Morgunblaðið - 31.10.2011, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2011
Heimsferðir bjóða frábær tilboð á allra síðustu sætunum til Tenerife þann 22.
nóvember. Í boði eru sértilboð m.a. á Villa Adeje Beach íbúðahótelinu með
„öllu inniföldu“ auk fleiri valkosta.
Í 28 nátta ferðinni er beint flug
báðar leiðir en í 11 nátta ferðinni er
heimflug í gegnum London Gatwick
þar sem gist er síðustu nóttina.
Innifalið flug báðar leiðir, skattar og
gisting. Athugið að mjög
takmörkuð gisting er í boði!
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til
leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Tenerife
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
22. október
frá kr. 139.900 með öllu inniföldu
Frá kr. 139.900
Hotel Villa Adeje***
með öllu inniföldu
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna
í 11 nætur. Verð í 28 nátta ferðinni
í tvíbýli kr. 259,900 á mann.
Sértilboð 22. nóvember.
11 eða 28 nátta ferð - síðustu sæti!
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Vatnsborð Kleifarvatns hefur
lækkað jafnt og þétt frá árinu 2009
og þar til fyrir um mánuði. Þá fór
að rigna töluvert og Kleifarvatn
hefur heldur risið á ný. Með lægra
vatnsborði kemur ýmislegt upp á
yfirborðið, m.a. hverir við suðvest-
urenda vatnsins sem ferðamönnum
þykir mikið varið í að skoða.
Eftir Suðurlandsskjálftana árið
2000 lækkaði skyndilega og hratt í
vatninu en fyrir þá hafði vatns-
borðið verið í hámarki. Um vorið
2009 var vatnsborðið 140,5 metra
yfir sjávarmáli. Um haustið 2002
hafði vatnið lækkað í 135,9 metra.
Þá tók það heldur að rísa og hafði
árið 2009 nánast náð fyrri hæð og
fór um vorið hæst í 139,5 metra.
Síðan tók aftur að halla undan fæti
og í haust fór það niður í 135,6
metra, aðeins rúmlega hálfum
metra hærra en það varð lægst í
kjölfar Suðurlandsskjálftanna
2000.
Gamlar heimildir eru fyrir því
að vatnsborð Kleifarvatns hafi
sveiflast mikið í gegnum tíðina.
Gunnar Sigurðsson, verkfræð-
ingur á Veðurstofu Íslands, segir
að ástæðan fyrir lægra vatnsborði
nú sé tvíþætt, annars vegar aukið
rennsli úr vatninu um botninn en
hins vegar minni úrkoma en venju-
lega.
Svelgir soguðu niður vatn
„Vatnið lekur niður í grunnvatn
sem hefur lægra vatnsborð en
botninn á Kleifarvatni,“ segir
Gunnar. Lekinn sé nú í kringum
einn rúmmetri á sekúndu en eftir
skjálftana 2000 hafi lekinn verið
tvö- til þrefaldur á við það sem
hann er nú. Að sögn Óskars Sæv-
arssonar, landvarðar í Reykjanes-
fólkvangi, mynduðust þá stundum
tveir stórir svelgir, tugir fermetra
að stærð, við norðurenda vatnsins.
Hefði maður verið á sundi þar sem
svelgirnir mynduðust hefði verið
vonlaust fyrir hann að komast út
úr þeim. „Þú hefðir sogast niður,“
segir hann.
Töluverðir jarðskjálftar urðu í
grennd við Krýsuvík vorið og sum-
arið 2009 og urðu m.a. nokkrir
skjálftar sem voru yfir 4 að styrk-
leika. Á sama tíma fór að leka
hraðar úr vatninu en Gunnar segir
erfitt að tengja lekann beint við
skjálftavirknina. Það hafi hins veg-
ar verið mjög auðvelt að tengja
aukinn leka árið 2000 við skjálft-
ana þá um sumarið. Undanfarin
tvö ár hafi farið saman að hraðar
hafi lekið úr vatninu og lítið rignt.
Náttúruperlur
aftur á þurrt
Vatnsborð Kleifarvatns hefur lækkað jafnt og þétt frá 2009
Morgunblaðið/RAX
Kleifarvatn Með lægra vatnsborði kemur ýmislegt upp á yfirborðið, m.a. hverir við suðvesturenda vatnsins.
Vatnsyfirborð Kleifarvatns
Va
tn
sh
æ
ð
(m
.y
.s
.)
141
140
139
138
137
136
135
17. júní 2000
1.maí 2009
1. jan. 2000 3. okt. 2011
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Það er ekki ólöglegt að spila
mótapóker. Þú kaupir þig inn í
mótið, færð ákveðin tæki og tól til
að spila og svo færðu borgaða út
vinninga,“ segir Eirný Sveinsdótt-
ir, formaður Pókersambands Ís-
lands, spurð hvort löglegt sé að
spila póker á Íslandi. Pókersam-
bandið stendur fyrir Íslandsmóti í
póker næstu helgi og verður það
haldið á Hótel Örk í Hveragerði.
Um 350 manns eru meðlimir í
Pókersambandinu og segir Eirný
pókerinn vera í sókn meðal Íslend-
inga og ljóst að hann verði vinsælli
með ári hverju.
