Morgunblaðið - 31.10.2011, Blaðsíða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2011
Hergé, sem ólst upp í Brussel,
sagði sjálfur svo frá að borg-
arhverfi æsku hans hefði verið
hrikalega grátt og leiðinlegt.
Hann hefði snemma farið að
leika sér með liti til að lífga upp á
tilveruna. Fyrsta útgáfa hans af
Tinna var samt svart-hvít og
birtist hún fyrst árið 1929 í dag-
blaðinu Le Petit Vingtième. Per-
sónan var byggð á fyrri hetju
sem hann hafði teiknað og var
skáti sem hét Totor og á sjálfum
bróður Hergés, Paul Remi, sem
var ofursti í hernum og ferðaðist
mikið. Sjálfur var Hergé sófa-
túristi og ferðaðist aðallega með
lestri bóka og dagblaða. Tinni er
hreinlyndur piltur á óræðum
aldri; í sjálfu sér frekar litlaus, en
óhemju forvitinn og fylginn sér.
Hann hefur heillað milljónir les-
enda um allan
heim, en það er
ekki síst fyrir til-
stilli vina hans í
bókunum sem
eru ólíkt litríkari og
margbrotnari.
Hreinlyndið
HERGÉ OG TINNIKVIKMYNDIR
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Steven Spielberg er kominn aftur
með bíómynd sinni um Tinna og
Kolbein kaftein. Þessi afbragðsleik-
stjóri hefur eiginlega ekki gert góða
mynd síðan Catch Me If You Can
kom út árið 2002.
Þegar Spielberg gerði fyrstu
myndina um Indiana Jones, Raiders
of the Lost Ark, kom gagnrýni um
hana á frönsku þar sem hún var
sögð byggð á ævintýrum Tinna eða
væri óður til hans. Spielberg hafði
þá aldrei heyrt á þessa hetju minnst
svo hann varð sér úti um eintök af
bókum um hann en á þeim tíma voru
þær ekki einu sinni til á ensku í
Bandaríkjunum. Hann skoðaði bæk-
urnar á frönsku og féll fyrir þeim.
Hann langaði strax til að gera mynd
um Tinna og ætlaði sér fyrst að gera
leikna mynd, þar sem Jack Nichol-
son myndi leika Kolbein kaftein.
Hann kom sér í samband við höfund
Tinna-bókanna, Hergé, sem sagðist
aðdáandi mynda Spielbergs og þeir
ákváðu að hittast á fundi. En nokkr-
um vikum seinna lést Hergé. En
Spielberg fékk réttinn og vann lengi
í handritinu, en hann var ekki nógu
ánægður með það og lagði það til
hliðar um tíma. Það var síðan ekki
fyrr en árið 2001 að hann fór aftur
að vinna í því. Hann vildi óður fá
Peter Jackson í verkefnið enda seg-
ist hann vera mikill aðdáandi hans.
Hann hefur sagt frá því að í fyrsta
skiptið sem hann hitti Jackson hafi
það verið fyrir framan 800 milljón
áhorfendur, þar sem hann stóð uppi
á sviði, opnaði umslag og las upp:
„… og Óskarsverðlaunin í ár hlýtur
Peter Jackson fyrir Lord of the
Rings!“ Jackson reyndist síðan
heldur betur áhugasamur um að
framleiða fyrstu bíómyndina og leik-
stýra sjálfur þeirri næstu. Þeir
funduðu daglega við gerð mynd-
arinnar og segir Spielberg að sam-
starfið hafi verið yndislegt. „Þetta
var bræðralag,“ lét hann hafa eftir
sér um samstarfið. Að sögn Spiel-
bergs fannst honum ekki spurning
að þetta væri áhættunnar virði en
hann hefur sjálfur sett 15 milljarða í
gerð þessarar myndar. „Þetta er
frábær teiknimyndahetja. Bæk-
urnar um hann hafa selst í millj-
ónum eintaka út um allan heim en
myndirnar sem hafa verið gerðar
um hann hafa verið lélegar. Það er
kominn tími til að breyta því,“ lét
hann hafa eftir sér í viðtali við Mail
Online.
