Morgunblaðið - 14.10.2011, Side 17
FRÉTTIR 17Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2011
Framleiðendur einkaþotna eru
vongóðir um að sölutölur mjakist
upp á við á næsta ári. Reuters
greinir frá að einkaþotugeirinn bú-
ist við að sjá vöxt á árinu 2012, í
fyrsta skipti frá því að efnahags-
lífið tók dýfu.
Yfirstandandi ár hefur ekki
reynst eins vel og framleiðendur
höfðu vænst, en nú hljóða spár
framleiðenda eins og Honeywell
upp á 3-5% söluaukningu á kom-
andi ári.
Eftirspurn eftir einkaþotum féll
harkalega árið 2009 og minnkaði
enn frekar árið 2010, en í fimm ár
á undan hafði þessi geiri séð stöð-
ugan vöxt. Salan hafði dregist sam-
an um 27% á fyrri hluta þessa árs,
borið saman við sama tíma í fyrra.
Reuters bendir á þá áhugaverðu
staðreynd að samdrátturinn hefur
einkum verið í smærri flugvélum
sem aðallega höfða til minni fyr-
irtækja. Á meðan sala á „létt-þot-
um“ féll um 61% milli 2008 og 2010
þá jókst salan í stórum einkaþotum
um 13% á sama tíma. ai@mbl.is
Einkaþoturnar
aftur á flug 2012?
Lúxus Viðskiptanaglar heimsins eru væntanlega orðnir lúnir af að fljúga
bara á fyrsta farrými þessi síðustu ár. Einkaþota á Reykjavíkurflugvelli.
Nærri sex af hverjum tíu aðildarfyr-
irtækjum Samtaka atvinnulífsins
hyggjast ekki leggja í umtalsverðar
fjárfestingar eða endurbætur á
næsta ári, 27% telja það óvíst en ein-
ungis 14% hyggjast gera það. Þetta
kemur fram í nýrri könnun SA á
fjárfestingaráformum fyrirtækj-
anna.
Þegar svörum er skipt eftir at-
vinnugreinum kemur í ljós að nið-
urstöður í sjávarútvegi, iðnaði, og
verslun og þjónustu eru svipaðar
heildarniðurstöðunni, þ.e. 11-14%
fyrirtækjanna í þessum greinum
áforma fjárfestingar á næsta ári, en
55-62% ætla ekki að gera það. Fjár-
festingaáformin eru algengust í
ferðaþjónustu þar sem 26% fyr-
irtækjanna hyggjast ráðast í fjár-
festingar en 35% ekki. Í fjár-
málaþjónustu hyggjast 79%
fyrirtækjanna ekki ráðast í fjárfest-
ingar.
Niðurstöðurnar eru áþekkar þeim
sem fengust í könnun Samtaka at-
vinnulífsins í nóvember 2010.
Lítið um
stórar fjár-
festingar
14% félaga ætla að
fjárfesta umtalsvert
Samkvæmt upp-
lýsingum frá
Seðlabankanum
sóttu níu manns
um stöðu fram-
kvæmdastjóra
Fjármálastöð-
ugleika sem aug-
lýst var eftir fyr-
ir nokkru.
Fjármálastöð-
ugleiki er nýtt
svið innan Seðlabanka Íslands, en
meginviðfangsefni þess felst í
greiningu á áhættu í fjármálakerf-
inu og þátttöku í mótun var-
úðarreglna fyrir fjármálakerfið.
Sviðið tekur þátt í stefnumótun
varðandi uppbyggingu fjár-
málakerfisins og varðandi mark-
mið, tæki og skipulag fjármálastöð-
ugleika á Íslandi. Eftirfarandi sóttu
um starfið:
Berglind Sigurðardóttir,
Björg Jónsdóttir,
Brynhildur Gunnarsdóttir,
Harpa Jónsdóttir,
Jón Gunnar Borgþórsson,
Jónas Þórðarson,
Ólafur Örn Ingólfsson,
Sigríður Benediktsdóttir og
Þorsteinn Þorgeirsson.
Níu sóttu um
framkvæmda-
stjórastöðu í SÍ
Seðlabanki Íslands.
Átta virtar hagfræðistofnanir í
Evrópu eru sammála um að lækka
hagvaxtarspá sína fyrir Þýskaland
verulega. Stofnanir sem birta hag-
vaxtarspá sína fyrir landið á sex
mánaða fresti höfðu spáð þar 2%
hagvexti á næsta ári.
Nú vænta þær aðeins 0,8% hag-
vaxtar á næsta ári og kenna þar um
skuldavandanum á evrusvæðinu.
Hagvöxtur í Þýskalandi var 3,6% á
síðasta ári.
Lækkuð
hagvaxtarspá
Ásthildur Sturludóttir
bæjarstjóri Vesturbyggðar
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
oddviti Tálknafjarðarhrepps
Andrea Björnsdóttir
oddviti Reykhólahrepps
Vestfjörðum 14. október 2011.Láglendisveg strax!
Háttvirtu þingmenn.
Vegamál á sunnanverðum Vestfjörðum eru í ólestri og hafa verið árum saman. Áralöng bið eftir
!
Höfum í huga að:
" #
öruggra láglendisvega.
Greiðfær og öruggur láglendisvegur um Barðastrandasýslu er nauðsynlegur til að stuðla
að áframhaldandi byggð og framþróun í samfélags- og atvinnumálum á sunnanverðum
Vestfjörðum.
Á síðustu árum og áratugum hefur mun minna fjármagni verið varið til vegagerðar á
$ " " % &#
%
$ "
'
samgangna og öryggi vegfarenda er stefnt í voða.
(
)
* +# hefur verið á áætlun Vegagerðarinnar í sjö ár. Vegna deilna um vegstæði er þessi sjálfsagða
vegabót nú í uppnámi.
,
" %
* +# / ' ! '
Tillaga ráðherra felur ekki í sér ásættanlegar vegabætur. Vegstæðið verður áfram í sömu hæð
# 0
%! "
%
1% 2!
34
! "
%
2
!
%
5
$ "
Láglendisvegur er eina lausnin í samgöngumálum svæðisins og hefja þarf vinnu við hann
% %
$ " 2 ekki bið.
Við treystum á stuðning þingmanna úr öllum kjördæmum í þessu
mikilvæga byggða- og samfélagsmáli.
Finna þarf nýja láglendisleið sem sátt er um.