Morgunblaðið - 31.10.2011, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2011
Gunnar Waage tónlistarmaðursér fyrir sér umbrot í stjórn-
málum:
Þrátt fyrir aðhafa sett nýjan
standard hér á
landi, með því að
breyta stjórn banka-
mála í leyniþjón-
ustustarfsemi, þá
þykist nú Stein-
grímur sem aldrei fyrr þess um-
kominn að tala niður til þing-
manna.
Þótt leitað yrði lengi þá fyndistekki stjórnmálamaður í sögu
landsins sem gert hefur jafn mikið
af sér og Steingrímur J. Sigfússon.
Því er það nú vel að það sé nokkuð
öruggt að Vinstri Grænir muni bíða
afhroð í næstu alþingiskosningum.
Það er ánægjulegt að ný stjórn-málaöfl séu að undirbúa sig til
þátttöku í næstu kosningum. Þá er
ekki átt við Besta Flokkinn og Guð-
mund Steingrímsson sem er tróju-
hestur Samfylkingarinnar.
Ég bind vonir við nýjan flokkLilju Mósesdóttur. Einnig hef
ég mikla trú á Frelsishreyfingunni
sem ég sjálfur er aðili að. Þessar
hreyfingar eiga það sameiginlegt
með Hreyfingunni (áður XO) að
vera flokkar sem fyrst og fremst
fara fyrir málum er varða almenn-
ing og velferð almennra borgara.
Við þurfum nýtt fólk inn á þingmeð nýjar áherslur, en við
þurfum ekki nýtt fólk í Samfylk-
inguna sem lemur fólk til hlýðni
með bakherbergissamþykktum og
þjónustu við fjármálaelítuna. Það
skiptir afskaplega litlu máli hvaða
andlit standa í þeirri línu eða hvaða
nöfnum það fólk heitir þegar að
það er ekki sjálfráða yfir eigin af-
stöðu.“
Gunnar Waage
tónlistarmaður
Umbrot
framundan?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 30.10., kl. 18.00
Reykjavík 5 rigning
Bolungarvík 2 rigning
Akureyri 4 rigning
Kirkjubæjarkl. 6 rigning
Vestmannaeyjar 7 alskýjað
Nuuk -2 upplýsingar bárust ek
Þórshöfn 9 skýjað
Ósló 10 léttskýjað
Kaupmannahöfn 11 þoka
Stokkhólmur 10 alskýjað
Helsinki 8 skúrir
Lúxemborg 12 skýjað
Brussel 15 skýjað
Dublin 16 skýjað
Glasgow 13 skýjað
London 16 skýjað
París 15 skýjað
Amsterdam 12 súld
Hamborg 13 skýjað
Berlín 15 skýjað
Vín 11 skýjað
Moskva 5 heiðskírt
Algarve 22 heiðskírt
Madríd 22 heiðskírt
Barcelona 21 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 18 léttskýjað
Aþena 13 léttskýjað
Winnipeg 5 alskýjað
Montreal 7 léttskýjað
New York 3 heiðskírt
Chicago 8 alskýjað
Orlando 23 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
31. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:08 17:16
ÍSAFJÖRÐUR 9:25 17:09
SIGLUFJÖRÐUR 9:08 16:52
DJÚPIVOGUR 8:40 16:43
María Elísabet Pallé
mep@mbl.is
„Verið er að afla upplýsinga um
skráningu fjölmiðla og upplýsingar
um eignarhald sem eiga að birtast á
heimasíðu fjölmiðlanefndarinnar,“
segir Elfa Ýr Gylfadóttir, nýráðinn
framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar
samkvæmt nýjum lögum um fjöl-
miðla. Hún segir að miklu að huga.
Fjölmiðlanefnd er sjálfstæð
stjórnsýslunefnd sem heyrir undir
menntamálaráðherra og á að annast
eftirlit á því sviði sem lögin ná til.
