Morgunblaðið - 14.10.2011, Síða 41
AF AIRWAVES
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Tónlistarhátíðin IcelandAirwaves er svo umfangs-mikil að maður nær aldrei
að sjá allar þær hljómsveitir og tón-
listarmenn sem mann langar að sjá.
Nema þá að maður hlusti á eitt lag
með hverri hljómsveit eða tónlistar-
manni og eyði öllu kvöldinu í göngu
milli tónleikastaða sem er nú full-
mikil sóun á dýrmætum tíma. Því
sneið ég mér dagskrá út frá við-
burðum fyrsta kvölds hátíðarinnar,
12. október, með Airwaves-
„appinu“ góða og ætlaði að fylgja
henni. Það tókst ekki alveg, líklega
best að vera ekkert að plana of mik-
ið á Airwaves, láta sig frekar ber-
ast með straumnum.
Kvöldið hófst á Nasa. Þar varþrumandi Balkan-rokk í gangi
þegar mig bar að garði, hin fjöl-
menna hljómsveit Orphic Oxtra á
góðu stími. Fíli menn Balkan-rokk
þá fíla þeir án efa Orphic Oxtra.
Sjálfur er ég ekki mikið gefinn fyr-
ir slíka tónlist en kann þó að meta
hana í smáum skömmtum. Þegar ég
var orðinn saddur af Balkani lagði
ég aftur í hann, tók stefnuna á Fak-
torý í ausandi rigningu. Þar var
rappsveitin Úlfur Úlfur komin af
stað. Ekki minn tebolli, verð ég að
segja. Ég vil hafa rappið harðara,
meiri grimmd, takk. Þannig er ég
nú bara gerður. En gestir kunnu
vel að meta drengina, það verður
ekki af þeim tekið.
Eftir tvö lög ákvað ég að halda
áfram leitinni að tebollanum og
stikaði á Barböru. Þar átti að spila
bresk hljómsveit sem heitir því
furðulega nafni Yunioshi. Ég kunni
engin deili á henni en eftir heim-
sókn á Wikipediu varð ég nokkurs
vísari. Kvartett frá Nottingham,
elektrórokk, nafnið fengið úr bók
Trumans Capote, Breakfast at Tiff-
any’s. Liðsmenn kalla tónlistina vél-
mennafönk. Forvitnilegt.
Yunioshi átti að hefja leik kl.
21 en eitthvað var tæknin að stríða
fjórmenningunum. Tónleikarnir
hófust um 20 mínútum eftir aug-
lýstan tíma en gestir létu það ekki á
sig fá, vættu sig að innan á meðan
beðið var og blaðamaður eignaðist
ónefndan vin sem vildi ræða vítt og
breitt um Airwaves. Ekkert að því.
Söngvarinn sló á létta strengi og
sagði fyrsta lagið heita „Stillt upp“.
Yunioshi mun hafa túrað með Blo-
odgroup og það var einhver Red
Hot Chili Peppers-ilmur af fyrsta
laginu, afar hressandi. Og áfram
stríddi tæknin liðsmönnum, eftir
eitt lag gaf sig einhvers konar raf-
magnsapparat sem ég kann ekki að
nefna en því var kippt í liðinn með
hraði. Gott stuð og tebollinn í sjón-
máli.
Ég brunaði frá Barböru aðAmsterdam. Var þar mikill
raki í lofti og virtist sem ofnar væru
fullhátt stilltir en líklegra þykir
mér að gestir hafi séð um kynd-
ingu. Spacevestite kom þar
skemmtilega á óvart, hafnfirskt
hipparokk, fortíðarþráin allt-
umlykjandi. En mollan varð til þess
að ég staldraði stutt við og fór yfir
á öllu svalari Gauk á Stöng. Þar var
Lifun að spila, fín sveitastemning
og hentaði vel til kælingar. Næstur
á svið var svo Blaz Roca/Erpur Ey-
vindarson og færðist þá heldur bet-
ur fjör í leikinn. Pabbi var mættur á
svæðið og hafði sérstaklega orð á
því hversu gott væri að fá hand-
klæði frá Airwaves-mönnum. Lík-
lega eru svitakirtlar rappara virk-
ari en annarra tónlistarmanna.
