Morgunblaðið - 04.10.2011, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2011
FRÉTTASKÝRING
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Óhætt er að segja að sprenging sé
framundan í útgáfu hljóðbóka á ís-
lensku. Þannig er útlit fyrir að hátt
í fimmtíu nýjar hljóðbækur verði
gefnar út á geisladiskum eða gerð-
ar aðgengilegar sem niðurhal á
vefnum á næstu vikum og mán-
uðum fram að jólum. Nýverið bár-
ust fréttir af því að Skynjun ehf.
ætli sér stóra hluti á íslenska hljóð-
bókamarkaðnum, en fyrir á þeim
markaði eru m.a. Hljóðbók.is,
Dimma.is, hljóðbókasíðan Hlusta.is
og Sögustund.is með bækur fyrir
börn.
„Við ætlum að hasla okkur völl á
rafbókamarkaðnum almennt, en
ákváðum að byrja á hljóðbókunum
af því þar eru réttindamálin aug-
ljósari,“ segir Stefán Hjörleifsson,
framkvæmdastjóri Skynjunar ehf.
Segir hann ráðgert að gefa út fyrir
jólin 20 nýjar hljóðbækur sem að-
gengilegar verða á sérstökum bóka-
heimi Tónlist.is sem niðurhal auk
þess sem valdir titlar koma út á
geisladiskum. „Í framhaldinu ger-
um við ráð fyrir að gefa út 25-40
nýjar hljóðbækur á ári.“
Að sögn Stefáns felst helsta nýj-
ungin í því að hljóðbækur vinsælla
höfunda munu koma út samhliða
innbundnum bókum. „Þetta hefur
ekki verið reynt áður, en er lyk-
ilatriði því þannig verður hljóðbókin
alvöru valkostur við prentuðu bók-
ina,“ segir Stefán. Dæmi um nýjar
bækur sem hægt verður að hala
niður eru Hjarta mannsins eftir
Jón Kalman Stefánsson, Jójó eftir
Steinunni Sigurðardóttur, Skuggi
meistarans eftir Ólaf Jóhann Ólafs-
son, Trúir þú á töfra eftir Vigdísi
Grímsdóttur, Lýtalaus eftir Tobbu
Marinós, Frönsk svíta eftir Iréne
Némirovsky og Lygarinn eftir Ótt-
ar M. Norðfjörð, auk nýjustu bókar
Yrsu Sigurðardóttur. Fyrstu bæk-
urnar munu rata inn á bókaheiminn
á Tónlist.is í október en vefurinn
verður formlega opnaður 1. nóv-
ember nk.
„Við höfum trú á því að það sé
loksins kominn markaður fyrir
hljóðbækur,“ segir Stefán og við-
urkennir að það geti verið dýrt að
gefa út hljóðbækur fyrir jafnlítinn
markað og Ísland er þar sem mál-
svæðið sé lítið. „Það sem hefur
breyst er að tæknin er orðin ein-
faldari og dreifileiðum hefur fjölg-
að, auk þess sem flestallir hafa nú-
orðið aðgang að græjum til þess að
hlusta,“ segir Stefán.
Bækur fyrir upptekna þjóð
„Það sem hefur skort hingað til
er vilji útgefenda til að gefa út
hljóðbækur samtímis prentuðum
bókum,“ segir Gísli Helgason, ann-
ar tveggja eigenda Hljóðbók.is.
Gísli er mikill reynslubolti þegar
kemur að hljóðbókum því hann hef-
ur unnið að útgáfu hljóðbóka á al-
mennum markaði síðustu þrjá ára-
tugi. „Við höfum lagt áherslu á að
gefa út nýjar bækur um leið og þær
koma út og það virðist loks vera að
takast í ár. Ég held að útgefendur
séu farnir að átta sig á því að hljóð-
bókin steli ekki frá prentuðu bók-
inni heldur er hrein viðbót,“ segir
Gísli og bendir á að rannsóknir
gerðar í Þýskalandi, á hinum Norð-
urlöndunum í Bretlandi og Banda-
ríkjunum staðfesti að lestur hafi
aukist þegar hljóðbækur komu á
markað. Að sögn Gísla má yfirleitt
reikna með að 10-12% af upplagi
prentaðra bóka seljist í hljóðbóka-
formi.
Á Hljóðbók.is má nú þegar finna
um 90 titla úr ólíkum bókflokkum.
