Morgunblaðið - 31.10.2011, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2011
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Miele þvottavélar og þurrkarar
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Miklu munar í niðurfærslu
Skráði ekki barn hjá sér og fær fimmtán milljónum minna afskrifað fyrir vikið
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Miklu getur munað á því hvað einstæðingar ann-
ars vegar og fólk í sambúð eða með börn heima
hins vegar fær fellt niður. Viðmælandi blaðsins á
barn sem bjó hjá móður sinni um tíma í Dan-
mörku og var því ekki skráð til heimilis hjá hon-
um við síðustu skattaskil. Fyrir vikið munar
fimmtán milljónum króna á þeirri afskrift sem
honum er boðin og þeirri sem hann hefði haft
möguleika á hefði barnið verið skráð til heimilis
hjá honum.
Að sögn mannsins tók hann um 40 milljóna
króna húsnæðislán sem fór upp í 75 milljónir í
hruninu. Húsið er aftur á móti í dag metið á 38
milljónir. Ef sonur hans hefði verið skráður hjá
honum á þessum tíma hefði lánið getað farið nið-
ur um þrjátíu milljónir en á ekki að fara niður
um nema fimmtán milljónir þar sem hann er ein-
stæðingur samkvæmt skattskýrslunni. Að hans
sögn er 110% leiðin alls engin 110% leið fyrir
einstæðinga. Þar sem sonur hans dvelur mikið
hjá honum og mun að hluta alast upp á heimilinu
bauðst hann til að færa hann inn á skattskýrsl-
una sína en fékk synjun frá bankanum á þeirri
forsendu að matið hefði þegar farið fram og yrði
ekki gert aftur. Að sögn mannsins er þetta
matsferli þó ekki miklu flóknara en þegar bank-
inn tekur fólk í greiðslumat og því finnst honum
hart að tapa fimmtán milljónum vegna þessara
mistaka, eins og hann orðar það í spjalli við
blaðið.
Í samtali við upplýsingafulltrúa umboðsmanns
skuldara, Svanborgu Sigmarsdóttur, staðfestir
hún að það sé munur á mögulegum niðurfell-
ingum eftir því hvort um er að ræða einstæð-
inga, fólk í sambúð eða barnafólk. „Ég þekki
þetta einstaka mál ekki,“ segir Svanborg, „en ef
rétt er eftir haft og hann er einstætt foreldri og
barnið ekki að staðaldri hjá móður sinni hefði
maður haldið að hann ætti að geta samið við
bankann sem slíkur.“
Spurð um hugsunina á bak við þessar reglur
segist Svanborg ekki hafa tekið þátt í að semja
reglurnar. „Mig minnir að hugsunin hafi verið að
það væri verið að afskrifa skuldir miðað við eðli-
lega heimilisstærð,“ segir Svanborg. „Að hug-
myndin hafi verið að ef þú værir einstæðingur í
tvö hundruð fermetra húsnæði mætti ekki af-
skrifa endalaust á þig, en það mætti afskrifa
meira á þig ef þú værir með maka og börn í tvö
hundruð fermetra húsnæði,“ segir Svanborg.
Maður hefði haldið að
hann ætti að geta sam-
ið við bankann.
Svanborg Sigmarsdóttir
María Elísabet Pallé
mep@mbl.is
Níu Íslendingar tóku þátt í keppninni um hálfan járnkarl eða
hálfkarl í Miami í Flórída í gær, en slík keppni er mikil þrek-
raun. Keppendur synda 1,9 kílómetra í sjó, hjóla 90 kílómetra
og hlaupa svo að lokum 21,1 kílómetra. Fólk hvaðanæva úr
heiminum ferðast til Miami til að vera með og voru þátttak-
endur alls um 3.100.
Af íslensku keppendunum náði Björn Ólafsson bestum
tíma en hann kláraði þrekraunina á fimm klukkustundum og
sextán mínútum. „Þetta gekk ágætlega, tímarnir voru þó að-
eins lakari en maður stefndi að,“ sagði Björn í samtali við
Morgunblaðið að lokinni keppni. Sá sem kom fyrstur í mark
var Þjóðverji, á þremur klukkustundum og 47 mínútum.
Björn, sem aðeins byrjaði að hlaupa fyrir um einu og hálfu ári,
ákvað um miðjan ágústmánuð að taka þátt í hálfkarlinum.
