Morgunblaðið - 04.10.2011, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 04.10.2011, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2011 Listaverkið mun upphaf-lega hafa verið sýnt íParís árið 1994 og öðlað-ist samstundis miklar vinsældir og hóf sigurgöngu um heiminn. Það var fært upp í Þjóð- leikhúsinu 1997 við miklar vinsæld- ir og er nú sýnt aftur 14 árum síð- ar. Leikarar eru þeir sömu og síðast en nú eru þeir komnir á miðjan aldur og þurfa engan stuðn- ing af hárkollum og bumbum. Leikstjórn og leikmynd eru einnig í höndum þeirra sömu og áður. Persónur verksins eru þrjár, húð- sjúkdómalæknirinn Serge, verk- fræðingurinn Mark og Ivan sem er nýlega búinn að skipta yfir í rit- fangabransann. Átök verksins kvikna af því að Serge hefur keypt málverk eftir viðurkenndan málara, frá góðu tímabili á ferli hans, fyrir háa upphæð en málverkið er hvítur flötur og ekkert annað. Verkfræð- ingnum Mark finnst þetta forkast- anlegt og Ivan, þriðji vinurinn, sveiflast milli þessara félaga sinna sem hann vill hvorugan styggja. Mér fannst það örlítil vonbrigði að setjast í aðalsal Þjóðleikhússins og sjá það sem að mínu mati var sláandi ljót leikmynd, hlaði af köss- um úr brúnum bylgjupappa með daufum merkingum sem sögðu til um innihaldið. Mynd í leikskrá rifj- aði það upp fyrir mér að þegar verkið var sett upp á Litla sviði Þjóðleikhússins var líka notaður kassahlaði án þess að mér þætti neitt athugavert við það. Kannski er ástæðan mismunandi stærð sal- anna. Maður gerir einhvern veginn ráð fyrir að það sé eitthvað til- komumikið, áhugavert eða snjallt við leikmynd á stóra sviði Þjóð- leikhússins. Á hitt er þó að benda að þessi leikmynd nýtist með hug- vitssamlegum hætti í sýningunni. Þá verður hún heldur ekki gagn- rýnd fyrir að taka mikið frá lista- verkinu sjálfu þegar það er til sýn- is! Listaverkið er um 100 mínútur að lengd og flutt án hlés. Það er vel skrifað og hver persóna um sig fær að skína í samleik og einræð- um. Sagt hefur verið um verkið að með því að velja rétt í hlutverkin sé maður kominn langleiðina með að setja upp vel heppnaða sýningu. Það er óhætt að fullyrða að hér er valinn maður í hverju rúmi. Leik- ararnir segja í viðtali í leikskrá að þeir fari nær sjálfum sér við per- sónusköpunina í þessari uppfærslu og nú sé minna offors, gríninu sé leyft að koma bara út úr verkinu. Þetta finnst mér ganga eftir. Í mörgum tilvikum liggur galdurinn í því hvernig einni setningu eða jafn- vel einu orði er skilað með tíma- setningu og raddblæ og hér stein- liggur allt. Búningar, greiðsla, hár og skegg skila vel þeim mun sem er á per- sónunum. Mark Baltasars er í þykkum vönduðum jakkafötum með feitt hárið vandlega greitt og karlalegt skegg í kringum munninn en Serge Ingvars, sem hefur farið í andlega umpottun og er með af- byggingu og nútímalist á hrað- bergi, var meira yfir í gelið og all- ur tálgaðri, tísku- og listalegri enda á lausu og daðrandi við lista- heiminn. Ivan, persóna Hilmis Snæs, var svo aðallega í því að reyna að hemja fötin á réttum stað. Sérstaklega var gaman að sjá hvernig Baltasar gat notað þau ár sem hann hefur bætt við sig síðan síðast, gert sig aðeins lotinn, nýtt örfá aukakíló til að láta