„Við höfum síðustu misseri unnið
að því að undirbúa vefinn okkar
þannig að hægt sé að nálgast hljóð-
bækur okkar sem niðurhal og verð-
ur það hægt frá og með október-
mánuði.“ Að sögn Gísla mun
Hljóðbók.is gefa út 15-20 nýjar
hljóðbækur fyrir komandi jól og
verður þar aðallega um að ræða ís-
lenskar og þýddar skáldsögur, ný-
útkomnar bækur í bland við gaml-
ar. Meðal væntanlegra bóka eru
Aðgát skal höfð í nærveru sálar eft-
ir Solveigu Láru Guðmundsdóttur
prest, Hausaveiðararnir og Frels-
arinn eftir Jo Nesbø.
Að mati beggja viðmælenda má
skýra auknar vinsældir hljóðbóka
með annríki nútímalífs. Þannig sé
talsverður fjöldi fólks sem ekki gefi
sér tíma til að lesa bækur en finni
tíma til að hlusta. Aðrir hafi ekki
eirð í sér til að lesa eða vilja geta
nýtt tímann til annars á meðan þeir
hlusta, t.d. að keyra á milli staða,
fara í göngutúr, vera í ræktinni eða
sinna heimilisstörfum. Enn aðrir
eru svo einfaldlega of þreyttir til að
lesa sjálfir og finnst gott að láta
lesa fyrir sig.
Sprenging í útgáfu hljóðbóka
Fleiri titlar koma nú samtímis út á prenti og hljóði Von er á a.m.k. hátt á
fimmta tug hljóðbóka fyrir jólin Hljóðbækur auka lestur prentaðra bóka
Tilþrif Jóhannes Haukur Jóhannesson leikari er meðal þeirra sem nú vinna hörðum höndum að því að lesa inn nýjar
bækur sem innan skamms verða settar inn á vefinn til niðurhals og koma út á geisladiskum.
Fjallað er lofsamlega um Al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðina í
Reykjavík, RIFF, í grein í New
York Times sem birt var 30. sept-
ember sl. Segir þar m.a. að aðdáun-
arvert sé hversu umfangsmikil há-
tíðin sé og fjölþjóðleg, ekki aðeins í
ljósi þess hversu lítil íslenska þjóðin
sé heldur einnig að hún hafi gengið
í gegnum mikið efnahagshrun. Í
greininni er m.a. vitnað í þau orð
uppistandarans Ara Eldjárns að ís-
lenski kvikmyndageirinn sé stærst-
ur í heimi ef miðað sé við höfðatölu.
RIFF hlýtur lof í
New York Times
RIFF Hrönn Marínósdóttir, stjórnandi
hátíðarinnar, á blaðamannafundi.
Michael heitinn Jackson mun hafa
óttast mjög að honum yrði sýnt
banatilræði þegar hann væri á tón-
leikum og mun hann hafa íhugað að
klæðast skotheldu vesti. Þessu hef-
ur fyrrverandi lífvörður hans
greint frá, Matt Fiddes, en hann
gæti öryggis Jacksons árið 2009,
árið sem Jackson lést. Fiddes segir
Jackson hafa klæðst skotheldu vesti
í réttarsal árið 2005 þegar hann
varðist ásökunum um kynferð-
islega misnotkun á börnum.
Þegar Jackson lést var hann að
undirbúa mikla tónleikaröð í O2-
höllinni í Lundúnum og mun hann
hafa óttast mjög um líf sitt og ætlað
að klæðast skotheldu vesti á þeim
tónleikum.
Hélt að hann yrði
drepinn á sviði
Ótti Jackson óttaðist um líf sitt.
MIÐASALA Á WWW.SAMBIO.IS
-ENTERTAINMENT
WEEKLY
HHHHH
HHHH
- A.E.T MORGUNBLAÐIÐ
ÓGNVEKJANDI
SPENNUÞRILLER
UPPLIFÐU
MARTRÖÐINA
Í MAGNAÐRI
ÞRÍVÍDD
HHHHH
-FRÉTTATÍMINN, Þ.Þ.
