Morgunblaðið - 04.10.2011, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 04.10.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2011 Athygli vakti þegar SteingrímurJ. Sigfússon fjármálaráð- herra sat fyrir svörum í Rík- isútvarpinu í gærmorgun hve mjög hann lagði sig fram um að svara því ekki hvað ríkisstjórnin ætlaði að gera í málum at- vinnulífsins.    Jóhanna Sigurð-ardóttir for- sætisráðherra hef- ur raunar svarað þessu þannig að þetta komi rík- isstjórninni ekki við. Það sé at- vinnulífsins að bjarga sér og engu skipti þó að ríkisstjórnin leggi steina í götu þess.    Steingrímur fór aðeins aðra leiðað þessu og vék sér mjög und- an, en eftir að hafa verið þráspurð- ur má segja að hann hafi nefnt tvennt. Annars vegar að bankarnir yrðu að vinna hraðar og hins veg- ar að „lítil og meðalstór“ verkefni á orkusviðinu mundu hjálpa til.    Steingrímur hefur sjálfur lagt áráðin um það hvernig bank- arnir leysi úr skuldavanda heimila og fyrirtækja, þ.a. í því sambandi mundi hann líta í eigin barm væri hann reiðubúinn að taka ábyrgð á einhverju því sem gerst hefur – eða hefur ekki gerst.    Svo er umhugsunarvert að hannskuli nefna „lítil og meðalstór“ verkefni á orkusviðinu eftir að hafa unnið að því á bak við tjöldin að stöðva þar öll verkefni, sér- staklega þau stærri.    Ekki er nema von að menn þrá-spyrji hvar hann sjái atvinnu- uppbygginguna fyrir sér.    Og það er í samræmi við annaðað hann kjósi að svara ekki spurningunni. Steingrímur J. Sigfússon Lítið um svör STAKSTEINAR Veður víða um heim 3.10., kl. 18.00 Reykjavík 9 léttskýjað Bolungarvík 3 rigning Akureyri 5 rigning Kirkjubæjarkl. 9 skýjað Vestmannaeyjar 8 súld Nuuk 1 skýjað Þórshöfn 10 skúrir Ósló 10 skúrir Kaupmannahöfn 17 skýjað Stokkhólmur 12 skýjað Helsinki 11 súld Lúxemborg 22 heiðskírt Brussel 23 heiðskírt Dublin 15 skýjað Glasgow 12 léttskýjað London 26 heiðskírt París 27 heiðskírt Amsterdam 22 heiðskírt Hamborg 21 heiðskírt Berlín 22 heiðskírt Vín 22 heiðskírt Moskva 6 heiðskírt Algarve 25 heiðskírt Madríd 28 heiðskírt Barcelona 25 heiðskírt Mallorca 26 léttskýjað Róm 25 heiðskírt Aþena 22 léttskýjað Winnipeg 17 skýjað Montreal 12 súld New York 13 skýjað Chicago 18 léttskýjað Orlando 25 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 4. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:45 18:49 ÍSAFJÖRÐUR 7:53 18:51 SIGLUFJÖRÐUR 7:36 18:34 DJÚPIVOGUR 7:15 18:18 BAKSVIÐ Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is „Þetta endurspeglar auðvitað reiði fólks og það sýður á því. Hins vegar hvað snýr að þessu ofbeldi að henda eggjum og þess háttar sem getur valdið bæði líkams- og eignatjóni þá vona ég þetta muni marka endalok mótmæla af því tagi,“ segir Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félags- fræði við Háskóla Íslands og sér- fræðingur í afbrotafræðum, um mót- mælin sem fram fóru á Austurvelli á laugardaginn þegar Alþingi var sett. Eggjum og öðrum matvælum var hent í alþingismenn og aðra sem gengu frá Dómkirkjunni og yfir í Al- þingishúsið áður en þingsetningin fór fram auk lögreglumanna og varð Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, m.a. fyrir eggi sem hitti hann í gagnaugað með þeim afleið- ingum að hann féll við. Þá er vitað að ýmsu fleiru og harðara var kastað eins og sætum kartöflum og harð- soðnum eggjum. Brostnar væntingar Helgi segir að auðvitað verði að hafa í huga aðdragandann að þessum mótmælum. Um sé að ræða reiði sem sé búin að gerjast lengi í fólki. Það sé mikil undirliggjandi spenna og ólga í þjóðfélaginu. Réttlætis- kennd fólks sé misboðið og það telji ekki að stjórnvöld séu að taka á réttlátan hátt á málum, sér- staklega með tilliti til venju- legs fólks með sínar skuldir og síðan t.a.m. fjármála- fyrirtækja. Forgangsröð- unin sé röng. Ekki bæti síðan úr skák þegar um sé að ræða stjórnvöld sem margir hafi bundið vonir við að myndu halda öðruvísi á málum. Vonbrigði fólks og óánægja verði þeim mun meiri og það fyllist ákveðnu vonleysi. Það sé stjórnvalda að koma til móts við þessar áhyggjur fólks á sannfærandi hátt. „En ég held að fólk muni að ein- hverju leyti sjá það að þarna hafi verið gengið of langt af þeim einstak- lingum sem fyrir þessu stóðu,“ segir Helgi. Hann leggur áherslu á að of- beldi af þessu tagi varpi skugga á mótmælin sem staðið er fyrir og sé ekki síður vanvirða við mótmælin sjálf og boðskap þeirra en annað. Þau fái yfirbragð skrílsláta. „Þetta sé bara einhver skríll sem sé að mót- mæla sem ekki sé mark takandi á. Menn dæma þannig sjálfa sig og mótmælin einfaldlega úr leik.“ Friðsamleg mótmæli dæmd úr leik með ofbeldisverkum  Fólk fyllist reiði vegna rangrar forgangsröðunar stjórnvalda og margir auk þess vonbrigðum vegna ráðamanna sem þeir töldu að myndu taka öðruvísi á málum Morgunblaðið/Golli Mótmæli Prófessor í félagsfræði segist vona að mótmælin við setningu Alþingis á laugardaginn marki ákveðin þáttaskil í mótmælum hér á landi og að fólk muni sjá að gengið sé of langt þegar ofbeldi sé beitt. „Þetta var nú lítill hópur en engu að síður öðruvísi fólk sem stóð í því að kasta hlutum en við höfum séð áður í mótmælum. Þetta var full- orðið fólk. En þetta var hins vegar alger undantekning í þessum mót- mælum. Maður heyrði á mörgum mótmælendum að þeir voru ekkert hressir með þetta. Þannig að þetta var ekki samþykkt af fólkinu,“ segir Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn, um mótmælin sem fram fóru á Austurvelli á laugardaginn. Sumum finnist hins vegar greinilega bara í lagi að grýta stjórnmálamenn og Al- þingishúsið. Hann segist ekki vita hvað þeim hafi gengið til sem það hafi gert. Geir Jón leggur hins vegar áherslu á að langflestir sem þátt hafi tekið í mótmælunum hafi verið til fyrirmyndar og mótmælt á friðsamlegan hátt. Fullorðið fólk grýtti þingmenn GEIR JÓN ÞÓRISSON YFIRLÖGREGLUÞJÓNN Geir Jón Þórisson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.