Morgunblaðið - 14.10.2011, Blaðsíða 11
Skrafað Betra er að bera vel saman bækur sínar áður en svarað er.
„Sumt kemur úr eigin vitneskju
en síðan les maður líka mikið og nýt-
ir sér netið. Það er best að grúska
nógu mikið þá dettur maður inn á
eitthvað. Ég reyni að hafa spurning-
arnar eins fjölbreyttar og hægt er
en finnst skemmtilegastar þær
spurningar sem eru dálítið misvís-
andi,“ segir Hannes Daði.
Í keppninni eru hraðaspurning-
ar, bjölluspurningar, vísbend-
ingaspurningar og þríþraut. Blaða-
manni þykir rétt að skjóta hér að
hvort hringja megi í vin, líkt og í
spurningaþættunum Útsvari, en
Hannes Daði svarar í léttum dúr að
það sé bannað að hringja í vin.
Eykur samstöðu
Síðastliðin tvö ár hefur keppnin
verið fjármögnuð með þátttöku-
gjaldi en einnig er leitað til fyr-
irtækja um styrki og verðlaun. Í
fyrra var úrslitakeppninni útvarpað
beint á Rás 2 og verður sami háttur
hafður á í ár. Er jafnvel hugsanlegt
að undanúrslitunum verði einnig út-
varpað þetta árið.
„Þetta er skemmtileg og fræð-
andi keppni og eykur samstöðu inn-
an skólanna. Þetta er líka annar
vettvangur utan íþróttanna bæði
fyrir þá sem þær stunda svo og hina.
Oftast er einhver sem sér um liðið,
kennari eða gamall nemandi, en eins
er algengt að liðið sjái um þetta
sjálft. Keppnin er líka ágætur skóli
fyrir þá sem vilja reyna fyrir sér í
Gettu betur síðar meir,“ segir Hann-
es Daði. Hann tók á sínum tíma þátt
í Nema hvað? á sínum grunn-
skólaárum svo og í innanskóla-
keppnum í menntaskóla.
Úrslitunum útvarpað
Oftast eru þrír í liði og einn
varamaður. Í ár hafði Hannes Daði
samband við Raftækniskólann um
að hjálpa sér að búa til rafræna
bjöllu. Um leið og hún er tilbúin geta
leikar hafist og verður það líklegast í
kringum næstu mánaðamót. Á höf-
uðborgarasvæðinu er keppnin hald-
in í skólunum sjálfum, en úti á landi
fer slíkt allt eftir aðstæðum. Hannes
Daði segir gestafjölda fara nokkuð
eftir stærð skólanna þó alltaf skapist
góð stemning í kringum keppnina.
Spurningakeppni Frá úrslitum árið 2009, spyrill er Ágúst Bogason.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2011
Fátt er glataðra við vel smurðar varir
en þegar varaliturinn er farinn af að
hluta eftir ákveðinn tíma, og sú sem
varirnar tilheyra hefur kannski ekkert
komist í spegil til að sjá. Því hafa ver-
ið fundin upp ótal ráð til að láta vara-
liti endast. Eitt er það ráð sem vert er
að gefa gaum, en það er að bera
barnapúður á milli tveggja laga sem
smurt er á varirnar af varalitnum.
Þetta snilldarráð á að halda litnum
ferskum og fínum lengur en ella.
Skýringin er sennilega sú að barna-
púðrið virkar sem einhverskonar
festir fyrir fyrra lagið af varalitnum,
og sem grunnur fyrir seinna lagið
sem borið er þar yfir.
Barnapúður er málið!
Að láta vara-
litinn endast
Mér finnst gaman aðhlusta á tónlist, lesa ogslaka á. Ég er hinsvegar þeim galla
gæddur að vera allt of duglegur við
að taka að mér alls konar verkefni
og hjálpa flestum við flest og er því,
eins og margir aðrir, alltaf á þönum
og þeytingi hingað og þangað. Það
er ótrúlegt hvaða geggjun er farin
að drífa allt áfram og hvernig áður
sjálfsagðir hlutir eins og að setjast
bara niður yfir kaffibolla eru orðnir
að munaði sem maður hefur yfir-
leitt ekki tíma fyrir.
Ég hef fundið lausn á al-
heimsvandanum, ég náði að
búa til tíma fyrir sjálfan mig
þar sem ég sit í rólegheitum,
oftast með góða músík í eyr-
unum og bók í hendi; ég tek
strætó.
Ég hef vissulega þurft að hí-
rast úti í kuldanum, renn-
blautur og fúll því strætó
kom ekki eftir að ég
tók sprettinn til að
vera kominn í
tæka tíð. En það
skipti svo sem
engu máli því
þegar ég kom
heim var bara
notalegra að
komast í heita
sturtu. Og
hefði ég misst
af einhverju
væri það ekki
mér að kenna
því jú, ég var
mættur á réttum
tíma.
Ég held að það væri öllum hollt
að reyna að taka strætó reglulega.
En í staðinn fyrir að stressast
og pirrast á því að þurfa
að bíða og skipuleggja
ferðina og kvarta síðan
undan því hvað þetta
tekur nú langan tíma
allt saman, þá á bara
að njóta þess. Það er
sjaldan sem maður fær
tíma til að vera einn með
hugsunum sínum og njóta
þess að maður hafi ekkert
með það að segja hvað ferð-
in tekur langan
tíma, maður kemst
á áfangastaðinn.
Ég segi: Taktu
strætó, njóttu þess að
geta slakað aðeins á
og í guðanna bæn-
um, ef þú sérð mig
og ég sé þig ekki,
þá bið ég þig að reið-
ast ekki. Ég er í mínum
heimi.
»Ég hef vissulega þurftað hírast úti í kuld-
anum, rennblautur og fúll
því strætó kom ekki eftir að
ég tók sprettinn til að vera
kominn í tæka tíð en það
skipti svo sem engu máli.
Heimur Hjalta
Hjalti Stefán Kristjánsson
hjaltistef@mbl.is
Hreyfill / Bæjarleiðir
er styrktaraðili
árveknisverkefnis
Krabbameinsfélagsins
í október
og nóvember
Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar enn á ný með
bleikum taxaljósum og munu bílstjórarnir taka fagnandi á móti þér
Taktu bleikan bíl næst flegar flú pantar leigubíl!
„Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október.
Ökum undir
bleikum merkjum enn á n‡