Fyrst sýnd í Evrópu
Sena hefur dreifingarréttinn á
Tinna á Íslandi og var hún frumsýnd
hér á landi á föstudaginn við góðar
undirtektir. Aðspurður hvernig þeir
hafi tryggt sér réttinn segir Ísleifur
Þórhallsson hjá Senu að það hafi nú
gerst sjálfkrafa því þeir sýna allar
myndirnar sem Sony dreifir. Hann
segist sjálfur vera Tinnaaðdáandi og
fór með fimm ára syni sínum á
myndina. „Það var ekkert smá gam-
an að fara með son sinn á hana og
sjá hann upplifa þennan heim. Hann
hafði þvílíkt gaman af þessu þótt
hún væri á ensku. Mér hefur virst
foreldrarnir hafa gaman af að kynna
hetjurnar sínar fyrir krökkunum.
Tinnabækurnar eru líka byrjaðar
að koma aftur út og ég held að það
sé að byrja eitthvert æði. Ég held að
Forlagið sé búið að gefa út þrjár
bækur og fleiri eru á leiðinni. Gömlu
teiknimyndirnar eru komnar aftur
út á dvd og eru sýndar í sjónvarpinu
á morgnana.
Ég sá hana reyndar fyrst fyrir
nokkrum vikum. Dreifingaraðilum
víðsvegar að var þá boðið til Lund-
úna til að menn áttuðu sig á því hvað
hún væri öflug. Maður veit aldrei al-
veg með vöruna þótt það hafi komið
gott fólk að vinnslu hennar. Maður
var líka hikandi gagnvart tækninni,
því síðast þegar maður sá hana not-
aða var þetta ekki orðið nógu gott,
en núna er þetta orðið magnað.
Þetta er hrikalega gott handrit og
góðir leikarar þannig að maður var
voða glaður. Maður sá strax eftir að
hafa séð hana að þetta yrði risastórt
dæmi. Það er líka svo gaman að sjá
Spielberg kominn aftur í svona stuð,
hann er búinn að vera í svona öðru-
vísi myndum og nýjasta Indiana
Jones-myndin hans var nú ekki
hans besta. En núna er
hann kominn aftur í
ræturnar, farinn að
gera það sem hann
kann svo listavel. Gerir
svona skemmtilega mynd
fyrir mjög breiðan hóp.
Helgin lítur annars vel út hvað
varðar aðsókn. Þetta er eins stór
helgi og hugsast getur, hún var
frumsýnd í öllum bíóhúsum Reykja-
víkur nema Kringlunni, svo var hún
í Keflavík, á Akureyri og á Selfossi
og víðar úti á landi. Við hlökkum til
að heyra tölurnar. Það er búin að
vera mikil spenna fyrir þessari
mynd og maður hefur séð sam-
félagssíðurnar loga, fólk er svo
ánægt með þetta. Maður heyrir
aðdáendur Tinna anda léttar á fés-
bókinni, því margir þeirra voru
stressaðir yfir því hvernig yrði farið
með hetjurnar þeirra.
Þessi tækni sem þeir nota er tekin
á nýtt stig með þessari mynd. Rob-
ert Zemeckis var með þeim fyrstu
sem notuðust við þessa tækni, það
er gaurinn sem gerði Back to the
Future, Forrest Gump, Polar Ex-
press og fleiri myndir, en tæknin
var ekki orðin nógu góð þá. En núna
er kominn ótrúlega sterkur
raunveruleikablær á þetta allt sam-
an hjá Spielberg. Þeir eru með
hundrað kamerur á leikurunum og
360 gráðu sjónarhorn á alla á meðan
þeir eru að leika. Leikararnir eru
með skynjara sem pikka upp merki
60 sinnum á sekúndu.
Leikararnir gátu séð sjálfa sig á
meðan þeir léku, þetta var einhver
geðveikur þrívíddarheimur sem var
í gangi meðan á tökum stóð.
Það er annars mjög sérstakt að
hún skuli koma út í Evrópu á undan
Bandaríkjunum. Það er af því að
Tinni er miklu vinsælli utan Banda-
ríkjanna. Þeir eru að reyna að
byggja upp móment utan síns svæð-
is og ætla síðan að fara á þeirri
bylgju inn á bandaríska markaðinn
en venjulega er það á hinn veginn,“
segir Ísleifur.
Jin og Jang Tinni og Kolbeinn kafteinn eru eins og Jin og Jang, en án Kolbeins kafteins væru sögurnar um hinn hugprúða og hreinlynda Tinna lítils virði.
Belgíski blaðamaðurinn sigrar heiminn
Þeir eru ekki margir belgísku listamennirnir sem eru kunnir í veraldarsögunni, en Hergé er einn
fárra Um þessa helgi var myndin frumsýnd víða en verður sýnd seinna í Bandaríkjunum