„Í fyrra tóku 217 þátt í mótinu
og við búumst við um 250 manns í
ár,“ segir Eirný en aldur þátttak-
enda á pókermótum hérlendis er
mjög breiður. „Yngsti þátttakandi
í fyrra var nítján ára og elsti tæp-
lega sextugur,“ en gerð er krafa
um lágmarksaldur átján ár.
Segir hún mikilvægt að fólk átti
sig á því að póker hafi nú verið
viðurkenndur sem hugaríþrótt og
því kominn í sama flokk og skák
og bridge. „Pókermót er ekki fjár-
hættuspil.“
Til að geta tekið þátt í Íslands-
mótinu þurfa þátttakendur m.a. að
greiða gjald, krónur 60.000, og
þurfa þeir sem ekki eru meðlimir
að Pókersambandi Íslands að
greiða 3.000 krónum betur. Gjaldið
segir Eirný fyrst og fremst til
þess að ná utan um þá útgjaldaliði
sem mótinu fylgja. Nefnir hún í
því samhengi t.a.m. kaup á bæði
spilapeningum sem og þar til gerð-
um spilaborðum.
Fyrsta sæti gefur
fjórar milljónir
Íslandsmótið verður haldið, líkt
og áður hefur komið fram, í
Hveragerði. Ástæða þess er m.a.
sú að Hótel Örk styrkir Pókersam-
bandið með því að lána því sal hót-
elsins án endurgjalds. Að auki seg-
ir Eirný íslenska pókerheiminn
fremur náinn og flestir spilaranna
þekkist, og sú stemning sem
myndaðist á mótinu í fyrra hafi
orðið til þess að sami staður varð
fyrir valinu í ár. „Fyrsti vinningur
verður um fjórar milljónir miðað
við 250 þátttakendur,“ segir Eirný
en að sögn hennar er það á hendi
spilara að tilkynna skattyfirvöld-
um vinningsupphæð sína. „Ef
skatturinn hefur samband við okk-
ur gefum við allar upplýsingar um
þá sem vinna.“ Eirný segir Íslend-
inga verða æ jákvæðari í garð pók-
ers og þykir henni það miður þeg-
ar fólk tengir póker við reykfyllt
bakherbergi. „Þetta er fyrst og
fremst hópíþrótt.“
Póker hugar-
íþrótt en ekki
fjárhættuspil
250 manns á Íslandsmótinu í póker
Morgunblaðið/Jim Smart
Hugaríþrótt Landinn virðist taka
vel í póker og mun fjölmenna á mót.
Pókermótið
» Sigurvegari á mótinu gæti
fengið fjórar milljónir króna í
sinn hlut verði þátttakendur
250 eða fleiri.
» Mótið hefst föstudaginn 4.
nóvember og er spilað út
helgina.
» Lokaborðið fer fram laug-
ardaginn 12. nóvember og
verður það haldið á Icelandair
Hótel Reykjavík Natura.
María Elísabet Pallé
mep@mbl.is
„Við höfum ekki orðið vör við það að
þessu lýsi hafi verið stolið hjá okkur
en það eru náttúrlega mikil verð-
mæti í þessu, sérstaklega erlendis,“
segir Adolf Ólason markaðsstjóri
hjá Lýsi hf., en athygli vakti að á
meðal þýfis sem tollgæslan og lög-
reglan á Seyðisfirði fundu í tveim
bílum við brottför Norrænu í síðustu
viku var mikið magn af lýsispillum,
sem þykir óvenjulegur varningur.
Bílunum var ekið af Litháum á
miðjum aldri.
,,Þetta er náttúrlega vinsælasta
heilsuvara í heimi og auðseljanleg,“
segir Adolf en hann hefur ekki heyrt
um að fólk hafi áður verið að stela og
flytja lýsi út úr landinu..
Asíubúar tæma hillurnar
„Vörumerkið Lýsi er mjög
þekkt og vinsælt í Litháen,“ segir
Adolf en fyrirtækið flytur lýsi meðal
annars til Eistlands, Litháens, Lett-
lands, Finnlands og Danmerkur. Þá
segir Adolf lýsi einnig vinsælt í As-
íulöndum. „Þegar það koma útlend-
ingar hérna heim, Kínverjar og Jap-
anir, þá tæma þeir búðirnar, það er
frægt,“
Hvað varðar lýsið sem tekið var
í síðustu viku kannast Adolf þó ekki
við þjófnað. „Við erum með reglu-
legar talningar hjá okkur og við höf-
um ekki orðið vör við að þetta sé frá
okkur.“
Lýsi vinsælt í Litháen og
því líklega auðseljanlegt
Lýsi var meðal
þýfis á leið úr landi
Heilsuvörur
» Lýsi hf. var stofnað árið
1938 og framleiðsla á kald-
hreinsuðu meðalalýsi í neyt-
endapakkningum hófst 1959.
» Lýsi er góður vítamíngjafi
og inniheldur mikið af A- og D-
vítamíni.
Morgunblaðið/Golli
Heilsuvörur Lýsi er með vinsæl-
ustu heilsuvörum í heimi.