Morgunblaðið - 31.10.2011, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 304. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Hafa fundið 14 milljarða evra
2. Maður skorinn á háls í …
3. Frumkvöðull og baráttumaður …
4. Einn með allar tölur réttar
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Í bókinni Táknin í málinu eftir Sölva
Sveinsson er gerð grein fyrir merk-
ingu, sögu og birtingarmyndum mörg
hundruð tákna og tilvísana í bók-
menntir. Kolbrún Bergþórsdóttir
ræddi við Sölva. »26
Morgunblaðið/Golli
Fimmtán ára vinna að
baki nýrri bók Sölva
Ný djasstón-
leikaröð hefur
göngu sína á Kex
hosteli á morgun
kl. 20.30. Þá stíg-
ur á pall Latín-
kvartett Tómasar
R. Einarssonar en
hann skipa, auk
Tómasar, Samúel
J. Samúelsson á básúnu, Ómar Guð-
jónsson á gítar og Matthías Hemstock
á trommur. Tónleikarnir standa yfir í
um tvo tíma og er aðgangur ókeypis.
Djasstónleikaröð að
hefjast á Kex hosteli
Annað Fuglabúr FTT í vetur verður
á Café Rósenberg annað kvöld kl. 21.
Sem fyrr leiða saman hesta sína
listamenn ólíkra kynslóða og í þetta
sinnið eru það feðgarnir
Snorri Helgason og
pabbi hans, Helgi P.,
oft kenndur við Ríó
tríó. Gaman verður
að heyra útkomuna
þegar þeir feðgar
spila lög hvor
annars.
Feðgar syngja lög
hvor annars
Á þriðjudag Norðan 13-18 m/s, snjókoma og vægt frost á norðan-
verðu landinu, en hægara og bjart syðra og hiti 1 til 6 stig.
Á miðvikudag NA 15-20 m/s og snjókoma NV-lands. Hvessir með
talsverðri rigningu A-lands um kvöldið og hlýnar í veðri.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Lægir og styttir víða upp S- og A-lands en
vaxandi NA-átt með rigningu A-til í kvöld. Hiti 0 til 8 stig.
VEÐUR
Guðjón Pétur Lýðsson var
ekki alls fyrir löngu leik-
maður með þriðjudeildar-
liði Álftaness. Eftir stutta
dvöl í Svíþjóð er hann
orðinn sænskur meistari
með Helsingborg og gæti
bætt bikarmeistaratitli í
safnið um næstu helgi.
„Það er svona þegar
maður er sveitastrákur.
Það er hugarfarið sem
kemur manni langt,“ seg-
ir Guðjón. »4
Hugarfarið kem-
ur manni langt
Lagerbäck mætti í
heimsókn til Heiðars
Heiðar Helguson, leikmaður enska
knattspyrnuliðsins QPR, fékk óvænta
heimsókn í gær þegar Lars Lag-
erbäck, nýráðinn landsliðsþjálfari Ís-
lands, mætti til
London til að
reyna að fá
hann til að
hætta við
að hætta
að spila
með
landslið-
inu. »1
HK-ingar komu fram hefndum frá
síðasta vetri þegar þeir sigruðu
Akureyringa, 30:27, í N1-deild
karla í handbolta. HK er þar með
stigi frá toppsæti deildarinnar en
Akureyri hefur ekki unnið leik síð-
an í fyrstu umferð. „Við vorum
ekki búnir að gleyma síðasta
vetri,“ sagði Erlingur Richards-
son, annar þjálfara HK-liðsins. »3
Voru ekki búnir að
gleyma síðasta vetri
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Systurnar Díana Ósk og Karítas
Pétursdætur eru aðeins á þrítugs-
aldri en hafa nú þegar stofnað sitt
fyrsta fyrirtæki sem hannar föt.
Flíkurnar eru litríkar og kvenlegar
og engar tvær eins. Í hverja þeirra
eru saumuð jákvæð orð. „Við feng-
um þessa hugmynd út frá rann-
sóknum sem doktor Masaru Emoto
gerði á vatni,“ segir Díana Ósk. „Í
stuttu máli þá límdi hann orð utan á
flösku með vatni og frysti þar til
vatnið myndaði vatnskristal. Ef orð-
in voru falleg og kærleiksrík eins og
ást og kærleikur þá mynduðust fal-
legir kristallar en ef orðin voru ljót
og særandi eins og hatur urðu krist-
allarnir ljótir og jafnvel brúnir þótt
vatnið væri tært. Stór hluti líkama
okkar er vatn og því finnst okkur
skipta mjög miklu máli að við séum
með falleg orð í kringum okkur og
finnst þetta góð leið til þess.
Gallerí 21
Við systur höfum alltaf haft mik-
inn áhuga á fatnaði, ólumst upp við
mikinn saumaskap hjá mömmu og
ömmum okkar,“ segir Díana Ósk.
„Þannig má segja að við höfum
fengið þetta í arf. Við fórum út í
þetta núna því ég var að klára
nám og Karítas þurfti að
skipta um vinnu svo það var
tilvalið að prófa þetta og við
höfum ekki séð eftir því.
Við ákváðum að setja
ekki fyrir okkur að-
stæður þjóðfélagsins.
Ömmur okkar og afar
bjuggu á sínum yngstu
árum í torfkofum og við
höfum alla tíð hlustað á
sögur af lífsbaráttu
þeirra. Við kvörtum yfir
því að setja í eina, tvær
þvottavélar á dag, amma
okkar þurfti að ganga út að
læk til að þvo þvott af sér, afa og
níu börnum. Þegar maður veltir
þessu fyrir sér getur maður varla
annað en horft bjartsýnisaugum á
ástandið í dag. Við erum báðar
bjartsýnismanneskjur og viljum sjá
það jákvæða í lífinu frekar en það
neikvæða.
Við erum nýkomnar með hönnun
okkar í Gallerí 21 á Skólavörðustíg.
Við gerum okkur grein fyrir því að
kaupmáttur Íslendinga hefur
minnkað mikið en við förum út í
þetta varlega og erum mjög nýtnar.
Nú eru að koma jól og flest kaupum
við jólagjafir og jólaföt og viljum við
benda öllum á að koma til okkar þar
sem við erum bæði með fatnað og
gjafavöru í Gallerí 21 og tökum vel á
móti ykkur.“
Með jákvæðnina að vopni
Nýju fatahönn-
unarfyrirtæki
komið á kopp
Morgunblaðið/Golli
Bjartar Systurnar Díana Ósk og Karítas eru jákvæðar og vilja sem flest falleg og hvetjandi orð í kringum sig.
Kíra er íslenskt fatahönn-
unarfyrirtæki sem var ný-
lega stofnað af systrunum
Díönu Ósk og Karítas Pét-
ursdætrum. „Nafnið Kíra er
búið til úr uppáhaldsstöfum
okkar í íslenska stafrófinu,“
segir Díana Ósk. „Helsta
textílefnið sem við notum er
frá Afríku, það er handunnið
bómullarefni og er unnið
þannig að það er litað
ákveðnum lit, svo eru notuð til
dæmis laufblöð eða útskornir tré-
stimplar til að gera munstur í efn-
ið. Við notum svo ýmis önnur efni í
bland við afríska efnið í hönnun
okkar sem við kaupum þá yfirleitt
hér á Íslandi. Fatnaðurinn er litrík-
ur og kvenlegur og eru engar tvær
flíkur eins. Í hverja flík er saumað
orð eins og til dæmis ást, kær-
leikur og fleiri slík orð. Jákvæðni
er mjög mikilvæg,“ segir Díana.
Flíkur með fallegum orðum
KÍRA – FATAHÖNNUNARFYRIRTÆKI