Þegar önnur vopn
brugðust beittu
þau töfrum leikhússins
HRAFNAR,
SÓLEYJAR
MYRRA&
CONTAGON kl. 5:50 - 8 - 10:20 2D 12
CONTAGON kl. 8 - 10:20 2D VIP
HRAFNAR,SÓLEYJAR &MYRRA kl. 5:50 - 8 2D 16
JOHNNY ENGLISH REBORN kl. 5:50 - 8 - 10:10 2D 7
SHARK NIGHT kl. 10:10 3D 16
KONUNGUR LJÓNANNA Ísl. tal kl. 6 3D L
DRIVE kl. 5:50 VIP - 8 - 10:20 2D 16
ALGJÖR SVEPPI kl. 6 2D L
CRAZY, STUPID, LOVE kl. 8 2D 7
HORRIBLE BOSSES kl. 10:20 2D 12
/ ÁLFABAKKA
CONTAGON kl. 5:30 - 8 - 10:30 2D 12
HRAFNAR,SÓLEYJAR &MYRRA kl. 5:30 2D L
KONUNGUR LJÓNANNA Ísl. tal kl. 5:30 3D L
DRIVE kl. 8 - 10:20 2D 16
ALGJÖR SVEPPI kl. 5:30 2D L
SHARK NIGHT kl. 8 - 10:40 3D 16
CRAZY, STUPID, LOVE kl. 8 - 10:10 2D 7
CONTAGON kl. 10:10 2D 12
HRAFNAR,SÓLEYJAR &MYRRA kl. 8 2D L
JOHNNY ENGLISH REBORN kl. 8 2D 7
LION KING Enskt tal kl. 6 3D L
ALGJÖR SVEPPI kl. 6 2D L
30 MINUTES OR LESS kl. 10:10 2D 14
/ EGILSHÖLL
/ KRINGLUNNI
/ KEFLAVÍK
/ AKUREYRI
/ SELFOSSI
CONTAGON kl. 6 - 8 - 10:20 2D 12
HRAFNAR,SÓLEYJAR &MYRRA kl. 5:50 2D L
SHARK NIGHT kl. 10 3D 16
KONUNGUR LJÓNANNA Ísl. tal kl. 6 3D L
LION KING Enskt tal - Ótextuð kl. 8 3D L
DRIVE kl. 8:10 - 10:20 2D 16
CONTAGON kl. 8 2D 12
HRAFNAR,SÓLEYJAR &MYRRA kl. 8 2D L
DRIVE kl. 10:10 2D 16
SHARK NIGHT kl. 10:10 3D 16
KONUNGUR LJÓNANNA Ísl. tal kl. 6 3D L
ALGJÖR SVEPPI kl. 6 2D L
SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA.
EGILSHÖLL OG AKUREYRI
ROWAN ATKINSON
ÍSLENSK
TAL
SÝND Í
SÝND Í ÁLFABAKKA,
EGILSHÖLL, KRINGLUNNI
OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG
EGILSHÖLL
SÝND Í ÁLFABAKKA,
EGILSHÖLL, KRINGLUNNI
OG AKUREYRI
- ENTERTAINMENT WEEKLY
HHHH
- CHICAGO READER
HHHH
- NEW YORK TIMES
HHHH
BYGGÐ Á SAMNEFNDRI SKÁLDSÖGU
FRÁ ÓSKARSVERÐLAUNA-
LEIKSTJÓRANUM S. SODERBERGH
KEMUR MAGNAÐUR ÞRILLER
LADDI
EDDA BJÖRGVINSDÓTTIR
VICTORIA BJÖRK FERRELL
HANNES ÓLI ÁGÚSTSSON
ÍSAK HINRIKSSON
SIGRÍÐUR BJÖRK
BALDURSDÓTTIR
PÉTUR EINARSSON
NÝ ÍSLENSK ÆVINTÝRA-
MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
6. okt í beinni útsendingu
www.sambio.is
Kitchen
The
ABDUCTION kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D 12
ALGJÖR SVEPPI kl. 6 2D L
HRAFNAR,SÓLEYJAR &MYRRA kl. 8 2D L
FRIGHT NIGHT kl. 10:20 2D 16
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL,
KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI,
AKUREYRI OG KEFLAVÍK
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI,
AKUREYRI OG KEFLAVÍK
GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR OG VIP MYNDIRÞRIÐJUDAGSBÍÓ Í DAG - 2D 750kr. - 3D 1.000kr.
á 3D sýning
ar1000
kr.
á 3D sýning
ar1000
kr.
Tilboð
750 kr.
Tilboð
750 kr.
Tilboð
750 kr.
Tilboð
750 kr.
Tilboð
750 kr.
Tilboð
750 kr.