sig
fær að skína í samleik og einræð-
um. Sagt hefur verið um verkið að
með því að velja rétt í hlutverkin
sé maður kominn langleiðina með
að setja upp vel heppnaða sýningu.
Það er óhætt að fullyrða að hér er
valinn maður í hverju rúmi. Leik-
ararnir segja í viðtali í leikskrá að
þeir fari nær sjálfum sér við per-
sónusköpunina í þessari uppfærslu
og nú sé minna offors, gríninu sé
leyft að koma bara út úr verkinu.
Þetta finnst mér ganga eftir. Í
mörgum tilvikum liggur galdurinn í
því hvernig einni setningu eða jafn-
vel einu orði er skilað með tíma-
setningu og raddblæ og hér stein-
liggur allt.
Búningar, greiðsla, hár og skegg
skila vel þeim mun sem er á per-
sónunum. Mark Baltasars er í
þykkum vönduðum jakkafötum
með feitt hárið vandlega greitt og
karlalegt skegg í kringum munninn
en Serge Ingvars, sem hefur farið í
andlega umpottun og er með af-
byggingu og nútímalist á hrað-
bergi, var meira yfir í gelið og all-
ur tálgaðri, tísku- og listalegri
enda á lausu og daðrandi við lista-
heiminn. Ivan, persóna Hilmis
Snæs, var svo aðallega í því að
reyna að hemja fötin á réttum
stað.
Sérstaklega var gaman að sjá
hvernig Baltasar gat notað þau ár
sem hann hefur bætt við sig síðan
síðast, gert sig aðeins lotinn, nýtt
örfá aukakíló til að láta skyrtuna
dragast upp úr buxunum og svo
var einkar laglegt þegar hann ein-
staka sinnum pírði augun út í loftið
og gretti sig – sem segja má að sé
einkennisvipur hins miðaldra
manns.
Hlutverk Hilmis Snæs sem ving-
ullinn Ivan sem er að vinna í rit-
föngum og er að fara að gifta sig
er hvað fyndni varðar sennilega
þakklátast. Hann er að nokkru
leyti trúðurinn í vinagenginu og ein
innkoma hans er svo skemmtileg
að sýningin stoppaði á meðan
klappað var sérstaklega. Ef ég
man rétt brilleraði hann einnig al-
gerlega í þessari sömu einræðu
fyrir 14 árum enda er þarna á
ferðinni toppefni fyrir rétta mann-
inn.
En hvað gerir Listaverkið svona
vinsælt? Greinir það vináttu með
svo eftirminnilegum hætti? Vekur
það mann til umhugsunar um eðli
listarinnar? Er það bara einfald-
lega fyndið? Skoðanirnar eru
margvíslegar. Einhverjir hafa sagt
að Listaverkið ýti undir fordóma
gegn nútímalistum, aðrir hafa sagt
að það risti ekki sérlega djúpt. Eitt
er þó að minnsta kosti víst og það
er að verkið hefur einhverja al-
menna skírskotun sem nægir til að
hrífa fólk um allan heim. Það er
einnig nógu gott til að lifa áfram
þó að því muni kannski ekki hlotn-
ast sess meðal meistaraverka í
leikbókmenntum heimsins.
Listaverkið er tilbrigði við nýju
fötin keisarans sem á við um öll
svið mannlegs lífs, ekki bara list-
irnar. Kjarninn í verkinu er um-
fjöllun um vináttuna, þróun hennar
og þolraunir. Þörf vina fyrir að
stjórna hver öðrum, hin hljóða
krafa um að vinurinn haldi áfram í
því hlutverki sem honum var út-
hlutað í huganum. Það má jafnvel
ganga lengra og segja að karakter-
arnir í verkinu sýni hver um sig
þætti sem búa í öllum mönnum,
bara í misjöfnum hlutföllum. Snobb
eða þörfina fyrir aðdáun, áráttuna
til að sigla gegn straumnum og svo
það að nenna ekki að gera ágrein-
ing út af hlutum sem manni er
slétt sama um.
Eitt atriði fór aðeins í taugarnar
á mér í þessari uppfærslu og það
er þegar þeir félagar taka allir
dansspor í frakka á einum stað í
sýningunni. Ekki það að þeir geri
þetta ekki óaðfinnanlega eins og
annað sem þeir taka sér fyrir
hendur. Ég átti bara erfitt með að
sjá hvað þetta atriði átti að segja
manni og hvernig það tengdist sýn-
ingunni fyrir utan það að vera artí
– svona næstum því eins og risa-
stórt hvítt málverk.
Vináttan, þróun og þolraunir
Þjóðleikhúsið
Listaverkið bbbbn
Eftir Yasminu Reza. Leikarar: Baltasar
Kormákur, Hilmir Snær Guðnason og
Ingvar E. Sigurðsson. Leikmynd: Guðjón
Ketilsson. Búningar: Guðjón Ketilsson
og Berglind Einarsdóttir. Lýsing: Lárus
Björnsson. Þýðing: Pétur Gunnarsson.
Hljóðmynd: Sigurvald Ívar Helgason.
Leikstjórn: Guðjón Pedersen. Stóra
sviðið í Þjóðleikhúsinu 29. september.
SIGURÐUR G.
VALGEIRSSON
LEIKLIST
Listaverkið Tilbrigði við nýju fötin keisarans sem á við um öll svið mann-
legs lífs, ekki bara listirnar.
Fólkið i Kjallaranum – síðustu sýningar!
Miðasala sími: 571 5900
L AU 01 /10
L AU 08/10
FÖS 14/ 10
L AU 1 5/ 10
LAU 22/10
L AU 29/10
FÖS 04/11
L AU 05/11
L AU 18/11
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
-Elísabet Brekkan, Fréttablaðið.
Ö
Ö
Ö
U
Ö
U
Ö
Ö
Ö
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is