skyrtuna dragast upp úr buxunum og svo var einkar laglegt þegar hann ein- staka sinnum pírði augun út í loftið og gretti sig – sem segja má að sé einkennisvipur hins miðaldra manns. Hlutverk Hilmis Snæs sem ving- ullinn Ivan sem er að vinna í rit- föngum og er að fara að gifta sig er hvað fyndni varðar sennilega þakklátast. Hann er að nokkru leyti trúðurinn í vinagenginu og ein innkoma hans er svo skemmtileg að sýningin stoppaði á meðan klappað var sérstaklega. Ef ég man rétt brilleraði hann einnig al- gerlega í þessari sömu einræðu fyrir 14 árum enda er þarna á ferðinni toppefni fyrir rétta mann- inn. En hvað gerir Listaverkið svona vinsælt? Greinir það vináttu með svo eftirminnilegum hætti? Vekur það mann til umhugsunar um eðli listarinnar? Er það bara einfald- lega fyndið? Skoðanirnar eru margvíslegar. Einhverjir hafa sagt að Listaverkið ýti undir fordóma gegn nútímalistum, aðrir hafa sagt að það risti ekki sérlega djúpt. Eitt er þó að minnsta kosti víst og það er að verkið hefur einhverja al- menna skírskotun sem nægir til að hrífa fólk um allan heim. Það er einnig nógu gott til að lifa áfram þó að því muni kannski ekki hlotn- ast sess meðal meistaraverka í leikbókmenntum heimsins. Listaverkið er tilbrigði við nýju fötin keisarans sem á við um öll svið mannlegs lífs, ekki bara list- irnar. Kjarninn í verkinu er um- fjöllun um vináttuna, þróun hennar og þolraunir. Þörf vina fyrir að stjórna hver öðrum, hin hljóða krafa um að vinurinn haldi áfram í því hlutverki sem honum var út- hlutað í huganum. Það má jafnvel ganga lengra og segja að karakter- arnir í verkinu sýni hver um sig þætti sem búa í öllum mönnum, bara í misjöfnum hlutföllum. Snobb eða þörfina fyrir aðdáun, áráttuna til að sigla gegn straumnum og svo það að nenna ekki að gera ágrein- ing út af hlutum sem manni er slétt sama um. Eitt atriði fór aðeins í taugarnar á mér í þessari uppfærslu og það er þegar þeir félagar taka allir dansspor í frakka á einum stað í sýningunni. Ekki það að þeir geri þetta ekki óaðfinnanlega eins og annað sem þeir taka sér fyrir hendur. Ég átti bara erfitt með að sjá hvað þetta atriði átti að segja manni og hvernig það tengdist sýn- ingunni fyrir utan það að vera artí – svona næstum því eins og risa- stórt hvítt málverk. Vináttan, þróun og þolraunir Þjóðleikhúsið Listaverkið bbbbn Eftir Yasminu Reza. Leikarar: Baltasar Kormákur, Hilmir Snær Guðnason og Ingvar E. Sigurðsson. Leikmynd: Guðjón Ketilsson. Búningar: Guðjón Ketilsson og Berglind Einarsdóttir. Lýsing: Lárus Björnsson. Þýðing: Pétur Gunnarsson. Hljóðmynd: Sigurvald Ívar Helgason. Leikstjórn: Guðjón Pedersen. Stóra sviðið í Þjóðleikhúsinu 29. september. SIGURÐUR G. VALGEIRSSON LEIKLIST Listaverkið Tilbrigði við nýju fötin keisarans sem á við um öll svið mann- legs lífs, ekki bara listirnar. Fólkið i Kjallaranum – síðustu sýningar! Miðasala sími: 571 5900 L AU 01 /10 L AU 08/10 FÖS 14/ 10 L AU 1 5/ 10 LAU 22/10 L AU 29/10 FÖS 04/11 L AU 05/11 L AU 18/11 KL . 20:00 KL . 20:00 KL . 20:00 KL . 20:00 KL . 20:00 KL . 20:00 KL . 20:00 KL . 20:00 KL . 20:00                     -Elísabet Brekkan, Fréttablaðið. Ö Ö Ö U Ö U Ö Ö Ö - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.