Birtingur - 01.06.1968, Side 36
kosti og þægindi. Gatna- og leiðslugerð
minnkar, bílastæðum og bílferðum fækkar
miðað við íbúafjölda. Bíllinn verður aftur
lúxus en ekki brýn þörf innan borga.
Borgir byggðar á þessu hugmyndakerfi verða
því jafnólíkar gömlu borginni og nýju úthverf-
unum. Fiestir skipuleggjendur sem aðhyllast
þessa stefnu munu þó vona að þannig takist
að sameina í sama hverfinu, eins og beztu
gömlu borgirnar gerðu, aristokratiska kyrrð
og örvandi sýningu á mannskepnunni og verk-
um hennar. Aðaskipulag Reykjavikur er í öll-
um meginatriðum gert í samræmi við Aþenu-
sáttmálann frá 1933 án breytinga, sem máli
skipta. Það er því áhugavert að athuga það og
bera saman við síðari kenningar.
Nokkur atriði verða þá Jregar augljós: I gamla
miðbænum, Jrað er í kvosinni og við Lauga-
veg inn að Snorrabraut, þyrfti að sjá fyrir
7800 bílastæðum þegar hann er fullbyggður.
Aðalskipulagið segir að í mesta lagi verði
unnt að sjá fyrir 3400 stæðum á svæðinu, og
eru þá bílageymsluhús meðtalin. 4400 stæði
vantar. Starfsfólk í miðbæ á að þurfa 4000
stæði, viðskiptavinirnir, jr. e. við öll, fáum jrá
-i- 600 stæði.
Aðalskipulagið bendir á að draga má úr bíla-
stæðaþörf „með því að koma á (sic) strætis-
vagnana auknum flutningi starfsfólks“, með
Jsægilegri strætisvagnaferðum. En ekkert. af
þeim fjórum íbúðahverfum sem skipulögð
hafa verið eftir 1963 hafa minnstu möguleika
á að þar verði nokkurn tíma slíkar ferðir, og
eitt þeirra, Fossvogur, kemur beinlínis í veg
fyrir þær. Þótt allt starfsfólk kæmi í gamla
miðbæinn með strætisvögnum, sem er óraun-
hæft, vantar þar enn stæði.
Hvað þýðir þetta? Einfaldlega Jrað, að eftir að
búið er að gera rándýrt veganet til að komast
að og um miðbæinn, kaupa dýrustu lóðir bæj-
arins, rífa sum merkilegustu hús lrans, og ger-
breyta hinum smágerða ,,skala“ hans, geta bíl-
arnir ekki stanzað, og fyrirhöfnin er til lít-
ils. Einnig má geta Jress, að væri bílastæða-
þörf fyrir miðbæjarfúnktion fullnægt mætti
koma 4000 íbúðum fyrir á svæðinu, án þess að
bæta við einu bílastæði, og til gamans má geta
þess að nauðsynleg bílastæði samkvæmt for-
sögn hinna erlendu sérfræðinga Jrekja tvisvar
sinnum stærra svæði en kvosin.
Lítum næst á nýja miðbæinn: svæðið sem hon-
um er ætlað er ca. 40 HA í fyrsta áfanga og
þar munu rísa 200.000 til 300,000 m2 skrif-
stofu- og verzlunarhúsnæðis. Það Jrýðir að bíla-
stæði munu taka þar 20—30 HA eða 50—75%
svæðisins, sem aftur þýðir að Jj.au verða neðan-
jarðar eða í bílageymsluhúsum að mestu. Þá
verður truflun af bílaumferð úr sögunni, og
byggja mætti á svæðinu íbúðir fyrir 12000—
20000 íbúa ásamt öðru húsnæði og án þess
34
BIRTINGUR