Morgunblaðið - 31.10.2011, Qupperneq 12
Verklok Þegar Suðurstrandarvegi lýkur bíður ekki annað stórverkefni.
Suðurstrandarvegur, milli Grinda-
víkur og Þorlákshafnar, er nánast
tilbúinn, tæplega ári á undan áætl-
un. Á föstudag lagði Suðurverk
bundið slitlag á síðasta kaflann
sem þeir áttu eftir og eiga þeir nú
bara eftir að snurfusa vinnusvæð-
ið. KNH-verktakar voru líka við
það að klára sinn hluta á föstudag.
Kaflinn sem Suðurverk leggur
er 14,6 km langur og liggur frá Ís-
ólfsskála í vestri að Krýsuvík-
urvegi í austri. Samkvæmt áætlun
Vegagerðarinnar átti verkinu að
vera lokið 15. september 2012.
Að sögn Gísla Eysteinssonar,
verkstjóra og vélamanns hjá Suð-
urverki, hófst jarðvinna á svæðinu
eftir áramót en síðan hafi fyrir-
tækið unnið ötullega að vegagerð-
inni. „Þetta er
bara þróttmikið
fyrirtæki með
góð tæki og góð-
an mannskap,“
segir Gísli.
Auk þess að
leggja Suður-
strandarveg lag-
færði Suðurverk
malarveginn nið-
ur að Krýsuvíkurbjargi með sam-
komulagi við Vegagerðina og
Hafnarfjarðarbæ.
Þegar ekið var þarna um á
föstudag hafði Óskar Sævarsson,
landvörður í Reykjanesfólkvangi,
á orði að frágangur við veginn
væri allur til fyrirmyndar, raunar
einstaklega snyrtilegur. Gísli tók
þessu hrósi auðvitað vel. „Menn
vilja ekki gera sömu verkin nema
einu sinni,“ sagði hann. Þegar
mest var unnu 27 við verkið af
hálfu Suðurverks en oft voru
þarna 15-20 karlar.
Þótt menn geti verið ánægðir
með vel unnið verk er hætt við að
sumir beri blendnar tilfinningar í
brjósti. Verkefnastaða Suðurverks
er nefnilega slæm, ekkert stór-
verkefni í hendi og aðeins reyt-
ingur hér og þar, að sögn Dofra
Eysteinssonar, eiganda Suð-
urverks og bróður Gísla. Nokkrir
menn hafi hætt hjá fyrirtækinu
um mánaðamótin.
Eymdarástand
En þarf að segja upp fleirum?
„Það á eftir að reyna á það. Ef
ekkert kemur í leitirnar verðum
við að skoða málin upp á nýtt,“
sagði Dofri. Þessi mál þurfi að
meta í hverjum mánuði. „Þetta er
eymdarástand.“
Gísli Eysteinsson
Suðurstrandarvegur er nánast tilbúinn
Vinsæll Farið er með ferðamenn í skipulagðar ferðir í Leiðarenda. Fara
verður varlega og gæta þess að skemma ekkert og vera með hjálm og ljós.
BAKSVIÐ
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Undanfarin þrjú ár hefur umferð
ferðamanna um Reykjanesfólkvang
aukist stórum, að sögn Óskars Sæv-
arssonar, landvarðar og stjórnar-
manns í fólkvanginum. Grípa þurfi
til ráðstafana til að verja náttúru-
perlur fyrir ágangi og vinna við það
sé þegar hafin.
Sérstaklega hafi erlendum ferða-
mönnum sem heimsækja svæðið að
vetri til fjölgað. Með opnun Suður-
strandarvegar og fleiri vegabótum
sem eru á döfinni muni svæðið opn-
ast fyrir enn fleirum.
Óskar bendir á að flest sambæri-
leg svæði á landinu, þ.e. hálendið og
þjóðgarðar, séu lokuð að meira eða
minna leyti að vetri til. Reykjanes-
skaginn sé snjóléttur og þar að auki
skammt frá höfuðborgarsvæðinu.
Þetta skipti ekki síst máli yfir dimm-
ustu vetrarmánuðina. Hægt sé að
fara í 2-3 tíma rútuferð á Reykjanes-
skagann og á þeim tíma t.d. sýna
ferðamönnum hellinn Leiðarenda
við Bláfjallaveg, hverasvæðið í Selt-
úni í Krýsuvík og Krýsuvíkurbjarg.
„Hellir, hverasvæði og sjávarbjarg,
allt í sömu ferðinni,“ segir Óskar.
Þetta sé formúla sem mörg ferða-
þjónustufyrirtæki nýti sér.
Óskar segir ljóst að álagið á ferða-
mannastaði muni aukast og því beri
að fagna. Á hinn bóginn sé ljóst að
margir fjölsóttir staðir á Reykjanes-
skaganum þoli ekki alla þessa um-
ferð við núverandi aðstæður.
Vetrarumferðin er slítandi enda
er landið viðkvæmara að vetri en
sumri. Óskar segir að nú þegar sé
farið að sjá á mosabreiðum í grennd
við Keili, Lambafell og í Sogunum.
Þarna þurfi að grípa til aðgerða og
um þær sé fjallað í stjórnunaráætlun
fyrir fólkvanginn sem nú er unnið
að.
Sums staðar eru málin komin í
gott lag, m.a. við hverasvæðið í Selt-
úni í Krýsuvík og aðeins er rúmlega
vika síðan stórátak var gert til að
verja mosavaxið hraunið í kringum
hellinn Leiðarenda. Þar höfðu
myndast margir stígar í gegnum
hraunið en Umhverfisstofnun og
sjálfboðaliðasamtökin SEEDS lögðu
þangað stíg og girtu hraunið af. Um-
ferðinni er stýrt og mosinn varinn.
Rétta leiðin að Leiðarenda
Mun fleiri heimsækja nú Reykjanesfólkvang að vetri til Verja þarf náttúruperlur
Morgunblaðið/RAX
Rétta leiðin Umhverfi Leiðarenda var farið að láta á sjá. Með átaki Reykjanesfólkvangs, Umhverfisstofnunar og sjálfboðaliðasamtakanna SEEDS var stígur lagður að hellinum. Þannig verður
hrauninu hlíft. Vatnsskarðsnámur gáfu efnið sem var notað. Hafin er tilraun með að græða mosa þar sem hann hafði verið traðkaður niður.
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2011
Landvörður Óskar Sævarsson.
Við lagfæringarnar nú í haust
ók Suðurverk um 700-800 rúm-
metrum í veginn niður að Krýsu-
víkurbjargi. Þangað er nú fólks-
bílafært en svo hefur ekki verið
í um fimm ár. Leiðin niður að
bjarginu hefur líka styst enda
liggur Suðurstrandarvegur
sunnar en gamla leiðin. Óskar
Sævarsson landvörður hvetur
alla sem fara að bjarginu til að
fara varlega við bjargbrúnina.
Töluvert hafi hrunið úr því, m.a.
í tengslum við jarðhræringar.
Fari varlega á
brúninni
KRÝSUVÍKURBJARG