Reykvíkingur - 16.05.1928, Page 29

Reykvíkingur - 16.05.1928, Page 29
REYKVIKINGUR 29 komisi hiin ekki í blaðið. Ég verð þá að skrifa aðra grein um sfúlkurnar í næsta tölublað »Reykvíkings«, þvi jeg var rét* að byrja. En vel á minst; get- ur það verið að það sé 2000 kvenmönnum fleira héríReykja- vík en karlmönnum? Ef þetta er satt, hvernig eiga þær allar að geta gifst? Ég trúi nú varla að það sé svo mikið meira af kvenfólki hér en karlmönnum, en við sjáum nú til, ég ætla að vera búinn að telja allar stúlkurnar í Reykjavík áður en næsta blað kemur út. Stafkarl■ Greiðinn sem hún bað um. w*vw „Verið sælar", sagði hann raunalegur á svipinn. „Og munið það, að þó ég viti að þér getið ekki elskað mig, þá mun ég altaf vera vinur yðar, og þætti vænt um að mega gera yður greiða- Verið nú sælar, ég legg af stað til Ástralíu í kvöld". „Mér þykir það leiðinlegt", sagði hún, „að hafa orðið til reka yður svona langt að heim- an. En úr því þér bjóðið mér að gera mér greiða, þá ælla ég að biðja yður að láta tyrir mig bréf í póstkassa, á leið- inni til skipsins". Góð bending. Sveinn og Gunna fylgdust heim frá markaði. Sveinn bar grís undir annari hendinni, og stóran pappakassa undir hinni. Alt í einu fer Gunna að hraða sér. Hvað gengur á, segirSveinn, ég missi alveg af þér- Já, en ég var hrædd um að þú myndir kyssa mig, sagði Gunna og roðnaði- Ekki get ég kyst þig þegar ég hef grís undir annarj hend- og pappakassa undir hinni- Já, þú gætir látið kassann hérna á vegarbrúnina og grísinn ofan í hann, sagði Gunna. »Hvaða munur cr á fimmeyr- ingi og tuttugu og fimmeyringi«? »Annar er úr kopar, en hinn —« »Bull, 20 aura munur!« Líkkistusmiðurinn: Utförin kostar öll 300 krónur. Maðurinn: Þrjú hundruð krón- ur! Pað er sannarlega orðið dýrt að lifa nú.

x

Reykvíkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykvíkingur
https://timarit.is/publication/854

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.