Morgunblaðið - 31.10.2011, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2011
H
a
u
ku
r
0
9
b
.1
1
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Haukur Halldórsson hdl.
haukur@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
lögg. verðbr.- og fasteignasali,
brynhildur@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Jens Ingólfsson
rekstrarhagfræðingur,
jens@kontakt.is
Sigurður A.
Þóroddsson hrl.
sigurdur@kontakt.is
Forgangslisti er nýjung fyrir kaupendur og fjárfesta.
Skráning á www.kontakt.is
• Skráðu þig á forgangslista og við sendum þér reglulega upplýsingar í
tölvupósti um tækifæri sem við getum ekki sett í auglýsingar.
Upplýsingar og skráning á www.kontakt.is.
• Fjárfestir leitar að góðum sölustjórameðeiganda til að kaupa með sér gott
innflutnings- og framleiðslufyrirtæki sem tengist byggingariðnaði og hefur
gengið vel í kreppunni. Viðkomandi verður að vera duglegur og heiðarlegur
með góða samkiptahæfni og vera vanur sölustörfum á þessu sviði.
• Sérhæfð ferðaskrifstofa sem hefur verið í miklum vexti á undanförnum árum
óskar eftir framkvæmdastjóra og meðeiganda sem myndi eignast fyrirtækið
allt þegar núverandi eigandi hættir vegna aldurs. Nýr framkvæmdastjóri
þarf að hafa gott fjármálavit og skipulagshæfileika til að halda utan um
fyrirsjáanlega stækkun fyrirtækisins.
• Sérverslun í miðbænum með langa og góða rekstrarsögu. Ársvelta 100 mkr.
• Framleiðslufyrirtæki með eigin verslanir. Með yfir 50% markaðshlutdeild og
góða vaxtamöguleika. Ársvelta 400 mkr. Góð framlegð.
• Rótgróið og vel þekkt gólfefnafyrirtæki. Ársvelta 200 mkr. Góð afkoma og
hagkvæmur lager.
• Stórt hvalaskoðunarfyrirtæki í Reykjavík með glæsilegan bát. Mikill vöxtur
milli ára og hægt að gera enn betur.
• Rótgróið gistihús í miðbænum. 50 herbergi. Mjög góð afkoma.
NÝIR MATREIÐSLUÞÆTTIR
Í MBL SJÓNVARPI!
MATUR FYRIR FJÓRA
UNDIR 2.000 KR.
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Landsfundur Vinstri hreyfingarinnar – græns fram-
boðs samþykkti í gær ályktun þess efnis að ekki yrði
farið í frekari niðurskurð í heilbrigðiskerfinu en ráð er
fyrir gert í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2012. Stein-
grímur J. Sigfússon, formaður flokksins og fjár-
málaráðherra, og Árni Þór Sigurðsson alþingismaður
komu í veg fyrir að fjárlagafrumvarpið yrði sett í upp-
nám.
Fyrir fundinum lá ályktun sem margir vildu túlka
þannig að lagst yrði gegn því að skorið yrði niður um
1,5% til heilbrigðismála á næsta ári. Árni Þór sagði að
með samþykkt hennar færi fjárlagafrumvarpið upp í
loft og Steingrímur tók þannig til orða að aulalegt yrði
að mæta til þings með samþykkt sem gengi þvert gegn
fjárlagafrumvarpi, sem unnið hefði verið að síðan í jan-
úar.
Eftir að tillagan var tekin til atkvæðagreiðslu sett-
ist hópur manna niður til þess að komast að niðurstöðu
sem allir gætu sæst á, en það tókst ekki og lagðar voru
fram tvær breytingartillögur. Steingrímur, Árni Þór og
fleiri – alls 88 landsfundarfulltrúar – greiddu atkvæði
með tillögu sem ekki gat talist í andstöðu við frumvarp
til fjárlaga, en alls studdu 40, þar á meðal ráðherrarnir
Ögmundur Jónasson og Jón Bjarnason, hina ályktunina
og vildu bersýnilega láta gott heita í niðurskurði; að
hætt yrði við 1,5% niðurskurð á næsta ári sem gert er
ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu. Guðfríður Lilja Grét-
arsdóttir alþingismaður var sama sinnis og þeir Ög-
mundur og Jón. Álfheiður Ingadóttir alþingismaður
sagði þingmenn flokksins ekki geta hlaupið frá frum-
varpi til fjárlaga en vissulega ættu þeir að reyna að
milda niðurskurð frá því sem þar væri lagt til.
Samþykkt var á landsfundinum á Akureyri í gær,
með þorra atkvæða, ályktun þar sem ítrekað er að
hagsmunum Íslands sé best borgið utan ESB. Hana
sömdu Ragnar Arnalds, Hjörleifur Guttormsson, Árni
Þór Sigurðsson og Guðrún Þórsdóttir og þar var m.a.
bent á „þá miklu skerðingu lýðræðis sem felst í ESB-
aðild ásamt fullveldisafsali á fjölmörgum sviðum. Þróun
innan ESB að undanförnu, nú síðast vegna átaka um
framtíð evru-samstarfsins, stefnir í átt að enn frekari
samruna með hertri miðstýringu. Með Lissabon-
sáttmálanum er einnig kominn vísir að samstarfi um
utanríkis- og hernaðarmálefni. Jafnframt eiga félagsleg
sjónarmið, umhverfisvernd, fæðu- og matvælaöryggi og
réttindi launafólks undir högg að sækja innan sam-
bandsins. Þá mun VG tryggja að íslenskt stjórnkerfi
verði ekki aðlagað stjórnkerfi ESB á meðan á aðild-
arviðræðum stendur“. Í ályktunni sagði einnig: „Lands-
fundurinn telur það vera eitt af forgangsverkefnum
VG, flokkseininga og þingflokks, að herða róðurinn við
að upplýsa þjóðina um eðli og afleiðingar ESB-aðildar.“
Óttuðust að frumvarp til
fjárlaga færi í uppnám
Aulalegt að álykta gegn fjárlagafrumvarpi Forgangs-
verkefni að upplýsa um eðli og afleiðingar ESB-aðildar
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Samþykkt var ályktun þar sem fagnað er tillögu sem
liggur fyrir Alþingi um að fram fari þjóðaratkvæða-
greiðsla um aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu.
Málefnahópur mildaði orðalag tillögu sem lögð var fyr-
ir landsfundinn, en þar var áréttuð krafa um að Ísland
segði sig úr „hernaðarbandalaginu Nató“ en nafni
ályktunarinnar var reyndar breytt úr „Ályktun um
Nató“ í „Ísland úr Nató“.
Þá var ályktun, þar sem lagst var gegn því að heim-
ila staðgöngumæðrun hér á landi, hvort sem er í hagn-
aðarskyni eða velgjörðarskyni, vísað til þingflokks til
frekari umræðu. Mjótt var á munum;
72 samþykktu að
vísa málinu til
þingflokks en
65 vildu taka
ályktunina til
afgreiðslu á
þinginu.
Þjóðin fái að kjósa
ÍSLAND ÚR NATÓ
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Aðfaranótt sunnudagsins voru þrír
unglingar handteknir á Stuðlum,
sem er meðferðarstöð ríkisins fyrir
unglinga, og færðir í fangageymslur.
Er þetta í annað skiptið á stuttum
tíma sem slík uppákoma verður í
meðferðarstofnun af þessu tagi. Í
síðustu viku struku nokkrir ungling-
ar af meðferðarheimilinu Háholti í
Skagafirði. Einn þeirra var einmitt
fluttur á Stuðla um helgina og tók
hann þátt í flóttatilrauninni sem
gerð var núna á laugardagskvöldið.
Starfsmenn reyndu að stöðva flótt-
ann en þá tóku unglingarnir sundur
sófa sem er á deildinni og bjuggu sér
til vopn úr honum. Starfsmennirnir
náðu þá að læsa hluta deildarinnar
af og hringja á aðstoð frá lögreglu.
Enda hafa starfsmennirnir engar
heimildir til að beita líkamlegu afli
nema til að verja líf og limi.
Að sögn Sólveigar Ásgríms-
dóttur, forstöðumanns Stuðla, hafði
hún heyrt í sínu fólki og að enginn
væri slasaður. En hún sagði álagið
mikið á heimilunum enda hefði þeim
verið fækkað mikið undanfarin ár.
„Mér finnst starfsfólkið bæði
norður í Skagafirði og núna á Stuðl-
um hafa staðið sig afskaplega vel,“
sagði Bragi Guðbrandsson, for-
stöðumaður Barnaverndarstofu,
þegar talað var við hann. Hann
þakkaði lögreglunni líka fyrir skjót
viðbrögð.
Þrír unglingar handteknir á
Stuðlum aðfaranótt sunnudags
Önnur strokutilraunin á nokkrum dögum
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
Hugað að framtíðinni Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra gefur ungum syni sínum, Ármanni Áka Gunn-
arssyni, brjóst á landsfundinum í gær. Til hægri er Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir úr Hafnarfirði.