Morgunblaðið - 04.10.2011, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 04.10.2011, Blaðsíða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2011 Lára er 13 ára stelpa semhefur nýlega lent í því aðmissa bæði föður sinn ogbróður í bílslysi. Hún leit- ar huggunar í leikfélaginu sem faðir hennar hafði verið virkur þátttak- andi í áratug fyrir slysið. Illmennin, forseti bæjarstjórnar og yfirlækn- irinn á Vífilsstaðaspítala hafa í hyggju að losa sig við starfsemi leik- félagsins og um leið húsnæðið vegna eigin hagsmuna. Upphefst þá at- burðarás sem felur í sér að áhuga- leikararnir reyna af miklum móð að takast á við illmennin til að bjarga leikhúsinu og starfsemi þess. Hand- ritið að myndinni Hrafnar, sóleyjar og myrra var skrifað samhliða sam- nefndri bók. Bókin og myndin eru fyrsti hluti þríleiks en fyrirhugað er að næsta bók verði gefin út nú í vet- ur. Höfundarnir, þau Eyrún Ósk Jónsdóttir og Helgi Sverrisson eru einnig leikstjórar kvikmyndarinnar. Þetta er fyrsta kvikmyndin sem Ey- rún Ósk leikstýrir en Helgi leik- stýrði kvikmyndinni Didda og dauði kötturinn árið 2003. Það verður því miður að viðurkennast að yfir mynd- inni hvílir aðeins of mikill amatör- bragur og það eitt að áhugamaður taki eftir því að hljóð og mynd eru ekki í sinki er frekar fráhrindandi. Við erum einstaklega rík af hæfi- leikaríku tónlistarfólki og þegar ver- ið er að gera kvikmynd sem er ætlað að höfða til barna og unglinga væri ekki úr vegi að gera íslenskri tónlist og um leið íslenskri tungu hærra undir höfði. Það var falleg senan þar sem mæðgurnar huguðu að leiði feðganna og það styrkti hana að hafa söng Ragnheiðar Gröndal undir. Það vantar töluvert upp á að þessi tragi- kómíska fjölskyldumynd nái flugi. Það er einfaldlega eitthvað ankanna- legt við það að í upphafi myndar er kossaflens í líkhúsi. Eflaust á það að undirstrika kulda illmennanna en að hefja fjölskyldumynd á slíkri senu lætur áhorfandann hafa varann á sér. Það er líka spurning hvort leik- stjórar hafi meðvitað ætlað að venja börn og unglinga við kulda, slor og ofleik til þess að þau kynnu að meta eldri íslenskar kvikmyndir. Þegar Lára hittir Steinunni í leikfélaginu, leikna af Eddu Björgvinsdóttur, er fyrst hægt að segja að myndin byrji af einhverri alvöru og er þá hægt að anda léttar þegar reynsluboltarnir taka að birtast hver á fætur öðrum. Reynsla leikaranna sem skipa hlut- verk áhugaleikaranna er vel þegin eftir tilgerðarlegan leik Sigríðar Bjarkar Baldursdóttur og Bjart- mars Þórðarsonar. Samband Láru og Steinunnar er eiginlega eina sam- bandið í myndinni sem gengur upp og er sannfærandi. Victoria Ferrel, í hlutverki Láru, skilar því alveg hreint ágætlega. Það hefði eflaust mátt gera meira úr handbendum ill- mennanna þar sem Hannes Óli Ágústsson og Sigurður Hjaltason fara vel með hlutverk þeirra. Átta ára áhorfandi sagði þá vera þá einu í myndinni sem voru skemmtilegir og þótti þessum tiltekna áhorfanda myndin líka vera það skrítin að það var ekki efst á óskalistanum að sjá hana aftur. Sagan sjálf er fín og hefði verið vandað betur til verka hefði áhorfandinn eflaust getað orðið þátttakandi í spennandi ævintýra- heimi. En betur má ef duga skal og vonandi gengur betur næst. Hrafnar ná ekki flugi Sambíóin Hrafnar, sóleyjar og myrra bbnnn Leikstjórn: Eyrún Ósk Jónsdóttir og Helgi Sverrisson. Aðalhlutverk: Victoria Ferrell, Laddi, Edda Björgvinsdóttir. Ísland 2011. 90 mínútur. SIGNÝ GUNNARSDÓTTIR KVIKMYNDIR Prýði Victoria Ferrel stendur sig með prýði en það verður að segjast að til- raun leikstjóra að gæða annars ágæta sögu ævintýraljóma mistekst. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þessi diskur eru búinn að vera fimm ár í smíðum, en þá byrjuðum við að taka upp. Lögin spanna hins vegar miklu lengra tímabil, því nýj- asta lagið var samið fyrir um sex ár- um og það elsta fyrir rúmum þrátíu árum,“ segir Einar Oddsson þegar blaðamaður slær á þráðinn til hans í tilefni nýútkom- innar geislaplötu hans sem nefnist Grúsk. Um er að ræða fyrstu geislaplötu sam- nefndrar hljóm- sveitar með ellefu lögum eftir Einar samin við texta eftir hann, Magn- ús Þór Sigmunds- son, Þórarin Eldjárn og Davíð Stef- ánsson. Aðspurður hvort hann eigi enn mikið óútgefið efni í fórum sínum svarar Einar því játandi og tekur fram að hann eigi nóg efni. „Raunar tókum við fyrir þennan disk upp alls tæplega tuttugu lög bæði á íslensku og ensku, en ákváðum síðar að að- eins íslensku lögin skyldu rata á þessa fyrstu plötu,“ segir Einar og tekur fram að gaman gæti verið að fylgja nýja disknum eftir fljótlega með ensku lögunum. „Það verður hins vegar að koma í ljós hvort út- gáfunni verður fylgt eftir að ári eða bara síðar.