Reykvíkingur - 16.05.1928, Blaðsíða 32

Reykvíkingur - 16.05.1928, Blaðsíða 32
R E Y K V 1 K I N G U R 32 „Veistu Jónki að í Ameríku er kona, sem er yo ára og hefur eignast tvíbura11. „Ertu með dellu?“ „Nei, hún eignaðist pá fyrir 60 árum“. Faðirinn (fokvondur). Ég skal svei mér kenna yður að kyssa hana dóttur mína. Pilturinn: Þakka yður fyrir, en nú er ég útlærður. Dómarinn: „Eruð pér giftar? Konan: „Já tvisvar11. Dómarinn: „Aldur?“ Konan: „24 ára“. Dómarinn: „Einnig tvisvar?“ Hinn hamingjusami eiginmaður sendi svohljóðandi símskeyti til tengdaforeldrasinna: „Guðrún het- ur eignast tvíbura.^Vellíðan. Meira á morgun.“ Ljósmyndarinn: Myndin mundi verða eðlilegri, ef erfinginn legði hendina á öxlina á yður. Faðirinn: Það væri eðlilegra el hann hetði hendina í vestisvasa mínum. „Konan mín er flúin með bif- reiðarstjóranum, sem var hjá okk- ur“. „Nú, |)að er bara svona! Ég hef altaf ætlað að ráða til mín bilreiðarstjóra, og ég held að ég dragi það nú ekki lengur". Nonni: Mamma, það át strákur páskaeggið, sem pú galst mér áðan. Mamma Nonna: Það gerir ekk- ert til drengur minn, pú mátt taka hitt eggið. En hvaða strákur var pað ? Nonni (um leið og hann vind- ur sér út með eggið): Það var ég, mamma! Jón: Konan mín hefur pann slæma ósið að vaka langt fram á nótt. Magnús: Hvað er hún að gera á fótum svo lengi? Jón: Hún er að bíða eftir að ég komi heim. Frúin: Þvoðuð pér silunginn Guðríður, áður en pér létuð hann í pottinn? Vinnukonan: Nei, pað gcrði ég ekki. Hvað átti ég að fara að pvo hann, sem alla sína æfi hefur verið í vatni? Læknirinn: Ég er búinn að skrifa upp hér pað sem pér megið neyta: Égg, grænmeti, dálítið af öli . . . . Sjúklingurinn: Bara að öl standi á seðlinum, pá er mér sama um hitt. *• Hólaprentsmlðjan 1928,

x

Reykvíkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykvíkingur
https://timarit.is/publication/854

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.