Níu Íslendingar kepptu í
„hálfkarli“ í Bandaríkjunum
Syntu 1,9 km, hjóluðu 90 km
og hlupu að lokum 21,1 km
„Það eru búnar að
verða miklar
breytingar á lið-
inu og við erum
komnir með svo-
lítið nýtt lið,“ seg-
ir Gunnar Björns-
son, forseti
Skáksambands
Íslands, og vísar
til þeirra miklu
breytinga sem
orðið hafa á liði Íslands sem taka
mun þátt í EM landsliða sem fram
fer í Porto Carras í Grikklandi dag-
ana 3. til 11. nóvember næstkomandi.
Nýlegasta breytingin á liðinu er sú
að Björn Þorfinnsson kemur inn í
staðinn fyrir Stefán Kristjánsson en
sá þurfti að draga sig í hlé vegna
bakmeiðsla. Áður þurftu Hannes
Hlífar Stefánsson og Héðinn Stein-
grímsson frá að hverfa vegna per-
sónulegra ástæðna. Gunnar segir
þessi miklu forföll í liðinu hreint út
sagt ótrúleg og að viðlíka hafi ekki
gerst áður. Eftir breytingar er ís-
lenska liðið skráð fremur lágt í
keppninni, eða númer 32 af 38. „Ég
tel að það séu miklir möguleikar í
þessu liði, sem getur vel staðið sig,“
segir Gunnar og bendir á að þrátt
fyrir miklar breytingar sé liðið skip-
að vönum mönnum.
Vert er að geta þess að íslenska
skákliðið verður í verslun Eymunds-
sonar á Skólavörðustíg klukkan
fimm í dag samhliða kynningu bókar
Óttars Norðfjörð um skákeinvígið
árið 1972. khj@mbl.is
Landslið
Íslands
gerbreytt
Gunnar
Björnsson
Forföll skákmanna
„Ég hef heimildir fyrir því að samið
hafi verið um aðildarumsókn í
þröngum hópum fyrir kosningar
2009,“ segir Atli Gíslason, fyrrver-
andi þingmaður Vinstri grænna, og
á við að í þröngum hópi manna hjá
VG og Samfylkingunni hafi verið
samið um aðildarumsókn að Evrópu-
sambandinu fyrir þingkosningar
2009. Atli segist ennfremur hafa
fengið tiltal frá mönnum innan VG
daginn eftir kosningar vegna um-
mæla sinna um að ekki ætti að sækja
um aðild.
Atli segir ríkisstjórnina vinna
mjög einbeitta að inngöngu í ESB og
bendir á að ekki gangi að kjósa um
inngöngu eftir að búið er að innleiða
allt regluverk sambandsins.
Sömdu fyrir
kosningar
„Við fengum alveg ekta íslenskt haustveður, hálfgert slagveður,“ sagði
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra sem á laugardag fór í fótabað á Sel-
tjarnarnesi með ferðamönnum. Um var að ræða lið í átakinu Ísland – allt
árið, sem heyrir undir Inspired by Iceland, og bauð ráðherrann upp á fóta-
baðið. Boðið vakti talsverða athygli og sóttust margir eftir að fá að mæta,
en sökum þess hve lítil fótalaugin á Nesinu er komust aðeins fjórir að.
Tveir þeirra lögðu þó ekki í rigninguna og mættu ekki. Hinir tveir, Breti
og Ástrali, voru hins vegar hæstánægðir með fótabaðið. „Ferðamenn vilja
svona upplifun, þeir vilja fá að sjá samfélagið með augum þeirra sem búa
þar og þetta er frábært tækifæri fyrir okkur,“ sagði Katrín.
Fór í fótabað með ferðamönnum
Morgunblaðið/Golli
„Ég var fimm klukkutíma og 55
mínútur og mér líður rosavel,“
segir Jórunn Jónsdóttir en hún var
eina konan á meðal þeirra níu Ís-
lendinga sem tóku þátt í „hálf-
karlinum“ í Miami í gær, sunnu-
dag. Jórunn tók þátt í ólympískri
þríþraut í Barcelona í fyrra og
gekk einnig vel þá, en hún er í
vinahópi sem tekur einni áskorun
af þessu tagi á ári hverju. Hálfkarlinn var áskor-
unin í ár „en það er aldrei að vita hvað ég geri að
ári liðnu,“ segir Jórunn.
„Áskorunin í ár“
AF NÍU ÍSLENDINGUM VAR EIN KONA
Jórunn
Jónsdóttir