Hlutverk nefndarinnar er að efla
fjölmiðlalæsi, fjölbreytni og fjölræði
í fjölmiðlun, standa vörð um tjáning-
arfrelsi og rétt almennings til upp-
lýsinga. „Nefndin hóf störf 1. sept-
ember og það er að gríðarlegu
mörgu að huga. Brýnast er að skila
ákveðnum upplýsingum miðað við
þær dagsetningar sem eru í lög-
unum með þær takmörkuðu auð-
lindir sem við höfum,“segir Elfa. Í
lögunum stendur að nefndin hafi sex
mánuði til þess að skila upplýsing-
um um skráningu og eignarhald frá
gildistöku laganna. „Það er verið að
kortleggja verkefnin eins og er en
nefndin hefur heimild til þess að
forgangsraða málum,“ segir Elfa.
Ákvarðanir endanlegar
Samkvæmt 8. gr. laganna verður
ákvörðunum fjölmiðlanefndar ekki
skotið til annarra stjórnvalda.
Meðal þeirra verkefna sem nefnd-
inni eru falin er að fylgjast með
stöðu og þróun á fjölmiðlamarkaði,
eftirlit með skráningarskyldu og
veitingu leyfa til hljóð- og mynd-
miðlunar sem og að tryggja að lög-
boðnar upplýsingar um allar fjöl-
miðlaveitur séu fyrir hendi.
Nefndinni er einnig heimilt að ráða
starfsmenn til þess að annast dag-
lega framkvæmd laganna og stjórna
þeim verkefnum sem nefndinni eru
falin samkvæmt lögunum.
„Með mínum fyrstu störfum sem
framkvæmdastjóri eru öll þessi
praktísku mál eins og húsnæði,
tölvubúnaður og ýmisleg tæknileg
atriði,“ segir Elfa.
Segir hún að nefndin þurfi að
fylgja þeim fjárveitingum og fjár-
lagaramma sem hafi verið settur
fyrir næsta ár og ekki hafi verið
teknar ákvarðanir um ráðningu
fleiri starfsmanna enda sé verið að
kortleggja hvernig rekstrinum verði
háttað.
„Við erum að vinna rekstraráætl-
unina og til að það sé hægt þurfum
við að vita hver rekstrarkostnaður
verður fyrir næsta ár.“
Upplýsingaöflun í fullum gangi
Fjölmiðlanefnd vinnur að brýnustu
verkefnunum samkvæmt lögunum
Morgunblaðið/Golli
Fjölmiðlar Fjölmiðlanefnd heyrir undir menntamálaráðherra en henni er
ætlað að standa vörð um tjáningarfrelsið og rétt almennings til upplýsinga.
„Hún fór nú þannig að það var út-
kall á föstudagskvöldið, fyrsta dag-
inn, og svo var útkall í gær [laug-
ardag] en í þann mund sem
björgunarsveitir lögðu af stað
komu mennirnir fram,“ segir Jónas
Guðmundsson hjá Slysavarnafélag-
inu Landsbjörg, spurður hvernig til
hafi tekist með fyrstu rjúpnaveiði-
helgi ársins. Í ár er heimilt að veiða
rjúpu í alls níu daga og segir Jónas
það fyrirkomulag valda sér dá-
lítlum áhyggjum. „Af því að þetta
eru bara níu ákveðnir dagar höfum
við áhyggjur af því að fólk sé að fara
af stað þó að veðurspáin sé ekki upp
á það besta.“ Segir hann mikilvægt
að fólk fari með gát og láti stjórnast
af skynsemi fremur en veiðieðli.
Á upphafsdegi veiðitímabilsins
þurftu björgunarsveitir að aðstoða
tvær rjúpnaskyttur í vanda við
Vikravatn en að sögn voru þeir villtir
þrátt fyrir að hafa undir höndum
gps-staðsetningartæki. „Þeir voru
með gps-tæki en kunnu ekki að nota
það […] þá gagnast það lítið,“ segir
Jónas. Daginn eftir, laugardag,
barst björgunarsveitum hjálpar-
beiðni frá skyttum á Austurlandi en
þær komu fljótt fram. Vert er að
benda fólki á heimasíðuna safe-
travel.is en þar geta veiðimenn, sem
og aðrir ferðamenn, skilið eftir
ferðaáætlun sína sér að kostnaðar-
lausu. khj@mbl.is
Látum ekki veiði-
eðlið ráða för
Fyrirkomulag veldur áhyggjum