“ Spurður um nafngiftina á diskum og hópnum segir Einar alltaf erfitt að finna gott nafn á hlutina. „Ég hripaði niður nokkur nöfn sem komu til greina og bar undir fólk sem fannst þetta besta nafnið. Það rímar vel við þetta tónlistarlega grúsk sem liggur að baki disknum þar sem maður er að sækja melódíur aftur í fortíðina sem maður samdi þá.“ Samkvæmt upplýsingum frá Ein- ari stendur nokkuð stór hópur að baki Grúski á disknum eða ellefu hljóðfæraleikarar og tíu söngvarar, en í þeirra hópi eru Pétur Hjaltested á hljómborð, bassa og trommur en hann annaðist einnig upptökustjórn og var hægri hönd Einars við vinnslu disksins, Vignir Snær Vig- fússon og Birkir Rafn Gíslason gít- arleikarar, Róbert Þórhallsson og Haraldur Þorsteinsson bassaleik- arar og Ásgeir Óskarsson trommu- leikari, en sjálfur spilar Einar á hljómborð. Í hópi söngvara eru Heiða Ólafsdóttir og Bergsveinn Arilíusson. Útgáfutónleikar verða í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði fimmtudaginn 20. október kl. 20.30. Þar verður bandið skipað sex hljóð- færaleikrunum, tveimur bakradda- söngvunum og sjö söngvurum. Grúskað í lagasafninu  Útgáfutónleikar fyrir Grúsk í Gaflaraleikhúsinu 20. október Einar Oddsson Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Hljómsveitin Ourlives gaf út plötuna We Lost The Race í hitteðfyrra og spratt svo gott sem fullbúin úr höfði Seifs. „Fyrsta platan var engu að síður hálfgerð safnplata,“ segir Jón Björn Árnason, bassaleikari sveitarinnar. „Hún geymir uppsafnað efni og við sáum að ef við ætluðum að gera eitthvað af viti í þessum bransa yrð- um við að semja og semja til að bæta okkur. Við sömdum 32 lög og 10 þeirra eru á nýju plötunni. Við lögð- um okkur 100% í þetta og ég er virkilega ánægður með hópinn.“ Jón segir að þetta hafi verið „sturluð“ vinna í eitt ár en þeir fé- lagar eru allir vinnandi menn auk þess að vera í hljómsveitinni. Jón segir að lögin sem hafi orðið útundan komi út jafnt og þétt í gegn- um tonlist.is, þeir ætli að byggja upp „góða“ b- hliðarplötu eins og hann orðar það „Það er kannski asna- legt að segja það en við ætluðum að byrja á því að semja lög sem gætu orðið smáskífur en það gekk ekkert. Þau lög komust ekki inn á plötuna en þar fór ákveð- inn heildarsvipur að ráða því hvað færi inn og hvað ekki.“ Það var mikið tosað í Ourlives frá öðrum löndum í blábyrjun ferilsins og Jón segir að það hafi verið full- mikið af því góða. „Við bökkuðum úr því og höfum vaxið saman sem band ef svo má segja síðasta árið. Þegar maður er að byrja í svona harki vill maður hlaupa um torg og segja öllum frá því hvað þetta sé stórkostlegt en við erum búnir að læra að það er ekki endilega málið. Það er ekki sniðugt að byrja á öfugum enda. Aðalmálið er að vaxa og þroskast sem tónlist- armaður og hitt – ef það svo gerist – er bara bónus ofan á það. Fókusinn hjá okkur er góður núna.“ Þétt „Við lögðum okkur 100% í þetta og ég er virkilega ánægður með hópinn,“ segir Jón Björn, bassaleikari hljómsveitarinnar Ourlives. „Sturluð“ vinna í eitt ár  Ourlives gefur út sína aðra plötu, Den of Lions  Sveitin samdi 32 lög Barði Jóhannsson, stundum kenndur við Bang Gang, er mik- ill velgjörðarmaður Ourlives en hann og Þorkell Máni Pétursson stýra útgáfunni Kölska sem er í eigu Senu. Plötur með Diktu, Ourlives, Pétri Ben og Eberg, Ólafi Arnalds, Cliff Clavin og Lady & Bird hafa komið út á vegum Kölska. Kölski sjálfur! ÚTGEFANDI OURLIVES  Í gær, mánudag, hófst vetrartörn Blúsfélags Reykjavíkur á Rúbín. Var minning Robert Johnson þá heiðruð með bravúr. Félagið verð- ur á Rúbín fyrsta mánudag í mán- uði til árámóta a.m.k. og að vanda munu helstu blúsarar landsins troða þar upp. Blúsfélag Reykjavíkur komið í vetrargírinn Fólk  Íslenskar þungarokkssveitin Sól- stafir mun gefa út nýja plötu, Svartir sandar, undir merkjum Sea- son of mist um miðjan þennan mán- uð. Talsverð spenna er farin að byggjast upp í alþjóðlegum heimi bárujárnsins og sveitin prýðir for- síður nokkurra fagtímarita þar. M.a. eru þeir aðalumfjöllunarefnið í Sübterranea, sérriti sem fjallar um öfgarokk og er undir Metal Ham- mer í Bretlandi, sem er eitt virtasta blað sinnar tegundar í geiranum. Fleiri þungarokksbiblíur ku ætla að stökkva á strákana og þeir sem heyrt hafa verkið mega vart mæla af hrifningu. Spennandi. Vegur Sólstafa vex og vex og …

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.