Birtingur - 01.06.1967, Síða 40
SIGURÐUR JÓN ÓLAFSSON: SERGEI M. EISENSTEIN
Rússneski kvikmyndaleikstjórinn Sergei M.
Eisenstein kom fyrstur fram með kenninguna
um mikilvægi myndskiptingar (montage) í
kvikmyndagerð. Eisenstein raðaði saman á
myndfletinum mörgum myndum og lagði
meiri áherzlu á klippingarnar en títt var um
expressionistana þýzku, sem aftur á móti
lögðu megináherzlu á hreyfanleika kvik-
myndavélarinnar. En einmitt um sama leyti
og Eisenstein hóf formbyltingu sína í kvik-
myndagerð, hafði expressionisminn lifað sitt
fegursta. Nútíma kvikmyndahöfundar, eink-
um þeir, er stóðu að „nýju frönsku bylgj-
unni“, hafa hins vegar tileinkað sér fremur
tækni expressionistanna en snögga myndröð-
un Eisensteins. Þó fáir hafi orðið til þess að
taka upp aðferð Eisensteins í kvikmyndagerð,
eru kenningar hans samt mikils metnar af
fjölmörgum kvikmyndamönnum.
Sergei Eisenstein fæddist 1898, og rúmlega
tvítugur gerðist hann leikmyndateiknari og
leikstjóri við Alþýðuleikhúsið og Frjálsa leik-
húsið. Setti hann þá m. a. á svið leikrit Ost-
rovskis, Öllum getur yfirsézt, en við þessa
leiksýningu hófst samvinna þeirra Grigori
Alexandrov, en sá frómi maður heimsótti ís-
land fyrir nálega tveim árum, og kvaðst hann
ætla að fullgera Mexíkó-mynd Eisensteins,
þrátt fyrir samvinnuslit þeirra um þær mund-
ir, er sú mynd var gerð.
1924 gerði Eisenstein sína fyrstu kvikmynd -
Verkfall. Átti hún að vera þáttur í flokki
kvikmynda um sögu rússneskrar byltingar-
hreyfingar. Var kvikmyndin verðlaunuð á
l’Exposition des Arts í París árið eftir.
Næst kom sú fræga kvikmynd, Beitiskipið
Potemkin, sem er líklega gleggsta dæmið
um hæfileika Eisensteins, varðandi kenningar
hans um myndröðunina og allar samskeyt-
ingar og sú kvikmynd, sem orðið hefur hon-
um til mestrar frægðar og er af mörgum sér-
fræðingum um kvikmyndalist talin bezta
mynd, sem nokkurn tíma hefur á tjaldi sést,
en hún hlaut einmitt þannig viðurkenningu
á heimssýningunni í Brússel. Beitiskipið
Potemkin er gerð í anda byltingarinnar
miklu og krafti áróðursins og hafði á sínum
tíma geysimikil og örvandi áhrif. En undir-
tónninn er samt bræðralagsandinn. Meira
hefur verið rætt og ritað um þessa kvikmynd
en nokkra aðra; þó hefur enginn fjallað meira
um hana en sjálfur höfundur hennar. Einn
kafli myndarinnar, þátturinn á Odessa-þrep-
unum, er án nokkurs efa frægasta atriðið í
kvikmyndasögunni hingað til. Myndin hefur
verið bönnuð og klippt, en enginn hefur ef-
azt um verðleika hennar. Sagt er, að Carl
Mayer, sem skrifaði handrit að mörgum
þekktustu kvikmyndum expressioniska tíma-
bilsins og var einhver mesti hvatamaður þeirr-
38
BIRTINGUR