Tebollinn minn var fundinn. Erpur
er öflugur rappari og naut góðs
liðsstyrks Bents, Sesars A, Friðriks
Dór og Dabba T. Halar og frænkur
hossuðu bossum við straumþungt
rímnaflæðið en gamall rapphundur
meðal áheyrenda hafði orð á því við
mig að úr ranni Blaz kæmi margt
sem erfitt væri að finna til fag-
urfræðilegrar upplyftingar. „Food
for thought“ eins og enskumælandi
myndu segja.
Hunangið í tebollann var svohljómsveitin Agent Fresco á
Nasa. Hún sló hvergi feilnótu og
keyrði allt í botn fyrir troðfullu
húsi með söngvarann Arnór Dan í
fararbroddi, öflugan sem Duracell-
kanínu. Fullkominn endir á fyrsta
Airwaves-kvöldi ársins 2011.
Leitin að tebollanum
» Pabbi var mætturá svæðið og hafði
sérstaklega orð á því
hversu gott væri að fá
handklæði frá Air-
waves-mönnum.
Morgunblaðið/Eggert
Keyrsla Arnór Dan Arnarson, söngvari Agent Fresco, fór mikinn á tónleikum hljómsveitarinnar á Nasa.
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2011
HHHHH
-FRÉTTATÍMINN, Þ.Þ.
MIÐASALA Á SAMBIO.IS
BANGSÍMON Ísl. tal kl. 6 2D L
FOOTLOOSE kl. 8 - 10:20 2D 10
REAL STEEL kl. 8 - 10:20 2D 12
ALGJÖR SVEPPI kl. 6 2D L
/ AKUREYRI
-ENTERTAINMENT
WEEKLY
HHHHH
FOOTLOOSE kl. 5:40 - 8 - 10:30 2D 10
THE SKIN I LIVE IN kl. 5:40 - 8 - 10:30 2D 16
BANGSÍMON kl. 4 - 6 2D L
REAL STEEL kl. 10 2D 12
KONUNGUR LJÓNANNA Ísl. tal kl. 4 3D L
LION KING Með ensku tali - ótextuð kl. 8 3D L
ALGJÖR SVEPPI kl. 3:40 2D L
/ KRINGLUNNI / KEFLAVÍK
FOOTLOOSE kl. 8 - 10:20 2D 10
BORGRÍKI kl. 8 - 10:10 2D 14
ÞÓR kl. 6 3D L
BANGSÍMON Ísl. tal kl. 6 2D L
á allar sýningar merktar með appelsínuguluSPARBÍÓ 750 kr.
SÝND Á MORGUN Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL
AÐEINS ÖRFÁAR
SÝNINGAR EFTIR
STÓRKOSTLEG MYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA -
SÝND Í TAKMARKAÐAN TÍMA
ÍSLENSK TAL
„STÓRKOSTLEG SKEMMTUN FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA.“
„KLASSÍK SEM ÞÚ VILT SJÁ AFTUR
OG AFTUR“
- J.C. SSP
HHHH
- L.S. ENTERTAINMENT WEEKLY
HHHHH
FRÁ FRAM-
LEIÐANDANUM
STEVEN SPIELBERG
- J.C. -VARIETY
H H H H
- P.T. -ROLLING STONES
H H H H
NÝJASTA MEISTARAVERK FRÁ
ÓSKARSVERÐLAUNALEIKSTJÓRANUM
PEDRO ALMODÓVAR
-EMPIRE
HHHH
ANTONIO BANDERAS
ER STÓRKOSTLEGUR Í
ÞESSUM MAGNAÐA ÞRILLER
MYND SEM
KEMUR
STANSLAUST
Á ÓVART
Anna Bolena
donizetti
15. okt kl.17:00
í Beinni útsendingu
19. okt kl.18:00 Endurflutt
www.operubio.is
SÝND Í KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLLI, KRINGLUNNI
OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLLI, KRINGLUNNI
OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL