Morgunblaðið - 31.10.2011, Page 16
BAKSVIÐ
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Þ
að er samstarfshópur sem
skipaður var af innanrík-
isráðherra sem leggur til
lausnir á þessu máli,“
segir Ólafur William
Hand, upplýsingafulltrúi Eimskipa-
félags Íslands, en aðilar að þeim hópi
er nú vinnur að málefnum siglinga
milli lands og Eyja eru Vegagerðin,
Vestmannaeyjabær og rekstraraðilar
Herjólfs.
Að beiðni Vegagerðarinnar hef-
ur Eimskip að undanförnu leitað að
ferjum sem kynnu að leysa Herjólf af
og henta betur við þær aðstæður sem
ríkja í Landeyjahöfn. Sendi Eimskip
nýverið frá sér tilkynningu um málið
þar sem m.a. annars kemur fram að
reynsla af siglingum Herjólfs til
Landeyjahafnar hafi sýnt að skipið sé
of djúprist og eigi í erfiðleikum með
bæði sterka strauma og öldur. Er
jafnframt bent á að Herjólfur taki á
sig of mikinn vind og því hafi hann
ekki nægilega góða stjórnhæfni við
vissar aðstæður. Til að bæta gráu of-
an á svart munu svo nýjar reglur
varðandi ferjusiglingar taka gildi árið
2015 en fyrirséð er að Herjólfur mun
ekki uppfylla þær reglur.
Ferja aðlöguð aðstæðum
Að sögn Eimskips er fátt um fína
drætti þegar kemur að því að finna
staðgengil sem henti vel við siglingar
til og frá Landeyjahöfn. Hefur skipa-
félagið því brugðið á það ráð að frum-
hanna nýja ferju sem aðlöguð hefur
verið aðstæðum í Landeyjahöfn. „Það
er búið að leita um allan heim að skip-
um og það eru tvö skip sem menn
hafa fundið sem henta til þessara sigl-
inga,“ segir Ólafur William en bætir
við að þau skip liggi ekki á lausu og
því hafi Eimskipafélagið lagt fram til-
lögu að nýju skipi. „Við fengum
skipaverkfræðing til að rissa upp
grófa hugmynd að því hvernig svona
skip gæti litið út og hvaða tækjum og
tólum það þyrfti að vera búið,“ segir
Ólafur William en ítrekar að málið sé
á algerum byrjunarreit og samþykki
liggi ekki fyrir að svo stöddu. „Ég
held að öllum sé það ljóst að það þarf
nýja ferju,“ segir Ólafur William og
bætir við að óvissa í samgöngumálum
hljóti að vera þreytandi fyrir íbúa
Vestmannaeyja.
Baldur gæti hlaupið í skarðið
Notast hefur verið við Breiða-
fjarðarferjuna Baldur til siglinga
milli lands og Eyja þegar Herjólfur
hefur þurft að fara í slipp. Að sögn
Péturs Ágústssonar, framkvæmda-
stjóra Sæferða, hafa verið uppi þreif-
ingar á milli forráðamanna Sæferða
og Vegagerðarinnar þess efnis að
Baldur fáist til siglinga í Eyjum. Pét-
ur segir að sá möguleiki sé fyrir hendi
að Baldur taki að sér þessar siglingar
en til að slíkt verði þarf að tryggja
áframhaldandi siglingar á núverandi
leið Baldurs. „Við getum ekki sent
Baldur í Vestmannaeyjasiglingar
nema hafa eitthvað annað,“ segir Pét-
ur og bendir á að sögusagnir þess eðl-
is að lítil og vanbúin ferja kynni að
koma í stað Baldurs á siglingum um
Breiðafjörð, séu alrangar. Segir hann
það ljóst að ekki verði af hugmynd
Sæferða nema til komi fullkomlega
sambærileg ferja í stað Baldurs. Að
sögn Péturs hefur verið kannað hvort
til væri ferja á lausu sem sinnt gæti
siglingaleið yfir Breiðafjörðinn á full-
nægjandi hátt. Í ljós kom að slíka
ferju er að finna í Noregi en hún mun
að sögn vera fyllilega sambærileg
Baldri.
„Ef menn eru á þeirri skoðun að
það henti að fara eftir okkar leiðum,
þá erum við tilbúnir að skoða það
áfram,“ segir Pétur.
Morgunblaðið/RAX
Herjólfur Siglingar Herjólfs til og frá Landeyjahöfn hafa verið töluvert
færri en gert var ráð fyrir í upphafi. Hugsanlegt er að ný ferja taki við.
Ný ferja kann að taka
við siglingum til Eyja
Nýja ferjan
» Svo virðist sem Herjólfur
henti ekki sem skyldi til siglinga
í Landeyjahöfn og því hefur
frumhönnun nýrrar ferju farið
fram.
» Samkvæmt tilkynningu
Eimskips tekur hönnun ferj-
unnar mið af bæði fjölda farþega
og bíla ásamt því að afgreiðsla
skips í höfnum gangi hratt fyrir
sig.
» Yfir vetrartímann er reikn-
að með að ferjan geti flutt allt að
78 fólksbíla ásamt 400 farþeg-
um. Á sumrin er unnt að auka
farþegafjölda upp í 475 manns.
» Ný ferja kann að vera um-
hverfisvænni kostur en eldra
skip þar sem lagt er upp með að
hún verði hagkvæm í rekstri og
umhverfisvæn í notkun.
»Kostnaðaráætlun ferjunnar
hljóðar upp á tæplega fjóra millj-
arða króna.
» Afhending ferjunar kann að
fara fram 18-24 mánuðum eftir
að ákvörðun um smíð hennar
hefur verið tekin.
16
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2011
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Síðustu sjö ár-in hafafimm ráðu-
neyti setið á Ís-
landi. Ráðuneyti
Halldórs Ásgríms-
sonar 15. sept-
ember 2004 til 15.
júní 2006. Fyrra
ráðuneyti Geirs H. Haarde 15.
júní 2006 til 24. maí 2007. Síð-
ara ráðuneyti Geirs frá 24.
maí 2007 til 1. febrúar 2009.
Fyrra ráðuneyti Jóhönnu
Sigurðardóttur frá 1. febrúar
2009 til 10. maí 2009 en hið
síðara hefur setið frá 10. maí
2009.
Þetta er rifjað upp vegna
eftirtektarverðrar yfirlýs-
ingar Steingríms J. Sigfús-
sonar á andstreymislands-
fundi flokksins hans í Hofi á
Akureyri. Þegar Steingrímur
hafði lokið við að hrúga lofi á
sjálfan sig, sem ekki var óeðli-
legt í ljósi þess skorts sem var
á slíku frá öðrum fundar-
mönnum, sneri hann við
blaðinu og tók að barma sér.
Leiddi hann þá fram ástæður
þess að hið sífellda og sann-
gjarna sjálfshól hans næði
ekki í gegn til almennings.
Ástæðan væri sú hve auðvelt
væri að „gera allt tor-
tryggilegt“. Hann bætti við:
„Það er svo auðvelt að jafnvel
afdankaðir ráðherrar úr
hrunstjórninni, sem enn spora
gólfið með eigin skítugu
skóm, ganga nú fram sem
hvítskúraðir, vængjaðir engl-
ar og bera rakalausar ávirð-
ingar upp á aðra.“
Í umræðunni er það stjórn-
in sem sat í landinu 24. maí
2007 til 1. febrúar 2009 sem í
daglegu tali er kölluð „hrun-
stjórnin“. Nafngiftin er svo
sem ekki endilega sanngjörn
en það er svo auðvelt að gera
hana tortryggilega, svo notað
sé orðalag Steingríms, því
hún hafði jú setið í
um það bil eitt og
hálft ár þegar
hrunið varð og
hafði beinlínis á
stefnuskrá sinni
að auka veg og
styrk útrás-
arinnar á kjör-
tímabili sínu.
En við hvaða skúrka á
Steingrímur? Það er dálítið
erfitt að átta sig á því með
hliðsjón af flókinni myndlík-
ingu hans, því „vængjaðir
englar“ á „skítugum skóm“
eru fágæt fyrirbæri og myndu
varla spora gólf nema þeim
væri illa farið að fatast flugið
vegna veikinda í „hvítskúr-
uðum“ vængjunum.
Í „hrunstjórninni“ sátu þau
Jóhanna Sigurðardóttir og
Össur Skarphéðinsson ásamt
Kristjáni Möller og Björgvini
Sigurðssyni og fleirum. Þeir
síðastnefndu eru komnir í sér-
stakan skammarkrók stjórn-
arliðsins en ekki er útilokað
og jafnvel líklegt að hin fyrri
séu enn að spora hin hvít-
skúrðu gólf hins sómakæra og
ósvikula Steingríms. Hvað
segir hinn vængjaði valur,
samviska hans, getur hann
skýrt málið fyrir almenningi?
Og þá í leiðinni hvers vegna
Steingrímur formaður hans er
með þessi óljósu skot á þau
Jóhönnu og Össur úr laun-
sátri Hofs?
Vissulega kann hin heilaga
Jóhanna enn að hafa vængi
þótt þeir hafi ekki lengi sést.
En er ekki líklegra að Össur
hafi sporð? Og ef svo er stend-
ur einhver á honum? Ef val-
urinn gæti slitið sig í augna-
blik frá eltingaleiknum við
„forsetaræfilinn“ gæti hann
kanski komið óljósum orðum
foringjans á hreint. Þetta
gerði Konni oft fyrir Baldur,
svo fordæmið er fyrir hendi.
Hofmenn VG vissu
ekki hvað verða vildi
er vængjaðir englar
á skítugum skóm
svifu um sali
samkomunnar}
Er Össur Albanía?
Könnun Hag-stofunnar á
fjárhagsstöðu
heimilanna sýnir
að rúmur helm-
ingur þeirra á erf-
itt með að ná end-
um saman. Þetta hlutfall
hefur farið hratt vaxandi í tíð
núverandi ríkisstjórnar þó að
það verði ekki lesið út úr ný-
legum landsfundarræðum
formanna stjórnarflokkanna.
Þær ræður eiga sér raunar
litla stoð í veruleikanum og
formennirnir hafa ekki getað
horfst í augu við eigin ábyrgð
á efnahag landsins þrátt fyrir
langa stjórn-
arsetu.
Allir aðrir sjá
hve óeðlilegt
ástandið er þegar
atvinnuleysi er
hátt en rík-
isstjórnin vinnur gegn at-
vinnuuppbyggingu og fjár-
festingu í atvinnulífinu. Þegar
við bætast ört hækkandi
skattar er ekki von á góðu um
fjárhagsstöðu heimilanna.
Hættan fyrir heimilin er sú
að ríkisstjórnin sitji áfram og
enn fleiri heimili lendi í þeirri
stöðu að rekast á nær ókleifan
vegg um hver mánaðamót.
Leiðtogar stjórnar-
flokkanna neita að
axla ábyrgð á stöðu
heimilanna}
Fjárhagsstaða heimilanna Þ
að ber mikið á því þessa dagana að
forystumenn stjórnarflokkanna
gagnrýni fjölmiðla og stjórnarand-
stöðu fyrir að ekki gæti nógu mik-
illar bjartsýni í þeirra tali. Rök-
semdin er sú að svartsýni og niðurrifstal dýpki
kreppuna; vandann í efnahagslífinu megi fyrst
og fremst rekja til bölsýni þjóðarinnar.
Því miður er þetta bæði ósanngjörn og óeðli-
leg krafa.
Í fyrsta lagi er það ekki ríkisstjórnarinnar
að stýra orðræðunni í fjölmiðlum, hvað þá mál-
flutningi stjórnarandstöðu. Um það er rík-
isstjórnin ekki dómbær af augljósum ástæðum.
Og dæmi um slíka tilburði valdhafanna þekkj-
ast frá löndum sem við höfum hingað til kosið
að miða okkur ekki við.
Í öðru lagi er það einmitt skylda fjölmiðla og stjórnar-
andstöðu að vera gagnrýnin á verk ríkisstjórnarinnar.
Skemmst er að minnast umræðunnar um aðdraganda
bankahrunsins, þar sem fjölmiðlum og stjórnmálamönn-
um var legið á hálsi fyrir að hafa ekki verið nógu gagn-
rýnin á skapandi bókhald bankanna.
Í þriðja lagi má velta fyrir sér hvað verið er að biðja
um – eiga fjölmiðlar og stjórnarandstaða að þegja um
það sem þeim finnst gagnrýnisvert? Á að leggja upp með
það á ritstjórnarfundum á morgnana að „halda sig á já-
kvæðu nótunum í dag“? Taka léttan snúning á atvinnu-
leysinu og djassa síðan upp fjárlagahallann?
Ef fjölmiðlar gerðu slíkt samsæri gegn almenningi, þá
myndi það dæma sig sjálft. Holhljómur væri í slíkri um-
fjöllun, hún græfi enn frekar undan trúverð-
ugleika fjölmiðla og slíkur blekkingarleikur
gengi aldrei til lengdar. Á tímum netsins má
líka vonandi gera ráð fyrir að upplýsingarnar
myndu rata til sinna eftir öðrum leiðum.
Hvernig sem á það er litið, þá gengur gagn-
rýnin ekki upp.
En slíkar raddir hafa heyrst áður, til dæmis í
aðdraganda bankahrunsins. Bankastarfsemi
byggist umfram annað á traustu orðspori. Nei-
kvæð umfjöllun um lausafjárkrísu bankanna
gróf undan því orðspori og á endanum var það
aðeins tímaspursmál hvenær það ylli banka-
áhlaupi. Þess vegna áttu ekki bara fjölmiðlar
og stjórnmálamenn erfitt með að fjalla um
stöðu bankanna, heldur einnig stofnanir sem
höfðu eftirlit með höndum, bæði hér á landi og í
Bretlandi og Hollandi, eins og komið hefur fram.
Engu að síður voru fluttar fréttir af blikum á lofti í
starfsemi bankanna og Morgunblaðið gekk lengra en
aðrir fjölmiðlar í þeim efnum, sótti meðal annars grein-
ingarskýrslur erlendra banka þar sem varað var við
hættunni sem steðjaði að íslenska bankakerfinu. Styrmir
Gunnarsson fyrrverandi ritstjóri, hefur lýst því að sendi-
nefndir voru gerðar út af bönkunum, sem kölluðu eftir
brottvikningu hans vegna þessa fréttaflutnings. Þá var
krafan sú sama á fjölmiðla og stjórnmálamenn – að þeir
áttu að halda sig við jákvæðu hliðarnar á tilverunni.
Það er sjálfsagt að gera kröfu um málefnalega umfjöll-
un, en orðræðan verður að vera gagnrýnin – hvort sem
valdhöfum líkar betur eða verr. pebl@mbl.is
Pistill
Af bjartsýni og bölsýni
Pétur
Blöndal
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon